Morgunblaðið - 20.12.1995, Page 4

Morgunblaðið - 20.12.1995, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ T FRÉTTIR Stjórnarfrumvarp um fjárfestingu útlendinga Tillaga um að leyfa óbeina eignaraðild í sjávarútvegi SAMKVÆMT frumvarpi sem við- skiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi, verður óbein eignaraðild erlendra aðila heimil í íslenskum sjávarútVegi að ákveðnu marki. Þá verða felldar á brott skorður við möguleikum aðila á Evrópska efnahagssvæðinu til að eiga virkj- unarréttindi vatnsfalla og jarðhita eða stunda orkuvinnslu eða orku- dreifingu. Hins vegar verði þetta svið lokuð útlendingum utan EES. Felldar niður skorður í flugrekstri Einnig verði felldar niður skorð- ur við íjárfestingu aðila að EES í félagi sem stundar flugrekstur hér á landi en lagt er til að hámark gildandi laga um 49% eignarhlut erlendra aðila gildi áfram gagnvart aðilum utan EES. Loks verði fellt niður 25% hámark á eignarhiuta erlendra aðila í íslenskum hlutafé- lagsbönkum. Bann við beinni fjárfestingu Frumvarpið byggist á niður- stöðum nefndar sem viðskiptaráð- herra skipaði í sumar. Samkvæmt því verður áfram fortakslaust bann við beinni erlendri fjárfest- ingu erlendra aðila í fiskveiðum ogvinnslu. í frumvarpinu er kveðið á um að þeir einir megi stunda fiskveið- ar hér á landi sem eru annars vegar íslenskir ríkisborgarar og hins vegar íslenskir lögaðilar sem að öllu leyti eru í eigu íslenskra aðila eða íslenskra lögaðila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila eða séu ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25% miðað við hlutafé eða stofnfé. Heimilt sé þó að þessi hlutur fari upp í 33% ef lögaðilinn eigi ekki meira en 5% af hlutafé í íslensku sjávarútvegs- fyrirtækisi. Viðskiptaráðherra fari með eftirlitið Þetta þýðir með öðrum orðum, að ef tvö hlutafélög, A og B, eiga sjávarútvegsfyrirtækið C, verða bæði A og B að vera íslenskir lögaðilar undir íslenskum yfirráð- um. Hins vegar mega erlendir aðilar eiga allt að 25% hlut í A og B. Eigi hvorki A né B meira en 5% í C getur þetta hlutfall hækkað í 33%. Gert er ráð fyrir því í frumvarp- inu að eftirlit með erlendum fjár- festingum verði fiutt frá Seðla- bankanum til viðskiptaráðherra. Bílnúmer í jólalitunum St. Jósefsspítali Bærinn taki leikskóla BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur samþykkt að ganga til viðræðna við heilbrigðisráðuneytið og stjórn St. Jósefsspítala um að taka yfir rekstur leikskólans við spítalann. Tillagan gerir ráð fyrir að viðræð- unum ljúki fyrir næstkomandi ára- mót. Þá samþykkti bæjarráð að kannað yrði hvort bæjarsjóður kaupi hlut ríkisins í húsnæði leikskólans. JÓLASVEINAR einn og átta gera víðreist þessa dagana. Tveir þeirra fóru í Bifreiða- skoðun Islands í gær á gamla Land Rovernum sínum og létu skipta um skráningar- merki að viðstöddum fjöl- mörgum ungum aðdáendum. Þeir bræður notfærðu sér það að bíleigendur eiga nú kost á að velja áletrun bílnúmer- anna sjálfir. Á nýju númera- plötunum jólasveinanna stendur „JÓLI1-8“ og að sjálfsögðu eru þær í jólalitun- um. Morgunblaðið/Kristinn Evrópusambandið setur lágmarksverð á norskan lax með vísan til EES-samningsins ÁKVÖRÐUN Evrópusambandsins um að setja einhliða lágmarksverð á ferskan lax, sem flutt- ur er inn frá EFTA-ríkjunum íslandi og Nor- egi, byggist á túlkun á samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið, sem