Morgunblaðið - 11.01.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.01.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDÁGUR 11. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sviptingar í hreppsnefnd Reykhólahrepps Nýr meirihluti myndaður SVEINN Magnússon, oddviti Reyk- hólahreppps, og Sveinn Hallgríms- son hafa sagt skilið við félaga sína af L-listanum, sem hefur farið með meirihluta í hreppsnefnd undanfar- in tvö ár, og hafa þeir myndað nýjan meirihluta í hreppsnefndinni með fulltrúum N-listans. Sveinn segir jafnframt af sér sem oddviti og tekur Þórður Jónsson, bóndi af N-lista, við sem oddviti hreppsins. Félagar Sveins Magnússonar skoruðu á hann í seinustu viku að segja sig úr hreppsnefndinni, þar sem hann nyti ekki lengur trausts þeirra. Sveinn segir að níu af 14 fulltrúum L-lista hafi staðið að van- trauststillögunni en hann hafi ekki séð ástæðu til að verða við áskorun- inni. Sveinn segir að þeir sem að vantraustinu stóðu hefðu sýnt sér mikinn dónaskap og ekki haft fyrir Flotkví komin á sinn stað FLOTKVÍ Vélsmiðju Orms og Víg- lundar í Hafnarfirði sem kom til landsins síðastliðið haust hefur verið flutt frá Suðurbakka að Háabakka milli Óseyrarbryggju og Suðurbakka, og er hún nú kom- in á endanlegan stað að sögn Ei- ríks Orms Víglundssonar fram- kvæmdastjóra vélsmiðjunnar. Hann segir ástæðuna fyrir flutningnum vera þá að bæjaryfir- völdum hafi snúist hugur um stað- setningu flotkvíarinnar þar sem hún hafi tekið of mikið af skipa- plássum í höfninni. Flotkvíin er 116 metra löng og 22 metra breið og getur hún tekið stóra togara og meðalstór fraktskip í viðgerð. Nokkur verkefni framundan Eiríkur Ormur sagði nýju stað- setninguna koma vel út og vera betri fyrir þá sök að vissa væri nú fyrir að hún myndi ekki skemma fyrir einu eða neinu. Þá yrði vinnuaðstaða við flotkvína í góðu lagi. Lítið hefur verið hægt að nota hana frá því hún kom til landsins, en snemma í gær var Sindri VE tekinn upp í hana til viðgerða. „Við erum að komast í gang núna. Það var ekki nógu mikið dýpi þama og þeir voru að grafa, og þegar búið var að grafa þá fengum við ekki að vera þar og þá þurftum við að flytja hana og þá átti eftir að grafa annars stað- ar. Þetta er alveg skelfílegt dæmi,“ sagði Eiríkur Ormur. Hann sagðist telja að nokkur verkefni væru framundan fyrir flotkvína og þegar starfsemin yrði komin í gang yrði starfsmönnum vélsmiðjunnar fjölgað um 10-20, en þeir eru 37 í dag. ----------------- Bílvelta á Kefla- víkurvelli Vogum. Morgunblaðið. ÖKUMAÐUR bíls frá varnarliðinu slasaðist í bílveltu á gatnamótum Alþjóðabrautar og Norðurstrætis á Keflavíkurflugvelli í gær og var fluttur á hersjúkrahúsið. Bifreiðin för heila veltu og ók ökumaðurinn áfram eftir veltuna um 150 metra. Hálka var á vegin- um þegar slysið átti sér stað. Bif- reiðin er mikið skemmd. Ágreiningur biskups og vígslubiskups jafnaður Fundur biskups og stjórnar Prestafé- lagsins verdur á mánudag ÓLAFUR Skúlason, biskup íslands, og Sigurður Sigurðarson, vígslu- biskup í Skálholti, áttu einnar og hálfrar klukkustundar fund í gær. Ólafur segir að þeir hafí jafnað ágreining sinn á fundinum. Hann hittir stjórn Prestafélagsins eftir hádegi á mánudaginn. Um fundinn sagði Ólafur að hann og Sigurður hefðu orðið ásáttir um að tala framvegis sam- an eins og skynsamir menn innan veggja skrifstofu eða heimila en ekki í fjölmiðlum. Hann sagðist hafa beðið biskupsritara að hafa samband við stjórn Prestafélagsins á þriðjudaginn. „Hann bað stjórn- ina um að kanna hvenær ég gæti fundað með henni. Sá fundur var ákveðinn á mánudaginn kemur,“ sagði Ólafur. Ólafur ráðgaðist við ráðuneyti og Eirík Tómason, sem tekið hefur að sér að skoða deiluna í Langholts- kirkju, um hvort Eiríkur væri van- hæfur til verkefnisins vegna for- mennsku sinnar í Styrktarfélagi íslensku óperunnar til nokkurra ára. „Allir voru sammála því, ráðu- neytismenn og Eiríkur, að