Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 43
MQRGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 43 [ i HALLDÓR ÞORSTEINN BRIEM + Halldór Þor- steinn Briem fæddist á Hofi í Vopnafirði 25. jan- úar 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eggert Briem kennarij f. 30. des. 1891 á Alfgeirsvöll- um í Skagafirði, d. 13. júní 1963 í Reykjavík, og Guð- björg Gunnarsdótt- ir kennari, f. 5. okt. 1898 á Eiríksstöðum, Geit- hellnahreppi í Suður-Múla- sýslu, d. 2. jan. 1984 í Reykja- vík. Bróðir Halldórs Þorsteins er Ólafur Briem, starfsmaður Electronic Data Systems í Stokkhólmi, f. 30. júlí 1933 á Nefbjarnarstöðum, Tungu- hreppi í Norður-Múlasýslu. Halldór Þorsteinn kvæntist tvisvar. Fyrri eiginkona hans var Kristín Obermann Jóhann- esdóttir, f. 26. mars 1929 í Austur-Indíum. Börn þeirra eru Laufey, f. 29. okt. 1954, og Gunnar Jóhannes, f. 20. ág- úst 1956. Halldór Þorsteinn og Krist- ín slitu samvistir. Síðari eiginkona Halldórs Þorsteins var Hugrún Krist- insdóttir, f. 13. mars 1934 á Akur- eyri. Börn þeirra eru Þorsteinn, f. 6. júlí 1959, Emil Kristinn, f. 6. febr- úar 1961, Sturla, f. 26. júlí 1964, d. 27. júlí 1980, og Haukur, f. 7. des. 1966. Halldór Þorsteinn og Hugrún slitu samvistir. Hall- dór Þorsteinn vann m.a. hjá Eimskipafélagi íslands, Hrað- frystistöð Vestmannaeyja, varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli og Rafveitu Reykjavíkur. Útför Halldórs Þorsteins verður gerð frá Fossvogskap- ellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. LÁTINN er í Reykjavík Halldór Þorsteinn Briem á sextugasta og fyrsta aldursári. Að Halldóri stóðu sterkir stofnar fræðimanna, kenn- ara og embættismanna. Foreldrar Halldórs voru báðir farkennarar og var honum því fljótlega komið í fóstur til föðurbróður sins, séra Þorsteins Briem, prests á Akranesi og ráðherra fyrir Bændaflokkinn. Eggert og Þorsteinn voru synir Ólafs Briem, alþingismanns á Álf- geirsvöllum, sem var aðalstofnandi Samvinnuhreyfingarinnar á íslandi. Þegar Halldór kom inn á heimili séra Þorsteins voru dætur hans að verða uppkomnar og fyrri kona hans látin. Halldór ólst því upp á prestssetrinu á Akranesi hjá séra Þorsteini og seinni konu hans, Emilíu Briem. Eftir fermingu var Halldór sendur til náms í Noregi, en séra Þorsteinn dó þegar Halldór var á sautjánda ári og var því ekki um frekara nám að ræða hjá hon- um. Halldór minntist fósturforeldra sinna ávallt með mikilli hlýju og þakklæti. Ungur kynntist Halldór Kristínu Obermann Jóhannesdóttur af hol- lenskum uppruna, en faðir hennar var landstjóri Hollendinga í Indó- nesíu. Þau giftust og eignuðust tvö börn, Laufeyju Halldórsdóttur Briem og Gunnar Jóhannes Hall- dórsson Briem. Kristín og Halldór slitu samvistir eftir nokkurra ára búskap. Síðar giftist Halldór seinni konu sinni, Hugrúnu Kristinsdóttur, og áttu þau fjóra drengi, Þorstein Briem, Emil Kristin Briem, Sturlu Briem og Hauk Halldórsson Briem. Öll börnin lifa föður sinn nema Sturla sem lést eftir löng og erfíð veikindi aðeins sextán ára gamall. Hugrún og Halldór festu kaup á íbúð á Grensásvegi 60 í Reykjavík og áttu þar myndarlegt heimili. Eftir nær áratugar sambúð slitu þau samvistir, skilnaðinn tók Hall- dór mjög nærri sér. Hann tók þá að sér uppeldi