Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kínverski taugaskurðlæknirinn kominn til landsins
Morgunblaðið/Ásdís
HALLDÓR Jónsson og Shaocheng á bæklunardeildinni í gær.
Þingsályktunartillögur um
fæðingarorlof
Feður fái fæðingar-
orlof í tvær vikur
TVÆR þingsályktunartillögur hafa verið lagðar fram á Alþingi sem gera
ráð fyrir því að feður fái sérstakt fæðingarorlof í tvær vikur án þess að
það skerði fæðingarorlof móður. Þá gerir önnur þeirra ráð fyrir því að
fæðingarorlof verði lengt í 12 mánuði og stofnaður verði sérstakur fæðing-
arorlofssjóður sem allir atvinnurekendur greiði í.
Vandasöm
aðgerð
bíður hans
KÍNVERSKI taugaskurðlæknir-
inn Zhang Shaocheng heilsaði
upp á Halldór Jónsson, yfirlækni
bæklunardeildar Landspítalans,
í gær. Shaocheng kom hingað til
lands á sunnudagskvöldið fyrir
tilstuðlan Auðar Guðjónsdóttur
hjúkrunarfræðings til að fram-
kvæma með aðstoð Halldórs afar
vandasama aðgerð á Hrafnhildi
dóttur hennar.
Fjórði lendarliður þríbrotnaði
í Hrafnhildi í alvarlegu bílslysi
árið 1989. Lendarliðurinn færð-
ist til um einn sentímetra og sleit
í sundur mænutaglið með þeim
afleiðingum að Hrafnhildur hef-
ur engan mátt í hægri fæti og
lítinn í þeim vinstri. Auður segir
að Shaocheng ætli að tengja
taugar, millirifjataugar eða
taugar úr fæti Hrafnhildar,
framhjá brotinu til að freista
þess að Hrafnhildur fái meiri
mátt í vinstri fótinn með árunum.
Dr. Shaocheng og dr. Halldór
setjast á rökstóla vegna aðgerð-
arinnar eftir hádegi í dag. Lækn-
amir ætla að skipta með sér
verkum í aðgerðinni og sér Sha-
ocheng um taugar og Halldór um
bein. Aðgerðin tekur væntanlega
6 til 10 tíma og var ráðgert að
hún yrði gerð á miðvikudaginn.
Endanleg ákvörðun um tímasetn-
inguna verður hins vegar ekki
tekin fyrr en Shaocheng hefur
gert sér grein fyrir því hvort
þörf sé á fleiri rannsóknum fyrir
aðgerðina.
Auður segir að Shaocheng taki
skýrt fram að fjölskyldan skuli
ekki gera sér neinar vonir. „Sha-
ocheng segir að aðgerðin sé
tæknilega möguleg og hann skuli
gefa henni þetta tækifæri enda
hafi hún engu að tapa. Á þeim
forsendum er aðgerðin gerð. Ef
eitthvað kemur verðum við bara
þakklát," segir Auður. Hún segir
ómögulegt að segja til um hve-
nær hægt verði að sjá hvort
árangur hafi orðið af aðgerðinni
enda sé langt síðan slysið varð
og erfitt að segja hvaða taugar
hafa lifað af eftir öll þessi ár.
Önnur tillagan er flutt af þing-
mönnum Kvennalistans en flokkur-
inn hefur á undanföynum þingum
flutt frumvarp um að lengja fæðing-
arorlof.
Nú leggur flokkurinn til að heil-
brigðisráðherra verði falið að láta
semja frumvarp um fæðingarorlof
sem byggist m.a. á þeim markmið-
um að feðrum verði tryggður sjálf-
stæður réttur til fæðingarorlofs í 3
mánuði og sérstaks fæðingarorlofs
í 2 vikur eftir fæðingu bams sem
skerði ekki fæðingarorlof móður.
Þá verði ungbörnum tryggð
umönnun beggja foreldra á fyrsta
æviárinu með því að lengja fæðing-
arorlofið í 12 mánuði, öllum mæðr-
um verði tryggður hvíldartími fyrir
fæðingu, fæðingarorlof verði lengra
eftir fjölburafæðingar og fæðingar-
orlof ættleiðandi foreldra lengist í
áföngum til jafns við fæðingarorlof
annarra foreldra.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir að stofnaður verði sérstakur
fæðingarorlofssjóður sem allir at-
vinnurekendur greiði til ákveðið
hlutfall af launum allra launþega.
Þá verði kjör foreldra í fæðingaror-
lofi bætt þannig að launþegar haldi
sínum launum úr sjóðnum en
Tryggingastofnun greiði áfram
fæðingarstyrk vegna þess kostnað-
arauka sem fæðing barns hefur í
för með sér.
