Morgunblaðið - 05.09.1995, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
THAT LITTLE RED HAlRED
6IRL JUST CALLEC?..
jr
5HE UJAHT5 YOU TO
MEET MER AT THE
PLAV6R0UNP, ANO
PUSH HER ON THE
5WIN65..
Litla rauðhærða stelpan var að Hún vill að þú hittir
hringja... hana úti á leikvelli og
ýtir henni í rólunni.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Kirkjustarf
aldraðra í Lang-
holtskirkju
Frá Flóka Kristinssyni
NÚ AÐ loknum sumarleyfum eru
að hefjast samverustundir aldraðra
í Langholtssókn. Samverustundimar
verða í vetur alla miðvikudaga kl.
13-17. Bílaþjónusta verður í boði
og séð verður um að aka þeim til
og frá kirkju sem á því þurfa að
halda.
Samverustundir aldraðra miða að
því að stuðla að auknum kynnum,
félagsskap og vináttu milli þeirra
sem komnir em á efri ár. Á samveru-
stundunum er boðið upp á föndur,
spil og léttar leikfimiæfingar, einnig
söngæfingar og bænastund, einka-
viðtöl og upplýsingar um réttindi
aldraðra. Ennfremur er boðið upp á
hárgreiðslu og fótsnyrtingu á sama
tíma. Tímapantanir eru í safnaðar-
heimili Langholtskirkju alla miðviku-
daga kl. 11-12.
Föndurkennsla
Föndurkennsla fyrir aldraða verð-
ur með svipuðum hætti og síðastlið-
inn vetur og hefst hún í safnaðar-
heimilinu 20. september nk. og verð-
ur á sama tíma og samverustundirn-
ar.
Vinafundir
í október hefjast aftur svokallaðir
vinafundir, þar sem aldraðir ræða
saman um trú og líf undir hand-
leiðslu leiðbeinanda. Þessir fundir
hafa verið haldnir sl. tvo vetur og
hafa orðið mörgum til ánægju og
fróðleiks. Fyrsti fundurinn er áætl-
aður 5. október kl. 14.
Biblíufræðsla
Þá verður í vetur boðið upp á
fræðslu fyrir þá sem áhuga hafa á
að kynnast og tileinka sér efni Bibl-
íunnar með lestri hennar. Þeir fundir
verða á virkum dögum og ættu því
að geta hentað þeim sem eru heima-
vinnandi eða sestir í helgan stein.
Þeir verða nánar auglýstir síðar.
Heimsóknarþj ónusta
Heimsóknarþjónusta er veitt á
vegum Langholtskirkju. Þeim sem
óska hennar er bent á að hafa sam-
band við sóknarprenstinn sem tekur
við beiðninni. Viðtalstími hans er í
kirkjunni þriðjudaga til fímmtudaga
kl. 10-12. Einnig er hægt að hafa
samband við hann í heimasíma hans.
Kvöldbænir — aftansöngur
Næstkomandi þriðjudag hefjast
kvöldbænir (aftansöngur) í kirkjunni
og verða framvegis í vetur alla virka
daga kl. 18. Kvöldbænir eða aftan-
söngur er stutt bænastund fyrir þá
sem vilja ljúka dagsverki sínu með
guðrækni í kirkjunni. Þeim er stjórn-
að af sóknarpresti og leikfólki til
skiptis. Lesið er úr ritningunni (lectio
continua), sunginn einfaldur söngur,
farið með bænir og íhugað í kyrrð.
Þá hefur beiðnum um fyrirbænir
farið sífellt fjölgandi og geta þeir
sem óska fyrirbæna komið bænar-
efnum á framfæri við sóknarprest
kirkjunnar, sr. Flóka Kristinsson eða
afhent þau við upphaf kvöldbæna í
kirkjunni.
Kvöldbænir hafa verið reglulegur
þáttur í helgihaldi Langholtskirkju
undanfarin 3 ár og kemur þar sam-
an nokkur hópur reglulega. Reynt
er að leitast við að stækka bænahóp-
inn og eru allir sem áhuga hafa á
reglulegu bænalífi hvattir til að
leggja leið sína í kirkjuna og kynn-
ast þessum stundum af eigin raun
eða hafa samband við sóknarprest-
inn og óska frekari upplýsinga. I
vetur verður stuðlað að því að hafa
reglulega fræðslu í tengslum við
kvöldbænirnar.
FLÓKI KRISTINSSON,
sóknarprestur Langholtskirkju.
Fyrirspurn til
framkvæmdastj óra
Sjóvá-Almennra
Frá Gísla S. Loftssyni:
ÞÚ SAGÐIR í umræðuþætti á Stöð
2 í ágústbyijun að ástæða hárra
iðgjalda fyrir bílatryggingar væri
fyrst og fremst tjónatíðnin og einnig
að tryggingafélögin þyrftu að greiða
meira í slysabætur hér á landi fyrir
minniháttar slys heldur en trygg-
ingafélög á hinum Norðurlöndunum.
Jón Steinar Gunnlaugsson,
hæstaréttarlögmaður, skýrir frá því
í Morgunblaðinu 24. ágúst að sam-
kvæmt könnunm sem hann gerði á
þessum málum, sé það „hreinlega
rangt, þegar fyrirsvarsmenn ís-
lenska vátryggingarfélaga gefa í
skyn að reglur á íslandi séu tjónþol-
um hagfelldari en í þessum löndum
(innsk.: 10 lönd í Evrópu). Þvert á
móti... eru íslenskir tjónþolar mun
verr settir heldur en tjónþolar í fyrr-
greindum Evrópúlöndum.“
Þessi orð Jóns Steinars stangast
á við fullyrðingar þínar (og allra
hinna tryggingaforstjóranna) um
háar tryggingagreiðslur.
Ekki eitt aukatekið orð hefur
heyrst frá þér um málið. Viltu ekki
vera svo vænn að ganga fram fyrir
skjöldu og skýra mál þitt betur?
Ef Jón Steinar hefur rétt fyrir
sér, þá hefur þú ekki farið rétt með.
Einhvern veginn hefði maður haldið
að þú hefðir metnað til að svara
slíku. Ef þú gerir það, sem ég vona
að verði, væri gaman að sjá dæmi
frá þér máli þínu til stuðnings.
GÍSLI S. LOFTSSON,
Þverholti 3.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lótandi.