Morgunblaðið - 12.12.1995, Page 42

Morgunblaðið - 12.12.1995, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Tímamót á Vestfjörðum ÓHÆTT er að segja að tímamót hafi orðið á Vestfjörðum sl. laugardag, þegar íbúar sex sveitarfélaga á norðanverðum Vest- fjörðum ákváðu sam- einingu þeirra með miklum atkvæðamun. Þrír fjórðu íbúanna guldu jáyrði sitt við hugmyndinni um sam- einingu ísafjarð- arkaupstaðar, Suður- eyrarhrepps, Flateyrar- hrepps, Mosvalla- hrepps, Mýrarhrepps og Þingeyrarhrepps. Með mjög afdráttar- lausum hætti var þessi ákvörðun því tekin. Það er enginn vafi á því að að- stæður hafi á marga lund verið íbú- um Vestfjarða erfíðar upp á síðkast- ið. Örðugleikar í atvinnumálum vegna þorskaflaskerðinga og þau áföll sem yfír hafa dunið gera það enn nauðsynlegra en fyrr að fylkja liði og takast sameiginlega á við verkefnin. Ákvörðun íbúa sveitarfé- laganna sex um síðustu helgi er þýðingarmikið skref í þá átt. sambandi að hlutur ís- lenskra sveitarfélaga í samneyslunni er nú þrefalt til fimmfalt minni en gengur og gerist á öðrum Norður- löndum. Tillögur nefnd- ar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, Sveitarfélaganefndar, sem birtust í október 1992, gera og ráð fyrir því að sveitarfélögin taki að sér stóraukin verkefni. Óhjákvæmi- lega mun það hafa áhrif á umdæmaskipan sveit- arfélaganna, gangi þær hugmyndir eftir. Vestfjarðagöng - forsenda sameiningar Vestfjarðagöngin sem eru núna að verða að veruleika munu hafa mikil og farsæl áhrif á byggð á Vestfjörðum. Tenging byggðarlag- Sex sveitarfélög á norð- anverðum Vestfjörðum sameinast senn. Einar Einar K. Guðfinnsson Miklar breytingar á hlutverki sveitarfélaga Miklar breytingar eru að verða á hlutverki sveitarfélaganna. Á næsta ári munu þau taka að fullu við rekstri grunnskólanna. Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir verulegum jöfnunarað- gerðum í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, er það engu að síður ljóst að auðveldara verður fyrir hin- ar stærri einingar í flestum tilvikum að takast á við ný og viðurhlutamik- il verkefni. Allar líkur eru einnig á því að áfram verði haldið á þeirri braut að auka verkefni sveitarfélaganna. Að því hníga líka margvísleg efnahags- leg og pólitísk rök. Nefna má í því K. Guðfinnsson segir að í ákvörðun um sam- einingu felist miklir möguleikar. anna hlýtur að styrkja stöðu þeirra og skapa grundvöll fyrir nýsköpun í atvinnulífí jafnt á sviði framleiðslu sem þjónustu. í sérstökum viðauka við skýrslu Sveitarfélaganefndar er beinlínis sagt að jarðgöng á norðan- verðum Vestíjörðum séu forsenda sameiningar sveitarfélaga á því svæði. Þetta hefur gengið eftir. Um Tímamót í húsfriðun ALLAR borgir eiga sér kennimörk, eins konar stiklusteina landi sínu sem hafa mótað íbúana með nokkrum hætti og aflað þeim sameiginlegrar reynslu. Þetta eru mannvirki eða fjölfarn- ir staðir sem eru sam- ofnir vitund íbúanna og eiga stóran þátt í að gera þá að einni félags- og menningarlegri heild. Reykjavík er ekki undantekning hvað þetta varðar. Eitt af því sem gerir okkur að Reykvíkingum er sam- eiginleg vitund okkar um Dómkirkj- una, Laugaveg, Sundhöllina, Hljóm- skálann, Hótel Borg og Norræna húsið svo að dæmi séu nefnd af handahófí. Hvert þessara fyrirbæra þjónar sínum sérstaka tilgangi og við viljum ekki missa af neinu þeirra. Við viljum ekki breyta Hljómskálan- um í sölutum eða Laugaveg í hliðar- götu, ekki Hótel Borg í