Morgunblaðið - 05.09.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 11
Það var mikið að gera í vefnaðarvörunni hjá saumastofunni Artemis.
“Verðið lægra
en í Edinborg”
-haustmarkaður Kolaportsins
opinn virka daga kl. 12-18
Srak í rogastans þegar ég sá að verðið var lægra en í Edinborg”
kona sem var að kaupa skó á haustmarkaði Kolaportsins. Þar
liætast nýjar vörur við í hverri viku og í þessari viku mim meðal annars
berast ný sending af vetrarskóm á verði sem á engan sinn líka.
FRETTIR
Kýlapestin
í Elliðaánum
Akvörðunar
um Elliðaár
að vænta
eftir viku
YFIRDÝRALÆKNIR, Fisksjúk-
dómanefnd, rafveitustjóri, veiði-
málastjóri, formaður SVFR og fiski-
fræðingar áttu með sér fund á
fimmtudag, þar sem fjallað var um
mögulegar aðgerðir til að vinna bug
á kýlaveikinni í Elliðaánum og hefta
útbreiðslu hennar.
Brynjólfur Sandholt yfirdýra-
læknir sagði að ýmsar hugmyndir
hafi verið ræddar á fundinum, en
engin ákvörðun hafi verið tekin um
aðgerðir. „Þar sem það liggur fyrir
að ekkert verði gert fyrr en veiði-
tímabilinu lýkur 15. september var
ákveðið að funda aftur tíu dögum
síðar. Þangað til ætlum við að reyna
að afla okkur upplýsinga um Efra
svæðið svokallaða, þ.e.a.s. Eliiða-
vatn og Hólmsá, og athuga hvort.
þar hafí fundist sýking."
Að sögn Brynjólfs var þeirri hug-
mynd m.a. varpað fram að eyða
öllu lífí í ánni með eitri, en fallið
var frá því mjög fljótlega. Þeir
möguleikar voru ræddir að þurrka
ána upp, eyða eingöngu fullorðnum
göngufiski, eða bíða þangað til klak
ætti sér stað og fjarlægja fullorðinn
fisk eftir það.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu greindist kýlapest {einum
laxi úr Hellisá í V-Skaftafellssýslu.
-----■»-»-♦---
Fótbrotnaði í
árekstri
ÖKUMAÐUR mótorhjóls hlaut opið
beinbrot rétt ofan við ökkla eftir
að hjól hans skall á bíl á gatnamót-
um Ægisgötu og Túngötu skömmu
fyrir miðnætti á fimmtudagskvöld.
Tildrög slyssins voru þau, að bíln-
um var ekið suður Ægisgötu, beygt
austur Túngötu og þannig í veg
fyrir mótorhjólið, sem kom vestur
Túngötuna. Ökumaður vélhjólsins
var vel búinn með hjálm og í leður-
fatnaði, en fótbrotnaði á hægri
fæti. Bæði mótorhjólið og bílinn
varð að flytja á brott með kranabíl
eftir áreksturinn.
Lagersala á vetrarskóm
“Það hefur líklega aldrei áður
verið eins mikið úrval af skóm á
boðstólnum síðan við fengum 8000
para skólagerinn frá skóverksmiðj-
unni Strikinu í vor” sagði Helga
Halldórsdóttir, einn af skósölunum
á haustmarkaði Kolaportsins.
“Ennþá eigum við skó frá Strikinu,
en vorum að taka upp nýja sendingu
af vetrar- og kuldaskóm á börn,
unglinga og fullorðna. Verðið kemur
þægilega á óvart og hægt að gera
betri kaup hjá okkur en í innkaupa-
ferðum erlendis. Öklaskór á börn
eru á verði frá aðeins kr. 1690,- og
götuskór á fullorðna eru á verði frá
kr. 990,-”
“Efhið í dragtina var á kr. 980,-”
Kona sem var að líta á efni í dragt
á haustmarkaði Kolaportsins
sagðist hvergi hafa séð lægra verð.
“Markmiðið er að bjóða vandað efni
og viðráðanlegt verð fyrir alla”
segir Stefanía M. Aradóttir hjá
Saumastofunni Artemis á haust-
markaði Kolaportsins. “Það er
hægt að lækka kostnað við fatakaup
um allt að 60-70% ef að keypt er
efni á viðráðanlegu verði og flíkin
saumuð heima. Eggetútvegað snið
og leiðbeint um saumaskapinn”.
“Keyptum allar jólagjafirnar
fyrir barnabörnin”
“Verðið var það hagstætt að við
keyptum allar jólagjafinar fýrir
barnabörnin” sögðu eldri hjón á
haustmarkaði Kolaportsins. Guð-
brandur Guðmundsson, einn af
þeim bjóða upp á leikföng á haust-
markaðinum, sagði að þetta væri
vönduð fvrsta flokks vara og þekkt
merki. “Úrvalið er mikið, líklega
hvergi hægt að versla ódýrari
leikföng og því upplagt að gera
jólainnkaupin snemma”.
“Nýju tískufötin frá London
á ótrúlegu lágu verði”
“Eg er nýkominn frá London og
verslaði þar nokkuð magn af nýjum
fatnaði” sagði Birgir Ivarsson á
haustmai'kaði Kolaportsins. “Þetta
eru meðal annars Emos skyrtur á
kr. 1900,- Giorgio Fellini pólóbolir
á kr. 980,- og falleg barnaföt á 2-5
ára á hreint frábæru verði. Það
hefur verið slegist um þá vöru sem
þegar er komin, en ég á von á nýrri
sendingu í vikunni sem verður
líklega fljót að fara. Eg er Uka með
úrval af gallabuxum og peysum á
hreint afbgragsverði og hina
vinsælu töskubakpoka á lægra verði
en í verslunum í London”.
iAt'hí&pxjí \jAti
• Suðuramerískir dansar
• Standard dansar
• Barnadansar
• Gömlu dansarnir
Nýtt: • ROKK • ROKK • ROKK,
kennari Óli Geir.
Einkatímar í boði. Systkina-, fjölskyldu- og
staðgreiðsluafsláttur.
Innritun og upplýsingar 1.
september kl. 10 - 22
- 10.
22
í stma 564 1111.
Opiö hús öll laugardagskvöld.
Kennarar og aðstoðarfólk í vetur: Sigurður,
Óli Geir, Þröstur, Hildur Yr, Edgar og
Ragnheiður, auk erlendra gestakennara.
Dansskóli Siguröar Hákonarsonar
Auðbrekku 17, Kópavogi.
2
'í
5
Opnum
nýja og
glæsilega
verslun
í Mjódd
á morgun!
i^:Viar
Sjá nánar í
auglýsingu
í Morgunblaðinu
á morgun,
miðvikudag!