Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 17
ÚR VERIIMU
Morgunblaðið/Þorkell
UPPLÝSINGAR um framleiðslu, markaði, þróun nýrra afurða, verð á afurðum og gengi gjaldmiðla
eru meðal þess, sem rætt er á fundum verkstjóra frystihúsa innan SH. Fundirnir eru haldnir í upp-
hafi hvers árs og sækja þá allt að 200 manns, bæði verkstjórar, fulltrúar söluskrifstofá og dótturfyr-
irtækja erlendis og starfsmenn á skrifstofunum á Akureyri og í Reykjavík.
SH stefnir að aukinni
framleiðslu á þessu ári
„VIÐ efnum til fundar með verk-
stjórum frystihúsa innan SH í
upphafi hvers árs, til að fara yfir
gang mála á nýliðnu ári, meta
stöðuna og spá í framtíðina. Sölu-
menn okkar erlendis gera grein
fyrir gangi mála á mörkuðum okk-
ar ytra, farið er yfir gæðamál,
þróun afurða og aðra þá þætti,
sem máli skipta við framleiðslu,
útflutning og sölu sjávarafurða,"
segir Gylfi Þór Magnússon, einn
framkvæmdastjóra SH, í samtali
við Verið. Nýlokið er verkstjóra-
fundi SH, en nálægt 200 manns
sátu fundinn.
Gylfi Þór fór á fundinum yfir
stöðuna í markaðsmálum, fram-
vinduna í fyrra og spáði í framtíð-
ina: „Á heildina litið hefur verðlag
sjávarafurða síðastliðið ár verið
tiltölulega stöðugt. Mikilvægar
pakkningar eins og fimm pund og
hnakkastykki af þorski hafa staðið
óbreyttar í góðu verði í erlendri
mynt. Verð á fimm punda pakkn-
ingum af ýsu hefur lækkað um
6% í dollurum, en allar ufsapakkn-
ingar hafa hækkað í verði, mest
fimm punda pakkningin eða um
28% í erlendri mynt. Karfapakkn-
ingarnar hafa allar hækkað í verði
nema sjófrystur karfi, sem hefur
lækkað um 10 til 15% í Japan.
Þá hefur verð á grálúðu og rækju
hækkað," sagði Gylfi Þór.
80tonn
álínuna
LÍNUBÁTURINN Vinur landaði 80
tonnum í nú í vikunni eftir sex daga
útiveru. „Þetta er góður afli,“ segir
Eggert Jónsson hjá Norðurtanga.
„Þeir eru veiða það sem ekki er
til samkvæmt bókum Hafrann-
sóknastofnunarinnar. Það er bull-
andi fiskgengd allsstaðar hérna úti
fyrir. Hvort sem talað er um frá
Húnaflúa, vestur, suður eða austur
um land.“
Eggert segir að Vinur hafí landað
65 tonnum í síðustu viku eftir fimm
daga útivist. Hann segir að aðrir
bátar hafí fiskað vel þegar gefi:
„Landróðrarbátamir hafa verið að
fá upp í 17 tonn í róðri og fiska vel
þegar þeir komast hérna vel út fyrir.“
Fjölmennum
fundi med verk-
stjórum frysti-
húsa SH nýlokið
Sveiflur á gengi
Hann ræddi einnig um gengis-
mál, en nokkrar sveiflur hafa orð-
ið á gengi helztu gjaldmiðla síð-
ustu mánuðina: „Frá því við kom-
um saman í fyrra, hefur Banda-
ríkjadollar rýrnað gagnvart krón-
unni um ríflega 3%, pundið um
6% ogjapanska jenið um 6%. Þetta
eru gjaldmiðlarnir á mikilvægustu
markaðssvæðunum okkar. Þýzka
markið, franski frankinn og
danska krónan hafa styrkzt um 2
til 4%. Ég ætla ekki að spá í gengi
erlendra markaða á þessu nýhafna
ári, en markaðir okkar búa flestir
við efnahagslegt jafnvægi og stöð-
ugt verðlag. Nokkur óvissa er
reyndar í Japan og virðist það eini
markaðurinn, þar sem við getum
átt von á verðbreytingum.
Ekki er hægt að merkja hækk-
anir á afurðaverði á næstunni og
því miður er staða nokkurra físki-
tegunda og pakkninga veik, eins
og sagt er, þegar von er á auknu
framboði. Það hefur komið fram
að líkur eru á auknum þorskveið-
um, en með góðri framleiðslustýr-
ingu í landvinnslu, má ef til vill
halda núverandi verði. Aðgerðir
helztu keppinauta okkar skipta
þar þó mestu máli. Framboðið frá
þeim er mun meira en okkur. Tek-
izt hefur að halda mjög háu verði
á ýsu í Bandaríkjunum, en mikill
þrýstingur er nú á það verð. Ódýr
ýsa er boðin á brezka markaðnum
í miklum mæli og leitar hún enn
fremur inn á bandaríska markað-
inn.
