Morgunblaðið - 18.01.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Kennsluforrit til að auðvelda ökunemum undirbúning fyrir bílprófið
Morgunblaðið/Kristján
JONAS Helgason ökukennari hefur útbúið forrit sem ætlað er
að auðvelda ökunemum að búa sig undir fræðilega hluta bíl-
prófsins.
• •
Okukennarinn
útbjó forritið
í frístundum
Mikill áhugi
fyrir endur-
menntuna-
rnámskeiðum
UM ÁRAMÓTIN voru 10 iðnnemar
komnir á samning eða að fara á
samning í málmiðnaði á félagssvæði
Félags málmiðnaðarmanna Akur-
eyri, sem nær yfir Eyjafjarðarsvæð-
ið. Flestir eru þeir í vinnu hjá Slipp-
stöðinni Odda hf. eða sjö.
Hákon Hákonarson, formaður fé-
lagsins, segir að menn hafi átt frek-
ar erfitt með að komast á samning
á síðustu árum og atvinnurekendur
hafi ekki viljað binda sig með iðn-
nema á þeim tíma sem greinin var
í mestri lægð. „Það er mjög alvar-
legt fyrir atvinnulífið ef ekki er
hægt að halda uppi eðlilegri end-
urnýjun í greininni. Ekki síst þegar
bráðvantar málmiðnaðarmenn í
vinnu eins og t.d. á Akureyri nú.“
Félagsmenn í Félagi málmiðnað-
armanna Akureyri hafa hins vegar
verið mjög duglegir að sækja endur-
menntunarnámskeið á vegum fé-
lagsins. Á síðasta ári fóru 78, eða
tæp 40% félagsmanna, á bæði bók-
legt og verklegt endurmenntun-
arnámskeið. Þá greiðir félagið inn-
ritunargjald vegna öldungadeildar
VMA fyrir sína félagsmehn.
Hákon segir að mikill hugur sé í
mönnum að halda fræðslustarfmu
áfram af fullum krafti og koma verk-
lega hlutanum fyrir á öruggum stað.
Á undanförnum árum hefur félagið
þurft að nýta sér góðvild aðila í
bænum og fá lánað húsnæði undir
þann hluta námsins.
-----»-•■»■-♦--
Háskólinn á Akureyri
Námsráðgjafi
og endurmennt-
unarsljóri
SOLVEIG Hrafnsdóttir hefur verið
ráðin til að gegna störfum námsráð-
gjafa og endurmenntunarstjóra við
Háskólann á Akureyri.
Solveg er fædd árið 1956 á Akur-
eyri, lauk BA-prófi í uppeldisráðgjöf
við Sosialhegskolen í Stavanger í
Noregi 1986 og meistaraprófi í
námsráðgjöf frá Syracause Univers-
ity í Bandaríkjunum 1995.
Solveig var forstöðumaður Ung-
lingaathvarfsins á Akureyri 1986-87
og þá stundaði hún kennslu við
Gagnfræðaskólann á Akureyri um
sex ára skeið.
Starf námsráðgjafa og endur-
menntunarstjóra við Háskólann á
Akureyri felur m.a. í sér námsráðgjöf
fyrir nemendur háskólans og að veita
öðrum nemendur upplýsmgar um
námsframboð háskólans. í starfinu
felst einnig umsjón með endurmennt-
un, námskeiðahaldi og opnum fyrir-
lestrum á vegum háskólans.
JÓNAS Helgason ökukennari á
Akureyri hefur búið til kennslufor-
rit sem ætlað er að auðvelda öku-
nemum undirbúning fyrir fræðilega
hluta bílprófsins.
Forritið er fyrir PC-tölvur, svo-
nefnt margmiðlunarforrit þannig
að það vinnur auðveldlega með
texta, myndir og hljóð. Forritið er
byggt upp í tveimur meginköflum.
í fyrsta lagi eru smáverkefni af
ýmsu tagi úr námsefninu, m.a.
kafli þar sem umferðarmerkin birt-
ast og spurt er um nöfn og flokka
merkjanna. í öðrum kafla þess,
sem settur er upp líkt og krossa-
próf sem ökunemar taka koma
spurningar upp á skjáinn og þrjú
svör. Nemandinn þarf að taka af-
stöðu til' þess hvort svörin eru rétt
eða röng og fær jafnhraðan að vita
hvort hann hafi merkt við rétt svar
eður ei. Geri nemandinn villu koma
upp á skjáinn skýringar og rök-
stuðningur við umrætt atriði. Nið-
urstaða birtist jið loknum 30 spurn-
ingum úr verkefninu og kemur þá
fram hvaða spurningum var vit-
laust svarað og hver réttu svörin
eru.