skrifstofuhús fyrir Alþingi eða Kjarvalsstöðum í heilsugæslustöð. Þess vegna em það ánægjuleg tíðindi að borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur hlustað á raddir okkar sem ekki höfum viljað breyta Ásmundarsal í leikskóla og gefur nú fyrirheit um að þetta merkilega hús fái að njóta sín áfram eins og það var upphaf- lega hugsað fyrir sex tugum ára. Reglan hefur því miður verið sú um opinbera aðila að lítt eða ekki hefur verið hlustað á gagnrýn- israddir ef ákvörðun hefur á annað borð ver- ið tekin um nýbygging- ar á viðkvæmum stöð- um, niðurrif á merki- legum húsum eða van- hugsaðar breytingar á þeim eða einstökum borgar- eða götumynd- um. Þannig hefur Reykjavík orðið tæt- ingslegri en ella hefði þurft að vera og vantað visst sögulegt sam- hengi í þróun hennar. Nú hefur verið ákveðið að Reykjavík verði ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Ástæðan er auðvitað sú að þrotlaust starf listamanna og vel- unnara þeirra á síðustu áratugum hefur gert þessa borg að blómlegum menningarstað. Smám saman hefur hér risið fy'öldi mennta- og listasetra. Einn af þeim merkustu og rótgrón- ustu er Ásmundarsalur við Freyju- götu. Það hefði orðið mikið slys að breyta honum í leikskóla. Barna- heimili eru auðvitað nauðsynleg og virðingarverð sú viðleitni borgaryfir- valda að fjölga þeim. En þau verða bara að hafa sinn stað og listmenn- ingin sinn. Islendingar voru frekar seinir að taka við sér í módernisma í listum. Þótt merkilegt megi virðast var það helst í byggingarlist sem þeir voru nýjungagjamir á þessu sviði. Guðjón Friðriksson líkt leyti og jarðgöngin eru að opn- ast fyrir umferð ákveða íbúar sveit- arfélaganna sex sameiningu. Ör þróun í sameiningarmálum á Vestfjörðum Ovíða hefur sameining sveitarfé- laga verið örari en einmitt á Vest- fjörðum. Árið 1987 sameinuðust fimm hreppar í Austur-Barðastrand- arsýslu í eitt sveitarfélag, Reykhóla- hrepp. Árið 1990 sameinaðist Auð- kúluhreppur Þingeyrarhreppi. í árs- byijun 1992 sameinuðust Fells- hreppur og Óspakseyrarhreppur í eitt sveitarfélag, Broddaneshrepp. í Vestur-Barðastrandarsýslu samein- uðust fjögur sveitarfélög, Patreks- hreppur, Bíldudalshreppur, Barða- strandarhreppur og Rauðasands- hreppur í eitt sveitarfélag hinn 11. júní í fyrra, Vesturbyggð. Nauteyr- arhreppur við innanvert ísafjarðar- djúp sameinaðist sama dag Hólma- víkurhreppi og ennfremur sameinað- ist Snæfjallahreppur við ísafjarðar- djúp ísafjarðarkaupstað. Loks varð til eitt sveitarfélag, Súðavíkurhrepp- ur, er Reykjafjarðarhreppur, Súða- víkurhreppur og Ögurhreppur við Djúp sameinuðust í ársbyijun í ár. Ef tekið er tillit til sameiningarkosn- inganna nú um síðustu helgi blasir við að á átta árum hefur sveitarfé- lögum á Vestfjörðum í byggð fækk- að um nítján, verða alls tólf í stað þijátíu og eins áður. Þetta er gríðar- leg breyting á stjómsýslu í einu kjör- dæmi. Miklir möguleikar Skiptar skoðanir hafa verið um þann beina fjárhagslega ávinning sem hlýst af sameiningu af þessu tagi. Um það mál má sjálfsagt allt- af deila, enda ljóst að árangurinn ræðst mjög af þeim ákvörðunum sem sameinaðar sveitarstjórnir taka hver fyrir sig; þar veldur hver á heldur eins og víðar. Hitt skiptir mestu máli að íbúarnir hafa ákveð- ið að fylkja sameiginlega liði og takast saman á við þau margvíslegu og stóru verkefni sem framundan eru. í þeirri ákvörðun felast mjög miklir möguleikar. Það er öruggt að ekki muni af