Morgunblaðið - 17.08.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.08.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR FERÐALÖG FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995 17 Blómkálið ríkt af C vítamíni og kalíum ÍSLENSKT blómkál er ódýrt þessa dagana og um að gera að borða sem mest af því á meðan það er nýtt og vítamínríkt. I blómkáli er mikið af C- vítamíni og kalíum og tölu- vert er af beta-karótíni í því. Ekki er þessi grænmetisteg- und fitandi því í hundrað grömmum eru að meðaltali um 36 hitaeiningar. Margir borða grænmetið hrátt, sumir snöggsoð- ið, aðrir steikt en síðan er blómkál mjög gott ofnbakað með sósum eða osti. Leggið kállðíbleyti Áður en borða á blómkál borgar sig að leggja það í bleyti til að ná úr því lirfum og skordýrum. Skerið grænu blöðin frá og grófasta hluta stilksins. Skolið og skerið kross- skurð í stilkinn. Blómkálið er sett í kalt vatn og sumir blanda í það örlitlu ediki. Látið standa í hálftíma eða lengur. Hrátt er blómkálið gott í salöt eða sem snarl með ídýfu. Ef sjóða á það þarf að passa að láta það ekki vera of lengi í vatninu því það kann að linast ef það sýður of lengi. Frystlð grænmetið Á meðan blómkálið er á innan við hundrað krónur kílóið er hag- stætt að frysta birgðir fyrir vetur- inn. Grænmetið þarf að snöggsjóða svo ekki tapist mikið af C-vítam- íni. Blómkálið er snyrt til og skor- ið í hæfilega stóra bita. Vatn er hitað að suðu og það síðan látið sjóða í 2-5 mínútur eftir stærð bit- anna. Látið renna vel af því og pakkið í poka eða ílát. Kælið og frystið. Það má líka frysta blómkál í heilum hausum ef vill þ.e.a.s. svo fremi sem það er ekki laust í sér. Þegar sjóða á frosið grænmeti á ný er það sett í sjóðandi léttsaltað vatn og látið sjóða í nokkrar mínút- ur. Blómkálsréttur Reynir Magnússon matreiðslu- meistari á Hótel Sögu gefur les- endum uppskrift að góðum blóm- kálsrétti sem bera má fram sér eða sem meðlæti með fiski eða kjöti. ________1 stór blómkálshous_______ ____________2 dl rjómi_______ ______Maizena (til þykkingar)_____ salt og hvítur pipar __________2 eggjarauður 300 g rifinn ostur ______Má bera fram með kjöti______ og steiktum fiski, Blómkálið er skolað og hreinsað og síðan skorið í hæfilega bita. Sett í saltvatn og soðið. Að lokinni suðu er það snöggkælt í köldu vatni. Soðið af blómkálinu er soðið niður þar til eftir er um það bil 0,6 lítrar af góðu soði. Rjóma bætt út í og þykkt með maizena, sósan þarf að vera vel þykk. Um 150 grömmum af osti er hrært í sósuna og hún síðan krydduð með salti og pipar. Þeytið eggjarauður út í þegar sósan hefur aðeins kóln- að. Blómkálið er sett í eldfast mót, sósu hellt yfir og rifnum osti stráð yfir. Bakað í ofni á 150oC í um 25 mínútur. í lokin er osturinn gljáður og blómkálsrétturinn bor- inn fram heitur. ■ Kjúklingaskinka í nýjar umbúðir KJÚKLINGASKINKAN, sem framleidd hefur verið hjá Reykja- garði hf. um nokkurt skeið, hefur nú verið sett í nýjar umbúðir. Kjúklingaskinkan er fitusnauð og léttreykt. Góð aðsókn að Hótel Eddu á Skógrim Selfossi. MJÖG góð aðsókn hef- ur verið að Hótel Eddu á Skógum undir Eyjafjöllum. Helsta aðdrátt- arafl gestanna er hið rómaða mat- arhlaðborð og gestir koma langt að til þess eins að eiga notalega stund á Skógum og njóta matarins sem útbúinn er í eldhúsi hótelsins. „Maður veit aldrei hvað það koma margir í mat. Það eru dæmi um að bílastæðin hérna fyllist kvöld eftir kvöld. Það er ákaflega gaman að geta boðið upp á þetta hérna og staðið við það ár eftir ár,“ sagði Jón Grétar Kjartansson, hótelstjóri á Skógum. Boðið hefur verið upp á matar- hlaðborð á Skógum síðastliðin 13 ár og undanfarin fjögur ár hefur verðið verið það sama, 1.890 krón- ur. Hótelið hefur getið sér gott orð fyrir þennan þátt í starfsem- inni en matarhlaðborðið er ekkert Morgunblaðið/Sig. Jóns. JÓN Grétar Kjartansson hótelstjóri ásamt Lilju Björk Kristjáns- dóttur og Helgu Maríu Albertsdóttur. auglýst sérstaklega en þess er getið í erlendum ferðahandbókum þar sem ferðamenn eru hvattir til að koma við á Skógum til þess að reyna matarhlaðborðið. Jón Grétar sagði það einnig sérstak- lega ánægjulegt að nú kæmi varla svo það kvöld að ekki væri ein- hver úr sveitinni í mat. Hótel Edda á Skógum starfar frá 10. júní til 29. ágúst. Jón