Þá hafa Ögmundur Jónasson og
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
menn Alþýðubandalags, lagt fram
tillögu um að við endurskoðun laga
um fæðingarorlof verði tryggður
sjálfstæður réttur feðra til a.m.k.
tveggja vikna orlofs á launum við
fæðingu barns.
Morgunblaöið/RAX
Skemmdir á
Iðubrúnni
VIÐGERÐ er langt komin á
brúnni yfir Hvítá við Iðu. Búist
er við að þungatakmörkunum,
sem gilt hafa frá því skemmdir
komu i ljós, verði aflétt í viku-
Iokin.
Fyrir viku komu í ljós
skemmdir á Iðubrúnni. Að sögn
Bjama Stefánssonar, deildar-
stjóra hjá Vegagerðinni, losn-
uðu festingar við annan enda
brúarinnar þar sem bitar hvíla
á undirstöðum. Bjami segir að
boltarnir hafi slitnað vegna
álags á brúna, líklega á lengri
tíma. Hann segir að þunga-
flutningar séu um brúna en vill
ekki setja skemmdirnar beint í
samband við mikla malarflutn-
inga sem verið hafa um brúna
að undanfömu vegna vegar-
lagningar í nágrenninu.
Hafist var handa við viðgerð-
ir strax og vegagerðarmenn
urðu varir við skemmdirnar. Á
meðan hafa verið þungatak-
markanir á brúnni og miðað við
tvö tonn. Malarflutningarnir
hafa því legið niðri um tíma.
Bjarni Stefánsson býst við að
brúin verði opnuð fyrir allri
umferð í iok vikunnar.
Göngubrú
yfir Kringlu-
mýrarbraut
ÞESSA dagana er verið að
sefya upp göngubrú yfir
Kringlumýrarbraut neðst í
Fossvogi. Framkvæmdir
hófust í sumar og sagði Sig-
urður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri að brúin
væri sett saman úr einingum
og því fljótlegt að koma
henni upp án þess að raska
mikið umferð. Enn á eftir
að setja gólf í brúna, handr-
ið og lýsingu. Hönnuðir
brúarinnar eru Línuhönnun
og Studíó Grandi. Heildar-
kostnaður er 50 milljónir
króna, sem Vegagerð ríkis-
ins greiðir, en samkvæmt
nýjum vegalögum ber Vega-
gerðinni að kosta göngubrýr
yfir sín mannvirki.
„Þetta er fyrsta mann-
virkið í Reykjavík sem er
kostað á þennan hátt og
fyrsta göngubrúin,“ sagði
Sigurður.
Rannsókn leiðir í
ljós fækkun augn-
slysa barna
Lang’flest
augnslys
verða í
leik
TÚTTUBYSSUR orsökuðu
20,6% augnmara á börnum er
lögð voru inn á Landakotsspít-
ala vegna augnslysa 1984 til
ársloka 1993, að því er Harpa
Hauksdóttir og Haraldur Sig-
urðsson greina frá í Lækna-
blaðinu. Fram kemur að augn-
slysum á börnum hafi fækkað
í heild en íjölgað í aldurshópn-
um eins til fjögurra ára. Lang-
flest augnslys verða í leik.
Alls voru 133 börn Iögð inn
á Landakotsspítala vegna
augnslysa á tímabilinu. Af þeim
voru 109 drengir (82%) og 24
stúlkur (18%). Hópnum var
skipt í fjögur aldurstímabil.
Augnslysum fækkaði í öllum
aldurshópum nema þeim
yngsta. Augnmar var algeng-
asta greiningin (51%), síðan
kom gat á auga (26%), áverki
á augnlok (14%) og minnihátt-
ar augnáverkar (8%). Langflest
slysanna urðu við leik.
Jafnmargir slasast í
íþróttum
Athygli vakti að af þeim 68
einstaldingum er hlotið höfðu
augnmar á fyrra tímabilinu
höfuð 12 (26,7%) slasast af
skotum úr túttubyssu. Á seinna
tímabilinu fengu tvö börn
(8,7%) augnmar af völdum
túttubyssu. Um er að ræða
20,6% af þeim sem fengu
augnmar. Fjöldi slysa við
íþróttir stendur í stað. Fjögur
börn slösuðust í boltaíþróttum,
þijú í sundi og fjögur á skiðum.
Sex augnlys urðu af völdum
flugelda. Alls voru níu slys
vegna ofbeldis.
Fram kemur að alvarlegum
slysum hafi verulega fækkað
frá árinu 1971. Alls hafi orðið
23,2 slys að meðaltali á árunum
1971 til 1979, 16,8 á árunum
1984-1988 og 9,8 slys að með-
altali á árunum 1989-1994.