næstyngsta sonar síns, Sturlu. Fyrstu tvö árin eftir skilnaðinn kom Halldór Sturlu í fóstur til Noregs hjá frænku sinni, Guðrúnu Briem, dóttur séra Þor- steins Briem. Eftir það annaðist Halldór drenginn einn, allt þar til hann lést eftir mikil veikindi eins og fyrr var sagt. Lengst af bjuggu þeir feðgar á Hverfisgötu 91 í Reykjavík, hjá Garðari Loftssyni listmálara, miklum velgjörðarmanni Halldórs. Halldór tók veikindi Sturlu mjög nærri sér og gerði allt sem í mannlegu valdi stóð til að vernda og bæta bága heilsu hans. Hann fór með Sturlu í heilaupp- skurð til Kaupmannahafnar til áð reyna að bjarga lífi hans. Fráfall Sturlu var Halldóri mikið áfall og náði hann sér ekki eftir það. Heilsu Halldórs hrakaði mjög og allur lífs- þróttur þvarr. Síðustu árin fékk Halldór margsinnis hjartaáfall og dvaldi hann löngum stundum á sjúkrahúsi vegna þess. En dauðinn hlýtur alltaf að sigra hið jarðneska líf að lokum, þó að í upprisunni felist eilíft líf. Hjartað í þessum áður hrausta og ósérhlífna manni ,gaf sig að lokum 9. janúar síðastlið- inn. Langt um aldur fram er lífs- skeiði hans nú lokið, stundaglasið runnið út. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (23. Davíðssálmur.) Ég kynntist Halldóri Briem hjá Eimskipafélagi íslands árið 1957, en þar unnum við hjá Jóni Þ. Krist- jánssyni, föðurbróður mínum, sem var yfirverkstjóri í vöruafgreiðslu Eimskipafélags íslands í yfir 50 ár. Við Halldór urðum strax miklir vin- ir og hefur sú vinátta verið óijúfan- leg alla tíð síðan. Við höfum nær undantekningarlaust í þessi tæp- lega 40 ár unnið á sömu vinnustöð- um. Þegar ég hef verið sjálfur með atvinnurekstur, eða verið yfirmaður á vinnustöðum hjá öðrum, þá var Halldór Briem alltaf fyrsti starfs- maður hjá mér. Ertda alltaf verið ómetanlegt samstarf okkar á milli og óijúfanlegur trúnaður. Það á hér vel við sem Albert heitinn Guð- mundsson sagði eitt sinn: „Einn get ég ekkert, en með ykkur get ég allt.“ Halldór Briem var ákaflega skemmtilegur og þægilegur í um- gengni, hann var víðlesinn og hafði mikla þekkingu á sögu og heims- pólitik. Þegar ég rak lítið fyrirtæki fyrir 30 árum og Halldór Briem vann hjá mér, þá vann einnig æsku- félagi minn Halldór Aðalsteinsson þar, og myndaðist strax hjá þeim vinátta sem hefur haldist alla tíð síðan. Þegar við Halldór vorum að vinna í Vestmannaeyjum fyrir eldgosið, fannst okkur stundum að skipulag- ið væri ekki alveg eins og best væri á kosið, þeir þyrftu að fara í læri hjá Sveini Jónssyni, verkstjóra hjá Eimskip, til að læra nútíma- legri vinnubrögð, skipulagningu og vörumeðferð. En allt var þetta til mikillar fyrirmyndar hjá Sveini Jónssyni. Seinna ræddi ég þetta við Einar ríka og lét hann þá smiða mikið af vörubrettum til að raða vörunni snyrtilega á. Þetta fyrir- komulag sparaði mikla vinnu, tíma og fjármuni, fyrir utan bætta vöru- meðferð. Þarna í Vestmannaeyjum urðu samstarfsmenn okkar miklir vinir Halldórs og spyija alltaf með gleði og hlýhug: „Hvað er að frétta af Dóra Briem?