Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 22

Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Nýherjabúðin er opin laugardaga 10-14 TUIip 486 Tullíp computers DX4/100 8 MB minni 850 MB diskur Verð frá krónur: Lexmark 4076 II Litableksprautuprentari 600 x 300 dpi uppiausn 3 bls/mín -150 blaða arkamatari Canon FC230 Ljósritunarvél - 4 bls/mín RÉTT VERÐ: 34.900 RÉTT VERÐ: 69.900 canon bj-30 720 dpi prentari \ 3 bls/mín 30 blaða arkamatari Canon T20 Faxtæki Símtól - 30 m rúlla Sjálfvirkur skiptir RÉTT VERÐ: 39.900 RÉTT VERÐ: 24.900 Canon B360 Faxtæki Sími Prentari Myndskanni Tölvufax Ljósritunarvél RÉTT VERÐ: 139.900 Trust 486 tolvur frá krónur: Canon BP26-D Bleksprautureiknivél 10 stafir í giugga þá bíj&u* vyM' TTUSt 486 margmiðlunartöivurAf^jUT i't®' Frá krónur: Meirihattar VÖRULISTINN A INTERNETINU: http:/www.nyherji.is/vorur/ CAIiOll canoii Trust anon TÓLVUBUNADUR Trust TOLVUBUNADUR Canon SKAFTAHLIÐ 24 SÍMI 569 7800 ÖLL VERD ERU STCR. VERÐ M/VSK NYHERJA ERLEIMT Reuter Með augun á forsetastólnum VLADÍMÍR Zhírínovskíj, leið- togi þjóðernissinna í Frjáls- lynda lýðræðisflokknum í Rúss landi, greiðir hér atkvæði með því að hann verði forsetafram- bjóðandi flokksins í júní. Zhír- ínovskíj og menn hans héldu landsfund í Moskvu í gær og ræddu m.a. úrslit þingkosning- anna í desember. Fylgið var þá aðeins helmingur þess sem það var 1993 en flokkurinn hlaut samt næstflest atkvæði og þriðja stærsta þingflokkinn. Réttarhöldin yfir Andreotti Efast um trúverð- ugleika Buscetta Padua. Reuter. LÖGFRÆÐINGAR Giulios Andre- ottis, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sem sakaður er .um mafíu- tengsl, drógu í gær í efa áreiðan- leika aðalvitnis saksóknarans, Tommaso Buscetta. Hann er fyrr- verandi mafíuforingi sem hóf sam- vinnu við lögregluna árið 1984 og hefur verið kallaður „Foringi tveggja heima“. Lögfræðingar Andreottis full- yrtu við réttarhöld yfir honum að framburði Buscetta við réttarhöld- in nú og við yfirheyrslur hjá lög- reglu bæri ekki saman. Gerðu lög- mennirnir ítrekaðar tilraunir til að lesa upp úr skýrslum, sem teknar voru við yfirheyrslurnar yfir Busc- etta hjá lögreglu, en dómari stöðv- aði lesturinn þar sem skýrslurnar hafa ekki verið viðurkenndar sem hluti sönnunargagna í málinu. Andreotti, sem var forsætisráð- herra sjö sinnum, neitar öllum ásökunum um tengsl við mafíuna og sagði að enn hefði ekkert kom- ið fram sem styddi þær. Buscetta fullyrðir hins vegar að Andreotti hafi jafnan gengið undir nafninu „Giulio frændi" innan mafíunnar. Buscetta hefur farið huldu höfði undanfarin ellefu ár og lengst af búið í Bandaríkjunum undir lög- regluvernd. í hefndarskyni við uppljóstranir hans hefur mafían myrt allnokkra úr fjölskyldu hans á Ítalíu. Þess hefur verið vandlega gætt að hann komi ekki fyrir al- menningssjónir en engu að síður tókst ítalska sjónvarpinu að ná mynd þar sem honum bregður fyr- ir er hann yfirgefur réttarsalinn. Dómari í máli Andreottis fyrirskip- aði í gær að filman yrði eyðilögð en hún hafði þá þegar verið sýnd í sjónvarpi. Þreyta flugmanna orsök brotlendingar London. Reuter. ÞREYTA flugmanna stuðlaði að því að Boeing-737 þota alsírska flugfé- lagsins Air Algerie fórst við Cov- entry í desember 1994, að sögn breska samgönguráðuneytisins. Allir fimm sem um borð voru, þrír flugmenn og tveir gripaverðir, biðu bana. Bresk rannsóknarnefnd segir í niðurstöðum sínum, að þreyta hafí slævt dómgreind og afkastagetu áhafnar þotunnar. Var hún að ljúka rúmlega 10 stunda vinnudegi og að koma úr þriðju ferðinni milli Eng- lands og Hollands með nautgripi. Voru flugmennirnir að framkvæma sjötta aðflugið þennan daginn er þotan fórst. Þotan kom of lágt inn til lending- ar, flaug á rafmagnslínur og sleit þær, strauk húsþak og brotlenti síð- an skammt frá brautarenda á flug- vellinum í Coventry. Minnstu mun- aði að hún kæmi niður á íbúða- hverfi. í niðurstöðum rannsóknar- nefndarinnar sagði auk þreytu flug- mannanna hefðu starfshættir í stjórnklefanum ekki verið hefð- bundnir og vantað hefði á eðlilegan undirbúning fyrir aðflug. Flugmenn- irnir hefðu aukinheldur lagt rangt mat á veðurupplýsingar. Fullyrt var að þeir hefðu ekki hlotið næga þjálf- un. Breski flugmálaráðherrann, Goschen lávarður, sagði að reglum um starfsemi erlendra flugfélaga yrði breytt og hert á kröfum um öryggisatriði. Tilkynnt var sömuleið- is um aukið eftirlit með erlendum flugvélum sem lenda í Bretlandi. Walesa í skipasmíði Gdansk. Reuter. LECH Walesa, sem lét af emb- ætti forseta Póllands í síðasta mánuði, sagði í fyrradag að hann hygðist hverfa aftur til starfs síns sem rafvirki í skipa- smíðastöð í Gdansk. Síðastliðin sex ár hefur Wal- esa verið í launalausu leyfi frá Lenín-skipasmíðastöðinni þar sem hann stofnaði verkalýðs- samtökin Samstöðu árið 1980. Vinir hans telja að hann vilji með þessu minna á hvar rætur hans liggi og benda um leið á hversu bág kjör fyrrverandi forsetar búi við í Póllandi. í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.