Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B 200. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Farsíma- fár í Noregi Fjórða kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna sett í Peking Bhutto til varnar músl- imskum konum Reuter RÆÐA Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, við setning- arathöfn kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í gær vakti mikla athygli. Hér tekiir Jiang Zemin, forseti Kína, á móti henni. Osló. Morgunblaðið. FARSÍMAFÁR hefur gripið um sig í Noregi. í júlí og ág- úst keyptu fleiri farsíma en allt árið 1993 og er talið að eigendur farsíma nái einni milljón í haust. Nú eru rúmlega 900 þúsund farsímar í umferð í Noregi og jafngildir það því að þriðji hver Norðmaður, sem náð hefur 18 ára aldri, eigi farsíma. Fár þetta er rakið til mikils verð- stríðs, sem brotist hefur út milli símkerfa, ríkisfyrirtækis- ins Telenor Mobil og einkafyr- irtækisins NetCom. Farsímar hafa verið mjög ódýrir og teg- undir, sem teljast fullkomnar og alla jafna eru seldar dýru verði, hafa verið boðnar á svo lítið sem tíu íslenskar krónur. Þess finnast dæmi að allt að fímm hundruð krónur hafi ver- ið borgaðar með símunum. Nú er fárið hins vegar á enda. Tilboðin eru að hverfa af markaðnum og í vikunni, sem leið, hækkuðu farsímar að meðaltali um tíu þúsund krónur. Peking. Reuter. FJORÐA kvennaráðstefna Samein- uðu þjóðanna hófst í Kína í gær með athöfn í Alþýðuhöllinni í Peking. Mesta athygli vakti ræða Benazir Bhuttos, forsætisráðherra Pakistans. Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, flutti ávarp þegar Bhutto hafði lokið máli sínu og þakkaði Kínveijum gestrisnina. Mikið var um dýrðir við setninguna, en atburðir utan hallar- innar settu einnig mark sitt á upp- haf ráðstefnunnar. Bretar mæltust til þess að Kínveijar létu fundargesti óáreitta á ráðstefnusvæðum. 150 konur, sem voru í mótmælagöngu nokkur þúsund ráðstefnugesta, brut- ust í gær gegn um varnarmúr lög- regluþjóna. Bhutto vitnaði í Kóraninn máli sínu til stuðnings og sagði að þar væri ekki reynt að einskorða konur við heimilin. Hún vísaði til þess að þijár konur væru nú forsætisráðherr- ar múslimskra ríkja og bætti við: „Kosning okkar batt enda á þá goð- sögu, sem sprottin er af bannhelgum þjóðfélagsins, að staður konunnar sé á heimilinu, að það sé skammarlegt, vansæmandi eða félagslega ótækt að múslimsk kona vinni.“ Auk Bhuttos er þar um Begum Khaleda Zia, forsætisráðherra Bangladesh, og Tansu Ciiler, forsæt- isráðherra Tyrklands, að ræða. Síðasta stórvirki aldarinnar „Það að tryggja jöfnuð kvenna og karla er síðasta stórvirki tuttugustu aldarinnar," sagði í ræðu, sem flutt var fyrir hönd Boutrosar Boutrosar- Ghalis, framkvæmdastjóra SÞ. Kínveijar voru um helgina gagn- rýndir fyrir harkalegar öryggisráð- stafanir og var tilraunum þeirra til að koma í veg fyrir mótmæli jafnað við_ mannréttindabrot. I gær reyndu kínversk yfirvöld og embættismenn SÞ hins vegar að lægja þær öldur, sem ýfst hafa und- anfarna daga vegna hliðarráðstefnu óháðra samtaka um málefni kvenna. Winnie Mandela, konu Nelsons Mandela, forseta Suður-Afríku, var neitað um aðgang að setningarhátíð- inni vegna þess að hún og 20 manna fylgdarlið hennar kom of seint til hennar. Hún reyndi að bijóta sér leið inn í Alþýðuhöllina en öryggis- verðir stóðu fastir fyrir. ■ Margt hefur áunnist/6 ■ Vestrænn arfur/29 Reuter SfSjSp H9B9R| Hagfræðingur ESB gagnrýnir myntáform London. Reuter. BRETINN Bernard Connolly, sem er einn af æðstu hagfræðingum Evr- ópusambandsins, ræðst harkalega á áformin um peningalegan samruna ESB-ríkjanna (EMU) í bók sem kem- ur út síðar í mánuðinum. Kaflar úr bókinni voru birtir í The Times í gær og gaf framkvæmdastjórnin í Bruss- el í skyn að Connolly yrði hugsanlega vikið úr starfi vegna skoðana sinna. Connolly er yfirmaður mikilvægr- ar deildar innan ESB, sem fer með peninga- og efnahagsmál. í