Morgunblaðið - 20.12.1995, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
gahamfarir“
við
akið“
Morgunblaðið/Sverrir
invarp og tölvuspil þótt uggur sé
reitingum.
Brynjólfur Mogensen kvaðst þeirr-
ar hyggju að fjárframlögum til heil-
brigðismála væri misdreift. Lands-
byggðin fengi um 700 miiljónum
króna of mikið miðað við afköst. Það
væri hins vegar erfitt pólitískt að leið-
rétta þá misdreifmgu og ekki hlaupið
að því að sannfæra Alþingi um ágæti
þess. Samsetning fjárveitingamefnd-
ar, þar sem aðeins sæti einn þingmað-
ur úr Reykjavík og einn af Reykja-
nesi, segði allt, sem segja þyrfti, um
það.
Viðmælendur Morgunblaðsins voru
þeirrar hyggju að 383 milljóna króna
niðurskurður væri alltof stór biti til
að kyngja á einu ári án þess að „hrikti
í stoðum eða einhveijir meginstólpar
hrynji" og uggur væri í starfsfólki
Borgarspítala og Landakots vegna
þessa máls.
Að sögn Jóhannesar væri ef til vill
væri hægt að spara um 100 milljónir
á næsta, en megináherslu þyrfti að
leggja á langtímaáætlanir í stað illa
undirbúinna, „ómarkvissra og skað-
legra ráðstafanna“.
anda skólans
100 þúsund krónur á nemanda. Ef
það koma 200-300 nýir nemendur þá
eykst þunginn hjá okkur um 20-30
milljónir. Það er tii lítils fyrir okkur
að loka einhverri af þessum deildum
og beina nemendum annað, því að þær
deildir eru þá ekki ódýrari og jafnvel
geta þær verið dýrari,“ sagði Svein-
björn.
Stúdentar skilja
vandann
Hann sagði að sú aukna fjárveiting
sem fengist hefði frá 1992 hefði ekki
vegið upp á móti fjölgun nemenda.
Árið 1994 hefði skólinn t.d. verið með
30 milljóna kr. halla og enn væri svip-
aður halli í ár. Hann sagði vandamál-
ið sem við væri að glíma nú vera svip-
að og 1992, en erfiðara væri að grípa
til aðgerða nú þar sem þegar væri
búið að draga mikið úr kennslu. í
skólanum óttuðust menn að með
minnkandi þjónustu við nemendur
yrði meira lagt á þá í sjálfsnámi og
það gæti þýtt að þeir færu að tefjast
í námi og myndu missa námslánin sín.
„Þess vegna standa stúdentar líka
ákaflega vel með okkur því þeir skilja
vel þennan vanda,“ sagði Sveinbjörn.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995 35
Þ
RÁTT fyrir mikinn áhuga á
jarðgangagerð hér á landi
hefur lítil umræða verið um
öryggi vegfarenda, til
dæmis vegna elds í ökutækjum. Is-
lendingar hafa almennt ekki vanist
því að aka um jarðgöng og hlýtur það
að vera mikilvægt að menn hafi fullt
traust á öryggi sínu í þeim þegar ver-
ið er að ráðast í dýrar framkvæmdir
í nágrenni höfuðborgarinnar til dæm-
is. í nágrannalöndunum hefur umræð-
an aukist vegna áforma um og bygg-
ingu sífellt meiri umferðarmannvirkja
neðanjarðar. í Svíþjóð hafa öryggis-
mál í Stokkhólmsgöngunum verið
mikið rædd enda þar um gríðarlegt
mannvirki að ræða þar sem heilt
umferðarkerfi er byggt neðanjarðar.
Haukur Ingason, brunaverkfræð-
ingur hjá sænskri ríkisstofnun sem
vinnur að þróun eldvama, hefur unnið
að ákveðnum þætti við áhættumat
Stokkhólmsganganna. Hann segir að
mesta hættan feiist í umferð olíubíla,
stórra flutningabíla og bíla með eitur-
efni. Margir gætu látið lífið í þannig
slysi. Segir hann að deilt hafi verið
um það hvernig ætti að bregðast við
hættunni. Stafí það einkum af því að
opinberar öryggiskröfur séu ekki til.
Settar hafi verið fram óskir um að
komið yrði upp vatnsúðunarkerfi í öll-
um göngunum og slökkvistöðvum við
endana. Nú væri rætt um að láta
slökkviliðið fylgja öllum olíubílum og
stærri flutningabílum um göngin,
enda væri það mun ódýrara, og efla
slökkviliðin í núverandi stöðvum í stað
þess að byggja upp nýjar stöðvar við
göngin.
