Morgunblaðið - 11.01.1996, Síða 8

Morgunblaðið - 11.01.1996, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Innbrotum í bíla fjölgaði um 60% INNBROT í bíla í Reykjavík hafa aukist mikið síðastliðin þrjú ár. 1993 skráði lögreglan 428 innbrot en 699 innbrot 1995, sem er um 63% aukning. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfírlögreglu- þjónn segir að óvenjumikið hafi verið um innbrot í bíla árið 1990 og hefði lögreglan farið í sérstakar aðgerðir. Útbúnir voru bæklingar sem dreift var til bíleigenda. Þar var þeim bent á hvernig best væri að haga frágangi á ökutækjum til þess að draga úr líkum á innbrot- um. Einnig fór lögreglan skipulega á þá staði þar sem innbrot í bíla voru hvað tíðust. . Innbrot og fíkniefni Verulega dró úr innbrotum í bíla seinni hluta ársins 1991. Árið 1992 jókst fjöldi innbrota á ný og hófst þá umræða um viðurlaga- kerfið vegna þátts síbrotamanna á þessu sviði. Auk þess var rætt um að félagsmálayfirvöld sinntu betur yngstu einstaklingunum sem voru famir að láta að sér kveða á þess- ari braut. Afgreiðslu mála var hraðað og viðurlög voru þyngd. Ómar Smári segir að þá hafi veru- lega dregið úr afbrotum þeirra sem áður höfðu verið hvað iðnastir við innbrotin. Síðan hefur þróunin ver- ið í þá átt að aukning hefur verið stöðug. „Það má m.a. rekja til þess að nýir einstaklingar hafa komið inn og þeir beita öðrum aðferðum. Einnig hefur innbrotum í bíla til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu fjölgað," sagði Ómar Smári. Hann sagði að nú þyrfti að grípa til ein- hverra aðgerða til þess að draga á ný úr þessari óheillaþróun og þessi mál væru alltaf til skoðunar hjá lögreglunni. Innbrot í bíla og skemmdir unnar á bílum 1993-95 Innbrot í og þjófnaður úr 1993 1994 1995 500 200 100 Skemmdir unnar á bílum 400 300 Eindagar bifreiða- gjalda færðir fram Þingmenn heimsækja Litháen SENDINEFND á vegum Ai- þingis mun dveljast í Litháen dagana 11.-14. janúar í opin- berri heimsókn í boði þingsins þar í landi. Sendinefndin er undir forsæti Ólafs G. Einars- sonar, forseta Alþingis, en aðrir í sendinefndinni eru þingmenn- irnir Ragnar Arnalds, 1. vara- forseti Alþingis, Jón Baldvin Hannibalsson, Jón Kristjánsson og Guðmundur Hallvarðsson, auk Friðriks Ólafssonar, skrif- stofustjóra Alþingis. Tilefni heimsóknarinnar er að þessa dagana minnast Lithá- ar þess að 5 ár eru liðin síðan hrundið var árás sovéska hers- ins á þinghúsið í Vilníus. Sér- stök minningarathöfn verður í þinghúsinu 12. janúar og mun Ólafur G. Einarsson ávarpa þingið við það tækifæri. EINDAGAR bifreiðagjalda hafa verið færðir fram um hálfan mánuð samkvæmt breytingum á lögum um bifreiðagjald. Eindagar verða nú 15. febrúar og 15. ágúst. Áður varð að greiða bifreiða- gjöld áður en skoðun fór fram en nú verður heimilt að skoða bifreið- ir fram að eindaga án þess að bif- reiðagjöld hafi verið greidd. Hins vegar verður að gera upp bifreiða- gjöld frá fyrra ári til þess að skoð- un geti farið fram. Einnig voru þær breytingar gerðar að nú er óheimilt að hafa eigendaskipti á ökutækjum nema búið sé að greiða gjaldfallin bif- reiðagjöld. Öskar Eyjólfsson hjá Bifreiðaskoðun Islands segir að þessi breyting sé mjög til hagræð- is fyrir bílkaupandann því með þessu á hann að vera tryggður gegn því að hann kaupi bíl með áföllnum bifreiðagjöldum. Aukinn kostnaður Bifreiðaskoðunar Óskar segir að þessi breyting hafi jafnframt í för með sér aukna vinnu fyrir Bifreiðaskoðun. „Við þurfum að senda bréf til kaupenda og seljenda og minna þá á að gera upp áfallin bifreiðagjöld,“ sagði Óskar. Hann sagði að þetta hefði aukinn kostnað í för með sér fyrir fyrirtækið. Þá hækkaði umferðaröryggis- gjald, sem greitt er um leið og ökutæki er fært til skoðunar, um áramótin um 100 kr. og verður nú 200 kr. Gjaldið rennur til Um- ferðarráðs og hækka tekjur þess á árinu um 20 milljónir króna vegna hækkunar á gjaldinu. Erfið útgerð hjá Skíðasambandinu Alltaf liægt að gera betur Benedikt Geirsson VILHELM Þor- steinsson, skíða- maður frá Akur- eyri, lýsti því yfir í sam- tali við Morgunblaðið sl. laugardag að hann væri hættur í skíðalandsliðinu — „búinn að fá nóg,“ eins og hann orðaði það. Hann gagnrýndi stjórn Skíðasambandsins fyrir slælega frammistöðu, sérstaklega varðandi