Morgunblaðið - 05.09.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 27
AÐSEIMDAR GREINAR
Utvarp og sjónvarp í
almenningsþjónustu
MIÐVIKUDAGINN
16. ágúst birtist í Morg-
unblaðinu grein frá
minni hendi undir yfir-
skriftinni: „Menningar-
hlutverk útvarps og
sjónvarps." Eins og
nafnið bendir til var
grein þessari ætlað að
vera vinsamlegt fram-
lag til orðræðu um hug-
stæð efni. Þungamiðjan
var á þá lund, að næsta
útbreidd samstaða væri
um það, „að útvarp og
sjónvarp séu menning-
artæki og gegni til-
teknu hlutverki að því
er tekur til varðveizlu
og eflingar þjóðlegrar og alþjóðlegr-
ar menningar". Umræðan var al-
menn og greip á ýmsum efnum, sem
ég leyfði mér að nefna „sjálfsagða
hluti“.
Þriðjudaginn 29. ágúst ritar Árni
Svavarsson grein í sama blað og fer
allmörgum orðum um ritsmíð mína.
Auðséð er, að umræddur greinar-
stúfur hefur orðið Árna til ama.
Þetta kemur á óvart. Ég hugðist
ekki styggja nokkurn mann. Mér bjó
engan veginn í skapi að gera Árna
Svavarssyni skráveifu, — fremur en
neinum öðrum.
Undarlegt má það heita, að til
skuli vera maður, sem lætur hugleið-
ingarkorn um menningu í útvarpi
og sjónvarpi ræna sig rósemi. Vita-
skuld var ég svo ónærgætinn að
minnast á Ríkisútvarpið sem menn-
ingarmiðil: „Ríkisútvarpið hefur
bæði lengi og vel sinnt þeim menn-
ingarverkefnum, sem hér voru
nefnd.“ Þetta sagði ég og það virð-
ist hafa farið fyrir brjóstið á Árna.
Hitt mun hann hafa hlaupið yfir, sem
gat að líta litlu aftar í grein minni:
„Með því er ekki sagt, að Ríkisút-
varpið sé eini ljósvakamiðillinn, sem
fái borið íslenzka menningarbaráttu
inn í framtíðina." Ég var sem sé að
ræða um menningarhlutverk ljós-
vakamiðla almennt og það mun ekki
hafa vafizt fyrir neinum velviljuðum
lesanda.
Ekki veit ég hvernig á því stend-
ur, að Árna Svavarssyni er svona
mikið í nöp við hugmynd mína um
ljósvakamiðla sem menningartæki.
„Þetta eilífa tal um menningar- og
fræðsluhl_utverk“ veldur því, að það
sýður á Árna. Hann virðist vísa því
algjörlega á bug, að menning eigi
heima í ljósvakamiðli: „Ef myndlist
er það sem rætt er um þá fara menn
á myndlistarsýningar, ef leiklist er
það sem horfa skal á þá fara menn
í leikhús." Svo er að sjá sem lista-
flutningur og umfjöllun um listir í
útvarpi og sjónvarpi séu Árna Sva-
varssyni fullkomin andstyggð. Árni
er ritari félags eins um ljósvakamál.
Vonandi talar hann ekki í umboði
félagsins, þegar hann lætur í ljós
þennan sérkennilega skilning sinn á
menningarmálum. Ég hef að svo
stöddu enga ástæðu til að ætla, að
ailir félagslimir séu sömu blindu
slegnir og Árni Svavarsson.
Það er þannig ýmislegt, sem Árni
Svavarsson hefur á hornum sér. í
einu tilliti er þó skemmra á milli
okkar en endranær. Við höfum báð-
ir áhuga á frelsi og sjálfstæði ljós-
vakamiðla. Árni talar gagngert um
„óháða og fijálsa aðila" á öldum ljós-
vakans. Hér hef ég tilhneigingu til
að taka í strenginn með honum.
Fijálsir og óháðir fjölmiðlar eru
eitthvert þýðingar-
mesta vopnið í höndum
borgaranna í lýðræðis-
þjóðfélögum nútímans.
Þegar talið berst að
þeim efnum verður það
efst á baugi, hve brýnt
er, að til séu á hveijum
tíma útvarp og sjónvarp
sem eru laus úr greip-
um fárra fjársterkra
einkaeigenda og fijáls
að því að stunda þá
„almenningsþjónustu",
sem enn lifir góðu lífi
víða um Vesturlönd,
þrátt fyrir sókn við-
skiptavæðingarinnar á
síðari árum. Útvarp og
sjónvarp í almenningsþjónustu
(public service broadcasting) blómg-
ast nú á dögum um nær alla Evrópu
og er óháð valdi viðskiptajöfra og
auðdrottna. Útvarp og sjónvarp í
almenningsþjónustu hefur ekkert
Fij álsir o g óháðir ij’öl-
miðlar eru, að mati
Heimis Steinssonar,
eitthvert þýðingarmesta
vopnið í höndum borg-
aranna í lýðræðisþjóðfé-
lögum nútímans.
verkefni með höndum annað en það
eitt, að vera hlustendum og áhorf-
endum til menningarauka og
skemmtunar. Því er t.d. ekki ætlað
að skila eigendum sínum fjárhags-
legum arði né lúta fyrirmælum
þeirra á nokkurn hátt. Útvarp og
sjónvarp í almenningsþjónustu er
þannig í bezta skilningi „óháður og
fijáls aðiii“.