Jónas sagði að ökukennarar víða
um land hafi tekið forriti sínu svo
vel, að samið hafi verið við fram-
haldsskólana á viðkomandi stöðum
JÚLÍUS Havsteen ÞH-1, hinn nýi
togari Höfða hf. á Húsavík, held-
ur að öllum líkindum í fyrsta
túrinn nk. sunnudag. Togarinn,
sem var smíðaður árið 1987, var
keyptur frá Grænlandi fyrir 270
milljónir króna á síðasta ári. Að
undanförnu hefur verið unnið að
viðhaldi og endurbótum á skip-
inu í Slippstöðinni Odda hf.
Þeirri vinnu er að ljúka og held-
ur togarinn til heimahafnar á
morgun, föstudag.
Júlíus Havsteen ÞH er búinn
rækjuvinnslubúnaði og verður
hluta aflans landað hjá rækju-
vinnslu Fiskiðjusamlags Húsa-
um að setja forritið upp þar sem
nemendur hafa aðgang að því. Nú
Nýr Júlíus
Havsteen
ÞH til veiða
á sunnudag
víkur en einnig verður rækju
pakkað um borð sem fer beint á
erlendan markað.
Helgi Kristjánsson, fjármála-
stjóri Höfða, segir að Júlíus fari
til rækjuveiða fyrir norðan land
í vikunni var búið að setja forritið
upp í 10 framhaldsskólum, á Akur-
en einnig er til skoðunar að
senda togarann til veiða á
Flæmska hattinum. Helgi segir
að vegna þess hversu mikið hefur
verið að gera í Slippstöðinni
Odda að undanfömu hafi vinna
við lagfæringarnar tafist nokk-
uð.
Guðmundur Friðriksson, út-
gerðarmaður frá Höfn, keypti
gamla Júlíus án aflaheimilda á
135 milljónir króna og er hann
áfram gerður út frá Húsavík.
Togarinn, sem fengið hefur
nafnið Þórunn Havsteen ÞH-40,
er í sínum fyrsta rækjutúr á
nýju ári.
eyri, Húsavík, Reykjadal, Egilsstöð-
um, Neskaupsstað, Selfossi, Suður-
nesjum, Akranesi og Reykholts-
skóla. Forritið er sett upp í fram-
haldsskólum á þeim stöðum þar sem
flestir eða allir ökukennarar hafa
kejqjt forritið.
Vann við verkefnið í
frístundum
„Ég hef verið að vinna að þessu
í frístundum á síðustu tveimur
árum,“ sagði Jónas. „Upphaflega
ætlaði ég að útbúa eitthvert litil-
ræði fyrir mína nemendur en verk-
efnið vatt fljótlega upp á sig.“
Jónas sagði að aðrir ökukennarar
hefðu sýnt þessu verkefni mikinn
áhuga og hann hefði því á síðasta
ári ákveðið að útbúa alvöru forrit
og bjóða ökukennurum það til sölu.
Nú væri forritið farið í dreifingu
til ökukennara um land allt, en það
er aðeins selt ökukennurum sem
þá fá jafnframt heimild til að taka
af því afrit fyrir sína nemendur. „Ég
stefni að því að vinna áfram að
þróun þessa forrits, það eru margir
möguleikar fyrir hendi, maður er
alltaf að sjá eitthvað nýtt sem hægt
er að bæta við,“ sagði Jónas en
m.a. ætlar hann að fjölga ljósmynd-
um úr umferðinni og setja þær inn
í stað teikninga.
Valdemar Baldvins-
son ehf. og Valgarður
Stefánsson ehf.
Heildsöl-
urnar
samein-
aðar
TVÆR heildsölur á Akureyri,
Valdemar Baldvinsson ehf. og Val-
garður Stefánsson ehf. verða sam-
einaðar 21. janúar næstkomandi,
en frá og með þeim tíma verður
öll starfsemi fyrirtækjanna í húsa-
kynnum Valgarðs Stefánssonar ehf.
að Hjalteyrargötu 12 á Akureyri
og verður því nafni haldið á fyrir-
tækinu.
Kassagerðin keypti
Húsnæði heilsölu Valdemars
Baldvinssonar ehf. við Hvannavelli
hefur verið selt, en kaupandi að því
var Kassagerð Reykjavíkur.