veita. Höfundur er þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum. Kannski hefur það ráðið úrslitum að einn helsti leiðtogi borgarastétt- arinnar, Ólafur Thors, reið þar á vaðið og reisti sér hús í svokölluðum fúnkisstíl eða fúnksjónalisma þegar árið 1930 og var það eitt af fyrstu húsum sinnar tegundar á Norður- löndum. Eftir það var fúnkisstíllinn Það eru ánægjuleg tíðindi, segir Guðjón Friðriksson, að borgar- stjórinn í Reykjavík vill hlusta á raddir okkar, sem ekki viljum breyta Asmundarsal í leikskóla. mikilsráðandi í húsbyggingum í Reykjavík öll kreppuárin og er það eitt stílhreinasta skeiðið í bygging- arsögu Reykjavíkur. Það var kannski visst andsvar borgarastéttarinnar gegn hamra- og burstabæjarstíl Guðjóns Samúelssonar og Jónasar frá Hriflu. Því miður hafa mörg af bestu húsunum af þessu tagi verið eyðilögð með ýmsum hætti og á það t.d. við um hús Ólafs Thors við Garðastræti. Annað dæmi um viðurstyggð eyði- leggingarinnar í þessum efnum eru samvinnubústaðimir sem Þórir Bald- vinsson teiknaði vestur í bæ. Það er því orðið brýnt að bjarga því sem bjargað verður. Líklega er Ásmund- arsalur fyrsta fúnkishúsið í Reykjavík sem verður friðað og eru það tíma- mót og vissulega rós í hnappagat borgarstjómar Reykjavíkur. Þökk sé borgarstjóranum í Reykjavík að taka af skarið í þessum efnum. Höfundur er sagnfræðingur. Misvísandi sögur um fund Ameríku HINN 23. nóvem- ber sl. skrifaði ég grein í Morgunblaðið, þar sem ég benti á, að Leifur heppni væri borinn og bamfæddur á íslandi og hvatti til þess, að hans væri minnst. Jafnframt gat ég þess, að heimildum um fund Ameríku bæri ekki saman og að ég ætlaði að fjalla um það í annarri grein. Frá þessum landa- fundum er sagt í Ei- ríks sögu rauða og Grænlendinga sögu. í Eiríks sögu rauða er sagt að Leifur hafi siglt frá Grænlandi til Noregs, dvalið einn vetur við hirð Ólafs Tryggvasonar Noregskon- ungs og þegar Leifur vildi sigla heim, bað konungur hann að boða kristni á Grænlandi. í þessari sigl- ingu hitti hann á ókunn lönd sem var Ameríka. Landgæði þar voru mikil, vínviður og sjálfsánir hveiti- akrar. í Grænlendinga sögu segir að árið 985 hafi Eiríkur rauði farið til að byggja Grænland. Það sama sumar sigldu fleiri fjölskyldur til að nema land á Grænlandi og þar á meðal Heijólfur Bárðarson frá Eyrarbakka. Sonur hans Bjami var farmaður. Hann hafði þann sið að vera annan hvorn vetur hjá föður sínum en hinn erlendis. Þeg- ar Bjami kom til íslands sumarið 985 var faðir hans fluttur til Grænlands. Þótt liðið væri á sum- ar þá ákvað hann að sigla til Grænlands og hafa vetrardvöl hjá föður sínum eins og hann var vanur. Óhagstæðir vindar hröktu hann af leið að ströndum Ameríku og var hann fyrsti Evrópumaður- inn til að líta augum þrjú ólík lönd, sem hafa verið Nýfundnaland, Labrador og Baffinsland. Bjarni tók hvergi land á þessum stöðum og hefur sennilega ekki viljað neina töf, því hann var orðinn mjög seinn fyrir að ná til Græn- lands um sumarið. Leifur Eríksson keypti skip Bjarna Heijólfssonar til þess að fara og kanna þau lönd sem Bjarni hafði séð. Leifur heppni var því fyrsti Evrópumað- urinn sem steig fæti á ameríska grund. Leifur fann löndin, sem Bjarni hafði séð, gaf þeim nöfn, Helluland, Markland og Vínland. Á Vínlandi hafði hann nokkra dvöl og byggði þar varanlega skála, sem hann síðar lánaði Þor- fínni karlsefni, þegar hann gerði tilraun til að nema land á Vínlandi. Saga Eíríks rauða