Umferðarþunginn hefur mikil áhrif
á gerð áhættumats jarðganga og búist
er við mikilli umferð í Stokkhólms-
göngunum. Haukur segir að athyglin
beinist að umferð olíubíla og flutn-
ingabíla, ekki síst vegna eiturgufa sem
skapast af bruna plastefna, enda teldu
menn ekki líkur á hættuástandi þó
eldur kæmi upp í fólksbílum, yfirleitt
væri hægt að ráða við slík óhöpp.
Hann segir að líkur aukist' á að eldur
kvikni í þungum bílum þegar þeir
þurfa að fara upp eða niður mikinn
halla í göngum.
Ekki unnið áhættumat
vegna Olafsfjarðarganga
í dag verða Vestfjarðagöngin opnuð
fyrir umferð til bráðabirgða. Unnið
hefur verið að gerð áhættumats og
viðbúnaðarkerfis en hvorugt er endan-
lega tilbúið. Reyndar hefur verið sleg-
ið af öryggiskröfum til að unnt verði
að nota göngin í vetur. Þannig kemst
loftræsting ekki í gagnið fyrr en eftir
áramót svo og neyðarsímakerfi. I gær
voru handslökkvitæki heldur ekki
komin á sinn stað. Þess vegna verður
hámarkshraði í byrjun aðeins 50 km
á klukkustund en í framtíðinni 60 km.
Guðmundur Gunnarsson, yfirverk-
fræðingur Brunamálastofnunar, segir
nauðsynlegt að gera áhættumat vegna
allra framkvæmda við jarðgöng.
Stofnunin hafi kallað eftir slíku mati
hjá Vegagerðinni vegna Vestfjarða-
ganga og sé það í fyrsta skipti sem
á slíkt reyni. Áhættan hafi ekkýverið
metin með sama hætti áður en Ólafs-
fjarðargöngin voru tekin í notkun en
nú væri unnið að því. Hreinn Haralds-
son, framkvæmdastjóri rannsókna- og
þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir
að gengið verði frá áhættumati fyrir
Ólafsíjarðargöngin að fenginni
reynslu við sömu vinnu vegna Vest-
fjarðaganganna.
Almannavarnir ríkisins stóðu fýrir
sameiginlegri æfingu björgunarsveita
og slökkviliða á Ólafsfírði og Dalvík
í Ólafsfjarðargöngunum eftir að þau
voru tekin í notkun. ____________
Slökkviliðin á þessum stöð-
um eru skipuð áhugamönn-
um. Sviðsettur var árekstur
hópferðabíls og vörubifreið-
ar þar sem eldur braust út —....
og göngin lokuðust. Guðjón Petersen,
framkvæmdastjóri Almannavarna,
segir að æfingin hafi gengið vel og
verið gagnleg. Hann telur hins vegar
að þessi litlu slökvilið gætu átt í mikl-
um erfiðleikum ef stórslys yrði í
göngunum enda væru vandamálin
sem þar væri við að etja svo ólík að-
stæðum utan ganga.
Öruggt og gott mannvirki
Hreinn Haraldsson segir að við
hönnun Vestfjarðaganga hafi verið
notaðar ákveðnar hönnunarleiðbein-
ingar og tekið mið af umferðinni. Plöt-
ur sem notaðar eru til að klæða vatns-
leka hafa verið brunavarðar en klæðn-
• •
Oryggi í jarðgöngum
Umferð
olíubíla
takmörkuð
Sérfræðingar á sviði brunamála hafa mestar
áhyggjur af hættunni af eldi í olíubílum eða
stórum flutningabílum þegar hugað er að
öryggi vegfarenda í jarðgöngum. Umferð olíu-
bíla verður takmörkuð í V estfj arðagöngum.
Varaslökkviliðsstjórinn í Reykjavík telur að
öryggi verði best tryggt í Hvalíj arðargöngum
með því að koma upp slökkvistöð við ganga-
munnann. Helgi Bjarnason kannaði viðhorf
manna sem vel þekkja til mála.
Morgunblaðið /Þorkell
VESTFJARÐAGÖNG verða opnuð til bráðabirgða í dag.
Slegið af kröf-
um vegna
opnunar
ingarnar í Ólafsfjarðargöngunum eru
ekki brunaþolnar miðað við núgildandi
staðla. Þá verður viðbúnaðarkerfi með
skynjurum vegna mengunar, neyðar-
símum og neyðarljósum, sem vísa
skemmstu leið út, komið upp í göngun-
um.
