Morgunblaðið - 12.12.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.12.1995, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C 284. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR12. DESEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Líkur á að mál franskra flug- manna leysist París. Réuter. Reuter Gengið til atkvæða um Sarajevo SERBNESKIR íbúar Sarajevo efna til atkvæðagreiðslu í dag um hvort hverfi þeirra eigi að heyra undir stjórn Bosníu, eins og kveðið er á um í friðarsamningunum sem undirritaðir voru í Dayton í Ohio. Vestrænir ráðamenn hafa sagt að atkvæðagreiðsl- an hafi engin áhrif á samningana. Um 3.000 Sarajevo-búar, Serb- ar jafnt sem múslimar, söfnuðust saman í miðborginni í gær til að hvetja Serba til að fallast á að borginni yrði ekki skipt. Þeir sögðust sannfærðir um að íbúarnir gætu lifað í sátt og sam- lyndi, þrátt fyrir S’/i árs umsátur serbneskra hermanna. VAXANDI líkur voru í gær taldar á því að tveir franskir flugmenn, sem voru skotnir niður í Bosníu í ágúst, yrðu látnir lausir bráðlega. Talsmað- ur Frakklandsforseta sagði að franska stjómin legði nú fast að ráða- mönnum í Serbíu og á Vesturlöndum að leiða málið til lykta. Pavle Bul- atovic, varnarmálaráðherra Júgó- slavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjallalands, sagði að leiðtogar Bosníu-Serba hygðust gefa út yfirlýs- ingu sem ætti að „sefa fjölskyldur flugmannanna“. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði að Bill Clinton væri „mjög von- góður“ um að flugmennirnir yrðu látnir lausir bráðlega. Franskir emb- ættismenn höfðu varað við því að mál flugmannanna gæti stefnt samn- ingunum um frið í Bosníu í hættu. Samningamir verða undirritaðir í París á fimmtudag. Orrustuþota frönsku flugmann- anna var skotin niður ýfir Pale, höf- uðstáð Serba í Bosníu, 30. ágúst þegar Atlantshafsbandalagið gerði loftárásir á serbnesk skotmörk. Franskir fjölmiðlar segja að mennim- ir séu í haldi Bosníu-Serba. Karsten Voigt, formaður þing- mannasamkundu Atlantshafsbanda- lagsins, sagði í Belgrad í gær að júgó- slavneski varnarmálaráðherrann hefði skýrt sendinefnd NATO frá því að búast mætti við yfirlýsingu um málið frá leiðtogum Bosníu-Serba. Hann sagði að svo virtist sem ráð- herrann teldi að Bosníu-Serbar héldu flugmönnunum til að knýja fram breytingar á friðarsamningunum. Vangaveltur hafa verið um að helstu leiðtogar Bosníu-Serba, Rado- van Karadzic og Ratko Mladic, vildu notfæra sér flugmennina til að knýja fram breytingar á ákvæðinu um að Sarajevoborg yrði öll undir yfirráðum Bosníustjórnar eða til að hindra að þeir yrðu handteknir fyrir stríðs- glæpi. Þvingunaraðgerðum frestað Herve de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði í vikunni sem leið að franska stjórnin hefði gefið Bosníu-Serbum frest til sunnudags til að láta flugmennina lausa, annars gripi hún til þvingun- araðgerða gegn þeim. Talsmaður Frakklandsforseta sagði í gær að franska stjórnin hefði frestað því að tilkynna þvingunaraðgerðirnar meðan hún ræddi málið við ráða- menn á Vesturlöndum og í Serbíu. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, kvaðst telja að hinar stríð- andi fylkingar í Bosníu virtu friðar- samningana. Ekkert væri því til fyrirstöðu að senda þangað her- menn til friðargæslu. Rússland Mann- réttíndi hundsuð Moskvu. Reuter. í OPINBERRI skýrslu nefndar rúss- neska mannréttindafrömuðarins Sergejs Kovaljovs er fullyrt að stjórnvöld brjóti í æ ríkari mæli mannréttindi með skipulegum hætti. Kovaljov bendir m.a. á að réttur- inn til fijálsrar búsetu einstaklinga, sem lögfestur var fyrir nokkrum árum, sé nú takmarkaður með alls kyns undanbrögðum yfirvalda. Einnig nefnir hann tilskipun Borís Jeltsíns forseta í fyrra sem sögð er nauðsynleg vegna glæpaöldunnar, en samkvæmt henni má halda grun- uðum í varðhaldi í 30 daga án dóms- úrskurðar. í