Morgunblaðið - 20.12.1995, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Tíu ára afmæli Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar
Alþjóðlegar æfingabúðir og samstarf við erlendar hljómsveitir í undirbúningi
ÚR ÆFINGABÚÐUM á Norræna skólasetrinu í Hvalfirði.
HELGINA 9. og 10. september
sl. hélt Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar tónleika í Reykjavík og á Akra-
nesi. Hljómsveitin lék tvö diverti-
mento fyrir strengi, annað eftir
Béla Bartok og hitt eftir W.A.
Mozart. Tónverk Bartoks var flutt
í tilefni þess að liðin eru 50 ár frá
dauða tónskáldsins. Þá flutti hljóm-
sveitin sinfóníu í B-dúr fyrir blás-
arasveit eftir Paul Hindemith. Að
lokum flutti Sinfóníuhljómsveit
æskunnar stef og tilbrigði fyrir
blásarasveit eftir Amold Schoen-
berg. Þetta var einnig frumflutn-
ingur þessa verks hérlendis. Að
þessu sinni voru stjórnendur hljóm-
sveitarinnar tveir, Bernharður
Wilkinson og Guðný Guðmunds-
dóttir.
Alls tóku rúmlega 80 tónlistar-
nemendur þátt í 10 daga æfingum
á námskeiði sem haldið var til undir-
búnings á ofangreindum hljómleik-
um. Að þessu sinni var hljómsveitin
tvískipt, blásarar og slagverk ann-
ars vegar, og strengir hins vegar.
Var þessi háttur hafður á til þess
að sem flestir gætu fengið að
spreyta sig en um þessar mundir
má segja að kynslóðáskipti séu að
verða í hljómsveitinni. Margir tón-
listamemar, sem leikið hafa með
Sinfóníuhljómsveit æskunnar á
undanfömum árum, eru nú að
hverfa til framhaldsnáms erlendis.
Fjöldi ungra nemenda, bæði blásar-
ar og strengjaleikarar, eru því að
koma til starfa með hljómsveitinni
í fyrsta sinn.
Mikilvægt tækifæri fyrir
unga tónlistarnema
Markmið Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar er að gefa ungum tónlist-
arnemum tækifæri til að öðlast
Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar býr við þröngan
7
kost. Olafur Stephen-
sen ijallar hér um stöðu
hennar og störf.
reynslu í hljómsveitarleik í fullskip-
aðri sinfóníuhljómsveit, kynnast
stórum hljómsveitarverkum og öðl-
ast þannig reynslu og undirbúning
undir atvinnumennsku í hljóðfæra-
leik. Þá felst mikilvægur hluti starfs
hljómsveitarinnar í samskiptum og
samvinnu við ungmennahljómsveit-
ir erlendis og þátttöku í alþjóðlegu
hljómsveitarstarfi sambærilegra
ungmennahljómsveita.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar er
um þessar mundir í sambandi við
hljómsveitir í Bandaríkjunum og í
Grikklandi. Á þessu starfsári bauðst
hljómsveitinni að koma og leika á
svonefndu Aþenu festivali í Grikk-
landi, en vegna óviðráðanlegra at-
vika í Grikklandi var tónlistarhátíð-
inni frestað, en stefnt er að því að
hljómsveitin fari til Grikklands á
næsta Aþenu festival, sem væntan-
lega verður haldið að ári. Þá er
samstarf við The Greater Houston
Youth Orchestra í Texas í burðar-
liðnum. Stjómandi Texas hljóm-
sveitarinnar, Lawrence Wheeler,
hefur nú til athugunar ýmiss konar
samstarf milli hljómsveitanna, m.a.
nemendaskipti.
Framúrskarandi
starf Zukofskys
Sinfóníuhljómsveit æskunnar var
stofnuð árið 1985 á ári æskunnar.
Hljómsveitin varð til fyrir gríðar-
lega mikið og metnaðarfullt starf
bandaríska hljómsveitarstjórans
Pauls Zukofskys. Zukofsky var
upphaflega með sérstök hljómsveit-
arnámskeið á vegum Tónlistarskól-
ans í Reykjavík eða allt frá árinu
1978. Hann var fyrsti stjórnandi
og drifíjöður Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar frá upphafi og allt til
ársins 1993.
