Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 12.12.1995, Blaðsíða 56
>6 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand l'M TAKIN6 THI5 BALLROOM PANCE CLA55, 5EE, AND THI5ÖIRL COME5UPTOME. AND A5K5 METODANCE.. 'LC Ég er í þessum danstímum, sjáðu til, og þessi stelpa kom til mín og bauð mér upp í dans... 5WE ASKED ME ! CAN YOU BELIEVE IT? ME! VSHE A5KED ME!^ Hún bauð MÉR upp! Geturðu trú- að því? MÉR! Hún bauð MÉR upp! Kennarinn er að tala við þig, Kalli Bjarna... MIG? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Forvitnileg bók um furðueyju Ara Trausta Guðmundssyni: HIÐ íslenska náttúrufræðifélag er alla jafna ekki hávært eða umsvifa- mikið. Þar fer þó fram dijúgt fræðslustarf, samanber útgáfu tímaritsins Náttúrufræðingurinn, fræðslufundi félagsins og allmarg- ar fræðsluferðir. Jafn hljóðlega og yfirvegað og sú starfsemi fer fram, hefur félagið ráðist í útgáfu bóka sem jafnan ná að vekja umtal fyr- ir vandaða en alþýðlega fræðslu. Má minna á afar veglega bók um náttúru Mývatns, jarðfræði og líf- ríki þess sem kom út 1991. í fyrra kom svo út bók um Surts- ey í samvinnu við Surtseyjarfélag- ið. Hana ritar einn elsti og reynd- asti náttúrufræðingur okkar, Sturla Friðriksson, doktor í erfða- fræði og frumkvöðull í vistfræði- rannsóknum. Undirtitill bókarinn- ar er Lífríki í mótun. Sturla leggur áherslu á að lýsa hvernig fyrstu sýnilegu lífverurnar námu land í eynni þegar á meðan gosopin sungu sinn þrumusöng og hvemig margvíslegar lífverur hafa síðan helgað sér sífellt stærri hluta eyjar- innar. Hún sjálf hefur minnkað nærri um helming frá því hún var stærst, tæpir 3 ferkílómetrar, en um leið eru vistkerfi á landi og í sjó að verða æ flóknari. Sturla einskorðar umfjöllun sína ekki við lífríkið, ofan- og neðan- sjávar. Hann hefur bókina á því að tengja eldstöðina við gosbelti Atlantshafshryggjarins og Islands, lýsa gosinu, myndun Surtseyjar og landslaginu þar; hvernig landslagið varð til og hefur þróast. í bókinni (112 síður) eru margar litljós- myndir, grafískar myndir, kort og skýringarmyndir. Þær auðga ágætan og lipran texta Sturlu. Aftast í ritinu er góð heimildaskrá handa þeim sem meira vilja lesa og þar er einnig lífveruskrá úr furðueynni. Hún er syðsti hluti íslands og útvörður eins yngsta eldstöðvarkerfis í landinu, en lokuð almenningi. Höfundur ber saman Surtsey og fjarlægar eldgosaeyjar og fjallar m.a. um Galapagoseyjar. Þangað má tiltekinn fjöldi ferðamanna og náttúruskoðara koma ár hvert. Ég hef verið talsmaður þess að nú þegar, eða a.m.k. innan skamms, verði ferðabanni aflétt af Surtsey og litlum hópum ferðamanna leyft að skoða eyna skv. mótuðu skipu- lagi og gegn gjaldi, sem aftur nýtt- ist t.d. Eyjamönnum við náttúru- fræðslu og öðrum til útgáfu alþýð- legs efnis um Surtsey. Þetta er unnt um leið og sérfræðingar meta það áhættulaust hvað varðar rann- sóknir í eynni og lífríki hennar. En þangað til verða íslendingar að skoða bókina sem hér hefur verið vakin verðskulduð athygli á. Bókin Surtsey - Lífríki í mótun fæst í bókaverslunum og hjá Hinu íslenska náttúrufræðifélagi í að- setri þess við Hlemm í Reykjavík. ARITRAUSTIGUÐMUNDSSON, jarðeðlisfræðingur. Indæla Reykjavík Frá Svölu Nielsen: ÉG FER mikið á Borgarbókasafn- ið, og er ég aðallega sólgin í að lesa ævisögur fólks sem er fætt fyrir, um og rétt eftir síðustu alda- mót og hefur frá mörgu að segja um lífið, sem við þekkjum lítið til sem yngri erum. Ein er þó bók, sem hefur veitt mér ómæída ánægju og kom út fyrir jólin 1994. Hún heitir „In- dæla Reykjavík“. Bókin fjallar um gönguleiðir um Þingholtin og sunn- anvert Skólavörðuholtið. Fyrst las ég bókina, síðan lagði ég af stað sl. sumar með bókina undir hend- inni í gönguferðir um þessar slóðir. Hér er skyggnst om. sögurík hverfí höfuðborgarinnar, þar sem nánast hvert hús á sína sögu eða sérkenni. Stórhýsi og skipstjóra- villur í fögrum görðum, steinbeð og skúrar, sem búið er í, falin bakhýsi og mikill gróður. Við Óð- insgötu er sérkennilegt hús og í garðinum eru tvær klappir, ísaldar- klappir þær einu sem til eru. Árið 1880 voru þarna gijótnámur og allt gijótið í Alþingishúsinu var höggvið á þessum stað. Mér fannst, þar sem ég stóð þama, ég hverfa aftur til þessara ára og sá fyrir mér verkamenn höggva gijót- ið með verkfærum sem ekki þekkj- ast í dag. Margan undirganginn er ég búin að ganga í gegn um og í bakgörðum kúra lítil hús sem búið er í, og sjást ekki frá götunni. Þekkja margir götu eða stíg sem heitir „Válastíg- ur“? Undarlega þröngur stígur með skúrum, litlum húsum og einstaka steinhús sem eins og hafi dottið þarna niður af tilviljun, heillandi að ganga þarna í gegn. Svo mörg gullfalleg timburhús eru til í Reykjavík, mörgum er haldið vel við en önnur í algjörri niðurníðslu. Þó er fólk að vakna til meðvitundar um verðmæti þessara húsa og feg- urð þeirra og vona ég að fólk hætti að augnstinga húsin og skemma þau. Ég þakka Guðjóni Friðrikssyni fyrir þessa skemmtilegu og fróðlegu bók og ættu sem flestir Reykvíking- ar að lesa hana. Vona að bækumar verði fleiri því af nógu er að taka. SVALA NIELSÉN, Meistaravöllum 31, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.