Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 47
FRÉTTIR
• •
Okumenn
eða vitni gefi
sig fram
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir upplýsingum um tvö atvik í
umferðinni í Reykjavík.
Ekið var á bláan Daihatsu
Feroza-jeppa, RL-709, sem stóð við
Ármúla 22 um klukkan 17 föstu-
daginn 22. desember sl. Bíllinn er
tvennra dyra og var ekið á vinstri
hurð. Sá sem ók á bílinn eða vitni
að ákeyrslunni eru vinsamlegast
beðin að gefa sig fram við rann-
sóknardeild lögreglunnar í Reykja-
vík.
Þá eru ökumaður sem ók á skilta-
brú á Breiðholtsbraut á þriðjudag
eða vitni að þeim atburði beðin að
gefa sig fram. Ekið var á skiltabrú
á nyrðri akbraut Breiðholtsbrautar,
þar sem ekið er til vesturs, rétt
austan gatnamóta Breiðholtsbraut-
ar og Reykjanesbrautar.
Alþjóðlegi trúarbragða-
dagurinn 21. janúar
í TILEPNI af alþjóðlega trúar-
bragðadeginum, sem haldinn er
víða um heim að tilhlutan Samein-
uðu þjóðanna, hefur verið boðið til
opins fundar í Bahá’í miðstöðinni
í Reykjavík sunnudaginn 21. janúar
nk. þar sem Ieitast verður við að
svara spurningunni: Geta trúar-
brögðin bætt ástandið í heiminum?
í fréttatilkynningu segir að það
viðhorf virðist vera að festa rætur
í hugum manna, að trúarbrögð
valdi aðeins sundrungu og átökum.
Bent er á að rekja megi styijaldir
og átök til trúardeilna. Margir telja
einnig að trúarbrögðin eigi sök á
þeirri tortryggni og því hatri, sem
ríkir í mörgum heimshlutum. Þrátt
fyrir þetta gengur hin gullna regla
um að maðurinn eigi að elska ná-
unga sinn eins og sjálfan sig eins
og rauður þráður gegnum öll helstu
trúarbrögð mannkyns. Margir trú-
aðir menn líta á þessa reglu sem
forsendu og réttlætingu trúarinnar.
Með því að varpa fram spuming-
unni um hvort trúarbrögðin geti
bætt ástandið í heiminum, er í
rauninni spurt hvort trúarbrögðin
hafi snúið baki við þessari gullnu
reglu og hvort það sé ekki raun-
verulegt markmið þeirra að stuðla
að einingu, friði og hamingju allra,
sem byggja þennan jarðarhnött.
Það er einlæg von þeirra sem
að þessum fundi standa, að þessari
mikilvægu umræðu verði haldið
áfram að fundinum loknum.
Fundurinn verður haldinn í Ba-
há’í miðstöðinni, Álfabakka 12 (2.
hæð) sunnudaginn 21. janúar nk.
og hefst kl. 16:00. Fulltrúar nokk-
urra helstu trúarbragða heims hafa
verið fengnir til að ijalla um þetta
málefni. Þeir eru: Michael Levin,
gyðingdómur, Walid Haddid, islam,
Eygló Jónsdóttir, buddhismi, séra
Toshiki Toma, kristindómur og
Eðvarð T. Jónsson, baháí trú.
Fundarstjóri verður Sigríður L.
Jónsdóttir sálfræðingur.
Taugasjúk-
dómadeild
fær að gjöf
greiningar-
tæki
LAUF, Landssamtök áhugafólks
um flogaveiki, afhenti 17. janúar
sl., taugasjúkdómadeild Land-
spítalans tæki til greiningar á
flogaveiki. Afhendingin fór fram
á taukasjúkdómadeildinni en hún
var formlega opnuð aftur sama
dag eftir að hafa verið lokuð í
um eitt ár. Á myndinni eru f.v.:
Guðjón Jóhannesson, Sverrir
Bergmann, Sigurður Hjálmars-
son, Gunnar Guðmundsson og
Guðlaug María Bjarnardóttir.