“ Halldór var mjög hraustur og ósérhlífinn til allrar vinnu. Oft fór hann léttklæddur og berhentur í ísklefann ef þurfti að afgreiða ís í bát, en í klefanum var yfir 20 gráða frost. Það kom stund- um fyrir að afgreiða þurfti báta um helgar eða á nóttunni og var Hall- dór ávallt reiðubúinn þó að fyrir- vari væri oft stuttur. Það var gott að geta stólað. á það. Hér fyrr á árum tók Halldór virk- an þátt í pólitík og verkalýðsbaráttu og var í fremstu baráttusveit með Birgi heitnum Kjaran, sem var aðal- skipuleggjandi Sjálfstæðisflokks- ins. Bjarni heitinn Benediktsson forsætisráðherra var sérstakur vin- ur Halldórs. Á árunum fyrir 1960 bárust Halldóri í hendur leyni- skýrslur um Sovétríkin og bar hann þær undir Bjarna heitinn. Bjarni sá svo um að láta Morgunblaðið birta úr þeim kafla og kafla öðru hvoru. Enginn vissi hvaðan Halldóri bárust leyniskýrslurnar eða að Bjami hefði fengið þær hjá honum fyrir Morg- unblaðið. Halldór Briem var enginn hvers- dagsmaður eða meðalmaður, hvorki að útliti né hæfileikum. Sterkur svipur, ákveðið fas, vöxtur og lát- æði bar vitni um fágætan mann. Það var alltaf hægt að ræða við hann um hin ýmsu mál, sem aðrir höfðu ekki skilning eða þekkingu á. Hann sá í gegnum menn miklu meira en þeir gerðu sér grein fyrir. Margt hefur verið spekulerað og spjallað gegnum árin og margt sagt til um fyrirfram hvað myndi gerast í landspólitík og heimspólitík. Ég hygg að Halldór hafi fyrstur manna sagt frænda sínum, Davíð Odds- syni, þegar hann varð forsætisráð- herra að hann ætti að bjóða sig fram til forseta þegar Vigdis hætti. Eftir því sem Halldór sagði mér þá dró hann þá ályktun að Davíð væri því ekki mótfallinn. Ég segi eins og Gunnar heitinn Pálsson sagði eitt sinn við mig á Lækjartorgi: „Svona maður fæðist ekki nema á þúsund ára fresti.“ Hver er sem veit, nær daggir dijúpa, hvar dafnar fræ, sem ná skal hæst. Hver er sem veit, nær knéin kijúpa við kirkjuskör, hvað guði er næst. Fyrst jafnt skal rigna yfir alla, jafnt akurland sem grýtta jörð,- skal nokkurt tár þá tapað falla, skal týna sauði nokkur hjörð? Hver er að dómi æðsta góður,- hver er hér smár og hver er stór? -1 hveiju strái er himingróður, í hveijum dropa reginsjór. (Einar Ben.) Á árunum í kringum 1960 vann ég við happdrætti Sjálfstæðis- flokksins, þá var Óttarr Möller for- maður happdrættisnefndarinnar. Þegar Óttarr varð forstjóri Eim- skipafélags íslands, en þar hafði hann starfað frá 1938, hætti hann sem formaður happdrættisnefndar- innar. Sigurliði Kristjánsson, kaup- maður í Silla og Valda, tók þá við sem formaður happdrættisnefndar- innar og bað hann mig að útvega mann til að starfa við happdrættið. Þá benti ég á Halldór Briem, sem tók starfið að sér. Halldór lagði sig allan fram við að gera veg happ- drættisins sem mestan og naut til þess stuðnings Más Jóhannssonar, skrifstofustjóra Sj álfstæðisflokks- ins. Það var aldrei nein lognmolla yfir því sem Halldór tók sér fyrir hendur. Hann gekk til allra verka með dugnaði og samviskusemi, svo að eftir því var tekið. Við Gústaf Einarsson, sem var yfirverkstjóri Tollvörugeymslunnar frá stofnun, vorum í stjórn málfundafélagsins Óðins. Gústaf var gjaldkeri og for- maður styrktarsjóðs félagsins. Hann spurði mig hvort ég vissi um mann til að rukka inn félagsgjöldin, og benti ég honum þá á Halldór Briem. Hann tók verkið að sér og gekk í það með þvílíkum dugnaði að fá dæmi eru til um slíkt hjá flokknum. Halldór annaðist inn- heimtuna í mörg ár og hefur Gúst- af áreiðanlega ekki getað fengið