Gunnar Kárason, fjármálastjóri
Valgarðs Stefánssonar ehf., sagði
að heildsölurnar hefðu verið þær
stærstu á þessu sviði á Norður-
landi, þ.e. með mat- og hreinlætis-
vörur. Það væri sannfæring eigenda
að stærra og öflugra fyrirtæki
gæti þjónað viðskiptavinum sínum
enn betur en hingað til. Áætlað
væri að velta myndi aukast um
30-40% við sameininguna, en sölu-
svæðið nær frá Blönduósi í vestri
og allt austur til Austfjarða. „Eftir
að farið var að halda veginum yfir
Möðrudalsöræfi opnum yfir vetrar-
mánuðina stækkað okkar markaðs-
svæði,“ sagði Gunnar.
Samdráttur hjá heildsölum
Hann sagði að á síðustu misser-
um hefði gætt samdráttar í starf-
semi heildsala á Akureyri. Fjöl-
margir nýttu sér að kaupa vörur
m.a. fyrir smærri verslanir í KEA-
Nettó, en þar væru margar vörur
á lægra verði en í heildsölunum.
Alls munu 15 starfsmenn vinna
hjá fyrirtækinu eftir sameiningu.
Störfin voru áður 17 og 'h. Starfs-
fólki verður ekki sagt upp störfum
vegna sameiningarinnar, en tveir
hættu um áramót og verður ekki
ráðið í þeirra stað.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar samþykkt
Tekj urnar um 170 milljónir
TEKJUR bæjarsjóðs Dalvíkur á
árinu eru áætlaðar 170,1 milljón
króna. Rekstur málaflokka kostar
127,5 milljónir króna þannig að
tekjur að frádregnum rekstrar-
gjöldum verða 42,5 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar
var samþykkt á fundi bæjarstjórar
í liðinni viku. Við gerð fjárhags-
áætlunarinnar setti bæjarráð sér
það markmið að halda rekstrar-
gjöldum sem hlutfalli af tekjum
bæjarsjóðs við 75% auk þess sem
gengið var út frá því að engin
ný langtímalán yrðu tekin á árinu.
Langtímalán lækkuð
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson
bæjarstjóri á Dalvík sagði að í
Um fjörutíu milljónir afgangs
til fjárfestinga
áætluninni væri gert ráð fyrir að
langtímalán lækkuðu um 26,6
milljónir króna á árinu.
Til fjárfestinga verður varið um
40 milljónum króna. Helstu fjár-
festingar bæjarins verða á sviði
gatnagerðar og fráveitumála eða
rúmar 9 milljónir króna, þá nema
framkvæmdastyrkir til íþróttafé-
laga 7,1 milljón króna. Til fjár-
festinga á sviði fræðslumála verð-
ur varið tæpum 5 milljónum króna
og 5,8 til félagsþjónustu en auk
þess verður tölvubúnaður á bæjar-
skrifstofu endurnýjaður en kostn-
aður við það er áætlaður 4,5 millj-
ónir króna.
I áætluninni er gert ráð fyrir
sömu upphæð úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga og á liðnu ári eða
7,5 milljónum króna. Ekki liggur
fyrir hver hlutur Dalvíkurbæjar
verður þegar ný reglugerð sjóðs-
ins tekur gildi og var því 2,5 millj-
ónum króna óráðstafað við gerð
fjárhagsáætlunar. Verði framlag-
ið hærra en gert er ráð fyrir sam-
þykkti bæjarstjórn að verja allt
að 2,2 milljónum króna til malbiks
og frágangs á gámasvæði á Sand-
skeiði.
Fasteignagjöld ekki hækkuð
I bókunum sem fylgja fjárhags-
áætluninni er samþykkt að fela
íþrótta- og tómstundaráði að fara
yfir starfsemi íþróttahúss og
sundlaugar og leita leiða til að
gera reksturinn hagkvæmari.
Dalvíkurbær hefur ekki inn-
heimt sérstakan skatt á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði og við gerð
fjárhagsáætlunarinnar varð niður-
staðan sú að hækka ekki fasteig-
nagjöld, þrátt fyrir heimild í ný-
samþykktum lögum um breytingar
á tekjustofnum sveitarfélaga.
Morgunblaðið/Kristján
JÚLÍUS Havsteen ÞH hefur verið í yfirhalningu hjá Slippstöðinni Odda hf. síðustu vikur en gert
ráð fyrir að togarinn haldi til heimahafnar á morgun.