Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 23 LISTIR Michael Ende látinn ÞÝSKI rithöfundurinn Michael Ende, sem öðlaðist heimsfrægð fyr- ir barnabækur sínar „Sagan enda- lausa“ og „Mómó“ lést í síðustu viku, 65 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. „Sagan enda- lausa“ kom út árið 1979 og voru gerðar nokkrar kvikmyndir eftir henni. Þær sem mestra vinsælda nutu voru frá 1984, sem Wolf- gang Peterson gerði, ogfrá 1990, sem George Miller gerði . Sagan fjallar um ólánsaman dreng, Bastían að nafni, sem ferð- ast til draumalands þar sem álfar og aðrar furðuverur ráða ríkjum. Bækur Ende voru þýddar á þrjá- tíu tungumál og seldust í yfir 16 milljónum eintaka. Hlaut Ende fjöl- mörg barnabókaverðlaun í heima- landi sínu Þýskalandi og í Japan. Fyrsta bókin kom út árið 1960 og var mikið lesin. Bækur hans um Jim Knopf ruddu svo brautina fyrir bók- ina um Mómó, sem út kom árið 1973 og fjallar um litla stúlku sem á í baráttu við tímaþjófinn. Ende bjó á Ítalíu síðustu árin en fyrir sex árum giftist hann jap- anskri konu, Sato, sem þýddi „Sög- una endalausu“ yfir á japönsku. Ende ♦ ♦ Kaffileikhúsið Fyrsta sögukvöld vetrarins FYRSTA sögukvöld vetrarins í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum verður miðvikudagskvöldið 6. sept- ember. Sögukvöld Kaffileikhússins urðu fastur viðburður þar á bæ síð- asta vetur. Sögukvöld er samstarfs- verkefni Rithöfundasambands ís- lands og Kaffileikhússins og er til- gangur þeirra að fá fólk úr öllum áttum til þess að koma saman, hlýða á sögur og rækta um leið þá sagnahefð sem býr með þessari þjóð. Sögukvöldin verða annan hvern miðvikudag í allan vetur. Sagnamenn og konur fyrsta sögukvöldsins verða Einar Kárason rithöfundur, Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri, Úlfhildur Dagsdóttir skáldkona og Þrándur Thoroddsen kvikmyndamaður. Þjálfun radd- ar og heyrnar FIMMTA starfsár Kórskóla Lang- holtskirkju hefst 14. september. Aldurstakmark er átta ár. Kennarar við skólann eru Signý Sæmunds- dóttir óperusöngkona, Laufey Ólafsdóttir tónmenntakennari og Jón Stefánsson kantor við Lang- holtskirkju. Kennslugreinar eru tónfræði, tónheyrn og nótnalestur, raddþjálfun og samsöngur. Kennsla fer fram á þriðjudögum og fimmtu- dögum klukkan 17-18.20 og 17.50- 19.10. Markmiðið með skólanum er að veita börnum og unglingum stað- góða tónlistarmenntun með mark- vissri þjálfun raddar og heyrnar sem miðar að þátttöku í kórstarfi. 'síA oLri SAMliAND ISLENSKRA AUGLÝSINGASTOFA Lykill að markvissu og arðbæru auglýsingastarfi Ráðstefna á vegum SÍA á Hótel Sögu 15. september SÍA efnir til ráðstefnu 15. september nk. um Aug- lýsingar sem arðbært og árangursríkt mark- aðstæki. Til að fjalla um þetta mikilvæga málefni hefur SÍA fengið fjóra virta erlenda fyrirlesara til að koma til landsins. Allir standa þeir í fremstu víglínu og er því um að ræða einstakt tækifæri fyr- ir íslenska stjórnendur og markaðsfólk til að kynna sér það sem hæst ber á þessu sviði í heim- inum í dag. Martin Runnacles Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um... ...nýjar rannsóknir í Bandaríkjunum um bein áhrif auglýsinga á sölu og kauphegðun neytenda ...áhrif vel heppnaðrar langtíma auglýsinga- herferðar á markaðsstöðu BMW í Englandi, ...mikilvægi þess að rækta sköpunargáfu starfs- fólks á auglýsingastofum og, ...mikilvægi þess að ná hámarksnýtingu á birtinga- fjármagni og er þar stuðst við ný íslensk gögn um fjölmiðlanotkun, lífsstíl og neyslu. Ráðstefnan er ætluð stjórnendum fyrirtækja ekki síður en starfsfólki markaðsdeilda þeirra. Einnig er hún ætluð starfsfólki fjölmiðla og auglýsinga- stofa. Markmið hennar er að hvetja menn til að gera auknar kröfur til mælinga á arðsemi og ár- angri auglýsinga þannig að efla megi markvissari vinnubrögð á þessu sviði hér á landi. Winston Fletcher Richard Dodson Ólafur B. Thors Hallur A. Baldursson Bókaklúbburinn Framtíðarsýn býður þátttakendum ráðstefnunnar að kaupa á kynningarverði bók John Philips Jones: When Aíis Worít. New ProoJ That Advertising Triggers Sales. Samband íslenskra auglýsingastofa þakkar eftirtöldum styrktaraðilum veittan stuðning við ráðstefnuhaldið: 'SWÐ2 Dagskrá ráðstefnunnar: 9.30-10.00 Mæting, skráning og morgunkaffi. Hallur A. Baldursson, formaður SÍA, setur ráðstefnuna. 10.00-11.30 John Philip Jones, prófessor við Syracuse University, N.Y. When Ads Work: New Proof Of How Advertising Triggers Sales. 11.30-12.15 Umræður og fyrirspurnir. 12.15-13.30 Hádegisverður. 13.30-14.00 Martin Runnacles, markaðsstjóri BMW í Englandi: How 15 years of consistent advertising helped BMW treble sales without losing prestige. 14.00-14.30 Winston Fletcher, stjórnarformaður DFSB Bozell og fyrrverandi formaður IPA: Creative People - How To Manage Them. 14.30-15.00 Richard Dodson, forstjóri Telmar í London: Optimisation of the Media Budget. 15.00-15.20 Kaffihlé. 15.20-16.30 Pallborðsumræður. 16.30 Ráðstefnunni slitið. Ráðstefnustjóri er Ólafur B. Thors, framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra trygginga hf. Þátttökutilkynning: Vinsamlegast færið inn upplýsingar og sendið með pósti eða faxi til skrifstofu SÍA, Háteigsvegi 3, 105 Reykjavík, fax 562 9585, simi 562 9588. Ráðstefnugjald er 7.700 krónur, innifalinn er hádegisverður og kaffi. Skráning er til 8. september. Nafn: ....................................................................................................... Fyrirtæki: ............................................... Sími: .................................................... Greiðslukort: VISA / EUROCARD (merkið við það korl sem nota skal) Undirskrift korthafa: .................................... Heimilisfang: ....................................... Fax: ................................................ Númer korts: ........................... Gildistími: YDDA ' SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.