Nýrra leiða leitað
Leitað er nýrra leiða á öllum
vígstoðvum, en árangur krefst
mikils sameiginlegs átaks. Hækk-
anir á verði ufsapakkninga leiða
ekki til framleiðsluauka hjá okkur
nema í sérvinnslu, sem í raun er
mjög gott. Blokkarframleiðsla
minnkar og hefur sterk staða salt-
fískvinnslunnar hefur þarna vissu-
lega áhrif. Þáttur þróunar á tímum
samdráttar í hráefni og rekstrar-
erfiðleika er afar mikilvægur. Lyk-
ilatriðið er að framleiðslustjórar
séu virkir þátttakendur í þróun
nýrra afurða og mér heyrist á
sölumönnum okkar erlendis að
þátttaka framleiðenda í þróunar-
samstarfinu skili markvissari nið-
urstöðu en oft áður. Því er einnig
mikilvægt að þróunarstjórar séu í
hveiju húsi.
Markaðirnir mismunandi
Verkefni okkar úti á mörkuðun-
um eru mjög mismunandi eftir
fisktegundum og eðli markaðanna.
Mikill munur er á því hvaða teg:
undir fara á hveija markaði. í
Bandaríkjunum er þorskur alls
ráðandi og til helminga á móti
honum seljum við þar ýsu, ufsa
og karfa. I Bretlandi eru þorskur-
inn og ýsan mikilvæg, en síld og
rækja eru einnig mjög fyrirferðar-
miklar þar. Loks eru seldar þar
afurðir úr ufsa og karfa, sem
framleiddar eru í verksmiðju IFPL
í Grimsby.
Tegundum, sem seldar eru til
Þýzkalands fer fjölgandi. Þangað
fer mjög lítið af þorski og ýsu, en
uppistaðan í sölunni er ufsi, karfi,
grálúða, síld og rækja. Svipaða
sögu er að segja af Frakklandi,
en þangað fer þó meira af þorski
og ýmsum lítt nýttum flatfískteg-
undum og hörpudiski.
Á markaðina í Asíu fer ekkert
af þorski, ýsu og ufsa. Áherzlan
er hins vegar á karfa, grálúðu,
síld, loðnuafurðir og rækju. Megin-
land Evrópu er sá markaður, sem
flestar tegundir tekur.
Sölukerfið öflugt
Heildarframleiðsla síðasta árs
var um 109.000 tonn og salan
111.000, en þetta er samdráttur
upp á um 9%. Áætluð framleiðsla
var um 113.000 tonn og hefði það
mark nánast náðst, hefði áætlun
okkar í síldinni staðizt. Á þessu
ári er ekki óraunhæft að áætla
að framleiðslan geti orðið 119.000
tonn. Sölukerfið er öflugra en
nokkru sinni fyrr og getur ekkert
íslenzkt fyrirtæki státað af slíkum
styrk og markaðsþekkingu. Við
erum stöðugt að bæta okkur á því
sviði, meðal annars með nýrri
skrifstofu á Spáni og kaupum á
fiskréttaverksmiðju Faroe Seafood
í Grimsby. Þá fer útflutningur á
ferskum fiski og afurðum héðan
vaxandi og erlendir aðilar sækjast
eftir samstarfi við okkur,“ segir
Gylfi Þór Magnússon, einn fram-
kvæmdastjóra SH.
FRÉTTIR; EVRÓPA
Átökin í Tsjetsjníju
Aðild Rússlands að
Evrópuráðinu enn
skotið á frest?
Strassborg. Reuter.
HERNAÐUR Rússa í Tsjetsjníju og
bardagarnir við uppreisnarmenn í
Dagestan gætu orðið til þess að enn
á ný verði aðild Rússlands að Evrópu-
ráðinu hafnað. Þing Evrópuráðsins,
þar sem fulltrúar frá þjóðþingum 38
aðildarríkja sitja, á að greiða at-
kvæði um aðiidarumsókn Rússlands
í næstu viku, 25. janúar.
Umsókn Rússa, sem upphaflega
var lögð fram í apríl 1992, var „fryst“
og ekki tekin til meðferðar í sjö
mánuði á síðasta ári vegna reiði að-
ildarríkja Evrópuráðsins yfir fram-
ferði rússneska hersins í Tsjetsjníju.
í september síðastliðnum ákvað ráðið
hins vegar að hefja að nýju undirbún-
ing fyrir aðild Rússlands, eftir að
vopnahlé hafði verið samið í
Tsjetsjníju í júní. Skilyrði fyrir aðild
að Evrópuráðinu er að aðildarríkin
standi við alþjóðlegar skuldbindingar
um vernd lýðræðis og mannréttinda.
