Morgunblaðið - 14.11.1995, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
DEILDARSTJÓRARNIR Helgi Gestsson (t.v.) og Jens Arnyótsson
líta inn í tíma hjá nemendum í iðnaðartæknifræði.
> v,
Rekstrardeild Tækniskóla Islands 10 ára
Námið tengist at-
vinnulífinu verulega
REKSTRARDEILD Tækniskóla ís-
lands var stofnuð fyrir tíu árum
eftir nokkra umræðu í atvinnulífinu
um þörf á stuttu, sérhæfðu námi á
háskólastigi. Síðan þá hefur hún
tekið stöðugum breytingum og er
í sífelldri þróun.
Skólinn setur tveggja ára starfs-
reynslu sem skilyrði fyrir inntöku.
„Við erum mjög harðir á þvi að
fólk hafí verið nokkurn tíma á
vinnumarkaði og hafi þekkingu á
atvinnulífmu áður en það hefur
nám. Um leið erum við að gefa því
tækifæri á að komast í skóla, þar
sem andrúmsloftið er ekki hefð-
bundið heldur meira í tengslum við
atvinnulífið," sögðu Helgi Gestsson
og Jens Amljótsson- deildarstjórar
í rekstrardeild.
Nám í rekstrardeild skiptist í iðn-
rekstrarfræði, iðnaðartæknifræði
og útflutningsmarkaðsfræði. Iðn-
rekstrarfræðinám snertir flesta
þætti fyrirtækjareksturs allt frá
markaði til framleiðslu. Hægt er
að velja um þijú svið; markaðs-,
framleiðslu- og útvegssvið.
Breytingar haustið 1996
Sú breyting verður á námskröf-
um í iðnaðartæknifræði næsta
SÉRSTAÐA REKSTRARDEILDAR
• Hópvinna við hagnýt verkefni frá byijun náms.
• Inntaka eldri nemenda er leyfð án stúdentsprófs.
• Krafa er gérð um starfsreynslu úr atviunulífi.
• Símatskerfi er notað í iðnrekstrarfræðinámi.
• Hagsmunasamtök atvinnulífs eru virk við þróun námsbrauta.
• Lokaverkefni eru unnin að óskum fyrirtækja og styrkt af þeim.
skólar/námskeid
ýmislegt
■ Opin vinnustofa - LISTFENGI
mánudaga kl. 14.00-23.00,
miðvikudaga kl. 14.00-23.00.
Pappírsgerð - glerskurður - silkimálun
- aðventuskraut - jólaskraut o.fl. o.fl.
Fjölbreytt föndumámskeið fyrir börn
mánudaga kl. 15.00-17.00, 8-10 ára,
miðvikudaga kl. 16.30-18.30,10-12 ára.
Hópar geta fengið aðstöðu og leiðsögn
á öðrum tímum.
LISTFENGI ehf., Eiðistorgi 11,
170 Seltjarnarnesi,
símar 562-2770/561-0865.
tölvur
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
■ Tölvuskóli í fararbroddi.
ÖIl hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1
- Windows 3.11 ásamt Mail og Scedule
- Word 6.0 fyrir Windows og Macintosh
- WordPerfect 6.0 fyrir Windows
- Excel 5.0 fyrir Windows og Macintosh
- PageMaker 5.0 f. Windows/Macintosh
- Access 2.0 fyrir Windows
- PowerPoint 4.0 f. Windows/Macintosh
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Word og Excel uppfærsla og framhald
- Unglinganám, Windows eða forritun
- Windows forritun
r- Internet grunnur, frh. eða HTML skjöl
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja ölfum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning í síma
561-6699.
Tölvuskóli Reykiavjkur
Borgartúni 28, sfmi 561 6699.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna viö Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 551 7356.
haust að ekki verður gerð krafa til
þess að nemendur hafi lokið iðn-
rekstrarfræði eins og hingað til.