Þar sem göngin eru grafin í gegn
um fjöll er ekki um aðrar útgönguleið-
ir að ræða en gangamunnana þrjá.
Göngin eru tvíbreið úr Skutulsfirði og
inn að gatnamótum sem eru í miðju
fjallinu en einbreið með útskotum til
Súgandafjarðar og Önundarfjarðar.
Segir Hreinn að fólk ætti að eiga
möguleika á að koma sér í burtu ef
eitthvað gerðist. Þá kvikna rauð að-
vörunarljós við gangnamunnana til
að koma í veg fyrir að fleiri bílar aki
inn í göngin og hugsanlegt er að fella
--------- niður slár við slíkar að-
stæður. Hann segir að
Vestfjarðagöngin séu
öruggt og gott mannvirki
og bendir á ap tölfræðilega
séu jarðgöng alveg jafn
örugg og vegir undir beru lofti, þó
það segir vegfarendum um göngin
kannski lítið. Lýsir hann þeirri skoðun
sinni að miklu meiri hætta stafi af
einbreiðum brúm á vegum landsins
en jarðgöngunum.
Slökkviliðið á Ísafirði er sæmilega
í stakk búið til að takast á við eld inni
í Vestfj arðagöngum, að mati Þor-
björns Sveinssonar slökkviliðsstjóra.
Liðið hefur yfir að ráða nýlegum tækj-
um og þjálfuðum reykköfurum. Þor-
björn segir að nóg sé af vatni til
slökkvistarfs í Vestfjarðagöngum.
Hann telur að ágætis slökkviliðsmenn
séu einnig á Flateyri og Suðureyri en
töluvert vanti upp á tæjakostinn. Þessi
lið eru bæði skipuð áhugamönnum og
eru með gamla hægfara Bedford-
slökkvliðsbíla. Ef eldur kemur upp í
göngunum hefur slökkviliðsstjórinn á
Isafírði með höndum stjórnun allra
liðanna, samkvæmt drögum að við-
búnaðaráætlun sem fyrir liggja. Fyrir-
hugað er að halda sameiginlega æf-
ingu í göngunum í vetur.
Þorbjörn segir að leitað verði eftir
samkomulagi við olíufélögin um að
láta olíubílana nota göngin á kvöldin
og nóttunni, þegar umferðin er
minnst. Göngunum verður þó ekki
lokað fyrir annarri umferð á meðan.
Ef slíkt samkomulag næst ekki mun
Vegagerðin setja einhliða reglur til
höfuðs olíubílum. Flutningur með önn-
ur hættuleg efni er tilkynningaskyldur
og segir slökkviliðsstjórinn að þeim
verði beint á kvöldin og ---------------
næturnar.
Annars telur Þorbjörn að
tiltölulega litlár líkur séu á
miklum óhöppum í göngun-
um, miðað við norska staðla "
sem Vegagerðin hefur til hliðsjónar
við sína vinnu. Þannig megi búast við
þremur árekstrum fólksbíla á ári að
meðaltali, að yfir 60 ár líði milli þess
að eldur komi upp í fólksbíl í göngun-
um, að 250 ár líði milli elds í þyngri
flutningabílum og 5.000 ár milli
óhapps með hópferðabifreið. Hann
tekur þó fram að slíkar meðaltalstölur
segi ekki mikið, slysið gæti þess vegna
orðið á morgun. Þorbjörn skoðaði að-
stæður í göngunum í fyrradag vegna
fyrirhugaðrar opnunar þeirra. Segist
hann vera hræddastur við gatnamótin
í göngunum, að þar gætu orðið slys
ef menn færu ekki varlega, en tekur
fram að þau séu rækilega merkt.
Slökkvistöð
við gangamunann?
Búast má við að meiri kröfur verði
gerðar um öryggi í væntanlegum
göngum undir Hvalfjörð en í Vest-
fjarðagöngum vegna þess hvað um-
ferðin verður þar mikið þyngri. í Nor-
egi er til dæmis frjáls umferð um
göng á landsbyggðinni en nær þéttbýl-
inu, þar sem umfei-ð er meiri, er akst-
ur tankbíla með olíu eða hættuleg
efni aðeins heimilaður utan annatíma
og dæmi eru um að göngum sé lokað
á meðan.