nefnir hvergi Bjarna Heijólfsson og Grænlend- inga saga minnist hvergi á kristni- boð Leifs Eiríkssonar. Þessar tvær sögur segja á ólíkan hátt af fundi Ameríku. En hvor þeirra er nær sannleikanum? I Kristnisögu er sagt frá því að Noregskonungur lét. þá Hjalta Skeggjason og Gissur hvíta fá við til að byggja kirkju á íslandi. í Eiríks sögu rauða er sagt frá að Leifur Eiríksson fer til trúboðs á Grænlandi á sama tíma og þeir Gissur og Hjalti fara til kristni- boðs á Islandi. En Leifur fékk enga einustu spýtu til kirkjubygg- ingar. Á íslandi var gróið þjóðfé- lag með mörgum vel stæðum bændum og landið það skógi vax- ið að hafskip það, er Hjalti Skeggjason sigldi á til Noregs, lét hann smíða úr tijáviði úr Þórs- merkurskógi. Grænland var skóg- laust land. Þar höfðu fáeinir frum- byggjar sest að fyrir 15 árum. Þeir höfðu því vissulega þörf fyrir flmbur til kirkjubygg- ingar. Er það líklegt að Ólafur Tryggvason Noregskonungur hafi mismunað svona mik- ið og óréttilega þeim kristniboðum sem hann sendi og létu samtímis úr höfn eða er eitthvað bogið við frásögnina af trúboði Leifs Eiríkssonar? Glögglega má sjá að sá, sem ritar Eiríks sögu rauða, vill sem mestan veg og fram- gang kristinnar trúar og það að trúboðinn í trúboðsferð finnur Ameríku á þúsundasta af- mælisári Krists er engin smáræð- is staðfesting á mætti Krists. Leifur heppni Eiríksson kom til N-Ameríku um 990. Magnús Jónsson rekur frásagnir Eiríks sögu rauða og Græn- lendingasögu af þeim sögulega atburði. Höfundur Eiríks sögu rauða gefur engar upplýsingar um hvaða heimildir hann styðst við. Höfundur Grænlendinga sögu lýk- ur sögunni með því að taka fram að hún sé skrifuð eftir frásögn Þorfínns karlsefnis, sem gerst allra mann hafí sagt um ferðir þessar allar. Prófessor Jón Jóhannesson hef- ur með sterkum rökum sýnt að Grænlendinga saga er elsta og á margan hátt áreiðanlegasta frá- sögn af siglingum og atburðum þeim er hún greinir frá. Grænlend- inga saga er sennilega skrifuð fyrir 1200 en Eiríks saga rauða um 100 árum síðar eða seint á þrettándu öld. Samkvæmt Græn- lendinga sögu er Bjarni Heijólfs- son hættur farmennsku og sestur að á Grænlandi árið 988. Eins og áður sagði keypti Leifur Eiríksson skip Bjarna til Ameríkuferðarinn- ar. Lankönnunarleiðangur Leifs hefur því verið um 990. Hafi Leif- ur verið í Noregi árið 1000 þá tengist sú ferð á engan hátt fundi Ameríku. Sagan um að Ólafur Tryggvason hafí beðið Leif um að boða kristna trú á Grænlandi er éinnig vafasöm. Prófessor Jón Jóhannesson hefur bent á að í elsta riti um Ólaf konung Tryggvason sé ítarlega gerð grein fyrir þeim þjóðum sem hann boð- aði kristni. Þar er ekkert orð um að hann hafí haft afskipti af trú- boði á Grænlandi. Munkur að nafni Gunnlaugur Leifsson var þekktur fyrir að semja sögur til upphafningar og dýrðar kirkju og kristindómi. Prófessor Sigurður Nordal taldi að fingraför hans mætti sjá á Eiríks sögu rauða. í fomri sögu Noregs er sagt að ís- lendingar hafi snúið Grænlending- um til kaþólskrar trúar. Telja verður því, að frásögn Grænlend- inga sögu, sem bæði er nær þeim tíma sem hún greinir frá og er auk þess í betra samræmi við aðrar heimildir, sé nær sannleik- anum en sú frásögn, sem greinir í Eiríks sögu rauða og Leifur heppni hafí því komið til Ameríku um 990 og það án nokkurra tengsla eða afskipta frá Noregi. Höfundur er fyrrverandi skóla■ stjóri. Magnús Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.