„Við munum taka inn stúdenta af
eðlisfræði- og náttúrufræðibrautum
framhaldsskóla .og úr raunagreina-
deild Tækniskólans og mun námið
taka 3‘A ár. Nú er það 2.Vi ár auk
iðnrekstrarfræðinnar sem tekur 2
ár. Ástæðan er sú að við og mennta-
málaráðuneytið töldum 4 'h árs nám
of langt fyrir BS-gráðu og því er
þessu breytt til samræmis við annað
tæknifræðinám," sagði Jens.
Hann sagði ennfremur að um
væri að ræða hagræðingu á nám-
inu, það yrði enn hnitmiðaðra og
borið uppi af rekstrar- og tækni-
áföngum. Um tuttugu nemendur
geta hafið nám í iðnaðartæknifræði
næsta haust.
Útflutningsmarkaðsfræði er
þriggja anna nám að loknu iðn-
rekstrarfræðinámi af markaðssviði
eða sambærilegu námi og lýkur
með BS-gráðu. Útflutningsmark-
aðsfræðingar eru hæfir til hvers
kyns markaðsstarfa en sérhæfðir í
öflun markaðar fyrir íslenska vöru
og þjónustu erlendis. Námið er hið
eina sinnar tegundar á háskólastigi
hérlendis.
Starfsmöguleikar ágætir
Deildarstjórarnir segja starfs-
möguleika nemenda úr rekstrar-
deildinni ágæta, enda vinni þeir
lokaverkefni í samvinnu við fyrir-
tæki. Margir fá jafnvel störf við
sama fyrirtæki og unnið hafði verið
fyrir. Lokaverkefni taka frá einu
upp í tvö ár, en tími þeirra er mis-
munandi eftir námsbrautum.
„Verkefnin eru alltaf undir stjórn
leiðbeinenda sem við teljum mikil-
vægt,“ sagði Jens.
Aðspurðir um hvort næg hagnýt
verkefni séu til staðar fyrir nemend-
ur rekstrardeildar yfír námstfmann
svöruðu þeir að umframeftirspurn
sé frá fyrirtækjum. „Á undanförn-
um árum hafa verið unnin milli 20
og 30 verkefni en yfir 40 beiðnir
hafa að meðtaltali legið fyrir frá
fyrirtækjum. Nemendur hafa því
þó nokkurt val á verkefnum," sagði
Helgi.
Þess má geta að þeir sem vilja
kynna sér frekar þau verkefni og
það nám sem fram fer í Rekstrar-
deild Tækniskóla íslands geta heim-
sótt hann næstkomandi sunnudag
kl. 11-17, þar sem verður opið hús.
Útskriftarnemar í iðnaðartæknifræði
Þróa kavíar úr
skarkolahrognum
„LOKAVERKEFNI
okkar er að þróa
kavíar úr skarkola-
hrognum á Frakk-
landsmarkað í sam-
vinnu við Bakkavör
hf.,“ sögðu þeir Sig-
þór Hallfreðsson
verkefnisstjóri og
Ólafur Sörli Krist-
mundsson í samtali
við Morgunblaðið.
Með þeim félögum
eru einnig í hópnum
þeir Garðar Bald-
ursson og Karl Ósk-
ar Viðarsson. Ein-
ungis átta nemendur
eru á lokaári í iðn-
aðartæknifræði af
þeim þrettán sem
hófu þar nám. Iðnað-
artæknifræðin tekur
nú fimm annir, þar
af er unnið að loka-
verkefni I fjórum
þeirraÁ
Takmark hópsins
er að vera til reiðu
í vor með tilbúna
vöru í neytenda-
pakkningar. „í
framhaldi af því
verður hægt að taka
ákvörðun um hvort
hægt verði að þróa
hana áfram á mark-
að eða hvort fram-
leiðslan svari kostnaði, gæði
náist eða hvort eitthvað standi
í veginum," sagði Ólafur.
Ýmislegi kom tilgreina
Áður en ákvörðun um skar-
kola var tekin höfðu þeir velt
fyrir sér frostþurrkun, ýmsum
möguleikum varðandi síld auk
skelfisksúrgangs. „Ein önn er
ætluð í að leita að þróunarverk-
efni og á þeirri næstu er reynt
að halda áfram með það verk-
efni sem valið var. Það er þó
ekki skilyrði, því ýmislegt getur
komið upp á þannig að það
borgi sig ekki að halda áfram
að vinna hugmyndina," segir
Sigþór.
