Morgunblaðið - 05.09.1995, Qupperneq 2
!
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
*
Frosti hf. í viðræðum við Islands-
banka um kaup á hlut í Riti hf.
Skuldar yfir
200 milljónir
AÐ UNDANFÖRNU hafa átt sér
stað viðræður á milli Frosta hf. í
Súðavík og Framtaksfélagsins hf.
eignarhaldsfélags íslandsbanka, um
kaup þess fyrrnefnda á um 43% hlut
þess síðamefnda í rækjuverksmiðj-
unni Riti hf. á ísafirði. Ingimar
Halldórssson framkvæmdastjóri
Frosta hf. segir málið ekki í höfn.
Ritur hf. er ein stærsta rækju-
verksmiðja á Vestfjörðum og var
stofnuð 1992. Upphaflegt hlutafé
var 110 milljónir króna og eru
helstu hluthafar íslenskt marfang
hf. og Sölusamtök lagmetis sem
eiga um 15 milljónir af hlutafé,
Ögurvík hf. á 12,5 milljónir, Olíufé-
lagið hf. 5 milljónir og hópur ísfirð-
inga sem eiga um 30 milljóna hlut-
afé. Félagið keypti eignir íslands-
banka sem hann hafði eignast við
gjaldþrot Niðursuðuverksmiðjunnar
hf. og Rækjustöðvarinnar hf. á
ísafirði, og hefur seinustu tvö ár
tekið á móti 3.500-3.600 tonnum
af rækju til vinnslu. Kaupverð fast-
eigna og vélakosts var um 335 millj-
ónir króna og þar af átti bankinn
35 milljónir í hlutafé. Ritur hf. á
fjórðungshiut í Teista hf., á móti
Isfélagi ísfirðinga hf., Gunnvör hf.
og Togaraútgerð ísafjarðar hf., sem
keypti í fyrra skip með tæplega
1.400 t rækjukvóta frá Fáskrúðs-
firði, og er um samið að það skip
sem kvótinn var settur á, veiði nær
eingöngu fyrir Rit hf.
Of hátt kaupverð eigna
Guðmundur Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri Riturs hf. segir að
kaupverð eigna hafí verið of hátt.
„Við höfum t.d. verið að reyna að
selja eitt af húsum fyrirtækisins,
sem var metið á 70-80 milljónir
króna en hæsta tilboð sem við höfum
fengið í það nú er 30 milljónir
króna,“ segir Guðmundur.
Velta fyrirtækisins 1993 og 1994
hefur verið um 700 milljónir á ári.
Nú eru um 40 starfsmenn hjá fyrir-
tækinu, en nokkrum hópi fólks var
sagt upp störfum um síðustu mán-
aðamót vegna nýrrar tækni við
hreinsun og breytinga á rekstri úr
niðursuðu yfír í frystingu.
Skuldir fyrirtækisins eru yfir 200
milljónir króna og segir Guðmundur
þær skýrast að hluta til af of háu
kaupverði eigna í upphafí. Hann seg-
ir það hafa verið markmið íslands-
banka frá upphafi að selja hlutafé
sitt og aðrir hluthafar ekki farið var-
hluta af þeim fyrirætlunum. „Þegar
rætt var um að íslandsbanki kæmi
inn með hlutafé á sínum tíma var
rætt um að þeir byðu öðrum hluthöf-
um forkaupsrétt. Þetta er hins vegar
ekki í samþykktum félagsins og með-
ferð á hlutafé því fijáls, sem getur
verið að Islandsbanki haldi fast í,“
segir Guðmundur.
Meintur veiði-
þjófnaður
FJÓRIR menn voru gripnir við
meintan veiðiþjófnað úr svoköll-
uðu Lóni sem Staðarhóls- og
Hvolsá í Dölum renna í. Menn-
irnir höfðu lagt eitt net í lónið
og voru þeir að vitja aflans þeg-
ar lögreglu bar að.
Mennirnir voru nýlega búnir
að leggja netið og var afli lít-
ill. Lögreglan gerði veiðarfærið
og aflann upptækan. Að sögn
lögreglu eru mennirnir að sunn-
an.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
„ENGINN er verri þó hann vökni.“ Vaskir þátttakendur í Esju-
göngunni á sunnudaginn koma af fjalli eftir brostna veðurspá.
Gengið á Esju
AÐ GANGA á Esjuna er iðja sem
nýtur mikilla og vaxandi vin-
sælda meðal höfuðborgarbúa.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
efndi til Esjugöngudags fyrir
almenning á sunnudaginn, í
fjórða sinn síðan 1992, en þá
hélt sveitin upp á 60 ára afmæli
sitt með skipulagningu fyrsta
Esjugöngudagsins.
Um 1.400 manns mættu til
leiks að þessu sinni og hugðust
nota góða veðrið sem spáð hafði
verið til að njóta útsýnisins af
Þverfellshorni. En veðurguð-
irnir gerðu göngufólkinu grikk
og sendu niður hressilegar
skúrir, sem hröktu suma heim
á leið.
