Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar
Áhyggjur
af breyttri
verktöku
BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar
samþykkti á fundi sínum 16. jan-
úar sl. eftirfarandi ályktun varð-
andi verktöku á vegnm Vamarliðs-
ins:
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
lýsir áhyggjum sínum yfir þeirri
þróun sem á sér stað á Keflavíkur-
flugvelli vegna umræðna um verk-
töku á vegum Varnarliðsins.
í samkomulagi sem gert var af
Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, og Will-
iam Perry, þáverandi varavarnar-
málastjóra Bandaríkjanna, var
ákveðið að verkframkvæmdir á
vegum Mannvirkjasjóðs Nato yrðu
boðnar út sem þegar er komið í
framkvæmd.
Ljóst er að frekari breytingar á
verktöku á vegum Vamariiðsins
geta haft mikil áhrif á atvinnu-
ástand á Suðurnesjum.
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar
telur því að varlega þurfi að fara
í allar frekari breytingar og gefinn
verði hæfilega langur aðlögunar-
tími.“
Undir ályktunina rita: Jónína
A. Sanders, Ellert Eiríksson, Drífa
Sigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir,
Kjartan Már Kjartansson, Anna
M. Guðmunsdóttir, Ragnar Hall-
dórsson, Björn H. Guðbjömsson,
Sólveig Þórðardóttir og Jón Páll
Eyjólfsson.
Sindri stærsta skip sem tekið hefur verið í slipp í Hafnarfirði
Kostnaður 30-40 milljóiiir
VIÐGERÐ er nú langt komin á Sindra VE sem
varð fyrir skemmdum á stýrisbúnaði í Smug-
unni í haust en skipið er hið fyrsta sem tekið
er upp í nýja flotkví í Hafnarfirði. Að sögn
Guðmundar Víglundssonar, framkvæmdastjóra
Vélsmiðju Orms og Víglundar hf. sem eiga flotk-
vína, er kostnaðaráætlun við viðgerðina á milli
30 og 40 milljónir króna. Þá er ekki tekið tillit
til tjóns útgerðarinnar vegna tíma frá veiðum.
Guðmundur kveðst eiga von á að skipið verði
í kvínni fram að helgi en viðgerð ljúki endanlega
um mánaðarmót.
Hann segir samninga vera i burðarliðnum um
fleiri verkefni og gangi alit eftir áætlun verði
nýtt skip komið í kvína í næstu viku. Sindri var
settur í kvína 10. janúar sl.
Skapar 20 störf
Kostnaður við flotkvína nemur um 100 millj-
ónum króna og segir Guðmundur þann drátt sem
varð á afgreiðslu beiðnar fyrirtækisins um stað-
setningu hafa verið kostnaðarsaman. Kvíin eigi
þó að borga sig upp.
„Við sköpum beint um 20 störf með tilkomu
flotkvíarinnar, auk þess sem enn fleiri fá vinnu
í tengslum við hana. Sindri er stærsta skip sem
Morgunblaðið/Kristinn
SINDRI VE er stærsta skip sem tekið hefur verið í slipp í Hafnarfirði, en nýja flotkvíin tekur skip
sem eru allt að 3.000 tonn að stærð.
Samningar um
loftslagsbreyt-
ingar styrktir
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
að ráðstafa sérstaklega einni millj-
ón króna til að styrkja þátttöku
stjórnvalda í samningaviðræðum á
vettvangi rammasamnings Samein-
uðu þjóðanna um loftslagsbreyting-
ar. Umhverfisráðuneytið hefur á
síðustu mánuðum tekið þátt í við-
ræðum um að styrkja samninginn,
en með fjárveitingunni er tryggt
að a.m.k. tveir íslenskir fulltrúar í
stað eins sitji þá þijá samninga-
fundi, sem halda á á árinu.
Einnig samþykkti ríkistjórnin til-
lögu umhverfisráðherra um að hann
skipi sérstaka umsjónarnefnd, sem
á að hafa umsjón með fram-
kvæmdaáætlun íslands vegna
rammasamnings SÞ, sem ríkis-
stjórnin samþykkti í október sl.
Umsjónarnefndin verður skipuð að-
stoðarmönnum ráðherra sjö ráðu-
neyta (umhverfís-, fjármála-, iðnað-
ar- og viðskipta-, samgöngu-, land-
búnaðar-, dómsmála- og sjávarút-
vegsráðuneytis), en formaður henn-
ar verður Guðjón Ólafur Jónsson,
aðstoðarmaður umhverfisráðherra.
Helsta ástæðan fyrir því að nú
er unnið að því að styrkja ramma-
samninginn (sem flestar þjóðir
heims skrifuðu undir á ráðstefnu
SÞ um umhverfi og þróun í Ríó de
Janeiro árið 1992) er að vísinda-
menn telja auknar líkur á því að
útblástur sk. gróðurhúsaloftteg-
unda, einkum koltvísýrings (CO2),
valdi hlýnun á jörðinni og þar með
röskun á veðurfari, gróðurfari og
hugsanlega jafnvel hafstraumum. I
desember sl. birti alþjóðlegur ráð-
gjafarhópur vísindamanna nýja
skýrslu, þar dregin er upp mynd
af þeim vanda sem aukið útstreymi
gróðurhúsalofttegunda gætu valdið
(sjá síðu 2).
Búist er við að útstreymi koltví-
sýrings á íslandi aukist um 5% á
ári frá viðmiðunarárinu 1990 til
ársins 2000 ef ekkert er að gert.