„Það er eðli vöruþróunar, að
ekki gengur allt upp sem byrjað
er á,“ bætir Ólafur við.
Þeir segja að ósk forsvars-
manna Bakkavarar hefði verið
að nýta hrogn úr fiski sem fram
til þessa hefðu verið vannýtt.
Þeir hefðu því snúið sér að
hrognum úr gulllaxi. „Við vor-
um komnir langt af stað með
það verkefni síðastliðið vor og
biðum eftir hrognum. Fullir til-
hlökkunar settum við okkur í
stellingar, en þá skall sjó-
mannaverkfallið á. Það stóð
yfir hrygningartím-
ann þannig að við
fengum engin
hrogn. Þá urðum við
að endurmeta stöð-
una og völdum skar-
kola.“
Nú er undirbún-
ingsvinna komin á
það stig að í þessari
viku byrja þeir að
vinna með sjálf
hrognin, sem Bakka-
vör á bæði söltuð og
frosin. „Við vitum að
sjálfsögðu ekki hver
útkoman verður,“
segja þeir en benda
á að skólinn fullmeti
verkefnið hvort sem
ráðist verður í fram-
leiðslu eða ekki.
Mikil áhersla er
lögð á vöruþróun I
deildinni, sem end-
urspeglast í hóp-
verkefnum nem-
enda. „Markmiðið
með náminu er að
geta samræmt hóp-
vinnu starfsmanna
eða sérfræðipga úr
ýmsum stéttum,"
sögðu þeir Ólafur og
Sigþór.
Nemendur í iðnað-
artæknifræði hafa
þurft að ljúka fyrst
iðnrekstrarfræði, en að öðru
leyti koma þeir víða að og hefja
nám á mismunandi aldri. Nám-
inu lýkur með BS-gráðu.
Sigþór er 34 ára og lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Laugarvatni, en hefur einnig
lokið prófi í framreiðslu.
Lengstum var hann þó á sjónum.
Ólafur er 26 ára og tók stúdents-
próf frá Menntaskólanum við
Sund en hefur aðallega unnið
við járnsmíðar hjá föður sínum.
Garðar kemur hins vegar úr
Menntaskólanum í Reykjavík og
er flugmaður og Karl frá Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi,
„þaulvanur loðnusjómaður" eins
og þeir félagar orðuðu það.
Þeir segja að það sé einn af
kostum skólans að fólkið sé ekki
steypt í sama mótið. „Ég held
að það lýsi því einna best hversu
skólinn hefur verið á undan
sinni samtíð að þær hugmyndir
sem verið er að ræða innan
Verslunarháskólans nú eru þær
sömu eða svipaðar og námið er
hér,“ sagði Sigþór. „Iðn-
rekstrarfræði byrjaði hér fyrir
10 árum, en nú hafa tveir aðrir
skólar tekið upp slikt nám, Sam-
vinnuháskólinn á Bifröst og
Háskólinn á Akureyri."
Sigþór
Hallfreðsson
Ólafur Sörli
Kristmundsstii
Fiöldatakmarkanir í Háskóla íslands
Fjöldatakmarkanir eru í átta deildum innan Háskóla íslands og
hafa takmarkanir verið svipaðar undanfarin ár. Að sögn Þórðar
Kristinssonar kennslustjóra HÍeru meginrökin fyrir fakmörkunum
þau aö hluti námsins felst í starfsþjáifun á stofnunum og aðstaða
til að veita nemendum hana er takmörkuð.
Háskólinn endurskoðar fjöldatakmarkanirnar áriega.
Fjöldatakmarkanir deilda: Árs viðbótarnám/starfsnám:
(hversu margir komast i (fjöldatakmarkanir ínn í deildir)
gegn um samkeppnispróf)
Læknisfræði 30 Hagnýt fjöimiðlun 17
Hjúkrunarfræði 60 Féiagsráðgjöf 15
Sjúkraþjálfun 18 Námsráðgjöf 12
Tannlæknadeild 6 Kennslufræði 79