Morgunblaðið - 17.08.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERIMU
A
Urskurðarnefnd hækkaði rækjuverð til áhafnar um 5 krónur
Sjómennirnir kröfðust
125 kr. en fengu 90 kr.
Verð á rækju til áhafnar báts í Stykkishólmi
hækkar um 5 krónur samkvæmt niðurstöðu
úrskurðamefndar um fiskverð. í samtölum
Helga Marar Amasonar við fulltrúa sjómanna
kemur fram að þeir em óánægðir með úrskurð-
inn enda höfðu þeir farið fram á 40 kr. hækkun.
FULLTRÚAR sjómanna í úrskurð-
amefnd eru ekki sáttir við fyrsta úr-
skurð nefndarinnar sem kveðinn var
upp á mánudag. Nefndin úrskurðaði
í ágreiningsmáli rækjuvinnslu Sigurð-
ar Ágústssonar hf. í Stykkishólmi og
rækjubátsins Svans SH sem er í eigu
fyrirtækisins. Útgerðin bauð 85 kr.
fyrir kílóið en áhöfnin krafðist 125
kr. Ekki hafði náðst samkomulag í
nefndinni og kom því til kasta odda-
manns í fyrsta skipti frá því nefndin
var stofnuð og var niðurstaða hans
um 90 kr. rækjuverð studd af þrem
fulltrúum útvegsmanna í nefndinni.
Samkomulag náðist í tveimur öðrum
málum sem lágu fyrir nefndinni en
eitt mál er enn óleyst.
í úrskurði nefndarinnar segir að
í gögnum sem nefndin safnaði varð-
andi málið komi fram að rækjuverð
hjá kaupendum á Breiðafjarðarsvæð-
inu hafi hækkað frá síðasta ári en
upplýsingar fengust frá sjö kaupend-
um og tveir þeirra skera sig úr hvað
verð snertir og borga allt upp í 125
krónur fyrir kílóið. Áhöfn Svans SH
heldur því fram að þar sem þessir
aðilar stundi ekki útgerð, felist ekki
greiðslur fyrir kvóta í verði þeirra
og því sé það hærra.
Nefndin kveður upp þann úrskurð
að Sigurður Ágústsson hf. skuli
greiða áhöfn Svans SH 90 krónur á
kílóið af stórri rækju þegar tillit sé
tekið til meðalverðs einstakra fram-
leiðenda, hækkunar afurðaverðs og
þess verðs sem hefur verið greitt á
svæðinu og skuli þessi úrskurður
gilda í samskiptum málsaðila til 20.
september nk.
Ágreiningur myndaðist milli
áhafnar Svans SH og Sigurðar Ág-
ústssonar hf. í sumar vegna rækju-
verðs. Fyrirtækið bauð áhöfn skips-
ins 85 krónur fyrir kíló af rækju þar
sem voru að 270 stk. í kílói. Áhöfnin
gat ekki sætt sig við það verð og
sendi málið til úrskurðarnefndar út-
vegsmanna og sjómanna sem starfar
samkvæmt ákvæðum í síðustu kjara-
samningum. Þess var krafist að
greiddar yrðu 125 krónur fyrir kílóið
af rækju af þessari stærð og var
krafan m.a. rökstudd með hækkun
afurðaverðs og að kaupendur á
Breiðafjarðarsvæðinu sem byðu nán-
ast sama verð og í fyrra, eða milli
70-80 krónur, stæðu í umfangsmikl-
um kvótaviðskiptum, sem hefðu áhrif
á kaupverð og það sé bannað sam-
kvæmt lögum um skiptakjör og
greiðslumiðlun.
Sama verð og annars staðar
Sigurður Ágústsson hf. byggði til-
boð sitt á þeim forsendum að verð á
rækju hjá rækjukaupendum á Snæ-
fellsnesi væri á bilinu 86-88 krónur
frá apríl og til og með júní á þessu
ári. Þar að auki hafi útgerðin gert
samning við áhöfn Hamrasvans SH,
sem er einnig í eigu fyrirtækisins,
sem hljóði upp á það sama og áhöfn
Svans var boðið. Útgerðin bendir
jafnframt á að meðalverð á rækju á
landinu öllu hafi verið 81,71 króna
í maí á þessu ári og verð það sem
áhöfn Svans hafi verið boðið upp á
víki aldrei frá því verði sem greitt
hafi verið við Breiðafjörð eða annars
staðar á landinu.
