Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 13 LANDIÐ ÖLFUSÁRBRÚ iðaði af hlaupandi fólki eftir að ræst hafði verið. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Metþátt- taka í Brúarhlaupi Selfossi - Góð stemmning ríkti í miðbæ Selfoss á laugardag þegar Brúarhlaup Selfoss fór fram í fimmta sinn. AIIs skráðu sig til keppni 1.061 og í mark komu 1.040. Ölfusárbrú iðaði af hjól- andi og hlaupandi fólki eftir að Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð- herra og verndari hlaupsins, hafði ræst þá af stað á miðri brúnni, síðan fylltu hlaupararnir og hjólreiðamennirnir Tryggva torg og Austurveginn. Ræst var með hálftima millibili, fyrst í hjól- reiðum þá í hálfmaraþoni og loks i sfyttri hlaupavegalengdum, 10 km, 5 km og 2,5 km. Afmælisblessun veðurguðanna Þátttakendur voru á öllum aldri, flestir frá Selfossi og ná- grenni en sífellt stækkandi hópur kemur annars staðar frá. Mikil örtröð myndaðist við skráningu í hlaupið skömmu áður en ræst var og greinilegt að góða veðrið átti sinn þátt í því en veðurguð- irnir veittu hlaupinu afmæl- isblessun með því að draga frá skýin og hleypa sólinni niður á sólþyrsta Sunnlendinga. Selfossbær var skrýddur há- tíðarfánum þennan dag en hefð er fyrir því að flagga vel í mið- bænum og skapa með því góða stemmningu. I lok hlaupsins var mikill mannfjöldi í miðbænum sem naut veðurblíðunnar og stemmningarinnar sem ætíð skapast í stórum almennings- hlaupum. Góður ánægjukliður fór um hópinn í hvert sinn sem sigurvegurum voru afhent sigur- launin í hverri vegalengd en að þessu sinni voru það lambalæri frá KÁ, Höfn og SS og ekki á hverjum degi sem sigurvegararn- ir geta borðað sigurlaunin. Eftir hlaupið gátu hlauparar og hjól- reiðamenn viljað um tíma sinn á blöðum í gluggum Tryggvaskála en fyrirhugað er að gefa þau út og senda hverjum og einum þátt- takanda. Biskup vísiterar Holtsprestakall Holti - Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vísiteraði Holtsprestakall dagana 29. og 30. ágúst með konu sinni frú Ebbu Sigurðardóttur og prófastshjónum í Rangárvallapróf- astsdæmi, sr. Sváfni Sveinbjarnar- syni og frú Ingibjörgu Halldórsdótt- ur.Vísitazían hófst með guðsþjón- ustu á þriðjudag kl. 16 í Eyvindar- hólakirkju þar sem sóknarprestur- inn sr. Halldór Gunnarsson þjónaði fyrir altari fyrir prédikun en biskup prédikaði og þjónaði síðan fyrir alt- ari. í lok guðsþjónustunnar ávarpaði prófastur söfnuðinn. Eftir fund með sóknarnefnd og safnaðarfulltrúa var farið að Skógum, byggðasafnið þar skoðað og teikningar af væntan- legri byggðasafnskirkju, sem verður reist í haust og fullfrágerð að utan. Um kvöldið bauð Eyvindarhólasókn öllum sóknarnefndarmönnum og öðrum trúnaðarmönnum i presta- kallinu með vísitazíugestum til kvöldverðar í nýju félagsheimili Austur-Eyfellinga að Fossbúð. Þar voru margar ræður fluttar og kom fram að langalangafi biskups, sr. Þorvarður Jónsson, hafði þjónað í Holtsprestakalli 1847 til 1862 og var því biskup boðin velkominn heim. Daginn eftir var vísitazíu fram haldið með fundum og guðsþjón- ustum í Ásólfsskálakirkju og eftir kirkjukaffi að Heimalandi í Stóra- Dalskirkju. Guðsþjónusturnar voru allar vel sóttar af ungum sem öldn- um og í kirkjukaffínu sem Ásólfs- skála- og Stóra-Dalasóknir buðu til, kom fólk úr öllum sóknunum, um 25% allra íbúa prestakallsins. Þar voru ræður fluttar og sameiginlegir kirkjukórar prestakallsins sungu ættjarðarlög undir stjórn organista Jónu Þorgerðar Guðmundsdóttur. I lok vísitazíunnar þökkuðu bisk- up og prófastur fyrir góðar móttök- ur í öllum sóknunum og kvað biskup það vera fágætt að í sama presta- kalli væru einpngis nýbyggðar kirkj- ur, fagrar og vel hirtar, sem til fyrir- myndar væru, Ásólfskirkja vígð 1955, Eyvindarhólakirkja 1961, Stóra-Dalskirkja 1969 og í bygg- ingu væri safnkirkja í Skógum, sem hann vænti að hægt væri að ljúka sem fyrst með áframhaldandi stuðn- ingi velunnara byggðasafnsins og héraðsskólans í Skógum. Morgunblaðið/Haildór Gunnarsson FRÁ vísiteringu biskups í Holtaprestakall f.v. Sváfnir Sveinbjarn- arson, Ingibjörg Halldórsdóttir, Ólafur Skúlason, Ebba Sigurðar- dóttir, Margrét Jónsdóttir og Halldór Gunnarsson. Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðsson- ar og co. hf. á Þingeyri Landsþekkt fyrirtæki hættir rekstri Hrafnseyri - Vélsmiðja Guðmund- ar J. Sigurðssonar og co. hf. á Þing- eyri hætti að starfa þann 1. ágúst, eftir rúmlega 80 ára rekstur. Rekst- ur vélsmiðju hófst á Þingeyri um síðustu aldamót á vegum Grams- verslunar. Guðmundur J. Sigurðs- son vélsmíðameistari hafði m.a. lært fag sitt í Noregi og Danmörku á vegum þeirrar verslunar og stofn- aði síðan fyrirtæki sitt árið 1913. Var Guðmundur einn af frumkvöðl- um alhliða smiðjureksturs hér á landi. Seinna starfaði sonur hans, Matthías vélaverkfræðingur, með föður sínum við rekstur fyrirtækis- ins. Eftir lát Guðmundar var Matt- hías framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins til dánardægurs síðastliðið vor. Undir stjórn þeirra feðga varð smiðjan á Þingeyri landsþekkt fyrir góða og vandaða þjónustu og einn- ig hjá þeim útlendingum sem stund- uðu fiskveiðar við ísland. Jám- steypan þar var t.d. ein af þremur þeim helstu á landinu um tíma. Frá rafmótor í smiðjunni kom fyrsta rafmagn sem leitt var í hús á Þing- eyri og á ýmsum öðrum tæknilegum sviðum var þetta fyrirtæki í farar- broddi. I seinni heimsstyrjöldinni átti fjöldi útvegsmanna um allt Iand smiðjunni það að þakka að þeir gátu gert út báta sína, þegar vara- hlutir í ýmsar bátavélar og spil voru nánast ófáanlegir. Þá var þrautalendingin að fá þá smíðaða á Þingeyri. Og „dráttarkarlinn“, sem Matthías fann upp til að létta mönnum störf við línuveiðar, var þekktur bæði utan lands og innan. Iðnskóli á Þingeyri Fjöldi manna lærði vélsmíði og járnsmíði í smiðjunni á Þingeyri og þóttu það mjög góð meðmæli með mönnum ef þeir höfðu lært þar. Á tímabili ráku þau hjónin Matthías og Camilla Sigmundsdóttir iðnskóla í einni stofunni heima hjá sér. I lok fyr'ri heimsstyijaldar fóru þýskir togarar að venja komur sínar til Þingeyrar eftir vatni og vistum og þegar viðgerða var þörf. Síðan bættust breskir togarar í þann hóp, en Matthías varð umboðsmaður þeirra upp úr 1950. Þegar sókn Breta á íslandsmið var sem mest, mátti stundum sjá 15 til 20 síðutog- ara bundna hlið við hlið við bryggju á Þingeyri. Oft þurftu bresku skip- stjórarnir að leita þar hafnar vegna veikra og slasaðra skipveija. Bar þá stundum svo við að læknislaust var á staðnum og gat það verið bagalegt t.d. ef taka þurfti röntgen- myndir. Er það í frásögur fært hér vestra, að umboðsmaðurinn hafí þá ekki dáið ráðalaus og tekið mynd- irnar sjálfur. Nýtt fyrirtæki Sama dag og Vélsmiðja Guð- mundar J. Sigurðssonar hætti starf- semi, tók nýtt fyrirtæki við rekstrin- um, Véla- og bílaþjónusta Kristjáns hf. og er eigandi þess Kristján Gunnarsson frá Hofi, en hann lærði í smiðjunni og starfaði þar í ára- tugi. Verður reksturinn með svip- uðu sniði og hann var síðustu árin, að sögn Kristjáns. Þess skal getið að lokum að enn er margt með sömu ummerkjum í smiðjuhúsunum og þegar fyrirtækið hóf starf- rækslu. Hafa kunnáttumenn látið þau orð falla, að slíkt sé mjög sjald- gæft og því sé um ómetanleg at- vinnusöguleg verðmæti að ræða sem alls ekki megi fara forgörðum. utt lækna- og rannsóknastofu mína í Dómus Medica, Egilsgötu 3. Tímapantanir í síma 563 1058 milli kl. 9 -16.30. Marino P. Hafstein, læknir. Sérgrein heila- og taugasjúkdómar. Klínisk taugalífeðlisfræði. Musikleikfimin hefst mánudaginn 18. september. Góð alNiða þjálfun fyrir konur sem vilja bæta þol, styrk og liðleika á markvissan og skemmtilegan hátt. Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla. Upplýsingar og innritun í síma 551 3022. Gígja Hermannsdóttir, íþróttakennari. DAEWDO örbylgjuofnar Hágæðaofnar, framleiddir ctf rafeindarisanum DAEWOO Verð við allra hæfi Þjónusta sem þér býðst ekki annars staðar. Við bjóðum þér á kvöldnám- skeið i matreiðsluskóla Drafnar þar sem þú lærlr að matreiða grænmeti, steikja kjöt, sjóða fisk, baka, búa til sultur og margt margt fleira. DAEWOO, heilsusamleg nútímamatreiðsla sem sparar tíma, fé og fyrirhöfn. 10 gerðir af örbylgjuofnum fyrir öll heimili. Veldu þér hágæðaofn með landskunnri þjónustu. Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúnl 28 - Slmi 622901 og 622900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.