Eríkur væri á engan hátt vanhæfur til að fást við málið,“ sagði Ólafur og tók fram að í litlu samfélagi væri nán- ast undantekning ef einstaklingar tengdust ekki á einhvern hátt. Olafur sagði að Eiríkur myndi leggja fyrir sig stjórnsýslulegar og starfslegar kannanir sínar á deil- unni i Langholtskirkju á mánudag- inn. í framhaldi af því myndi Erík- ur tala við aðila er tengdust mál- inu. Hreinskilinn fundur „Við biskup hittumst og jöfnuð- um þann ágreining sem virtist vera kominn upp á milli okkar. Biskup- inn er svo búinn að biðja um að fá að hitta stjórn Prestafélags ís- lands á mánudaginn. í framhaldi af því kemur svo í ljós hvort við hittumst, hann og ég og formaður- inn,“ sagði Sigurður eftir fundinn. Hann sagði að talað hefði verið af hreinskilni á fundinum. Hann og Ólafur Skúlason hefðu skilið sáttir um næstu skref. 2 af 4 fulltrúum L-lista í samstarf með N-lista því að sýna sér frumrit af áskorun- inni. í framhaldi af þessu hafí þeir Sveinn Hallgrímsson hafíð viðræður við fulltrúa N-listans um myndun nýs meirihluta og gengið hafí verið endanlega frá myndun hans sl. þriðjudagskvöld. Leita lausna á fjárhags- vanda hreppsins Deilur hafa verið í Reykhóla- hreppi um lausnir á miklum fjár- hagsvanda hreppsins og vegna máls Bjama P. Magnússonar, fyrr- verandi sveitarstjóra. Sjö fulltrúar skipa hreppsnefnd Reykhólahrepps, þar af eru fjórir af L-lista og þrír af N-lista. Að nýja meirihlutanum standa því fímm hreppsnefndarfull- trúar en tveir fulltrúar af L-lista, eru komnir í minnihluta. Myndun nýja meirihlutans kom Daníel Jónssyni, einum hrepps- nefndarmanna L-listans, á óvart en hann segist hafa frétt af þessu í útvarpsfréttum í gær. Daníel sagði ljóst að L-listinn væri klofínn en ekkert frekar væri um málið að segja á þessari stundu. Fullt samkomulag hefur náðst um verkaskiptingu innan hins nýja meirihluta, að sögn Sveins. Megin- viðfangsefni hans verður að vinna að áframhaldandi lausn á fjárhags- vanda sveitarsjóðs og fyrirtækja hans. „Ég mun sitja áfram sem sveitar- stjórnarmaður en hætta sem odd- viti þar sem þetta er því miður orð- ið persónugert. Ég sé mér ekki annað fært en að vera óbreyttur hreppsnefndarmaður vegna þess að þetta er farið að bitna á minni fjöl- skyldu,“ sagði Sveinn Magnússon. Viðræður að hefjast um sölu hitaveitu til Orkubúsins Áætlað er að fyrsti fundur hreppsnefndar eftir meirihluta- skiptin verði haldinn næstkomandi sunnudag eða mánudag. Fulltrúar nýja meirihlutans hyggjast fara til viðræðna við fulltrúa Orkubús Vest- fjarða á næstu dögum um sölu hita- veitunnar á Reykhólum til Orkubús- ins. Morgunblaðið/Ásdís SINDRI VE var tekinn upp í flotkvína á nýja staðnum í gær og eru nokkur verkefni framundan. 25 málverk Nínu Gautadóttur ófundin Ný mynda- röð Nínu sýndíGerð- arsafni TUTTUGU og fimm málverk eftir Nínu Gautadóttur hafa enn ekki komið í leitirnar. Málverkin týndust þegar Nína kom heim frá París til að sýna þau í Gerðarsafni í síðustu viku. Nú hefur Nína hins vegar [ sótt önnur verk til Parísar og verður sýning á verkunum opnuð í Gerðarsafni á laugar- daginn. Sýnd verður myndaröð undir heitinu „Umhverfis jörð- ina á 80 dögum.“ Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, sagði að eftir að myndirnar týndust hefði hún velt því fyr- ir sér hvort hægt væri að sýna aðrar myndir eftir Nínu. „Eg vissi að Nína átti aðra mynda- seríu. Hana væri hreinlega hægt að sýna í staðin fyrir hin- ar myndimar enda hefur hún aldrei verið sýnd hér á landi. Eg leitaði til Flugleiða og þeir gerðu Nínu kleift að sækja myndirnar til Parísar. Þessi sýning verður opnuð klukkan 15 á Iaugardaginn, viku eftir að ætlunin var að opna sýningu á hinum verkunum.“ Guðbjörg sagði að á sýning- unni yrðu 80 myndir úr sögu Jules Verne „Umhverfis jörð- ina á 80 dögum“ og væri hver mynd einn metri. Sýningin stendur yfir í a.m.k. 3 vikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.