EFTA-ríkin hafna algerlega. Verði þessari túlkun ESB ekki hnekkt getur það skapað fordæmi fyrir svipuð- um aðgerðum í framtíðinni, sem gætu skaðað hagsmuni fslenzkra fiskútflytjenda mikið. Forsaga málsins er sú, að skozkir fískeldis- menn hafa um langt skeið haft hom í síðu norskra útflytjenda á laxi. í fyrra kærðu sam- tök skozkra flskeldisstöðva Noreg til Eftirlits- stofnunar EFTA fyrir að veita fískeldisstöðv- um ríkisstyrki, sem ekki samrýmdust EES- samningnum. Eftirlitsstofnunin vildi ekki taka á málinu á þeim forsendum að það félli ekki undir valdsvið hennar. Sjávarafurðir ekki innan fjórfrelsisins Undanfarna mánuði hefur framboð á norsk- um laxi á Evrópumarkaðnum farið hraðvax- andi. Sjávarútvegsdeild fram- ---------- kvæmdastjómar Evrópusambands- ins telur að á árinu hafí framleiðsla Norðmanna aukizt um 40%, á sama tíma og framleiðsla Skota hafí að- eins aukizt um 14% og neyzla á laxi sambandinu um 20% í mesta lagi. Gæti skapað hættulegt fordæmi Evrópusambandið hefur sett lágmarksverð á íslenzkan og norskan lax með vísan til EES-samningsins. Noregur Rökstuðningurinn fyrir þeirri afstöðu er sá, að sjávarútvegur og verzlun með sjávarafurð- ir falli ekki undir samningssvið EES um frjálst flæði vöra, fólks, þjónustu og fjármagns. Þrátt fyrir kröfur EFTÁ-ríkjanna á sínum tíma nær samningurinn sjálfur ekki til sjávarafurða og raunar er tekið sérstaklega fram í 8. grein hans að hann taki ekki til sjávarafurða í sam- ræmdri vörulýsingar- og vöranúmeraskrá. í staðinn var bætt við samninginn sérstakri bókun, bókun 9, þar sem er — að mati EFTA- ríkjanna — tæmandi upptalning á öllum þeim atriðum, sem varða sjávarútveg. í 20. grein EES-samningsins er jafnframt vísað til þessar- ar bókunar um viðskipti með sjávarafurðir. Offramboð og undirboð Norðmanna * * og Island hafa mótmælt slíkri lagatúlkun. Olafur Þ. Stephensen segir að fáist ákvörðun ESB ekki hnekkt skapist fordæmi, sem gæti skaðað hagsmuni íslenzkra fiskútflytjenda mikið í framtíðinni. menn um að selja lax sinn á allt að 15% und- ir kostnaðarverði. Sjávarútvegsdeildin telur að skozkir og írskir framleiðendur neyðist til að elta verð Norðmanna og hætta sé á að þessi þróun hafí alvarlegar afleiðingar fyrir laxeldið í heild. Beita öryggisákvæðum EES Hraðvaxandi framboð í Evr- ópu á norsk- um laxi Fyrir þrýsting frá skozkum laxeldismönnum lýsti framkvæmdastjórn ESB því yfir á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 22. nóvember síðastliðinn að hún væri að kanna kosti þess að grípa til öryggisráðstafana á grundvelli 112. greinar EES-samningsins til að bregðast við offramleiðslu og undirboðum Norðmanna og setja lágmarksverð á innfluttan lax frá EFTA-ríkjunum. í 112. greininni segir að komi upp „alvar- legir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfíðleikar í sér- stökum atvinnugreinum eða á sér- stökum svæðum, sem líklegt er að Deildin telur að Norðmenn séu að framleiða 50.000 tonnum meira en þeir geti selt á Evr- ópumarkaðnum, þrátt fyrir að þeir hafi gripið til aðgerða til að draga úr framleiðslunni. Hún hefur jafnframt bent á að frá októberlokum hafí verð á laxi í ESB lækkað um 25% vegna offramboðs á norskum laxi. ESB sakar Norð- verði viðvarandi geti samningsaðili gripið ein- hliða til „viðeigandi ráðstafana". ESB tók málið svo upp að nýju á fundi í sameiginlegu EES-nefndinni síðastliðinn föstudag og lýsti því yfir að