Grétar sagði alveg mögulegt að starfa lengur fram á haustið en starfstíminn væri bundinn skólan- um sem þyrfti húsnæðið í byrjun september. Hann sagði að það væri draumurinn að nýtt Eddu- hótel risi á Skógum, það væri alveg grundvöllur fyrir því á þess- um stað eins og víða annarstað- ar. Hjá Hótel Eddu á Skógum starfa 13 manns. Þórsmerkurganga Útivistar Borgabækl- ingur Flugleiða EINS og sjá hefur mátt í auglýsing- um er bæklingur Flugleiða um haustferðir til ýmissa Evrópu- borga og Balti- more og New York í Bandaríkj- unum kominn út. Þar eru ferðir frá því að menn gista í eina nótt og upp í 7 daga ferðir. Útlátaminnst er í ferð til Glasgow með einnar nætur gistingu á Charing Cross Tower og kostar það 17.800 kr. Evrópuborgirnar eru auk Glasgow, London, Amsterdam, Lux- emburg, Trier, Kaupmannahöfn, Amsterdam og Hamborg. Allar borgirnar hafa um árabil verið vin- sælir áningarstaðir íslenskra gesta í haustferðum. í bæklingnum eru skilmerkilegar og gagnlegar upplýsingar um hvað er í boði af afþreyingu, menningu og matsölustöðum. Birtar eru stuttar en hagnýtar upplýsingar um gisti- staði Flugleiða á þessum stöðum. OFT hafa Þórsmerkurfarar haft á orði að gaman væri að skoða gil og gljúfur á Þórsmerkurleið, að því er Einar Egilsson segir. En yfirleitt er farin hraðferð og látið nægja að njóta útsýnis, litbrigða í gróðri og rifja upp sögur og sagnir eins og tilheyrir. En nú segir Einar að tækifæri gefíst til að láta_ óskina rætast; á 20 ára af- mæli Útivistar er boðið til þriggja dagsganga úr einni vinsælustu rað- göngu félagsins, Þórsmerkur- göngunni. Farið verður með hálfs mánaðar millibili í ágúst og septem- ber. Ekið úr bænum kl. 8 f.h. og komið heim að kvöldi. Fyrsta gangan er sunnudag 20. ágúst Gangan hefst ofan Stóru-Merkur við Bæjargil, sem er djúpt, mikilfeng- legt gljúfur þar sem skiptast á þver- hníptir hamrar og grashvammar. Næst er Nauthúsagil sem lætur ekki mikið yfir sér en er þröngt og djúpt með fögrum fossi í gilsbotni. Göngunni lýkur í Selgili. Önnur gangan er 3. september og hefst hún við drangana í Selgili sem í fjarska líkjast steinrunnum tröllum eða smalanum og smalastúlkunni. Farið er inn Fremra-Grýtugil og gengið bak við fossbununa og litið upp eftir einni algengustu uppgöngu- leið á Eyjafjallajökul. Yfir Smjörg- ljúfur er að myndast ásjálegur skrið- jökull og jökulsá sem þarf að fara yfir áður en haldið er yfir jökulgarð- inn að Gígjökli, skriðjökli sem sígur fram af toppi jökulsins niður í lón. Síðar verður svo sagt frá þriðju og síðustu göngunni sem er þann 23. september. La Manga á Spáni 20.-30. sept. La Manga golfsvæðið er talið vera eitt það besta á Spáni og í Evrópu. Dvalið verður í Bellaluz en íbúðirnar þar eru mjög góðar og vel búnar. Fjöldi verslana og veitingastaða og aðstæður til golfiðkunar eins og best verður á kosið. (Þrír 18 holu golfvellir á svæðinu). Verðdæmi: Fjórir saman í íbúð með 2 svefnh. 53.030 kr.* Tveir saman í íbúð með 1 svefnh. 58.070 kr.* Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis, ísl. fararstjórn og skattar. Félagar í golfferðaklúbbi SL fá 5.000 kr. afslátt af ferðinni til La Manga gegn framvísun skírteinis. Cork á írlandi 8.-13. okt. í nágrenni Cork er að finna nokkra af bestu golfvöllum Irlands. Gist verður á hinu rómaða „Jurys hotel“ þar sem aðstaða er mjög góð. Verðdæmi: Á mann í tvíbýli: 29.765 kr.* Innifalið: Flug, gisting með morgunverði, aksturtil og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og skattar. Fararstjóri í báðum ferðunum verður Kjartan L. Pálsson TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI ‘Staðgreitt á mann. Sami/iiwiiferðir-L anús ýn Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 5691010 • Slmbréf 552 7796 og 569 1095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 5691070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnarfjörflur: Bæjarhrauni 14 • S. 5651155 • Símbréf 565 5355 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 • Slmbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Símbréf 431 1195 V/SA Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Slmbréf 461 1035 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Slmbréf 481 2792 . BATIAS& EUROCARO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.