Þáð er ómögulegt að fjalla um
Sinfóníuhljómsveit æskunnar á
þessum tímamótum öðruvísi en að
minnast hins frábæra starfs Zuk-
ofskys með hljómsveitinni. Það gera
sér fáir grein fyrir hversu mikið
starf það er að byggja upp sinfóníu-
hljómsveit, þar sem ungir tónlistar-
nemar staldra við á tónlistarferli
sínum; - stýra hljómsveitinni og
stjórna - og gefa henni möguleika
á að spreyta sig á meistaraverkum
eins og Fyrstu sinfóníu Brahms,
„Eroica“ sinfóníu Beethovens, 6.
og 9. sinfóníum Mahlers, „Et
Expecto Resurrectionem Mortuor-
um“ eftir Messiaen og 2. og 6. sin-
fóníum Bruckners.
Verk Jóns Leifs á geisladiski
Að lokum má alls ekki gleyma
stjórn Zukofskys á flutningi Söng-
sveitarinnar Fílharmóníu o.fl.
ásamt Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar á tónverkinu „Baldr“ eftir Jón
Leifs. Flutningur þessa verks var
gefinn út á geisladiski árið 1992.
Geisladiskurinn hefur fengið prýði-
lega dóma í erlendum tónlistarblöð-
um.
Aðalnámskeið SÆ eru yfirleitt
haldin tvisvar eða þrisvar á hveiju
ári. Þessum námskeiðum lýkur yfír-
leitt með tónleikum. Á námskeiðun-
um starfa leiðbeinendur fyrir hvern
hóp hljóðfæraleikara, oftast félagar
úr Sinfóníuhljómsveit íslands, sem
hafa látið sér annt um starfsemi
hljómsveitarinnar - og veitt henni
margs konar aðstoð á ýmsa vegu.
Afmælisveisla í Hvalfirði
Á tíu ára afmæli Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar kom hljómsveitin
saman í sérstakar æfingabúðir á
Norræna skólasetrinu í Hvalfirði.
Þar var haldið upp á afmælið með
helgarnámskeið undir stjórn Gunn-
steins Ólafssonar, hljómsveitar-
stjóra. Annað slíkt helgarnámskeið
verður haldið í marsmánuði næsta
árs.
Alþjóðlegar æfingabúðir
Stjórn hljómsveitarinnar stefnir
að því að gefa erlendum tónlistar-
nemum tækifæri til að koma til
Islands og sækja þessi helgarnám-
skeið, líkt og gert er erlendis í sam-
vinnu við tónlistarskóla og ungl-
ingahljómsveitir. Einnig er verið að
kanna möguleika á skiptinemakerfi
i sambandi við æfingabúðirnar.
Eins og stendur býr Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar við þröngan
kost. Ýmis fyrirtæki og einstakling-
ar hafa lagt sitt af mörkum til að
styðja við þetta mikilsverða uppeldi
sem hljómsveitin veitir ungum tón-
listarnemum er skara framúr á
hljóðfæri sín. Þá hefur Reykjavíkur-
borg og menntamálaráðuneytið lát-
ið Sinfóníuhljómsveit æskunnar
njóta framlaga til þessa uppeldis-
starfs.
Enginn styrkur á
síðastliðnu ári
Því miður fékk hljómsveitin
hvorki styrk né stuðning frá ríki
eða borg á síðastliðnu starfsári,
þannig að starf ársins var af mjög
skornum skammti. Þannig hefur
SÆ átt í erfiðleikum með að standa
við markmið sín, þ.e.a.s. með nám-
skeiðum, tónleikahaldi, _ samstarfi
við Sinfóníuhljómsveit íslands og
aðrar lista- og menningarstofnanir,
þátttöku í1, alþjóðlegu samstarfi,
hljóðritunum og síðast en ekki síst
með því að fá ung tónskáld til að
semja hljómsveitarverk sérstaklega
fyrir hljómsveitina.
Sinfóniuhljómsveit æskunnar er
nú sjálfseignarstofnun. Stjórn
Hvað gera Norðmenn?
