Morgunblaðið - 17.08.1995, Side 50

Morgunblaðið - 17.08.1995, Side 50
JACK& SARAH Perez fjölskyIdan lue Sýnd kl. 4.50, 7, 9 og 11.10. BRúðkaup muRiei Sýnd kl. 4.50, 7, 9 og 11.10. Sýnd kl. 5. Miðaveri kr: 350. 59,4 FI^M^.UDAGUR ,1,7. ,ÁGÚST. 1995 MOKGUN’JJIAyiÐ HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó STÆRSTA BIOIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. MEG RYAN Væntanlegar myndir í bíóið næstu vikur: CONGO, CASPER, INNOCENT LIES, WATERWORLD OG CARRINGTON. 50 15 1 1 KEVIN KLINE / Vinnuskóla slitið ►LOKAHÁTÍÐ Vinnuskóla Reykjavíkur var haldin við Laug- ardalshöll fyrir nokkru að við- stöddu fjölmenni. Hátiðin, sem er árlegur viðburður, var með metnaðarfullum svip að þessu sinni og fjölmargir skemmti- kraftar léku listir sínar við góðar viðtökur áhorfenda. Meðal ann- ars flutti Ferðaleikhúsið atriði úr söngleiknum Jósep og lians 'nmdraverða skrautkápa, leikhóp- urinn Theatre sýndi brot úr rokkóperunni Lindindin og full- trúar Loftkastalans tróðu upp með söngatriði úr Rocky Horror. Ennfremur var efnt til sýning- ar á teikningum unglinga og keppt var í hinum ýmsu íþrótta- greinum. Hátíðinni lauk svo með grillveislu þar sem gestir sporð- renndu pylsum og drykkjarföng- um í miklum mæli og var ekki annað að sjá en allir skemmtu sér hið besta, þrátt fyrir lítils- háttar vætu. Morgunblaðið/Sverrir BÖKUNAROFNAR Morgunblaðið/RAX Smekklega ósmekklegt TONUST Geisladiskur ÉGÁMÉRLÍF Ég á mér líf, geisladiskur hljóm- sveitarinnar Saktmóðigs. Saktmóð- ig skipa Karl Óttar Pétursson söng- vari, Ðavíð Ólafsson gítarleikari, Ragnar Ríkharðsson gítarleikari, Þorvaldur H. Gunnarsson trommu- leikari og Stefán Jónsson bassaleik- ari. Einnig konia við sögu Philip Rouhton langspilsleikari og Magn- ús Jesson gítarleikari. Logsýra gefur út í samvinnu við Smekk- leysu s/m hf. 1.899 kr., 70,04 mín. PÖNKSVEITIN Saktmóðigur vakti mikla athygli þegar hún kom fyrst fyrir augu og eyru almennings í Músíktilraunum fyrir nokkrum árum. Hún leikur klassískt pönk, með hljóðfæri í ólíkum tóntegundum og fáa hljóma og hefur haldið fast við sitt, þó hljómurinn hafi eilítið fágast eftir því sem liðsmenn hafa náð betri tökum á viðfang- inu. Saktmóðigur hefur áður gef- ið út tónlist, eina snældu og eina 10“ vínylplötu, aukinheldur sem sveitin hefur átt lög á safndiskum og ekki seinna vænna að senda frá sér breiðskífu. Eðli málsins samkvæmt svip- ar pönklögum ævinlega saman, en á plötunni má finna dæmi um að hljómsveitin sé að þróast út úr pönkinu, til að mynda í lögum eins og Himingeimur kall- ar jörð og Guðs útvaldir. Einnig er margt gott í titillagi plötunn- ar, Líkhamrinum, besta lagi plötunnar, og Fiflum samfélags- ins. Aðal Saktmóðigs er söng- ur/öskur Karls Óskars sem er allt í senn kraftmikill, falskur, skerandi og hugmyndaríkur. Til að mynda fer hann vel með ósmekklegan texta í laginu Ég vil ganga með þér heim þó ekki séu hljóðin alltaf fögur. Textamir eru mis kræsilegir. Stundum ná þeir að hitta naglann á höfuðið í beittri ádeilu, en oft eru þeir einfaldlega smekklausir og fyrir kemur að ádeilan er svo augljós að hún missir einfaldlega marks. Umslag plötunnar er smekklega ósmekklegt. Saktmóðigur heldur á lofti pönkhefðinni og gerir margt vel. Ég á mér líf mun þó alltaf höfða til þröngs hóps innvígðra, en þeir finna líka margt við sitt hæfí. Arni Matthíasson Kimberlea Jones búin að fá nóg TOMMY Lee Jones, sem fékk með- al annars Óskar fyrir leik sinn í spennumyndinni „The Fugitive" og lék síðast í Leðurblökumanninum að eilífu, er á góðri leið með að verða einhleypur á ný. Eiginkona hans, Kimberlea Jones, hefur sótt um skilnað og forræði yfir bömun- um þeirra tveimur, þriggja ára dótt- ur og 12 ára syni. Kimberlea er 37 ára gömul og 11 árum yngri en Tommy. í umsókn hennar um skiln- að sagði að 14 ára hjónaband þeirra væri „dauðadæmt".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.