Morgunblaðið - 12.12.1995, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Strýta og Söltun-
arfélag Dalvíkur
Starfsfólki
greidd full
desember-
uppbót
STRÝTA hf. og Söltunarfélag Dal-
víkur hafa ákveðið að greiða starfs-
fólki sínu fulla desemberuppbót,
20.000 krónur, þó svo að Verka-
lýðsfélagið Eining hafa sagt upp
kjarasamningum við vinnuveitend-
ur. Desemberuppbót félagsmanna í
þeim verkalýðsfélögum sem sagt
hafa upp samningum er 14.000
krónur.
„Það hefur verið mjög mikið að
gera í fyrirtækinu á árinu, mikil
keyrsla á mannskapnum og nánast
unnið um hveija helgi. Það hefur
verið unnið úr miklu magni af rækju
sem og öðrum vörum, þannig að
okkar starfsfólk á þessa uppbót
fyllilega skilið. Við viljum hafa gott
samstarf við okkar starfsfólk og
því var ákveðið að greiða þessa við-
bót, þær 7.000 krónur sem upp á
vantar, svo fólkið fái fulla uppbót,“
sagði Aðalsteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Strýtu.
Morgunblaðið/Kristján
Jólaljósin tendruð
LJÓS voru kveikt ájólatrénu
á Ráðhústorgi við hátíðlega
athöfn á laugardag. Tréð er
gjöf frá Randers, vinabæ Ak-
ureyrar í Danmörku. Kór Ak-
ureyrarkirkju söng við at-
höfnina og Lúðrasveit Akur-
eyrar lék nokkur lög. Jakob
Björnsson bæjarstjóri flutti
ávarp og einnig þeir Henning
Pedersen forstöðumaður um-
hverfissviðs í Randers og Otto
Kappel sendiherra Dana á ís-
landi.
Flugfélag Norðurlands að hefja áætlunarflug til Grænlands
Aldrei áður flogið
áætlunarflug milli landa
FLUGFÉLAG Norðurlands mun
hefja áætlunarflug frá Keflavík til
Kulusuk á Grænlandi á morgun mið-
vikudag og er þetta í fyrsta sinn sem
félagið flýgur áætlunarflug milli
landa. Flogið verður á miðvikudögum
til Grænlands í desember og janúar
en í febrúar verður skipt yfir á
fimmtudaga.
Upp úr miðjum mars er svo áætl-
að fljúga tvisvar í viku til Græn-
lands, á mánudögum og fímmtudög-
um, fram á næsta haust. Flogið verð-
ur frá Keflavík fram á vor en í sum-
ar frá Reykjavík og verður Metró
skrúfuþota félagsins notuð í áætlun-
arflugið.
Fengum góðar móttökur
á Grænlandi
Friðrik Adolfsson, sölustjóri Flug-
félags Norðurlands og Sigurður Að-
alsteinsson, framkvæmdastjóri, voru
staddir á Grænlandi í síðustu viku,
þar sem þeir ræddu við fólk í ferða-
þjónustu á svæðinu og annað heima-
fólk. Friðrik segir að miklar vonir
séu bundnar við þessa nýjung í starf-
semi félagsins. „Það er alveg nýtt
fyrir okkur að halda uppi áætlun
milli landa og þar sem Grænlands-
flug heldur uppi áætlunarflugi á
þessari leið er um hreina viðbót að
ræða með innkomu okkar. Við feng-
um mjög góðar móttökur á Græn-
landi og Grænlandsflug ætlar að
halda uppi þyrluflugi milli Kulusuk
og Ammassalik í tengslum við okkar
flug þangað,“ segir Friðrik.
Um 3.500 manns búa í Kulusuk,
Ammassalik og svæðunum þar í
kring og gerir Friðrik ráð fyrir því
að mest verði flogið með heimafólk
yfir vetrartímann en í sumar vonast
hann eftir að ferðafólk verði fyrir-
ferðarmikið í áætlunarfluginu.
Flugfélag Norðurlands eru þessa
dagana að gerast fullgildur aðili að
Amadeus bókunarkerfinu, sem Flug-
leiðir og önnur stór flugfélög eru
með. Þá segir Friðrik að verið sé að
skoða hvaða flugvélakost FN verði
með í framtíðinni. Fyrirtækið er með
6 flugvélar í dag, þijár 19 sæta, tvær
9 sæta og eina 5 sæta.
Árni Ólafsson skipulagssljóri
Ef fólk býr ekki í mið-
bænum er hann líflaus
Morgunblaðið/Kristján
Framtíðarkonur gáfu sjúkra-
baðkar og sjúkralyftara
TILLAGA að nýju miðbæjarskipulagi
var kynnt hagsmunaaðilum á fundi
fyrir helgina. Að sögn Áma Ólafs-
sonar skipulagsstjóra snerist umræð-
an á fundinum aðallega um bílaum-
ferð á svæðinu. „Ég held að menn
hafi ekki gert sér grein fyrir því
hvað er í raun gert ráð fyrir greiðum
aðgangi bíla inn á svæðið."
Árni segir að ekki hafí komið fram
sjónarmið eða atriði sem gefa tilefni
til neinna grundvallarbreytinga á
skipulaginu. Þó komu fram áhyggjur
manna sem að hluta til lenda í upp-
námi vegna fyrirhugaðra breytinga
á svæðinu.