Lækkun kostnaðar í heilbrigðiskerfinu
Ákvarðanir um heil-
AÐ TAKA pólitískar ákvarðanir
og setja reglur um heilbrigðisþjón-
ustu er allt annað en að fylgja þeim
eftir í raun. Þetta byggist á þeirri
staðreynd að drifkraftur heilbrigð-
isþjónustunnar er, þrátt fyrir allt,
læknar og hjúkrunarfólk.
Vandi stjórnmálamanna er að
sporna við auknum útgjöldum í
heilbrigðiskerfinu án þess að það
bitni á þjónustunni. Fyrir sjálfvirkni
í útgjaldaaukningu hefur verið
reynt að taka með misjöfnum ár-
angri.
Eg kynnti mér fyrir skömmu at-
hyglisverðar tillögur sem uppi eru
í Noregi varðandi sérfærðilæknis-
þjónustu og hvaða leiðir eru færar
til að lækka kostnað í norska heil-
brigðiskerfinu.
Vandamálin í Noregi virðast
nokkuð lík vandamálunum á ís-
landi. Því er ekki úr vegi að kynna
þessar tillögur í Morgunblaðinu.
Skráðum sérfræðilæknum hefur
ekki fjölgað í Noregi síðastliðin ár.
Útgjaldaaukning Norska ríkisins er
hins vegar veruleg í þessum hluta
þjónustunnar eða um 18% frá því
í fyrra.
Skýring á útgjaldaaukningunni
er talin vera þessi: Þegar ætlunin
var að takmarka aðgang nýrra
lækna að markaðnum hafi þeir
læknar sem stunduðu einkarekstur
í hlutastarfí litið á einkaleyfi sitt
sem eins konar réttindi til kvóta.
Margir leyfislæknar hafi þess vegna
ráðið sér aðstoðarfólk til þess að
gera út á sinn kvóta. Tilraun til að
takmarka fjölda sérfræðilækna sem
brigðisþjónustu þarf
að taka í heildarsam-
hengi. Skúli Thorodd-
sen telur mikilvægt að
taka mið af reynslu
grannþjóða.
fengu endurgreitt frá Trygginga-
stofnun mistókst í sjálfu sér ekki.
Það voru viðtölin, lyfin, aðgerðirnar
og rannsóknirnar sem fóru úr bönd-
um.
Til þess að lækka kostnað í heil-
brigðisþjónustu er um tvær leiðir
að velja. Annars vegar samnings-
leið við samtök lækna um aðgerðir
vegna veittrar þjónustu. Hins vegar
hin pólitíska leið stjórnvaldas-
ákvarðana. Pólitískar aðgerðir
verða þó varla framkvæmanlegar
heldur nema þær séu einnig gerðar
í samráði við samtök lækna og heil-
brigðisstéttanna.
Samvinnuráð Tryggingastofnun-
ar í Noregi og norska læknafélags-
ins ákvað að skipa vinnunefnd til
þess að móta tillögur um „samvinnu
um eftirlit- og leiðbeiningareglur
vegna könnunar á taxtanotkun
lækna.“ Meginverkefnið var að
móta tillögur um hvernig fara skuli
með mál þar sem ástæða er til að
ætla að um rangnotkun, ofnotkun
eða misnotkun læknataxta sé að
ræða.
Síðastliðið ár hafa 54% allra
lækna í Noregi sem fá endurgreitt
úr Tryggingastofnun ríkisins sam-
kvæmt reikningi verið skoðaðir.
Gert er ráð fyrir að u.þ.b. 10% til
viðbótar verði skoðuð fram til ára-
móta 1995-96.
Áður hafa læknareikningar lítið
verið skoðaðir og skilvirkt eftirlits-
kerfí hefur ekki verið til. Margir
læknar líta á „skoðunina" sem nið-
urlægjandi en fram hafa komið til-
vik þar sem endurgreiðslukerfi al-
mannatryggingakerfisins hefur
verið ofnotað/misnotað af einstaka
læknum um hundruð þúsunda
norskra króna. Með dómi Hæsta-
réttar Noregs í maí 1994 var lækn-
ir dæmdur til eins árs og tveggja
mánaða fangelsisvistar. Hann var
sviptur læknaleyfi í þijú ár, og Var
að auki gert að endurgreiða Trygg-
• ingastofnuninni 400 þúsund norsk-
ar krónur vegna rangrar taxtanotk-
unar.