Ófáir létu þó ekki vætuna á
sig fá og skunduðu sem leið lá
upp á fjallið. Sumir gerðu það
meira að segja á mettíma. Hinn
17 ára gamli Sveinn Harðarson
gerði sér lítið fyrir og fór leið-
ina á rúmum hálftíma, eða 33:57
mínútum. Hann sigraði þar með
í göngukeppninni, sem Hjálpar-
sveitin skipulagði. Keppendum
var skipt í fjóra hópa, þ.e. eftir
kyni og í tvo aldurshópa: 39 ára
og yngri og 40 ára og eldri. í
kvennaflokkunum var aðeins
einn keppandi í hvorum aldurs-
hópi, en í eldri karlaflokknum
voru 11 keppendur og í þeim
yngri 7.
Að sögn Andrésar Guðmunds-
sonar, sveitarsljóra Hjálpar-
sveitar skáta í Reykjavík, hefur
fólk haft mjög gaman af þátt-
töku í fjallgöngunni og því ætlar
sveitin að gera Esjugöngu-
keppnina að árlegum viðburði.
Flugleiðir sjá fram á hagnað í ár eftir hagstæða útkomu fyrstu sex mánuðina
Rekstrarafkoman batnaði
um röskar 100 milljónir
HEILDARTAP Flugleiða hf. fyrstu
sex mánuði ársins nam alls um 307
milljónum króna samanborið við um
732 milljóna tap á sama tímabili í
fyrra. Þennan bata má að stórum
hluta rekja til sölu flugvélar í byrj-
un ársins sem skilaði 325 milljóna
króna söluhagnaði. Afkoma af
reglulegri starfsemi batnaði hins
vegar einnig eða um 108 milljónir
milli ára, sem rekja má til vaxandi
umsvifa og betri nýtingar.
Fram kemur í frétt frá Flugleið-
um að rekstrarbatinn sé enn meiri
en þessu nemi því verkfall Flug-
freyjufélags íslands í april hafi
kostað félagið um 70 milljónir
króna. Með því að halda úti tak-
mörkuðu flugi verkfallsdagana hafi
félaginu tekist að halda þessum
kostnaði í lágmarki.
Vegna árstíðarsveiflu í rekstri
Flugleiða er jafnan tap af starfsemi
félagsins á fyrri helmingi hvers árs
en hagnaður yfir sumartímann
vegur þar upp á móti. Endurskoðuð
rekstraráætlun gerir ráð fyrir
hagnaði á árinu í heild og styðja
bókanir á haustmánuðunum þá
spá. Eru bókanir fleiri en í fyrra
bæði í Evrópuflugi og flugi til
Bandaríkjanna.
Rekstrartekjur námu rúmlega sjö
milljörðum fyrstu sex mánuðina og
jukust um 9,3% en rekstrargjöld
voru rúmlega 7,2 milljarðar og juk-
ust um 9,1%. Farþegar voru alls
513 þúsund talsins og fjölgaði um
11,4%. Fragtflutningar jukust um
9,2% og nýting á hótelum batnaði
um 4,1%.
Greiðslustaða Flugleiða er hag-
stæð um þessar mundir eins og
verið hefur. Þannig nam handbært
fé frá rekstri fyrstu sex mánuðina
um 624 milljónum og voru banka-
innstæður í lok tímabilsins um
1.553 milljónir.
Sigurður Helgason forstjóri segir
að afkoman sé heldur betri en áætl-
anir hafí gert ráð fyrir. Mikil
ánægja ríki með sterka greiðslu-
og eiginfjárstöðu félagsins. Þannig
hafí eiginfjárstaðan batnað um einn
milljarð milli ára. Þá eigi félagið
um einn og hálfan milljarð króna í
sjóðum þrátt fyrir að búið sé að
nota þá peninga sem fengust við
sölu tveggja Boeing-véla til að
borga þau lán sem þeim tilheyrði
og veija 700 milljónum til að borga
niður önnur lán. „Það kemur tölu-
vert mikið út úr rekstrinum þrátt
fyrir að það komi ekki fram í hagn-
aði.“ Að sögn Sigurðar er gert ráð
fyrir að afkoman á árinu í heild
verði svipuð og í fyrra, en þá nam
heildarhagnaður félagsins 624
milljónum.
Eigið fé á miðju ári nam 4,3
milljörðum en var 3,2 milljarðar á
sama tíma í fyrra.
Nýrri Boeing 757-200
bætt í flotann
Flugleiðir hafa sem kunnugt er
ákveðið að leigja eina Boeing
757-200 flugvél til næstu sex ára.