„Við fengum hins vegar mjög lítil
viðbrögð á þessi grundvallaratriði í
tillögunni, eins og t.d. um fyrirhug-
aða íbúðabyggð. Við viljum halda því
fram að því betra umhverfi sem er
í miðbænum því fleiri leggja leið sína
þangað og þá kannski án þess að
eiga sérstakt erindi. Og það að fá
fleira fólk í miðbæinn er hreint og
klárt hagsmunamál fyrir kaup-
rnenn."
Árni segir að þessi hluti miðbæjar-
skipulagsins sé tekinn til endurskoð-
unar til að auðvgldara verði að ganga
frá umhverfinu í endanlegri mynd.
„Samkvæmt núverandi skipulagi er
það erfitt, því við getum ekki lagt
götur, gönguleiðir eða bílastæði
nema rífa fyrst hús á svæðinu.“
Borgarafundur
og auglýsing
Á næstu vikum er stefnt að því
að ljúka vinnu við að fullgera tillög-
una og í framhaldi af því verður til-
lagan kynnt á borgarfundi og hún
svo auglýst, að sögn Áma. „Eftir
að tillagan hefur verið auglýst verður
einungis hægt að gera við hana form-
legar athugasemdir."
Samkvæmt tillögunni er búið að
festa niður byggingareiti á svæðinu
en þar er gert ráð fyrir blandaðri
byggð, verslunar- og þjónustuhús-
næði í bland við íbúðabyggingar. Á
reit sunnan við Sjallann er ráð fyrir
að rísi fjölbýlishús með 40-50 íbúðum
og við Ráðhústorg er sýnd 5 hæða
bygging þar sem að hluta til verða
íbúðir.
„Ef ekkert fólk býr í miðbænum
verður hann líflaus. Þetta er grund-
vallaratriði og til þess að það gangi
eftir þarf að vera þama mannsæm-
andi umhverfi. Það þýðir ekkert fyr-
ir Akureyringa að kvarta yfir dauðu
torgi ef þeir ekki vilja að fólk búi í
miðbænum,“ segir Ámi.
KVENFÉLAGIÐ Framtíðin af-
henti nýlega Dvalarheimilinu Hlíð
sjúkrabaðkar og sjúkralyftara að
gjöf. Þessi gjöf var afhent í minn-
ingu Kristínar Halldórsdóttur,
formanns Framtíðarinnar en hún
lést í hörmulegu rútuslysi í Hrúta-
firði í október sl.
Kvenfélagið Framtíðin, sem
varð 100 ára á síðasta ári, hefur
alla tíð Iátið málefni sjúkra og
aldraðra til sín taka og m.a. fært
Hlíð og Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík, margar góðar gjafir á umliðn-
um árum. Helsta fjárölfun félags-
ins er merkjasala og um þessar
mundir eru sala á jólamerki Fram-
tíðarkvenna í fullum gangi. Merk-
in fást bæði á Pósthúsinu og hjá
félagskonum.
Það voru þær Helga Tryggva-
dóttir, hjúkrunarforstjóri á Hlíð
• og Heiðrún Björgvinsdóttir, skrif-
stofustjóri sem veittu gjöfinni við-
töku.
Á myndinni er stjórn Framtíð-
arinnar við sjúkrabaðkarið. F.h.
Elín Anna Guðmunsdóttir, starf-
andi formaður, Oktavía Jóhannes-
dóttir, Sigurlína Stefánsdóttir,
Ólöf Sveinsdóttir og Áslaug Ein-
arsdóttir.
Aukin umferð
ogjólaglögg
Aukinn við-
búnaður
lögreglu í
desember
LÖGREGLAN á Akureyri
verður með aukinn viðbúnað
í desember, bæði vegna auk-
innar umferðar í jólamánuð-
inum og einnig verður fylgst
með ökumönnum bifreiða
síðla dags, en víða er efnt til
jólaglöggs í þessum mánuði.
Fleiri lögreglumeiui
á vakt
Gunnar Randversson varð-
stjóri lögreglunnar á Akur-
eyri sagði að bætt hefði verið
við lögreglumönnum á vakt
af þessu tilefni. Reynslan
sýndi að umferð er oft þung
á þessum árstíma, ekki síst
þegar veður og færð er eins
og best verður á kosið og
fólk kemur víða að, eða allt
austan af fjörðum til að
versla.
„Við verðum með fleiri lög-
reglumenn á ferðinni út, til
að greiða úr umferðahnútum
og síðan verður fylgst með
ökumönnum í meira mæli en
áður, það er víða siður að
drekka jólaglögg og margir
ætla sér að aka heim eftir
slíkar veislur. Við viljum vara
fólk við að keyra bílana eftir
slíkar veislur,“ sagði Gunnar.
Leiðist að klippa
í jólamánuðinum
Þá nefndi hann einnig að
fyrir lægi beiðni um að klippa
númer af töluverðum fjölda
bíla, en eigendur þeirra hafa
ekki greitt bifreiðagjöld eða
þungaskatt af þeim. „Okkur
leiðist að vera með klippurnar
á lofti í jólamánuðinum þann-
ig að við beinum því til þeirra
sem skulda þessi gjöld að
gera upp, gjalda keisaranum
það sem keisarans er, þannig
að ekki komi til þess að við
séu að klippa númerin af,“
sagði Gunnar.