Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Joe’s á
Akureyri
NÝ VERSLUN með karl-
mannafatnað var opnuð á Ak-
ureyri föstudaginn 1. sept-
ember. Verslunin nefnist Joe’s
eftir danska fyrirtækinu sem
framleiðir megnið af fötunum
sem eru á boðstólum. Joe’s er
til húsa við hliðina á JMJ við
Gránufélagsgötu og eigandi
hennar er Ragiiar Sverrisson
kaupmaður í JMJ. Ragnar seg-
ir að í Joe’s verði lögð áhersla
á þægilegan og vandaðan fatn-
að á unga karlmenn og á hag-
stæðu verði. Hann segir þetta
einu sérverslunina í bænum
fyrir karlmenn í yngri kantin-
um.
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
Afleiðingar
atvinnuleysis
BJÖRG Bjarnadóttir, sálfræð-
ingur verður gestur á opnu
húsi í Miðstöð fólks í atvinnu-
leit í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju á morgun, mið-
vikudaginn 6. september en
hún hefst kl. 15.00.
Björg mun ræða um afleið-
ingar atvinnuleysis og jafn-
framt kynna Menntasmiðju
kvenna á Akureyri sem hún
veitir nú forstöðu.
Veitingar verða á borðum
og dagblöð liggja frammi.
Umdeild tillaga stjórnar Eyþings um skólaþjónustu
Morgunblaðið/Stefán Þór Sæmundsson
Listrænt
leikfang
Svæðið við Ijörnina í Innbænum
á Akureyri hefur að undanförnu
verið vettvangur ýmissa skúlp-
túra sem settir voru upp í tengsl-
um við Listasumar ’95. Nú fer
hver að verða síðastur að virða
listaverkin fyrir sér. Þessir ungu
piltar fundu hagnýtan flöt á einu
listaverkinu.
Félag skólastjóra á Norðurlandi eystra
Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir
Gamalla blóma angan
AKUREYRI og Kjarnaskógur ná
nánast saman en á stuttri leið
suður í þetta vinsæla útivistar-
svæði birtast myndir úr fortíð-
inni ef glöggt er skoðað. Gamalt
dráttarvélarflak við hrörleg
húsakynni þykir ef til vill ekki
fögur sýn en náttúran reynir að
gera sitt besta með því að brciða
blómaskrúð yfir niðurníðsluna.
Valddreifing nái
til skólanna
FÉLAG skólastjóra á Norðurlandi
eystra-hélt fund að Laugum 1. sept-
ember sl. og þar var m.a. fjallað um
undirbúning að gildistöku nýrra
grunnskólalaga. Fundurinn telur
mikilvægt að markmið lagasetning-
arinnar varðandi valddreifingu og
nútímalega stjórnsýsluhætti nái
fram að ganga þegar samdar verða
reglur um uppbyggingu stofnana,
fyrirkomuiag þjónustu og starfs-
mannahald í grunnskólunum. Nýjar
áherslur á mat á skólástarfi, skóla-
þróun sem og gæðastjórnun krefjist
þess beinlínis að valddreifing nái til
skólanna sjálfra og lögð sé áhersla
á ábyrgð á vettvangi.
Til að slík markmið nái fram að
ganga telur fundurinn mikilvægt að
kalla til samstarfs fulltrúa foreldra,
fulltrúa skólastjóra og fulltrúa kenn-
ara til að vinna með samtökum sveit-
arstjórna að því að taka við verkefn-
inu undir faglegu eftirliti mennta-
málaráðuneytisins.
„Skólastjórar vilja undirstrika
mikilvægi þess að nota þetta tæki-
færi til að vinna að markvissum
umbótum í skólastarfi og tryggja
sátt og samstöðu um uppeldi og
menntun komandi kynslóða. Skapist
víðtæk samstaða um þetta verkefni
munu ávextir þess skila sér innan
mjög skamms tíma í þroska og lífs-
hamingju einstaklinganna og efna-
hagslegri framför samfélagsins
alls,“ segir í ályktun fundarins.
Félag skólastjóra telur tillögur um
yfirtöku á þjónustu fræðsluskrifstofu
og nokkra sameiningu við leikskóla-
þjónustu örlítið skref til samhæfingar
á allri faglegri umsýslu og þjónustu
við böm og fjölskyldur þeirra. Mikil-
vægt sé að fagmenntaðir starfsmenn
eigi beina aðild að stjórnun verkefnis-
ins sem og fulltrúar foreldra þótt
óhjákvæmilegt virðist að allt fjárveit-
ingarvald og rekstrareftirlit verði í
höndum samtaka sveitarstjórna sem
samvinnu kjósa að hafa.
