Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Mikilvægi upplýsinga
tii stjórnunar
í rekstri eykst með
degi hverjum
Takmarkast rekstur
þinn vegna skorts á
upplýsingum?
Concorde XAL upplýsingakerfi
og bókhald.
Alhliða upplýsingakerfi
án takmarkana.
Hátækni til framfara
BH TæknivaS
Skeifunni 17 • Sími 568-1665
UR VERIIMU
Skipstjórar á rækjuflotanum hafna notkun seiðaskilju yfir veturinn
Segja stórkostlega slysahættu
skapast af notkun skíljunnar
SKIPSTJORNARMENN á nánast
hveiju úthafsrækjuskipi íslenzka
flotans hafa nú sent sjávarútvegs-
ráðherra tilmæli þess efnis að
notkun seiðaskilju við rækjuveiðar
verði ekki skylduð yfir vetrarmán-
uðina. Skipstjórnarmenn benda
einkum á, að slysahætta sé mikil
við notkun skiljunnar í slæmum
veðrum, en auk þess að sízt sé
þörf á því að vernda fiskseiði með
þessum hætti yfir vetrarmánuðina.
Snæbjörn Ólafsson, skipstjóri á
Sigurborgu VE 121, segir ástæðu-
laust að bíða þess að slys verði við
notkun skiljunnar og tilmælum
þessum verði fylgt eftir, reynist
þess þörf. Samkvæmt gildandi
reglugerð um þessar veiðar, er
skylt, með tímabundum undanþág-
um, að nota seiðaskilju allan ársins
hring við allar úthafsrækjuveiðar.
í skeyti til sjávarútvegsráð-
herra, fara skipstjórnarmennimir
fram á, að núverandi reglugerð
verði breytt þannig að ekki sé skylt
að nota skiljuna á tímabilinu frá
fyrsta október til loka aprílmánað-
ar. Tilmæli þessi styðja þeir á eftir-
farandi hátt:
Dauðagildra
í vondum veðrum
„Það er samdóma álit skipstjóm-
armanna, sem þessar veiðar hafa
stundað, að á þeim árstíma, sem
SEIÐASKILJA
Morgunblaðið/Þorkell
veður eru vályndust við íslands,
skapist stórkostleg slysahætta
samfara því að nota seiðaskilju.
Margir eru þeirrar skoðunar að
ekki sé spurning um það, hvort
notkun skiljunnar valdi slysi, held-
ur hvenær. Það er ljóst öllum þeim,
sem til þekkja, að yfirgnæfandi
líkur eru á því að slys, sem yrði
vegna notkunar seiðaskilju, mundi
verða alvarlegt og sumir vilja
ganga svo langt, að jafna notkun
skiljunnar í vondum veðrum við
dauðagildru. Þetta er ástand, sem
enginn skipstjórnarmaður vill bera
ábyrgð á.
Síst þörf á verndun
yfir vetrarmánuðina
Það er skoðun okkar, að með
tilliti til verndunarsjónarmiða, sé
þetta sá tími ársins, sem notkun
seiðaskilju er sízt þörf.
Komi upp tilefni til verndunar
ungviðs á afmörkuðum svæðum
innan tímabilsins, verði brugðizt
við því með hefðbundnum lokun-
araðferðum.
Ef skyldan um skiljunotkun
verður eins víðtæk og núverandi
reglugerð gerir ráð fyrir, er full-
víst að mörg þeirra skipa, sem nú
stunda rækjuveiðar, verða verk-
efnalaus, því veiðarnar geta ekki
orðið arðbærar vegna frátafa, sem
notkun skilju skapaði á þeim tíma,
sem veður eru hörðust."
Snæbjörn Ólafsson segir, að
skipstjórnarmönnum gremjist það
verulega, að ekki skyldi haft samr-
áð við þá um mótun reglugerðar
um notkun skiljunnar.
„Allir viljum við stuðla að vernd-
un fiskseiða, en við viljum ekki
skapa óþarfa slysahættu samfara
því. Við vildum að skipin reyndu
noktun skiljunnar í ákvðinn tíma
og síðan mætti hafa reynsluna af
því sem leiðarljós við setningu
reglugerðar. Svo var ekki gert,
heldur var notkun hennar skylduð
án þess að þörfin fyrir hana og
annmarkar við notkun hennar
væru fullkannaðir. Slysahættan er
fyrir hendi á öllum skipum, bæði
stórum og smáum og ljóst er að
engin þörf er á notkun skiljunnar
í djúpköntunum, en þar eru engin
seiði. Því finnst okkur full ástæða
til endurskoðunar þessarar reglu-
gerðar og réttast að svó sé gert í
fullu samráði við okkur og að feng-
inni nægilegri reynslu, sem hægt
er að byggja á,“ segir Snæbjörn.
More 486 66 MHz tölvor
Frákr. 96.175,-
More Pentíum tölvnr
Frákr. 123.478,-
Fní kr. 127.044,-
VVindnwN 95 kr. 8.500,- Geisladrit frá kr. 12.900,- Afritunarstöðvar 800IVIIE kr. 22.900,-
Med 2x oeisladrili kr. 19.900,- llljóðkort, 10 hita vfððma kr. 8.600,-
Við erum í Mörkinni 6. Sími 588 2061 - Fax 588 2062 BOÐEIND