Vélin verður leigð frá kaupleigu-
fyrirtækinu International Lease
Finance Corporation og verður af-
hent ný frá Boeing-verksmiðjunum
í janúar 1996. Á næsta ári munu
Flugleiðir því starfrækja fjórar
slíkar vélar og fjórar Boeing
737-400 vélar. Félagið mun fjölga
viðkomustöðum um tvo vestanhafs
næsta vetur. í aprílbyrjun hefst
flug til Boston og verður flogið
þangað þrisvar í viku með Boeing
757-200 vélum. í maí hefst f!ug
milli Keflavíkur og Halifax í Nova
Scotia í Kanada með Boeing
737-400 vél.
Friðriksmótið
Hannes með forystu
EFTIR þrjár umferðir hefur
Hannes Hlífar tekið forystu í Frið-
riksmótinu með tvo og hálfan
vinning en næst honum eru Jó-
hann Hjartarson og Sofia Polgar
með tvo vinninga hvort.
Úrslit í afmælismóti Friðriks
Ólafssonar og Skáksambands ís-
lands í Þjóðarbókhlöðunni urðu
þau í gærkvöldi að Sofía Polgar
vann Danann Bent Larsen, Hann-
es Hlífar Stefánsson vann Jóhann
Hjartarson og náði þannig af
honum efsta sætinu, Jón L. Arna-
son vann Helga Ólafsson og Frið-
rik Ólafsson og Vassílí Smyslov,
aldursforseti mótsins, gerðu jafn-
tefli.
Þröstur Þórhallsson og Glig-
oric gerðu jafntefli og_ Margeir
Pétursson vann Helga Áss Grét-
arsson.
Fjórða umferð mótsins verður
leikin á morgun, miðvikudag.
MORG UNBLAÐIÐ
Þrír íslenzkir
fjallgöngumenn
farnir til Tíbet
Klífa 6.
hæsta tind
veraldar
ÞRÍR ungir íslendingar, Björn
Ólafsson, Einar Stefánsson og
Hallgrímur Magnússon, fóru
utan um helgina og er ferðinni
heitið til Tíbet, þar sem þeir
hyggjast klífa tindinn Cho-
Oyu, sem er 8.201 metra hár
eða nokkru lægri en Mount
Everest, hæsti tindur jarðar,
sem er 8.848 metrar. Tindur-
inn, sem þeir félagar hyggjast
kiífa er sjötti hæsti tindur jarð-
ar og hæsti tindur, sem ís-
lenzkir fjallgöngumenn hafa
reynt sig við.
Tíu daga ganga að fjallinu
Björn Ólafsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að þeir
félagar stefndu að þvr' að kom-
ast á topp fjallsins fyrstu vik-
una í október. Talsvert ferða-
lag er að komast að fjallinu
og tekur sú ferð um 10 daga.
Þeir félagar hyggjast ekki
nota súrefni, heldur treysta á
aðlögun við þunnt loft tíbetska
hálendisins. Allmisjafnt er
hvað menn gera í þeim efnum,
en Björn kvað þá félaga
myndu hafa þennan háttinn á. )
Helmingslíkur á að )
ná toppnum )
Ferðin að fjallinu krefst
talsverðs umstangs og munu
þeir fá aðstoð þarlendra til
þess að komast með búnað
sinn að fjallinu. AIls verður
leiðangurinn 12 manns að ís-
lendingunum meðtöldum og
verða uxar notaðir til þess að
koma farangri þeirra áleiðis. j
Bjöm kvað líkurnar á að þeimi k
félöprm tækist að komast á
tindinn vera um það bil 50%. '
Margt gæti spilað inn í sem
kæmi í veg fyrir að þeim tæk-
ist ætlunarverk sitt, t.d. veður.
„Við reynum okkar bezta og
gerum okkar bezta“, sagði -
Bjöm.
Eins og áður sagði er þetta
hæsti tindur, sem Islendingar
hafa reynt að klífa. Fyrir 10 j
árum kleif Helgi Benediktsson
tindinn Diran í Pakistan, sem
er tæplega 7.300 metra hár. I
Cho-Oyu er því tæplega 1.000
metmm hærri en sá tindur.
íslenska
sjónvarpið
Verið að
semja um
sýningarrétt
GUNNAR M. Hansson,
stjómarmaður í íslenska sjón-
varpinu hf., segir að sér hafi
komið á óvart að sjá þau
ummæli Sigurðar G. Guðjóns-
sonar, stjómarformanns ís-
lenska útvarpsfélagsins, í
grein í Morgunblaðinu að Stöð
2 hafí samninga við alla
stærstu dreifingaraðila sjón-
varpsefnis.
Stjórnendur íslenska sjón-
varpsins hafa verið að semja
um sýningarrétt á efni í nýju
sjónvarpsstöðinni og segist
Gunnar ekki sjá að samningar
Stöðvar 2 takmarki mögu-
leika félagsins á að koma
saman þeirri dagskrá sem
aðstandendur hennar vilji
hafa.