Morgunblaðið - 05.09.1995, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
r
VIÐSKIPTI
Afkoma Járnblendifélagsins fyrri helming ársins mun betri en í fyrra
188 milljóna
kr. hagnaður
Niðurstöðu athugunar um hagkvæmni
stækkunar að vænta í október
ÍSLENSKA járnblendifélagið skilaði
188 milljóna króna hagnaði á fyrstu
sex mánuðum þessa árs en hagnaður
fyrirtækisins á sama tíma í fyrra nam
38 milljónum króna.
Að sögn Jóns Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra Járnblendifélagsins,
stafar þessi afkomubati fyrst og
fremst af því að verð á jámblendi
hefur hækkað töluvert að undan-
förnu. Hann segir að það magn sem
selt hafí verið sé mjög sambærilegt
við fyrri helming síðasta árs.
Horfur á enn betri afkomu á
síðari hluta ársins
Jón segir ennfremur að horfur séu
á því að afkoma fyrirtækisins verði
enn betri á síðari hluta ársins. „Við
erum að endurgreiða þann afslátt
sem við fengum af raforkuverði hjá
Landsvirkjun á sínum tíma þegar
afkoma okkar var lakari. Endur-
greiðslan fer fram að stórum hluta
til á þessu ári og við greiðum afslátt-
inn vonandi upp á því næsta. Alls
er hér um að ræða röskar 200 millj-
ónir. Engu að síður má búast við því
að afkoma fyrirtækisins verði enn
betri á síðari árshelmingi þessa árs
þar sem verð á járnblendi hefur hald-
ið áfram að hækka.“
Eins og sjá má í töflunni hér til
hliðar hafa rekstrartekjur Járn-
blendifélagsins aukist töluvert og
voru þær rétt tæpur 1,5 milljarðar á
fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstr-
argjöld hafa einnig aukist nokkuð
en fjármagnsgjöld félagsins hafa
lækkað lítillega í samanburði við
sama tíma í fyrra. Athygli vekur að
veltufjármunir félagsins hafa aukist
um ríflega 51% og námu 1.632 miilj-
ónum á fyrri helmingi þessa árs. Þá
hefur eigið fé félagsins aukist um
460 milljónir króna og eiginfjárhlut-
fall þess batnað að sama skapi, er
nú 47% í samanburði við 41% á sama
tíma í fyrra.
Stækkun enn í athugun
Eins og fram hefur komið er verið
að kanna hvort hagkvæmt sé að
bæta við einum ofni í verksmiðju
félagsins á Grundartanga og gæti
það aukið afkastagetu hennar um
60%. Jón segir að niðurstöður þessar-
ar athugunar liggi ekki enn fyrir en
stefnt sé að því að ljúka henni á
næstunnni. „Ætlunin er að ljúka
henni nú í október þannig að við
höfum eitthvað til að leggja fyrir
stjórnina sem kemur saman í lok
nóvember." Jón segist þó ekki eiga
von á því að ákvörðun um stækkun
verði tekin á þeim stjómarfundi þar
sem búast megi við því að eigendur
fyrirtækisins vilji hugsa sitt ráð ítar-
lega áður en í slíkar framkvæmdir
er ráðist.
Sjómannaverkfallið bitnaði hart á Árnesi
Hagnaður nam
nær 36 millj.
ÁRNES hf. í Þorlákshöfn skilaði
alls um 35,7 milljóna króna hagn-
aði fyrstu sex mánuði ársins sem
er svipuð útkoma og í fyrra þegar
hagnaður nam um 34,6 milljónum.
Afkoma af rekstrinum sjálfum án
tillits til fjármagnsliða og afskrifta
versnaði hins vegar til muna milli
ára en á móti kom að fjármagns-
kostnaður lækkaði verulega.
Tekjur félagsins voru alls um
682 milljónir fyrstu sex mánuði
ársins sem er um 140 milljóna
lækkun frá sama tíma í fyrra.
Hagnaður án afskrifta og fjár-
magnskostnaðar var rúmar 112
milljónir, afskriftir 53 milljónir og
fjármagnskostnaður 26 milljónir.
Til samanburðar má nefna að fjár-
magnskostnaður á sama tíma í
fyrra nam um 83 milljónum.
Veltufé frá rekstri nam rúmum 60
milljónum.
Heildarskuldir félagsins þann
30. júní voru alls um 1.030 milljón-
ir en nettóskuldir voru 616 milljón-
ir og höfðu lækkað um 184 milljón-
ir frá áramótum. Á tímabilinu var
hlutafé félagsins aukið um 126
milljónir og er eigið fé nú um 135
milljónir og eiginfjárhlutfall 11%.
