Morgunblaðið - 12.12.1995, Side 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd í A-sal kl. 6.50.
Miðav. kr. 750.
Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára
Hvíta Tjaldlð
Aðalstöðin
hljómflutningst
★★★★
Alþýðublaðið
BENJAMÍN dúfa
KVIKMVND EEflR GIsia Snæ Erungsson
STJÖRNUBfÓLÍNAN -
Verölaun: Biómiðar.
Simi 904 1065.
þess sem hin n
í Stjörnubíói o
uppsetning þei
virka með
ólíkindum vel
★★v2
/DD/
y Dynamic Digrtal Sound
]gg3 '
lÍlpll ;
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SÉRSTÆÐUR atburður átti sér stað
á dögunum í Hafnarfírði er Ólína
Þorvarðardóttir afhenti Ingvari
Viktorssyni bæjarstjóra bókina ís-
lenskar þjóðsögur — Álfar og tröll
í tilefni af því að Hafnarfjörður er
nú orðinn opinber álfabær.
Afhending bókarinnar fór fram í
veitingahúsinu A. Hansen. í þann
mund er Ólína afhenti bæjarstjóra
bókina og Ingvar hugðist smella
kossi á kinn í þakklætisskyni spratt
upp á milli þeirra huldukona. Vitni
að þessum atburði eru ljósmyndari
Morgunblaðsins er smellti á réttu
augnabliki mynd af huldukonunni,
sjónvarpsstjóri og fréttamaður Sjón-
varps Hafnarfjarðar og ljósmyndari
frá Pjarðarpóstinum auk útgefanda
bókarinnar. Vonandi sést huldukon-
an skýrt og greinilega á myndinni
Hver er
huldu-
konaná
miðri
mynd?
því það er ekki á hveijum degi sem
slíkar verur birtast á síðum dagblað-
anna.
Ýmsar skýringar hafa komið fram
varðandi hulduveruna er birtist í
álfabænum Hafnarfirði í þann mund
er bæjarstjórinn hugðist veita þjóð-
sagnabókinni viðtöku. Ein er sú að
Ingvar tafðist nokkuð á leið í A.
Hansen því hann stóð í samningavið-
ræðum við þá álmenn vegna íbúða-
byggðar sem þeir telja að muni
teygja sig of nærri álverinu mar-
grómaða. Gæti huliðskonan hugsan-
lega hafa verið kona úr álheimi með
öðrum orðum ál(f)kona? Kannski
finnst hún á þvj ágæta Huliðsheima-
korti er Ingvar Viktorsson afhenti
Ólínu undir lok athafnar en þar hef-
ur Erla Stefánsdóttir sjáandi kort-
lagt álfabyggðir í Hafnarfirði. Enn
frekari upplýsingar um álfabyggðir
er samt að finna í bók Ólínu, íslensk-
ar þjóðsögur — Álfar og tröll, þar
sem skoðaðar eru álfabyggðir um
land allt.
Morgunblaðið/Ásdís
ELÍN Helgadóttir, Björgólfur Guðmundsson, Kolbrún Skafta-
son og Þóra Hallgrímsson urðu ekki uppiskroppa með
umræðuefni.
KR-konur halda
jólagleði
KR-KONUR héldu árlega jóla- ið og það var glatt á hjalla þegar
gleði sína í KR-heimilinu síðastlið- ljósmyndari Morgunblaðsins leit
inn föstudag. Fjölmenni sótti hóf- inn og tók meðfylgjandi myndir.
GUÐLAUG Hallbjörnsdóttir og Auðbjörg Björnsdóttir eru
miklar KR-konur.
GERÐA Jónsdóttir, Vildís Kristmannsdóttir og Árni Edwins
spjölluðu saman.
Fönk og
sýrujass
SÆLGÆTISGERÐIN leikur fönk og sýrujass.
TONLIST
Geisladiskur
ACID JAZZ & FUNK
Fyrsti geisladiskur Sælgætisgerðar-
innar. Sælgætisgerðin eru Ásgeir
Jón Ásgeirsson gítar, Jón Omar Erl-
ingsson bassi, Samúel Jón Samúels-
son básúna, Birgir Nielsen trommur,
Snorri Sigurðsson trompet, Steinar
Sigurðsson saxófónn. Hljóðblöndun
Addi 800. Kisi h/f gefur út. 44,07
mín. 1.999 kr.
SÆLGÆTISGERÐIN er hljóm-
sveit, tiltölulega ný af nálinni, sem
undanfarið hefur vakið athygli fyrir
tónlist sem lítið hefur verið sinnt
hér á landi hingað til, þ.e. fönk og
hinn svokallaða sýrujass. Acid Jazz
& Funk er tekin upp á tónleikum á
Glaumbar þar sem Sælgætisgerðin
hefur haldið sig síðastliðna mánuði
og á henni eru mikið til lög sem
orðin eru sígild meðal fönk og sýru-
jassunnenda og að auki er eitt lag
eftir sveitina sjálfa.
Sælgætisgerðin á mikið hrós ski!-
ið fyrir lagaval og ef til vill einnig
fyrir að koma fólki inn í tónlist sem
allt of litla athygli hefur fengið.
Zarathustra eftir Strauss virðist
eins og samið fyrir fönkútsetning-
ar, stuðlagið Phsychedelie Sally og
Mo’ Better Blues eru hvort út af
fyrir sig meistaraverk. Annað sem
segja má Sælgætisgerðinni til hróss
eru málmblásturshljóðfærin, sem
eru reyndar nær ómissandi í þess-
ari tónlist. Hljóðfæraleikur er allur
framúrskarandi góður og agaður,
jafnvel fram úr hófí. Hann er of
oft of skipulagður og tónlistin verð-
ur þegar verst lætur líflaus og flöt
og minnir helst á lyftutónlist. Fönk
og sýrujass ganga nefnilega út á
sálina, „grúvið“ og ef það vantar
þá er tilgangnum langt í frá náð.
Þannig hefur áðurnefnt Phsyched-
elic Sally misst allan þann hráa
kraft sem það hafði í sinni uppruna-
legu mynd og illt að heyra Mo' Bett-
er Blues er án ljúfsáru viðkvæmn-
innar sem gerði lagið gott. Þar
ræður miklu forritun Mána Svav-
arssonar sem beinlínis eyðileggur
lagið.
Ekki ber þó að skilja þessi orð
sem svo að platan sé léleg, Sælgæt-
isgerðin nær sér oft á flug og rís
úr flatneskjunni, og þá sérstaklega
í lögunum Give it up og Maceo
hvar gítar og „brass“ ná einkar vel
saman og Super Bad. Að auki er
svo Kobbi Skæler, eina frumsamda
lagið á plötunni nokkuð gott, lag
sem minnir um margt á Júpiters
sálugu, Sælgætisgerðin ætti að
prufa sig frekar áfram með laga-
smíðar.
Umslagið hæfír plötunni, einfalt
og vel hannað.
Acid Jazz & Funk er að mörgu
leyti vel heppnuð plata og ef Sæl-
gætisgerðin sleppti fram af sér
beislinu og hefði aðeins betri tilfinn-
ingu fyrir tónlistinni sem hún spilar
teldist hún sennilega með bestu
hljómsveitum á landinu.
Gísli Árnason