uppbyggingu íþróttar- innar. Benedikt Geirs- son, formaður Skíðasam- bandsins, sem er elsta sérsambandið innan ÍSÍ og heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári, sagði um þessa gagnrýni að auðvitað væri alltaf hægt að gera betur. „Það er nú einu sinni þannig að við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Við höfum ekki úr miklum peningum að moða og því verðum við að fara varlega í að skipuleggja starfið of langt fram í tímann. Við getum ekki gert út á peninga sem eru ekki í hendi. Við erum alltaf að beij- ast við að ná inn peningum fyr- ir því sem við erum að gera hveiju sinni. Þess vegna er ekki hægt að vera með áætlun mörg ár fram í tímann,“ sagði Bene- dikt. Benedikt sagði gagnrýni Vil- helms ekki alvarlega. „Stað- reyndin er sú að við náum til- tölulega litlum tekjum inn í sam- bandið þrátt fyrir þennan góða árangur sem skíðafólkið hefur verið að ná undanfarin tvö ár. Varðandi það að við Ieggjum ekki nægilga áherslu á ungling- ana þá get ég sagt að við erum þó byijaðir að byggja það upp sem var ekki áður. Við höfum komið á sumaræfingum fyrir þessa krakka og fleira, þannig að ég get ekki sagt að við höfum ekkert gert. Undanfarin tvö til þijú ár hafa orðið verulegar framfarir hjá Skíðasambandinu stjórnunarlega séð. Það er erfitt að reka svona lítið sérsamband. En eins og ég hef áður sagt er alltaf hægt að bæta hlutina og við erum sífellt að reyna það.“ Benedikt sagðist nokkuð ánægður með hvernig haldið væri á landsliðsmálum SKÍ, sér- staklega í alpagreinum. „Þetta er annað árið sem við höldum landsliðinu úti í Austurríki. Reynslan hefur sýnt okkur að ef árangur á að nást þurfa skíðamennirnir að dvelja erlendis við bestu aðstæður sem völ er á. En á móti kemur að þetta kostar auðvitað mikla peninga. Ætli kostnaðurinn á hvern landsliðs- mann sé ekki um tvær milljónir á ári. Skíðasambandið borgar laun þjálfarans, húsaleiguna og útvegar bílinn. Strákarnir sjá að öðru leyti um sig sjálfir." Hann sagði að Iandsliðsstrák- arnir væru allir mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag. „Þeir hafa verið að bæta sig verulega og náð góðum árangri. Þeir hafa fengið allan útbúnað upp í hend- urnar eins og stangir, tímatöku- tæki, borvélar, skíði, fatnað, skó og allan útbúnað sem fýlgir ► Benedikt Geirsson er fædd- ur 12. september 1953 á Húsa- vík. Hann er aðstoðarspari- sjóðsstjóri hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis við Skólavörðustíg. Hann hefur verið formaður Skíðasambands íslands sl. tvö ár. Hann er kvæntur Elínu Sigríði Valdi- marsdóttur og eiga þau tvö börn, Runólf Geir, 19 ára og Bergrúnu Elínu, 15 ára. skíðamanni. Svo eru þeir með nýjan sendiferðabíl til að ferðast á milli móta. Þá skortir ekkert og eru hæstánægðir. Við funduðum með þeim um áramót- in og þá sögðu þeir: „Okkur vantar ekkert. Þetta er alveg hundrað prósent.“ Er þetta ekki jákvætt? Ég get þvi' ekki annað en verið ánægður með hvernig þetta hefur gengið í vetur.“ Ásta Halldórsdóttir, sem hef- ur verið besta skíðakona íslands undanfarin ár, ákvað að leggja skíðin á hilluna í haust, er það ekki mikið áfall fyrir skíðíþrótt- ina? „Jú, auðvitað er það mikið áfall því það er svo langt í næstu skíðakonu. Við gerðum okkur vonir um að hún héldi áfram því hún var komin það framar- lega á heimslistanum og reynd- um að þrýsta á að hún héldi áfram. Við vorum að vinna í því að hún fengi að æfa í Austur- ríki í vetur með nýsjálensku stúlkunni Claudiu Riegler sem hefur verið að gera það gott í heimsbikarnum. Ásta vissi að við vorum að vinna í þessu, en þegar loksins kom já- kvætt svar frá foreld- um og þjálfara Claud- iu 20. september, að Ástu væri velkomið að æfa með henni í vetur, var það of seint því Ásta hafði þá ákveðið að hætta.“ Nú talar þú um að erfitt sé að ná í peninga. Þið fáið tekjur úr lottóinu, en eruð þið með ein- hverja aðra fjáröflun í gangi? „Við höfum verið að heija á fyrirtæki um stuðning og svo héldum við tónleika fyrir ára- mótin með Körfuboltasamband- inu, sem gáfu reyndar ekki mikið af sér. Svo höfum við verið að selja auglýsingar í handbókina en það gefur ekki mikið og eins höfum við fengið hluta af mótagjöldum." Erfitt að reka svona lítið sérsamband

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.