„Þessi nýju átök munu óhjákvæmi-
lega hafa áhrif, en það er of snemmt
að segja til um nákvæmlega hvern-
ig,“ segir einn af embættismönnum
ráðsins.
Atkvæðagreiðsla
á fimmtudag
Þing Evrópuráðsins kemur saman
í næstu viku og á að greiða atkvæði
um aðild Rússlands á fimmtudag.
Áður en átök brutust út að nýju í
Tsjetsjníju hafði verið gert ráð fyrir
að aðild yrði samþykkt með miklum
meirihluta. Framkvæmdastjóri Evr-
ópuráðsins, Daniel Tarschys, mun
fara til Moskvu í dag í áður áform-
aða heimsókn til að ganga endanlega
frá tæknilegum atriðum vegna aðild-
ar Rússlands. Fulltrúi Danmerkur,
sem hefur formennsku í ráðinu á
hendi um þessar mundir, mun fylgja
honum.
Farsímafrelsi þegar
ákveðið í Danmörku
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKA ríkisstjórnin telur að
ákvörðun framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, um að skipa aðild-
arríkjunum að hrinda strax í fram-
kvæmd reglum um frelsi í rekstri
farsímakerfa, eigi ekki við í Dan-
mörku. Stjórnvöld hafi þegar ákveðið
að gefa rekstur GSM-farsímakerfa
fijálsan frá miðju ári.
Tilskipun framkvæmdastjórnar-
innar verður að hafa verið lögleidd
20 dögum eftir birtingu i stjórnartíð-
indum ESB, sem verður væntanlega
í mánuðinum. Síðan hafa aðildarríkin
níu mánuði til að tilkynna fullnægj-
andi framkvæmd löggjafarinnar. Til-
skipunin miðar meðal annars að því
að fyrirtæki, sem vilja reka farsíma-
þjónustu, geti byggt upp eigið kerfi
(án þess að þurfa að leigja hjá ríkis-
einokunarfyrirtækjum) óg'boðið upp
á margvíslega þjónustu án þess að
þurfa að leita alls konar leyfa.
Frumvarp um aukið fijálsræði á
fjarskiptamarkaðnum fer fyrir
danska þingið í næsta mánuði og
gert er ráð fyrir að ný lög taki gildi
1. júlí. Nú keppa tvö dönsk fyrirtæki
á farsímamarkaðnum, Tele Dan-
mark, sem er að hluta til í ríkiseigu,
og Sonofon. Gert er ráð fyrir að fleiri
fyrirtæki fái leyfi til rekstrar GSM-
farsímakerfís eftir að nýju lögin taka
gildi.
Atvinnuleysi í ESB-ríkjum
í nóv. 1994 og 1995
Okt’95
ESB-meðaltal
Spánn
(rland
italía
Frakkland
Belgta
Svíþjóð
Þýskaland
Danmörk
Bretland
Portúgal
Lúxemborg
Nóv.’94
%
11,0
23.8
14,5
11.9
12,0
10,1
9.6
8,2
7,4
9,0
7,3
3.6
Nóvember1995
10,6
22,6
14,6
11,8
11.4
10.4
9.3
8.4
6,3
8,2
7,1
4,0
Ekki eru fyrirliggjandi tölur frá Austunfki, Rrmlandi, Hotlandi og örikkiandi.
Stöðugí atvinnu-
stig í ESB
Brussel. Reuter. L
ATVINNULEYSI í ríkjum Evrópu-
sambandsins í nóvember í fyrra
mældist 10,6% og er það óbreytt frá
mánuðinum á undan, samkvæmt
tölum sem Eurostat, hagtölustofnun
ESB, sendi frá sér í gær.
Að mati Eurostat eru um 17,5
milljónir atvinnulausar innan Evr-
ópusambandsins. Nær engin breyt-
ing hefur orðið á atvinnustigi frá því
í júlí í fyrra. í nóvember árið 1994
var atvinnuleysi 11% í aðildarríkjun-
um.
Atvinnuleysi er meira meðal
kvenna (12,4%) en karla (9,4%) og
mest er það meðal ungmenna yngri
en 25 ára eða 20%.
En þó meðaltalið sé stöðugt bend-
ir Eurostat á að töluverðar breyting-
ar eigi sér stað í einstaka ríkjum.
Þannig hafi atvinnuleysi aukist veru-
lega hjá öllum hópum í Þýskalandi
og Svíþjóð og meðal ungmenna í
Frakklandi. Á móti komi að stöðugt
dragi úr atvinnuleysi í Bretlandi,
Spáni og Danmörku.
Minnst er þó atvinnuleysið áfram
í Lúxemborg eða um 4%.