Morgunblaðið - 12.12.1995, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 12.12.1995, Qupperneq 65
-\ morgunblaðið ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995 65 f I 1 I 4 4 i í i i < < I < i i < i i < tveir fyrireinn „ STÆRSTA ^ TJALDIÐ MEÐ HX Frumsýning á stórmyndinni MORTAL KOMBAT JÓLAMYND 1995 rieoce Ein aðsóknarmesta mynd ársins í Bandaríkjunum. Ævintýramynd eins og þær gerast bestar með ótrúlegum tæknibrellum. Barátta aldarinnar er hafin! Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 . B. i. 14 ára. Rebecca D . Mro ;i!0 >j)w \LÆ\' .; fvEÍR FYR»R EINN TALK TO STRANGERS Antonio Banderas (Interview with á Vampire, Philadelphia), Rebecca DeMornay (Hand that rocks the Cradle, Guilty as Sin). I fyrsta sinn á ævi sinni hittir Sara Taylor mann sem hún trey- stir. En stundum getur traust... verið banvænt. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B. i. 16 ára. || 0ÆL'i /s. Baltasar byggð á sannsögulegum atburðum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B. i. 12 ára sími 551 9000 MEL GIBSON Braveheart Sýnd kl. 5 og 9 . B.i. 16. IIU TIf^£$RST Sýnd kl. 4.45, 6.50 9 og 11. /DD/ N Y T T L J 0 D K eyrir muninn E R F I Fólk Rod Stew- art fer í leikhús ROD Stewart er mikill aðdáandisöngvarans A1 Jolsons. Hérna er hann, ásamt eiginkonu sinni, Rachel Hunter, á leiðinni af leikriti sem byggt er á ævisögu Jolsons. Fjöl- skylda Rods var vön að safnast saman við píanóið og syngja lög Jolsons þegar Stewart var ungur. Þessi mynd var tekin í London nýlega. Efni í ágætis poppsveit TONLIST Ocisladiskur DOUBLETALK Double Talk, geisladiskur hljómsveit- ^•Tnnar Cigarette. Cigarette skipa i Heiðrún Anna Bjömsdóttir söng- kona, Einar Tönsberg bassaleikari, Sigtryggur Ari Jóhannsson Hamni- ond- og hijóðgervilsleikari, Haraldur Johannsson gítarleikari, sem syngur reyndar eitt lag, og Rafn Marteins- son trommuleikari. Upptökustjóri Dskar PáU Sveinsson í samvinnu við 'djómsveitina. Skifan gefur út. 38,08 mín., 1.999 kr. HUÓMSVEITINNI Cigarette í skaut hratt upp á stjörnuhimininn, svo hratt reyndar að varla var fólk búið að átta sig á því að hún væri til að komin var út breiðskífa sú sem hér er gerð að umtalsefni. Cigarette er hugarfóstur Einars Tönsbergs og Heiðrúnar Önnu Björnsdóttur, enda setur söngur hennar mikinn svip á plötu sveitar- innar. Hljómsveitin leitar á svipaðar slóðir og Spoon, sem sló í gegn á síðasta ári, leikur grípandi popp með enska texta. Víða er vel að verki staðið á plötunni, en lagasmíð- ar ekki eins sterkar og lög Spoon, og þó textar síðarnefndu sveitarinn- ar hafi verið hálfgert torf, eru þeir listasmíð miðað við það sem boðið er upp á á Double Talk. Textar Cigarette spilla iðulega annars ágætum lögum, því þeir eru svo ótrúlega slæmir, málfræðilega og merkingarlega, að sá grunur læðist að, að þeir séu margir samdir með aðstoð orðabókar, aukinheldur sem ýmsar samlíkingar eru stórein- kennilegar: „You were you / I was almost too“, „The rain is falling / On this bleeding day“, „This embar- rassing situation’s / Giving me a hell of a bore“, svo eitthvað sé nefnt. í einu laginu, My Creation, má meira að segja heyra sóðaorð- bragð, sem er sérdeilis hallærislegt í popplagi. Sum laganna líða fyrir litla framvindu, til að mynda My Creation og lagið vinsæla I Don’t Believe You, sem er eiginlega ekk- ert nema viðlag. Upphafslag plöt- unnar, Strange, er þó prýðilegt og einnig má heyra góða spretti í Medicine, sem sýnir að það eru ýmsar pælingar í gangi. Aðal Cigarette er söngur Heið- rúnar Önnu, og hún hefur þægilega rödd. Hún á þó eftir að ná betri tökum á henni, er ekki alltaf lag- viss, en best fer henni að syngja á rólegum nótum. Aðrir hljómsveitar- meðlimir eru lítt eftirminnilegir, nema Einar sem er ágætis bassa- leikari, og hljómborð eru iðulega snyrtilega framreidd. Gítarleikari sveitarinnar syngur eitt lag og kemst ekki vel frá því. Helsti vandi Cigarette, að frá- töldu afkáralegu nafni hljómsveit- arinnar og hræðilegum eða bráð- fyndnum textum, eftir því hvernig á það er litið, er að hún var frá- leitt tilbúin til að senda frá sér breiðskífu. Líklega hefði farið betur á því að safna fleiri sterkum lögum, spila sem víðast og sem mest og læra enskii áður en haldið var í hljóðver. Á plötunni má nefnilega heyra að úr gæti orðið ágætis popp- sveit. Árni Matthíasson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.