Fram kemur í frétt frá Árnesi
að lakari rekstrarafkoma félagsins
á fyrri hluta ársins skýrist fyrst
og fremst af verkfalli sjómanna í
maí og júní. Það hafi haft mjög
slæm áhrif á afkomu Árnes. Tekj-
ur sem þar hafi farið forgörðum
verði ekki unnar upp aftur síðar.
Verkfallið bitnaði mjög á humar-
veiðum og -vinnslu hjá félaginu.
I rekstraráætlun er gert ráð
fyrir að Árnes skili hagnaði á árinu
1995 þótt síðari hluti ársins sé oft
erfiður.
Árnes hf. er stærsta sjávarút-
vegsfyrirtækið á Árborgarsvæðinu
og gerir út fjóra báta sem aðallega
stunda kolaveiðar. Síðan rekur fé-
lagið frystihús með um 100 starfs-
mönnum. Á sumrin eru stundaðar
humarveiðar og -vinnsla. Starfs-
inenn eru að jafnaði um 175 tals-
ins en hafa flestir verið hátt í 300
talsins. Á fyrri hluta ársins greiddi
Árnes hf. um 205 milljónir í laun.
íslenska járnblendifélagið hf.
J 1 Ur milliuppgjöri 30. júní 1995
'Vmmr Upphæðiri Rekstur milljónum kr. Jan.-júní 1994 Jan.-júní 1995
Rekstrartekjur 1.181,1 1.491,5
Rekstrargjöld 953,5 1.213,2
Fjármagnsgjöld 94,5 90,2
Hagnaður 38,0 188,1
Eignir 31.12J94 30.06.’95
Veltufjármunir 1.076,0 1.631,9
Fastafjármunir 2.180,2 2.206,9
Eignir alls Skuidir 3.256,2 3.838,8
Skammtíma skuldir 383,3 951,3
Langtíma skuldir 1.544,3 1.089,7
Hlutafé 989,9 989,0
Annað eigið fé 339,6 799,8
Skuldahlið alis 3.256,2 3.838,8
Þýzka stjórnin
Opnunar-
tími verzl-
ana ræddur
Frankfurt. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Helmuts
Kohls, kanzlara Þýzkalands,
ætlar í þessum mánuði að fjalla
um tillögur stjórnarflokkanna
um breytingu á gildandi lögum
um opnunartíma verzlana, en
þau eru ströng og hefur ekki
verið breytt síðan á sjötta ára-
tugnum.
Reglur um opnunartíma
verzlana hafa verið mjög um-
deildar á opinberum vettvangi
í Þýzkalandi á undanförnum
árum. Nú ætla stjómarflokk-
arnir, Kristilegir Demókratar
(CDU) og Fijálslyndi Demó-
krataflokkurinn (FDP) að
bregðast við þeim vilja, sem
þeir telja vera orðinn útbreidd-
an meðal almennings í landinu,
til að opnunartíma verzlana
verði settar fijálsari skorður í
lögum.
Eftir Gúnter Rexrodt við-
skiptaráðherra Þýzkalands er
haft að til standi að leggja fram
mótaðar tillögur um málið ekki
seinna en 20. september.
Rexrodt hyggst ræða það fyrst
við verkaiýðsfélög verzlunar-
manna, sem hafa staðið vörð
um opnunartímalögin undan-
farna áratugi.
Rexrodt vonast til að tillög-
urnar nái fram að ganga í þing-
inu í haust og nýju lögin geti
tekið gildi í upphafi næsta árs.
NBC með evrópska fréttastöð
Berlín. Reuter.
NBC-sjónvarpsstöðin hyggst á næsta
ári hefja útsendingar á efni CNBC-
viðskiptafréttastöðvarinnar í Evrópu.
NBC hefur undanfarið rekur stöð-
ina Superchannel í Evrópu og verður
efni CNBC sent út í tengslum vií
hana.
Markmiðið er að styrkja stöði
NBC í Evrópu en útsendingar CNBC
verða allan sólahringinn.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Uppfylla ströngustu gæöakröfur
PR0NT0
PRESTO
REN0V0
Rakaheld án próteina • Níðsterk
Hraðþornandi • Dælanleg
Hentug undir dúka og til ílagna
Gólflagnirhf
IÐNAÐARGÓLF QmiAillMamir 70
Smiðjuvegur 70, 200 Kópavogur
Slmar: 564 1740, 892 4170, Fax: 554 1769
I
>
>
>
>
>
>
>
i
i
L
I
i
L
I
i
I
I
i
I
b