Athugasemd
vegna frest-
unar á gildis-
töku sjálfvirks
sleppibúnaðar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Frið-
riki Ásmundssyni fyrir hönd
áhugamanna:
„Á baksíðu Morgunblaðsins
þriðjudaginn 16. janúar 1996 er
frétt þar sem kemur fram að búið
sé að fresta lögleiðingu sjálfvirks
sleppibúnaðar í skip frá 1. janúar
til 11. júlí nk.
Haft er eftir ráðuneytisstjóra
samgönguráðuneytisins að ástæð-
an fyrir því að ekki sé til nægilega
mikið af búnaði í landinu svo að
hægt væri að koma honum fyrir í
þeim skipum sem ekki hafa verið
með búnað.
Áhugamenn um öryggismál sjó-
manna í Vestmannaeyjum gera
eftirfarandi athugasemd við þessa
frétt.
Skv. upplýsingum Ragnhildar
Helgadóttur, skrifstofustjóra í
samgönguráðuneytinu, er frestun-
in vegna þess að starfsmaður LÍÚ
fór fram á hann með bréfi til sam-
gönguráðuneytisins á sl. sumri.
Þar var gagnrýnt í fyrsta lagi,
prófunaraðferð sleppibúnaða, í
öðru lagi viðurkenningu Siglinga-
málastofnunar á búnaðinum og í
þriðja lagi kom fram að fullkomn-
ari sleppibúnaður væri í hönnun
sem beðið skildi eftir.
Þetta leiddi til þess að allt málið
var enn einu sinni brotið til mergj-
ar og það orsakar þennan frest.
Skv. upplýsingum frá Vélaverk-
stæðinu Þór, framleiðanda sleppi-
búnaða, hefur enginn aðili spurt
þá hvort nægilega mikið væri til á
markaðnum þannig að fresta þurfi
lögleiðingu sjálfvirks sleppibúnað-
ar núna um áramótin."
Island-
Kanada
samvinna
o g sjósókn
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, mun fjalla um samstarf
Islands og Kanada almennt og svara
fyrirspurnum á fur.di sem vináttufé-
lag íslands og Kanada gengst fyrir.
Að því loknu mun Hjálmar Vil-
hjálmsson, fiskifræðingur, fjalla um
fískveiðar landanna. Kórsöngur verð-
ur til skemmtunar. Fundurinn verður
haldinn miðvikudaginn 31. janúar
kl. 20 í stofu 101 í Odda, Háskóla
Islands. Fundurinn er opinn og er
aðgangur ókeypis.
-----♦------—
Fjárhagsáætl-
un borgarinn-
ar rædd í dag
FRUMVARP að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1996
verður lagt fram á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur í dag, fimmtu-
daginn 18. janúar, kl. 17.
Utvarpað verður frá fundinum á
Aðalstöðinni fm 90,9 og má gera
ráð fyrir að umræður um Ijárhags-
áætlunina standi fram eftir kvöldi.
Morgunblaðið/Sverrir
Intercoiffure gefa astmamælitæki
HÁRGREIÐSLUSAMTÖKIN Intercoiffure á íslandi
afhentu Barnaspítala Hringsins astmamælitæki á
mánudag. Tækið var keypt fyrir ágóða af hár-
greiðslusýningu samtakanna á Hótel Islandi í haust.
Björa Árdal, læknir, tók við tækinu. Með honum á
myndinni standa (f.v.) Helga Bjarnadóttir, Jan Even
Wiken, Bára Kemp, Sigurður G. Benónýsson, Guð-
björa Sævarr, Hrönn Helgadóttir, Guðrún Hrönn
Einarsdóttir, Lovísa Jónsdóttir, Guðrún Sverrisdótt-
ir og Hanna Kristín Guðmundsdóttir.
GETRAUN
GULU BÓKARINNAR
Vísbending 3.
Þriöji stafur umboðsaðila HP
Popp Ijós á bls. 434.
Vísbending 4.
Fjölmiðlun,
fjórða fyrirtæki,
fimmti stafur.
GULA BÓKIN
-Yellow pages-
-leikur að lara!
Vinningstölur 17. jan. 1996
4»8*9*11*17*22*23
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
Rekstranrörur á mögnuðu innkaupsverði
- fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Allt að
50% sparnaður á innkaupum í magni.
Innkaupadagar standa aðeins til janúarloka.
Tæknival
Skeifunni 17 • Simi 568-1665 • Fax 568-0664 J