Skólastjórar komu þessum sjón-
armiðum sínum og öðrum á fram-
færi á aðalfundi Eyþings en að þeirra
mati voru tiliögur stjórnar Eyþings
um skólaþjónustu aðeins stefnu-
mörkun, öll úrvinnsla væri eftir.
Málum miðlað
og skotíð á frest
STÆRSTA málið á aðalfundi Ey-
þings, sambands sveitarfélaga á
Norðurlandi eystra, sem haldinn
var í Reykjahlíð sl. fimmtudag og
föstudag var afgreiðsla á tillögu
stjórnar Eyþings um framkvæmd
skólaþjónustu þegar grunnskólinn
færist frá ríki til sveitarfélaga.
Tillagan var ákaflega umdeild,
þótt flestir virtust sammála grunn-
hugmyndunum, en það var ekki
síst andstaða Akureyringa sem
gerði það að verkum að tillaga
stjórnarinnar var aldrei borin upp
því eftir miklar umræður á föstu-
daginn var búin til ný máiamiðlun-
artillaga sem allir gátu sætt sig við.
Ný þjónustumiðstöð
Aðalfundurinn mælir með að
sett verði á fót ný þjónustumiðstöð
til að sinna þeim sérfræði- og ráð-
gjafarverkefnum sem tilgreind eru
i 42. og 48. grein grunnskólalaga.
Þá skal þjónustumiðstöðin yfirtaka
þau verkefni sem Fræðsluskrif-
stofa umdæmisins hefur sinnt og
ekki er getið um í lögunum.
„Miðstöðinni er ætlað að þjóna
almenna grunnskólanum. Jafn-
framt verði kannað að hvaða marki
sé hagkvæmt að hún þjóni einnig
öðrum stofnunum. Einkum verði
litið til leikskóla, tónlistarskóla,
félagsþjónustu sveitarfélaga,
þ.m.t. barnaverndarmál, og þjón-
ustu við fatlaða," segir í aðalfund-
artillögunni en margir fulltrúar
óttuðust að verið væri að búa til
of stórt, flókið og dýrt bákn ef
áðurnefnd þjónusta yrði felld undir
miðstöðina.
Útibú á Húsavík?
Lagt er til að miðstöðin lúti einni
yfirstjórn sem kosin er af aðal-
fundi Eyþings og er gert ráð fyrir
að ’starfsemin geti verið staðsett á
fleiri en einum stað í kjördæminu.
Þarna er verið að vísa til áhuga
Þingeyinga á útibúi miðstöðvarinn-
ar á Húsavík en skoðanir voru
skiptar um þau mál og aðrir sem
töldu rétt að hafa eina miðstöð
fyrir allt kjördæmið.
Aðalfundurinn samþykkti að
fela starfshópi sem skipaður var á
síðasta aðalfundi, ásamt fulltrúa
tilnefndum af stjórn Eyþings og
fulltrúa tilnefndum af Bandalagi
kennara á Norðurlandi eystra að
halda áfram vinnu við að undirbúa
yfirtöku á áðurnefndum verkefn-
um, vinna upp tillögur að yfirtöku
sveitarfélaganna á sérkennsluþjón-
ustu og vinna upp tillögur að
hugsanlegri útvíkkun þjónustunn-
ar. Starfshópurinn á að hafa sam-
ráð við fagaðila og skila tillögum
til stjórnar Eyþings fyrir næstu
áramót.
Bæjarráð fellst ekki á
tillögurnar óbreyttar
Á fundinum kynntu fulltrúar
flestra sveitarfélaga innan Ey-
þings sjónarmið sveitarstjórnanna
og greindi menn á um hvort yfir-
taka ætti Fræðsluskrifstofuna í
nær óbreyttri mynd eða búa til
nýja stofnun til að samþætta fleiri
þjónustusvið. Bæjarráð Akureyrar
hafði lýst því yfir að ráðið gæti
ekki fallist á tillögur stjórnar Ey-
þings í óbreyttri mynd, þær þyrfti
að vinna miklu betur og sama
sjónarmið kom fram í máli ann-
arra fulltrúa sem töldu tillögurnar
aðeins umræðugrundvöll. Það
náðist því hvorki samstaða um
verksvið miðstöðvarinnar né
skipulag og ekki heldur landfræði-
lega dreifingu þjónustunnar. Nið-
urstaðan varð því þessi málamiðl-
un um frekari vinnu fram til ára-
móta.
P >H<'>'
„ipakka i kr.nM.-
áiriw ekki innililm
iddtu ekki af águjtbókunum!
Qt
ásútgáfan
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966