Útgerðin varaði við að einblínt
væri á hækkun afurðaverðs við
ákvörðun á rækjuverði, þar sem ekki
hafi verið tekið tillit til þess, í verð-
lagningu til sjómanna, er afurðaverð
lækkaði síðastliðin ár og skapaði
mikla erfiðleika fyrir rækjuvinnsl-
urnar. Áhöfn Svans SH mótmælti
því að mið væri tekið af samningi
Útgerðarinnar við Hamrasvan SH,
þar sem ekki hafí verið rétt staðið
að gerð hans.
Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra-
félags Islands, situr í úrskurðarnefnd-
inni og segist hann hafa verið á móti
úrskurðinum og niðurstaðan hafi
markast of mikið af hagsmunum
þeirra sem séu að braska með veiði-
heimildir. Hann segir að verð á rækju
upp úr sjó sem sé mengað af kvótavið-
skiptum sé ekki viðmiðunarhæft. Auk
þess hafi ekki verið tekið nægilegt
tillit til hækkunar afurðaverðs en það
hafi hækkað í kringum 50% frá liðnu
ári á meðan verð sumra kaupenda
hafí staðið í stað á milli ára.
Guðjón Ármann. Einarsson, for-
maður Skipstjóra- og stýrimannafé-
lags íslands, tók í sama streng og
sagði að það sæist best á því hvern-
ig úrskurðurinn var samþykktur að
hann væri útgerðinni í hag. Hann
taldi einnig að í lægri verðum sem
komu fram á svæðinu hafi verið um
kvótaviðskipti að ræða. Guðjón taldi
ekki að þessi úrskurður hefði for-
dæmisgildi, hér væri aðeins um eina
áhöfn og eitt mál að ræða. „Það eru
svo margar útgáfur í verðflórunni.
Til dæmis er iðnaðarrækja vinnslu-
skipanna, sem er mun smærri en
rækjan sem hér um ræðir, að fara á
mun hærra verði."
Sigurður Þórarinsson, skipverji á
Svani, segir að áhöfn skipsins hafi
vonast eftir hærra verði og sé því
ekkert himinlifandi með þennan úr-
skurð nefndarinnar. Hann segir samt
að væntanlega verði ekkert aðhafst
frekar í málinu.
Ellert Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Sigurðar Ágústssonar hf.,
kvaðst ekki hafa fengið úrskurð
nefndarinnar í hendur þegar blaðið
ræddi við hann í gær.
Samkomulag í tveimur málum
í úrskurðarnefndinni náðist sam-
komulag í ágreiningsmálum milli
áhafnar Viðeyjar RE og Granda hf.
annarsvegar og áhafnar Nökkva HU
og Særúnar hf. á Blönduósi hinsveg-
ar. Ekki kom því til úrskurðar odda-
manns í þessum málum.
Áhöfnin á Nökkva fær 98 kr. fyr-
ir kílóið af iðnaðarrækju úr tilteknum
túr en áður var búið að bjóða þeim
85 kr. Grandi greiðir áhöfn Viðeyjar
60 kr. fyrir kíló af 1-2 kg þorski í
stað 58 kr.
UFPSLanir Iringlunna
v E R SLAW 1 K í it-rcnT. IIUNA
S L A
Jnn í utsölurnar
föstudug og
Rýmum lyrir nyiiiÍLi, vörum
1IÖRURHAR ÚIR GÖTU ■ HERÐIÐ HIÐIIR UR OLLU UALDI
-■« á laugardaginn
kkingw
Opið til Kl-
,18
D FIMMTUDAG FRÁ 10-18.30, FÖSTUPAG
- gatan mín -
BDÁ 4 n -< n i r. 11 r a d n * e en A