Jón Viðar Matthíasson, vara-
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Reykjavík-
ur, hefur vakið máls á öryggismálum
í væntanlegum Hvalfjarðargöngum
og spurst fyrir um það hvort Slökkvil-
ið Reykjavíkur eigi að þjóna göngun-
um. Slökkviliðið á Kjalamesi er
áhugamannalið og hefur bakstuð.ning
af Slökkviliði Reykjavíkur sem annast
símsvörun og fer einnig í útköll. Að
norðanverðu er Skilmannahreppur og
er Slökkvilið Akraness kallað út en
þar er aðeins einn maður á vakt en
liðið að öðru leyti skipað mönnum sem
ekki eru slökkviliðsmenn að atvinnu.
Guðmundur Gunnarsson, yfirverk-
fræðingur Brunamálastofnunar, telur
að það taki full langan tíma fyrir lið-
ið úr slökkvistöðinni við Tunguháls í
Reykjavík að komast á staðinn og
vafasamt að slökkviliðið á Akranesi
hafi nægan viðbúnað til að taka þetta
verkefni að sér. Hann segir að jarð-
göng séu það sérstök að við hver ný
göng þurfi að fara yfir það hvernig
eigi að haga viðbúnaði vegna huggan-
legra slysa.
Jón Viðar segir að mun erfíðara sé
að fást við eld í jarðgöngum en ann-
ars staðar. Eldur, hiti og reykur geti
lokast inni og geri björgunar- og
slökkvistarf sérstaklega erfitt. Þá sé
ávallt hætta á að vegfarendur verði
hræddir í jarðgöngum og reyni með
öllum ráðum að komast út, jafnve1
þó ekki sé um stórvægilegt óhapp að
ræða. Afar mikilvægt sé að bregðast
fljótt við til bjargar fólki. Þá þurfí
góðan stuðning við reykköfun langt
inn í göng. Sjálfur telur Jón Vííar
best að setja upp slökkvistöð sem
næst göngunum og bendir á möguleik-
ann að gera það við annan hvorn
gangamunann. Slökkvistöð þar gæti
jafnframt sinnt útköllum vegna verk-
smiðjunnar á Grundartanga.
ítrustu
öryggiskröfur
Erlend fyrirtæki hafa tekið út ör-
yggismál í væntanlegum Hvalfjarð-
argöngum, bæði miðað við aðstæður
í Noregi og Bretlandi. Guðlaugur
Hjörleifsson, yfírverkfræðingur ís-
lenska járnblendifélagsins á Grundart-
anga, vann að tæknilegum undirbún-
ingi ganganna á • vegum Spalar hf.
Hann segir að ítrustu kröfur verði
gerðar um öryggi í göngunum en seg-
ir að endanleg ákvörðun hafí ekki
verið tekin um einstök atriði. Segir
hann að fólksbílar geti snúið við hvar
sem er í göngunum og stórir bílar í
nokkrum útskotum. Vatnstankar
verði við báða munnanna og neyðar-
símar og handslökkvitæki á nokkrum
stöðum. Þegar handslökkvitæki er
notað gefur það útkallsboð til slökkvi-
stöðvar. Guðlaugur segir að til um-
ræðu hafi verið að beina umferð tank-
bíla, sem flytja varasöm efni, á þann
tíma sólarhringsins sem umferð er
með minnsta móti og jafnvel að loka
göngunum á meðan þeir renna í gegn.
Fyrirtækið sem tekur að sér að
grafa göngin mun setja upp. öryggis-
kerfi sem notað verður á meðan unn-
ið er í göngunum. Væntanlega verður
byggt á þeim grunni þegar
rekstur hefst.
Guðmundur Gunnarsson
telur að núverandi viðbún-
_________ aður á Akranesi og í
Reykjavík sé tæplega næg-
ur en tekur fram að engar ákvarðanir
hafi verið teknar um það hvaða kvað-
ir verði lagðar á eiganda ganganna í
þessu efni. Guðjón Petersen hjá Al-
mannavörnum tekur undir hugmyndir
varaslökkviliðsstjórans í Reykjavík um
slökkvistöð við gangamunnann, ?tgist
telja æskilegt að hafa viðbúnað á
staðnum. Bendir hann á að þar þurfi
hvort sem er að vera starfsfólk við
innheimtu veggjalds og stjórnun vél-
búnaðar. Guðlaugur Hjörleifsson segir
hugsanlegt að þetta fólk geti tekið
fyrstu skrefín í björgunarstarfí ef eitt-
hvað gerist í göngunum.
Viðbúnaður
slökkviliða
varla nægur