Morgunblaðið - 17.08.1995, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig á 95 ára afmœli mínu 11. ágúst meÖ hlýj-
um kveðjum, gjöfum og blómum.
Guö blessi ykkur öll.
Ágúst Benediktsson,
Dalbraut 20,
Reykjavík.
HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ
V Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina?
/ Vilt þú auðvelda námið og bæta námstæknina?
V Vilt þú lesa meira af góðum bókum og njóta þeirra betur?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á næsta námskeið sem
hefst miðvikudaginn 30. ágúst n.k.
Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091
I ire/\l >I F.STfíARSKf>i IISIN
OPNUM Ú LHUÚáUíGI 70
FÖnUDHÚim 19. áC'ÚVT
dídó
— II 11111111 —
Foreldraþing
á Eiðum 26.-27. ágúst
njuint
- Grunnskólinn
og sveitarfélögin
Þóroddur Helgasoti,
skólastjóri Reyðarfirði
- Uppeldi, kemur
það af sjálfu sér?
Elísabet Berta Bjarnadóttir,
félagsráðgjafi
LANDSSAMTÖKIN
HEIMIU!
aiiAiÆjjiiiM rrm
- Líðan barna í skólum
- Að leysa ágreining
- Sveitaskólinn
- Foreldraráð
Dagskráin hefst
laugard. 26. ágúst
kl. 13 oglýkur á
sunnud. kl. 16.
Upplýsingar og
skráning hjá
Heimili ogskóla í síma 562 7475
fyrir mánudaginn 21. ágúst.
Allir foreldrar
velkommr
og börnin líka
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Sumarævintýri í
Laugardal
VIÐ ERUM tvær mömmur
sem áttum böm í sumar á
leikjanámskeiði að Engja-
teig 1. Okkur langar til að
lýsa ánægju okkar og skila
þökkum til Hermanns
Ragnars og Jóhanns Arn-
ars fyrir allt skipulag og
fyrir frábært námskeið
undir góðri stjóm og við
vonum að „Sumarævintýr-
ið“ haldi áfram sumarið
1996. Þökkum innilega
fyrir bömin okkar.
Tvær ánægðar mömmur
í Mosfellsbæ.
Abending um
forsetaefni
VALGERÐUR Sigurðar-
dóttir hringdi og kom með
ábendingu um forsetaefni.
Vildi hún benda á dr. Sig-
mund Guðbjarnason fv.
háskólarektor og konu
hans Margréti Þorvalds-
dóttur. Telur hún að þau
myndu sóma sér vel í þessu
embætti.
Ljótar aðfarir!
„ÉG GET ekki orða bund-
ist! Ég var stödd uppi í
sumarbústað við Hafra-
vatn sunnudaginn 6. ágúst
í blíðu veðri, vatnið spegil-
slétt. Við sonur minn sát-
um uppi í brekkunni og
sáum gæsirnar með unga
sína koma í einni breiðu
eins og þeirra er von —
syndandi í áttina til okkar
að austan — friður og ró
yfir öllu. Við höfum svo
oft horft á þær í gegnum
árin, heyrt þær rabba við
ungana sína. Þær halda sig
í einni breiðu með ungana.
En allt í einu kemur hrað-
bátur á ofsahraða og
stefnir á miðja breiðuna.
Við heyrðum veinin í gæs-
unum. Þótt þær gætu
forðað sér, gátu ungarnir
það ekki. Þetta endurtóku
þeir sem í bátnum voru
um leið og hópurinn þétt-
ist — aftur og aftur. Við
heyrðum sár harmahljóð í
fullorðnu fuglunum lengi
á eftir meðan þær komust
á land að vestanverðu með
það sem undan komst.
Það er fátt sem maður
sér sem vekur meiri við-
bjóð í sál manns en að
horfa upp á slíkar aðfarir
— ekki veit ég hvað þessir
menn hafa haft uppúr sínu
háttalagi. Ef til vill hafa
þeir haft eitthvað í matinn
— við sáum þá ekki tína
neitt upp — en harmahljóð
heyrðust lengi frameftir
kvöldi eftir aðfarir þeirra.
Vei þeim sem hafa slíkt
innræti.
Ingibjörg
Vilhjálmsdóttir,
Miklubraut 56,
Reykjavík.
Tapað/fundið
Bindisnæla tapaðist
í miðbænum
FALLEG bindisnæla (líkan
af skipi) tapaðist í mið-
bænum sl. laugardag.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 567 1426.
Fundarlaun.
Filma fannst í
Hljóðaklettum
TILEFNI þessa bréfs er
að sonur okkar fann filmu
í Hljóðaklettum fyrir norð-
an þann 28. júlí sl. Filman
er svart-hvít og sendum
við mynd með ef einhver
kannast við barnið á
myndinni. Á filmunni eru
líka myndir af leirlistar-
verkum og landslags-
myndir. í okkur er hægt
að ná í síma 567-2366.
Kristín og Birgir
Úr fannst
KARLMANNSÚR fannst
á veginum í Öskjuhlíð.
Uppl. í síma 554 4052.
Filofax
tapaðist
BRÚNN filofax tapaðist
úr kjallara á Kleppsvegi
14 sl. þriðjudag. Ér nafn
eiganda grafið í veskið. I
veskinu voru skilríki,
greiðslukort ásamt miklu
af persónulegum upplýs-
ingum. Kannist einhver við
að hafa fundið það vinsam-
legast hringið í símboða
84- 52452 eða bílasíma
85- 35813.
Gæludýr
Köttur tapaðist
LÍTILL, gulbröndóttur
fressköttur, mikið hvítur á
bringunni tapaðist úr Hát-
úni sl. mánudag. Hann er
ómerktur. Uppl. í síma 562
3977 og 562 6171.