betri samstarfsmann, og varð vin- átta þeirra mikil upp frá þessu. Halldór Briem var afskaplega trúaður maður. Hann var alinn upp í mikilli trúrækni. Kynntist hann ungur séra Friðrik Friðrikssyni og séra Magnúsi Runólfssyni í KFUM og var þar mikið meðan þeir lifðu. Seinna kynntist Halldór Einari Gíslasyni í Vestmannaeyjum, and- legum leiðtoga Hvítasunnuhreyf- ingarinnar á Islandi og að öðrum ólöstuðum einhver mesti predikari sem þjóðin hefur átt. Hann hreifst strax mjög af predikunum Einars og gekk til liðs við Hvítasunnu- hreyfinguna. Eftir að Einar var orðinn veikur og dvaldi oft á sjúkra- húsi þá var Halldór óþreytandi við að heimsækja Einar og færa honum einhvern glaðning. Halldór vildi með þessu sýna Einari þakklæti sitt fyrir stuðning Einars við sig þegar hann var einn að berjast með Sturlu veikan. Halldór var ákaflega góður skák- maður, enda var minnið alveg ein- staklega gott. Var því oft setið að tafli og spjallað um leið, tefldu þeir oft Guðbjartur sonur minn og Hall- dór, enda var Halldór sérstakur heimilisvinur eins og einn af fjöl- skyldunni. Þetta er aðeins brot af mjög miklu sem hægt væri að rifja upp. Sem dæmi um hugulsemi hans og hjartagæsku má nefna þegar Halldór lagði mjög mikið á sig við að fara fárveikur vestur á ísafjörð til að gleðja barnabörnin. Honum leið ekki alltaf vel, og oft miklu verr en margur vissi. Lítt kunnug- um mönnum hefur vafalaust stund- um veist auðvelt að hneykslast á sumu í fari hans. Hann fór ekki að öllu leyti margtroðnar slóðir. Valdi hann gjarnan leiðir sínar sjálfur en kunni ekki að hræsna fyrir neinum, hvort sem háir eða lágir áttu í hlut. Eitt bros - getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í bijósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt aupakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson.) Ég vil þakka ómetanlega sam- fylgd í tæp 40 ár, trúfesti þin, vel- vild og kærleikur munu færa þér eilíft líf. Kristján Guðbjartsson. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR STEINDÓRSDÓTTUR, áðurtil heimilis á Dunhaga13, Reykjavik, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun.föstudaginn 19. janúar,og hefst athöfnin kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarsjóði. Steindór I. Ólafsson, Hulda G. Johansen, Marfa Ólafsdóttir, Guðmundur Ólafssön, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR P. SNÆLAND vélsjóri, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu- daginn 19. janúar kl. 13.30. Hafsteinn Snæland, Guðný B. St. Snæiand, Kristinn Snæland, Jóna J. Snæland, Njörður Snæland, Jón A. Snæland, Pétur B. Snæland, Helga M. Guðjónsdóttir, Ragnheiður Baldvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför HALLDÓRS GÍSLASONAR, Álftröð 7, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á lungna- deild Vífilsstaðaspítala. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurborg Jakobsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og útför BJARGAR S. JÓHANNESDÓTTUR frá Móbergi, fyrrv. handavinnukennara á Löngumýri. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Skjóls. Valgerður Einarsdóttir, Ingiriður Jóhannesdóttir, Svavar Jóhannesson, Axel Jóhannesson og annað frændfólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.