Hin pólitíska leið stjórnvalds-
ákvarða kemur fram í norska fjár-
lagafrumvarpinu fyrir árið 1996.
Þar segir: „Til að skapa möguleika
á nýsköpun í sjúkrahúsgeiranum
~er mikilvægt að skoða aðra þætti
frumvarpsins sem snýr að heilbrigð-
isþjónustunni. Sérstaklega á þetta
við um endurgreiðslur Trygginga-
stofnunar vegna lyfja og sérfræði-
þjónstu. Þar mun vera unnt að
spara með sérstökum aðgerðum
allt að 300 milljónir norskra króna
á ári. Ríkisstjórnin hefur í hyggju
að leggja fram sérstak-
ar tillögur um aðgerðir
við sérumræðu um
heilbrigðiskafla frum-
varpsins.
Sérstök ráðuneytis-
skipuð nefnd beindi í
tillöguflutningi sínum
höfuðathyglinni að
sérfræðilæknisþjón-
ustu og hlutdeild henn-
ar í heildarsamhengi
heilbrigðisþjónustunn-
ar. Hún mat þetta
þannig að í Noregi
væri það óheilbrigt og
siðlaust að sjúkrahús-
læknar rækju í ríkum
mæli einkastofur í frítíma sínum.
Með því að vinna aukavinnu í vinn-
unni sinni á sjúkrahúsunum væru
læknamir a.m.k. undir opinberri
stjórn og meginreglur um opinbera
stýringu forgagnsverkefna væri
virt.
Biðlistar eru víða fyrir hendi í
Noregi. Það var því mat norsku
nefndarinnar að nú sé lag til auk-
innar göngudeildarþjónustu. Þetta
er mögulegt með tekjutilfærslum
frá einkageiranum (sérfræðiþjón-
ustunni) til spítalanna. Það gæti
hins vegar reynst þrautinni þyngri
að þrýsta læknunum inn á spítalana
aftur eftir að þeir hafa komið sér
fyrir í einkageiranum líka.
Norska nefndin leggur til að öll-
um endurgreiðslum til óskipulagðr-
ar læknastarfsemi verði sagt upp
með þriggja ára aðlögunartíma.
Hún gerir ráð fyrir að brúttósparn-
aðurinn í endurgreiðslukerfinu eftir
að rétturinn til endurgreiðslna frá
Tryggingastofnun hefur verið felld-
ur niður nemi um 500 milljónum
norskra króna. Kostnaður við nýja
rekstrarstyrki og auknar endur-
greiðslur samningslækna em taldar
nema ca 250 milljónum
kr. og aukinn kostnað-
ur við nýjar stöður á
spítölunum og hærri
laun þar muni einnig
minnka sparnaðinn
okkar.
Kosturinn 'við þessa
aðgerð er sá að hún
bitnar fyrst og fremst
á þeim læknum sem
stunda einkarekstur
sem aukastarf.
í Noregi hafa verið
sett fram rök þess efn-
is að sérhver starfandi
sérfræðilæknir ætti að
hafa beinan samning
við Tryggingastofnun um afmarkað
starfssvið og þjónustu. Þetta bygg-
ir á mikilvægi þess að unnt sé að
stjórna heilbrigðiskerfinu í heild,
þ.e. þeim hluta þess sem fjármagn-
aður er með opinberu fé.
Til samanburðar má geta þess
að í Svíþjóð fer nær öll sérfræði-
læknisþjónusta fram í tengslum við
göngudejldir spítalanna. Þjónustan
er innt af hendi af fastlaunuðum
sérfræðilæknum þessara stofnana.
Einnig er reynt að koma í veg fyr-
ir tvöfeldni eða margfeldni þjón-
ustunnar þannig að ónauðsynlegt
sé að sjúklingar í göngudeildarmeð-
ferð notfæri sér sérfræðiþjónustu
margra lækna samtímis.
Þegar ákvarðanir eru teknar um
heilbrigðisþjónustuna á íslandi er
mikilvægt að gera það í heildarsam-
hengi. Þá er ekki verra að draga
lærdóm og reynslu af því sem er
að gerast í kringum okkur í svipuð-
um efnum.
Höfundur er lögfræðingur sem
hefur lagt stund & heilbrigðisþjón-
ustufræði.
Skúli Thoroddsen