fyrsta kaflanum sem birtur er úr bókinni lýsir hann því yfír að embættismenn í Frakklandi og Þýskalandi hafi fyrir þremur árum gert samkomulag um að þýski seðla- bankinn myndi veita franska frank- anum ótakmarkaðan stuðning, ef gengi hans væri í hættu vegna spá- kaupmennsku á mörkuðum, en ekki öðrum evrópskum gjaldmiðlum. í forsíðugrein segir Times að Connolly spái því að peningalegur samruni muni leiða til togstreitu milli Frakklands og Þýskalands um völd í Evrópu er gæti endað með stríði. Er búist við að Evrópuand- stæðingar í íhaldsflokknum muni óspart beita rökum Connallys en bókin, sem ber heitið Hinn rotni kjarni Evrópu: Hin óprúttnu átök um gjaldmiðla Evrópu, kemur út 18. september. í við tali við útvarp BBC í gær segir Connolly, sem er í leyfí frá starfi sínu vegna bókaskrifanna, að hann reikni með þvi að halda áfram starfi sínu hjá ESB. Klaus van der Pas, talsmaður framkvæmdastjórn- arinnar, sagði hins vegar að Conn- olly hefði ekki fengið heimild til að rita bók þar sem fram kæmu skoðan- ir er gengju þvert á opinbera afstöðu framkvæmdastjórnarinnar. Umdeild hátíðahöld ÍSRAELAR hófu í gær hátíða- höld, sem standa munu í fimmtán mánuði, til að fagna því að þrjú þúsund ár eru liðin frá því að Davíð konungur lýsti því yfir að Jerúsalem væri höfuðborg gyð- inga. Hátíðahöldin í Jerúsalem hafa vakið mikla reiði leiðtoga Palestínumanna, sem vilja að Austur-Jerúsalem verði höf- uðborg þeirra. Evrópusambandið hafði að engu boð um að styðja menning- arviðburði á hátíðinni ojg sendi- herra Bandaríkjanna í Israel var ekki viðstaddur upphaf hennar. Mörg þúsund ísraelar komu til að sjá flugeldasýningu, sem hald- in var við upphaf hát iðahaldanna. Urslitafrestur SÞ um að umsátri um Sarajevo ljúki rennur út Serbar virðast draga sig í hlé Sarajevo. Reuter. SAMEINUÐU þjóðirnar (SÞ) sögðu í gær að svo virtist sem Bosníu-Serbar væru að búa sig undir að aflétta umsátrinu um Sarajevo og hverfa á braut með stórskotalið sitt. Frestur til að verða við úrslitakostum SÞ um að hætta umsátrinu rann út í gærkvöldi og lögðu talsmenn Atlantshafs- bandalagsins (NATO) áherslu á að enn kæmi sterklega til greina að hefja loftárásir á Bosníu- Serba að nýju. Aðeins nokkrum sekúndum eftir að fresturinn rann út heyrðust sprengingar í bæn- um Pale þar sem Bosníu-Serbar hafa höfuðstöðv- ar sínar. Blaðamenn í Sarajevo kváðust einnig hafa séð tvo blossa norður af Sarajevo, skammt frá skot- færaverksmiðju Bosníu-Serba. Um leið mátti heyra orrustuþotur NATO fljúga yfir. Talsmenn NATO sögðu hins vegar engar loftárásir hafa verið gerðar. Hermenn á vegum SÞ kváðust fyrr í gær hafa séð Bosníu-Serba draga vopn brott frá Sarajevo, en embættismenn SÞ vildu ekki draga miklar ályktanir af því og sögðu fátt bera því vitni að Bosníu-Serbar hygðust ganga að kröfum þeirra. Sjónvarpsstöðin Sky sýndi í gær myndir, sem Serbar sendu frá sér, af vopnaflutningum. Hafna bréfi Mladic Chris Gunness, talsmaður SÞ í Zagreb í Króat- íu, sagði skömmu áður en fresturinn rann út að Sameinuðu þjóðirnar hefðu hafnað bréfi þar sem Ratko Mladic, yfirmaður hers Bosníu-Serba, setti skilyrði fyrir því að stórskotaliðið umhverfis Sarajevo yrði kvatt á braut. Mladic sagði í bréfi til Bernards Janviers, herfor- ingja SÞ, að halda ætti friðarviðræður allra aðilja og kvaðst myndu greiða fyrir þeim með því að hætta hernaði við Sarajevo. Yfirmenn NATO sögðu Mladic ekki í aðstöðu til að gera kröfur. Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sagði í gær að Radovan Karadic, leiðtogi Bosníu- Serba, hefði sagt sér að hann hefði í hyggju að „verða að fullu við kröfum SÞ“. Haris Silajdzic, forsætisráðherra Bosníu, sakaði Carter í gær um íhlutun í málefni Bosníu og að halda uppi vörnum fyrir stríðsglæpamenn með því að tefja árásir NATO. Átökum umhverfis griðasvæði SÞ í Bihac linnti skömmu áður en fresturinn rann út. /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.