Morgunblaðið - 14.11.1995, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
UNGMENNI skoða afleiðingar umferðaróhapps.
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Sírni 5691100 • Símbréf 569 1329
Á vopnahlésdaginn fer ég alltaf Skál fyrir Viila og Jóa. Við andvörpum mikið.
yfir til Bill Mouldin og svelgi í
mig nokkra rótarbjóra.
Eru ungir
ökumenn verri
ökumenn?
Frá hópi 1.
VIÐ erum hópur 17-20 ára öku-
manna sem vorum á tveggja daga
námskeiði hjá Sjóvá-Almennum.
Við vorum óheppin og lentum í tjóni
og því var okkur boðið á námskeið-
ið. Við höfum skoðað þau mistök
sem við gerðum og viljum benda
ykkur sem eruð einnig í þessum
aldurshópi hvaða mistök við gerð-
um.
Aftanákeyrsla:
Þriðjungur okkar lenti í að aka
aftan á bíl. Við komumst að því að
draga má úr þeim með nokkrum
einföldum ráðum:
1. Hafið bil milli bíla nægilegt.
30 metrar er lágmark á Miklubraut-
inni.
2. Þriggja sekúndna reglan: Telj-
ið 1001, 1002, 1003 þegar bíllinn
fyrir framan fer fram hjá ákv.
punkti, t.d. skilti og ef þið eruð
komin þangað áður en þið hafið
talið þá eruð þið of nálægt næsta
bíl.
3. Eltið ekki bíl yfir gatnamót á
gulu Ijósi, hann gæti ætlað að
stöðva.
4. Stöðvið ekki skyndilega úti á
miðri götu án ástæðu. Þið gætuð
fengið bíl aftan á ykkur. Notið frek-
ar bílastæðin.
5. Fylgist vel með bremsuljósum
bílanna fyrir framan. Þau eru góð
viðvörun.
6. Fylgist einnig með umferðinni
fyrir aftan áður en þið hægið á
ykkur.
Útafakstur:
Við vorum um 30% sem lentum
í að aka út af. Við vorum ekki nógu
þjálfuð til að bregðast rétt við
skyndilegum aðstæðum. Þvi viljum
við benda ykkur á eftirfarandi:
1. Munið að nota bílbeltin, þau
skipta mestu máli.
2. Hugsið um hraðann. Þið getið
betur bjargað ykkur frá óhappi ef
hraðinn er ekki of mikill.
3. Verið upplögð og vel vakandi.
Ekki aka þreytt.
4. Munið að einn hálkublettur
getur skipt sköpum. Verið viðbúin
því óvænta.
5. Hafið allan öryggisbúnað í
lagi. Það er of seint þegar óhappið
verður að lagfæra það sem í ólagi
er, s.s. bremsur, dekk, ljós o.fl.
Að bakka á:
Við sem lentum í að bakka á
hlut eða bíl viljum segja ykkur
þetta:
1. Horfið vel í kringum ykkur
áður en þið bakkið. Haldið því
áfram meðan þið bakkið.
2. Hafið fulla einbeitingu við
aksturinn.
3. Akið hægt afturábak.
4. Treystið ekki 100% á spegl-
ana, snúið höfðinu við líka.
5. Akið ekki í uppnámi. Þá er
hætta á að skapið trufli einbeiting-
una. Bíðið frekar smástund ogjafn-
ið ykkur.
I lokin viljum við ítreka að allur
búnaður bílsins á að vera í full-
komnu lagi. En munið að oftast er
það ökumaðurinn, þú eða ég, sem
gerir mistökin. Við höfum lært af
okkar mistökum. Það var dýr lær-
dómur, því meðaltjónið sem við oll-
um var tæpar 500.000 krónur. Að
auki var mikið tjón á bílunum okk-
ar. Það er betra að læra áður en
mistökin verða.
MEÐ KVEÐJU FRÁ HÓPI1.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þes3. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.