lágmarksverð yrði sett á lax. Taismenn íslands og Noregs í nefndinni mótmæltu þessu og sögðust telja Sendiherrann minnti jafnframt á að ESB hefði áður sett lágmarksverð á innfluttan fisk, í febrúar 1994. Sá munur hefði þó verið á að þá hefði lágmarksverðið verið sett samkvæmt innri reglugerð ESB og gilt gagnvart öllum innflytj- endum, en nú væri gripið til aðgerða gagnvart EPTA-ríkjunum einum. Slíkt sagði se.ndiherrann að ísland liti mjög alvarlegum augum. Hann kom á framfæri því áliti íslenzkra stjórnvalda að aðgerðirnar brytu í bága við WTO- og GATT- samninginn, sem kvæðu á um að aðgerðum en EES, að EFTA-ríkin yrðu í verri stöðu önnur ríki hvað varðaði aðgang að Evrópu- markaðnum. Evrópusambandið hefur haldið fast við af- . stöðu sína, þrátt fyrir mótmæli Islands og Noregs, og tók lágmarksverðið gildi síðastlið- inn laugardag. EFTA-ríkin hafa áskilið sér allan rétt varðandi framhald málsins. að ákvæði 112. greinarinnar ættu ekki við um sjávarútvegsbókunina með EES-samn- ingnum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins sagði Hannes Hafstein, sendiherra ís- lands, á fundinum að hann hefði tekið þátt í að semja um EES og bókun 9 og ljóst væri að öryggisákvæði samningsins ættu einvörð- ungu við um frelsin fjögur og erfíðleika, sem kynnu að leiða af fullri framkvæmd þeirra, en ekki um sjávarútvegsbókunina. EFTA-ríkin verr sett en önnur ríki? Skozkir hafa horn í síðu norskra út- flytjenda Ottast fordæmisgildið Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins skaða aðgerðir Evrópusambandsins ekki hags- muni íslenzkra laxeldisstöðva, þar sem íslenzk- ur lax hefur verið seldur í Evrópusambandinu á verði, sem er talsvert hærra en lágmárks- verðið. Hins vegar óttast menn mjög fordæm- isgildi þess, ef Evrópusambandið kemst upP með að byggja aðgerðir af þessu tagi á EES- samningnum. Þannig rifja menn til að mynda upp tilraun- ir Frakka til að hindra innflutning á íslenzkum fiski, þrátt fyrir ákvæði EES-samningsins. Verði þessar aðgerðir látnar óátaldar er hætt við að ESB geti beitt sams konar aðgerðum síðar gagnvart öðrum físktegundum, til dæm- is þorski eða karfa. Þá væri sá aðgangur að Evrópumarkaðnum, sem EES-samningurinn á að tryggja íslenzkum sjávarafurðum, farinn fyrir lítið. Að sögn viðmælenda Morgunblaðsins vekja aðgerðir ESB jafnframt spurningar um þad hvort ESB telji ýmis önnur ákvæði EES-samn- ingsins eigi við um bókun 9, til dæmis hvort bókunin falli undir valdsvið Eftirlitsstofnunar EFTA og dómstóla ESB og EFTA. Hingað til hefur verið talið að hún væri ekki á vald- sviði þessara stofnana. Þrjár leiðir færar Sérfræðingar íslenzkra stjórnvalda telja þijár leiðir færar til að reyna að hnekkja að- --------- gerðum Evrópusambandsins. t fyrsta lagi er hægt að hamra áfram á málinu í sameiginlegu EES- nefndinni og reyna þannig að sann- færa ESB með rökum um að setn- ing lágmarksverðsins sé brot á EES. í öðru lagi er hægt að senda gerðardóms, samkvæmt ákvæðum væri beitt jafnt gagnvart öllum ríkjum. Aukin- heldur benti Hannes Hafstein á að það hefði alls ekki verið meiningin, er samið var um málið til w bókunar 33 við EES-samninginn, náist ekki samkomulag í sameiginlegu nefndinni innaý þriggja mánaða. Loks er sá möguleiki fyrir hendi að afhenda Evrópusambandinu formleff j mótmæli, sem væri þá til dæmis beint til utan- j ríkismáladeildar þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.