Talið er að hlýnun á Norður-Atl-
antshafi vegna aukinna gróður-
húsaáhrifa kunni að verða minni
en víða annars staðar, m.a. vegna
breytinga á hafstraumum. Hugsan-
leg röskun á Golfstraumnum er ís-
lendingum að sjálfsögðu sérstakt
áhyggjuefni, vegna áhrifa slíkra
breytinga á veðurfar og fiskimið.
Skylt að veita upplýs-
ingar um umsækjendur
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
reglurnar um að við umsóknir um
stöður í Stjórnarráði íslands séu
stjómvöld ekki bundin af áskilnaði
umsækjenda um nafnleynd. Regl-
urnar verða auglýstar í Lögbirt-
ingarblaðinu og taka gildi frá þeim
tíma.
í reglunum kemur fram að þær
gilda fyrir stjórnarráðið í heild og
gilda um allar stöður sem auglýst-
ar eru lögum samkvæmt, hvort
sem þær eru í stjórnarráðinu sjálfu
eða stofnunum sem undir það
heyra.
Skylt er að veita almenningi
upplýsingar um nöfn umsækjenda
og starfs- eða stöðuheiti þegar
umsóknarfrestur er liðinn. Ef um-
sóknarfrestur er framlengdur skal
ekki veita upplýsingar um um-
sækjendur fyrr en að honum liðn-
um. Upplýsingaskyldan tekur ein-
ungis til nafns og starfs- eða
stöðuheitis umsækjenda, en ekki
til umsókna eða annarra gagna
um umsækjendur.
tekið hefur verið í slipp í Hafnarfirði, um 1.700
tonn, en við eigum kost á að koma allt að 3.000
tonna skipum fýrir í kvínni, enda er hún 116
metra löng og 22 metra breið,“ segir hann.
37 starfsmenn starfa nú fyrir fyrirtækið sem
keypti Drafnar-slipp í Hafnarfirði fyrir skömmu
og hefur unnið að gagngerum endurbótum á
honum síðan. Guðmundur kveðst telja brýnt að
fyrirtæki sem vinni að skipaviðgerðum hérlendis
taki höndum saman til að fá verkfefni heim, sem
annars eru unnin ytra. Með slíku átaki væri
skotið styrkum stoðum undir skipasmíðaiðnaðinn
hérlendis.
Fimmbif-
reiðar
teknar
meðkrana
TVEIR árekstrar á Kringlumýrar-
braut á móts við göngubrú í Foss-
vogi voru tilkynntir lögreglu með
mínútu millibili í gærmorgun. í fyrri
árekstrinum lenti einn bíll aftan á
öðrum og þurfti að flytja farþega
úr öðrum bílnum á slysadeild með
minniháttar meiðsli. Mínútu seinna
var tilkynnt um þriggja bíla árekst-
ur á sama stað. Ökumenn tveggja
bíla voru fluttir á slysadeild með
minniháttar meiðsli. Allir bílarnir
fímm voru dregnir í burtu.
Ekið var á gangandi vegfaranda
á Hverfísgötu við Snorrabraut kl. 9
í gærmorgun. Meiðsli urðu minni-
háttar.
Lögreglu var í gær tilkynnt um
innbrot í fimm bíla á fjórum stöð-
um. Brotist var inn í bíl við Hávalla-
götu og þaðan stolið útvarpi og
geislaspilara. Úr bíl í Reykjabyggð
var stolið sambyggðu útvarpi og
geislaspilara. Úr tveimur bílum við
Járnháls var stolið útvarpstækjum
og úr bíl við Kleppsveg var stolið
hátölurum.
Þrír bílar lentu í árekstri á gatna-
mótum Snorrabrautar og Bústaða-
vegar á þriðjudag rétt fyrir klukkan
þijú. Ökumaður og farþegi úr ein-
um bílanna voru fluttir á slysadeild.
Tveir bílanna voru íjarlægðir með
krana.
Utflutningur hrossa 1991-95
Fjöidi
3000-
2500-
2000-
3000-
1500-
1000
500
0
I I I I
Stóðhestar
Hryssur
|-Geldingar
1991 1992 1993 1994 1995
I II I
Til annara landa
Hollands
Austurríkis
Noregs
j§|— Danmerkur
• Svíþjóðar
- Þýskalands
1991 1992 1993 1994 1995
Lítil íbúð f Hafnarfirði
Til sölu falleg 2ja herb. kjíb. við Nönnustíg, 42 fm.
Sérinng. Nýir gluggar og nýtt eldh. Verð 3,6 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10,
sími 555 0764.
ALLS voru 2.614 hross seld úr
landi árið 1995 eða rúmlega
eitt hundrað hrossum færra en •
árið 1994 að því er fram kemur
í frétt frá Bændasamtökum ís-
lands. Af hrossunum 2.614 voru
1.282 hryssur, 1.220 geldingar
og 112 ógeltir hestar.
Flest hrossin voru flutt til
Þýskalands og Svíþjóðar eins
og fyrri ár eða 59% útflutnings
1995. Mesta aukningin var á
útflutningi til Danmerkur en
þangað fóru 120 fleiri hross en
Útflutningur
hrossa
minnkað
milli ára
1994 og hlutfallslega varð mest
aukning til Kanada úr 5 hross-
um í 105. Helstu viðskiptalönd
1995 eru Þýskaland (1.129),
Svíþjóð (407), Danmörk (402),
Bandaríkin og Kanada (222),
Noregur (138), Sviss (96) og
Austurríki (80).
Stærstu útflyljendurMÍr eru
Gunnar Arnarson (617), Hinrik
Bragason (435), S.I.H-Edda
hestar (361), Sigurbjörn Bárð-
arson og Axel Omarsson (201)
og VT hf. (194). Þessir aðilar
eru með 70% útflutnings en 60
aðilar flytja út hin 30% hross-
anna.