Með því, sem hér hefur verið sagt,
er það engan veginn fullyrt, að út-
varp og sjónvarp í einkaeigu þjóni
ekki neytendum. Einungis er á það
bent, að einkareknir ljósvakamiðlar
eru skuldbundnir eigendum sínum.
Útvarp og sjónvarp í almennings-
þjónustu er aftur á móti engum háð
nema hlustendum og áhorfendum
og þeim lögum, er þar að lúta.
Erlendis er útvarp og sjónvarp í
almenningsþjónustu í mjög mörgum
tilvikum fjármagnað með afnota-
gjöldum. Sú aðferð ræður þó engan
veginn neinum úrslitum. Mestu
skiptir að frelsi og sjálfstæði hlutað-
eigandi ljósvakamiðils sé á einhvern
hátt tryggt með almennum framlög-
um. Hér á landi stendur Ríkisútvarp-
ið að rekstri útvarps og sjónvarp í
almenningsþjónustu. Ftjárhags-
grundvöllur Ríkisútvarpsins hefur
um langt skeið verið tryggður með
afnotagjldum. Stjórnvöld hafa þá
tilhögun nú til íhugunar. Vonandi
munu þau sjá Ríkisútvarpinu fyrir
tekjustofni, sem með einhveijum
hætti tryggir frelsi og sjálfstæði
útvarps og sjónvarps í almennings-
þjónustu um langa framtíð á íslandi.
Öllu varðar nú sem fyrr, að út-
varp og sjónvarp ræki það menning-
arhlutverk sitt, sem ég gerði að
umtalsefni í fyrri grein minni. Ríkis-
útvarpið mun vonandi í því efni á
komandi tíma reynast sá hornsteinn,
sem það lengi hefur verið.
Höfundur er útvarpssijóri.
Heimir Steinsson
/
af
ram
smjori
fræðile
n
Fitubrennslunámskeið Ræktarinnar
standa yfir í 8 vikur. Það sem greinir
þau frá mörgum áþekkum nám-
skeiðum annarra erfaglegi þátturinn.
Rafn Líndal læknir og leiðbeinandi
í líkamsrækt stýrir námskeiðunum,
þar sem lögð er áhersla á samspil
hreyfingar og mataræðis útfrá
líkamlegu ásigkomulagi hvers
og eins.
Þess vegna eru allir þátttakendur
vegnir og metnir í upphafi og vand-
lega fylgst með framvindu mála út
námskeiðið. ítarlegur og sneisafullur
pakki af forvitnilegum gögnum um
líkamsrækt og mataræði fylgir
með námskeiðunum.
Láttu sjá þig
- við stöndum með þér!
héðinn!
Á nokkrum mánuðum missti Héðinn 24 kíió
á fitubrennslunámskeiðum Ræktarinnar, eða sem
samsvarar 48 hálfs kílóa smjörlíkisstykkjum.
Síðan hefur hann haldið þessum léttleika, sem
sýnir að árangurinn á þessum námskeiðum er
ekki aðeins verulegur, heldur líka varanlegur.
Nú stefnir hugurinn til frekari afreka á
framhaldsnámskeiðum Ræktarinnar og við
óskum honum góðs gengis og segjum:
- áfram með smjöríð Héðinn.
Innritun er hafin
Frítt í Ræktina í dag.
Notaðu tækifærið
Sex þátttakendur á síðasta
námskeiði sögðu skilið við
samtals 50 kg. og aðrir stóðu
þeim lítt að baki. Stelpurnar
kalla nú nuddpottinn í
kvennaklefanum strá- kar.
RÆKTIN
T«KI*iAkUK|.OLIIMlÁ[jl»ABtKKm
FROSTASKJÓLI
Sími 551-2815
. . o g ú 11 i t i ð e r g o t t
Eitt blab
fyrir alla!
JHorflunXitaíiIt'
- kjarni málsins!
.. ^VóVtXV11 bölgf. t St^PP KoL,
^ ^ °»s,rnlt K&nU^ V^isdan5at
- Danssmiðja Hermanns Ragnars
Engjateig 1, 105 Reykjavík 568-9797 og 56 8-7580
SJlc^ÍlIu/X- dan<)<ifcó.£t v ^xdfiaixu fiuAtiœÁI