stjórnarskrá er há- markið sagt vera 48 stundir. „Meira að segja Jezov [öryggislögreglufor- ingi Stalíns] mátti aðeins halda mönnum í 15 daga,“ sagði Kovaljov. Skoðanakannanir í Rússlandi benda sem fyrr til þess að flokkur kommúnista verði öflugastur á þing- inu sem kosið verður á sunnudag. ■ ViUa ógilda samninga/24 Mann- skætt tilræði í Madrid SEX manns létust og 12 slösuð- ust þegar bílsprengja sprakk í Madrid í gær, aðeins fáum dög- um áður en leiðtogar Evrópu- sambandsins, ESB, koma þar saman til fundar. Talsmenn stjórnvalda telja fullvíst, að ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, hafi framið hryðjuverk- ið. Sprengjan sprakk um leið og herbíll ók hjá en meðal látinna og slasaðra eru jafnt óbreyttir borgarar sem hermenn. Tvísýnt þótti um líf þriggja af þeim, sem slösuðust, þar af eins barns. Borgarstjórinn í Madrid kvaðst ekki vera í neinum vafa um, að skæruliðar ETA hefðu komið sprengjunni fyrir en sprengingin var svo öflug, að hún olli skemmdum á húsum allt í kring. Leiðtogar ESB-ríkj- anna koma saman í Madrid á föstudag og laugardag og ljóst er, að atburðurinn verður til þess, að öryggisgæsla verður aukin um allan helming. Sprengjutilræðið er það mesta á Spáni síðan í apríl þeg- ar skæruliðar ETA reyndu að ráða af dögum Jose Maria Azn- ar, formann Þjóðarflokksins, helsta stjórnarandstöðuflokks- ins. Reuter SLOKKT í braki bíls í Madrid eftir að sprengja hafði sprungið í honum og orðið sex manns að bana. Papandreou hrakar I öndun- arvél á ný Aþenu. Reuter. ANDREAS Papandreou, for- sætisráðherra Grikklands, var settur í öndunarvél að nýju í gær eftir að hafa fengið sýk- ingu sem olli háum hita. „Ástand hans er hættu- legt,“ sagði talsmaður sjúkra- hússins sem Papandreou var lagður á vegna lungnabólgu 20. nóvember. Forsætisráð- herrann hafði ekki verið í önd- unarvél í þtjá daga. „Við vitum ekki enn hvaðan sýkingin kemur,“ sagði tals- maðurinn. „Við beijumst gegn henni með ýmsum sýklalyfj- um.“ ■ Ræða afsögn/25 Franska stjórnin reynir án árangurs að binda enda á verkföllin Léð máls á víðtækari viðræðum París. Reuter. ALAIN Juppe, forsætisráðherra Frakklands, kvaðst í gærkvöldi ljá máls á að hefja víðtækari viðræður við stéttarfélög í von um að geta bundið enda á verkföll opinberra starfsmanna sem hafa staðið í 18 daga. Stéttarfélögin boðuðu frekari verkföll og mótmælafundi út um allt land í dag. Juppe sagði eftir nokkra fundi með fulltrúum stéttarfélaganna í gær að hann hefði falið Jacques Barrot vinnumálaráðherra að undirbúa hringborðs- viðræður við stéttarfélögin í næstu viku. Þar yrði m.a. fjallað um aðgerðir til að stemma stigu við atvinnuleysinu, en áform stjórnarinnar um viða- mestu breytingar á velferðarkerfinu í 50 ár voru þó ekki á lista yfir mál sem Juppe vill að verði rædd. Fulltrúi lestastjóra í viðræðunum við Juppe sagði að lausn á deilunni væri ekki í sjónmáli þar sem tilslakanir stjórnarinnar, sem Juppe kynnti um helgina, væru of óljósar. Fallist á tilslakanir Juppe léði í fyrsta skipti máls á tilslökunum í sjónvarpsviðtali á sunnudag og kvaðst reiðubúinn að verða við þeirri kröfu lestastjóranna að reglum um eftirlaunaaldur og útreikning launanna yrði ekki breytt. Þá yrði því freslað um óákveðinn tíma að samþykkja formlega fimm ára áætlun um breyt- ingar á ríkislestafyrirtækinu SNCF, sem er rekið með miklum halla. Juppe neitaði hins vegar að verða við þeirri kröfu verkfallsmanna að falla frá áformum um breyting- ar á velferðar- og heilbrigðiskerfinu. Þátttakan í verkfóllunum minnkaði í gær. 13,5% allra opinberra starfsmanna mættu þá ekki til vinnu, en á föstudag var þetta hlutfall um 19%. Auk strætisvagna- og lestastjóra voru 20% kenn- ara, 4% póstmanna og margir símamenn og starfs- menn rafveitna enn í verkfalli. ■ Vingjarnleg ringulreið/24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.