SKÁK
Llmsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á opna
mótinu í Leeuwarden í Hol-
landi sem lauk fyrir
helgina í viðureign
stórmeistaranna An-
drei Kharlov (2.555), *
Rússlandi og Helga
Áss Grétarssonar
(2.440), sem hafði 5
svart og átti leik. Takið
eftir óvenjulegri stöðu 4
svarta kóngsins úti á ,
miðborðinu!
26. - Hxf3! 27. Dxb7 J
(27. Hxf3? - Rf4+ var ,
að sjálfsögðu vonlaust
með öllu) 27. - Hxfl
28. Da6+ (Forðast 28.
Kxfl Dd3! og svartur vinn-
ur) 28. - c6 29. Kxfl -
Hf8+ 30. Kel - Hb8 31.
Hd2 - Hbl+ 32. Hdl -
Hb2 33. Dc4 - Ke5!? 34.
Hcl - g5 35. Dg4 - Kf6
36. Hal - Rc3 og nú loks-
ins gafst hvítur upp.
Rússarnir Gleizerov og
Dvoiris sigruðu á mótinu
með 7 v. af 9 mögulegum.
Jóhann Hjartarson varð í
6-12. sæti með 6 v., Helgi
Áss í 13-22. sæti með 5‘/2
v. en Hannes Hlífar Stef-
ánsson var fjarri sínu besta
og hlaut 4 ‘/2 v.
Farsi
LEKUR ÞAKIÐ?
AFTUR!!!
,1
Ertu þreyttur á aö endurtaka
lekavijbgérð annað hvert ár eða svo!!
Nú gerir þú þakið vatnshelt með einni umferð
af Roof-Kote.
Taktu á málinu og kynntu þér möguleikana á
vliðgerðum með Roof-Kote, Tuff-Kote og
Tuff-Glass viðgeröarefnunum.
Efnin voru þróuð árið 1954 og hafa staðist
tímans raun.
Heildsala:
G.K. Vilhjálmsson
Smyrlahrauni 60
|Z^565 1297
Víkveiji skrifar...
KATTGREIÐANDI kom að
máli við Víkveija og var harla
reiður vegna þess óréttlætis sem
hann kvað viðgangast í þjóðfélag-
inu. Hann, daglaunamaður, sem
búinn var að koma upp börnum sín-
um og öllum til mennta, fór á skrif-
stofu skattstjóra og fletti upp skatt-
greiðslum nágranna sinna.
Kom þá í ljós að þrír nágrannar
hans greiddu engan tekjuskatt, en
eignaskattar þessara þriggja ein-
staklinga námu samtals rúmum 630
þúsund krónum. í útsvar greiddu
svo þessir aðilar tæplega 218 þús-
und krónur. í endurgreiðslu frá fjár-
málaráðuneytingu fengu svo skatt-
greiðendurnir þrír tæplega 559 þús-
und krónur.
Skattgreiðandinn, sem er venju-
legur launamaður, greiðir til ríkis-
ins meira en allir þessir þrír. Hann
býr í sömu götu og þremenningarn-
ir og hefur rétt ráð á að eiga einn
bíl, en þremenningarnir eru með tvo
og þijá bíla á hveiju heimili, sumar-
bústaði og fleira. Samt virðast þre-
menningarnir hafa aðeins um 800
þúsund krónur í árstekjur og því
er ekki að undra að hann spyrji:
Hvemig geta þessir menn lifað af
þessum launum, fætt sig og klætt
og staðið undir þeim útgjöldum,
sem felast í umfangsmiklum heimil-
isrekstri með mörgum farartækj-
um?
XXX
VÍKVERJI verður að segja að
hann skilur vel bræði þessa
manns og það einkum og sér í lagi,
þegar stjórnmálamenn hafa þegar
viðurkennt opinberlega að undan-
skot í þjóðfélaginu frá sköttum
nema hátt á annan tug milljarða
króna. Það er eitthvert brýnasta
réttlætismál að búa skattalög þann-
ig úr garði að skattbyrðin falli rétt-
látt á skattþegnana. Leiðrétting á
slíku þolir enga bið.
xxx
MIKLIR hitar hafa nú verið í
Evrópu og Bandaríkjunum
og er hvert hitametið slegið á þess-
ari öld ogjafnvel í manna minnum.
Það er ekkert grín fyrir fólk að
lenda í hitum sem slíkum, þegar
hitastigið fer jafnvel upp í 50 stig,
eins og gerðist á Spáni fyrir nokkr-
um dögum og í Chicago í Bandaríkj-
unum. Þá má segja að betra sé að
vera á íslandi, þar sem norðanáttin
blæs nöpur og menn geta farið í
lopapeysuna sína og vindþétta gall-
ann utan yfir. Menn geta betur
varizt kulda en hita.
Heitasta veður sem Víkveiji hef-
ur lent í var fyrir þremur sumrum
í Þýzkalandi, en þá fór lofthiti í
forsælu upp í 36 gráður og þótti
Víkveija alveg nóg um. Þá sagði
þýzka útvarpið að hitamet hafi ver-
ið slegið frá 1933 og síðan mun
þetta hitamet löngu fallið. Það virð-
ist því sem loftslag í Evrópu og
jafnvel í Bandaríkjunum líka sé eitt-
hvað að hitna og spurningin er,
hvort það sé af völdum þess gróður-
húsaástands, sem lengi hefur verið
talað um. En hvað sem því líður,
þá hugsa menn sem lenda í slíkum
hitum með angurværð til íslenzks
slagveðurs, sem er snöggtum
skárra en slíkir ofurhitar.