Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
£0 Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
G3 Viltu margfalda afköst í námi?
£0 Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt, skaltu skrá þig strax á næsta hraö-
lestramámskeið sem hefst fimmtudaginn 25. janúar n.k.
Skráning er I símum 564-2100 og 564-1091
I IRAJ3IJESTRARSKÓLINIV
IÐNSKÓLINN (REYKJAVfK
Námskeib
Trésmíöi
Hagnýt verkefni í trésmíbi
25 kennslustundir.
Kennari Magnús Ólafsson.
Haldiö fimmtudaga kl. 18.00-21.45.
Hefst 25. janúar.
Námskeibsgjald 12.000 kr.
Þekktu bílinn þinn
Slit- og bilanaeinkenni bíla og greining þeirra fyrir vibhald og vibgerbir.
12 kennslustundir.
Haldib fimmtudaginn 25. janúar kl. 20-22 og laugardaginn 27. janúar kl.
8-15.
Námskeibsgjald kr. 8.500.
Rennismíbi I
Undirstöbuatribi í rennismíbi.
12 kennslustundir.
Haldib laugardagana 20. janúar og 27. janúar kl. 8-13.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Rennismíbi II
Framhald námskeibsins Rennismíbi I.
12 kennslustundir.
Haldib laugardagana 3. febrúar og 10. febrúar kl. 8-13.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Rennismíbi III
Framhald námskeibsins Rennismíbi II
12 kennslustundir.
Haldib laugardagana 17. febrúar og 24. febrúar kl. 8-13.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Hlífbargassuba I. MAG
Undirstöbuatribi í hlífbargassubu.
18 kennslustundir.
Kennari Steinn Gubmundsson.
Haldib mibvikudagana 24. janúar og 31. janúar kl. 18-21 og laugardagana
27. janúar og 3. febrúar kl. 8-12.
Námskeibsgjald kr. 9.000.
Módelteikning
Helstu atribi teikningar.
16 kennslustundir.
Kennari Karl Aspelund.
Haldib laugardagana 3., 10. og 24/2 kl. 9-13.
Námskeibsgjald 10.000 kr.
Windows 3.11
Undirstaba í notkun tölva.
10 kennslustundir.
Haldib mibvikudaga og fimmtudaga kl. 20-22.
Námskeibib hefst 7. febrúar.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Word 6.0, grunnur I
Undirstaba í ritvinnslu.
10 kennslustundir.
Haldib mibvikudaga og fimmtudaga kl. 20-22.
Námskeibib hefst 21. febrúar.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Excel 5, grunnur I
Undirstaba í notkun töflureikna.
10 kennslustundir.
Haldib mibvikudaga og fimmtudaga kl. 20-22.
Námskeibib hefst 6. mars.
Námskeibsgjald kr. 6.000.
Þjónustutækni og hópvinnubrögb
Grundvallarþættir gæbaþjónustu.
Sambærilegt vib áfanga TÞI 101.
20 kennslustundir.
Haldib fimmtudaga kl. 20-22 og laugardaga kl. 13-17.
Námskeibib hefst 15. febrúar.
Námskeibsgjald kr. 8.500.
Almenn bókfærsla, grunnur I
Undirstaba íbókfærslu. Hraöyfirferð.
18 kennslustundir.
Haldib mánudaga og þribjudaga kl. 18-20.
Námskeibiö hefst 5. febrúar.
Námskeiðsgjald kr. 7.000.
Nemendur kaupa bókina Bókfærsla IB eftirTómas Bergsson.
Lestu betur
Námskeib til ab auka hraba og bæta skilning í lestri.
24 klukkustundir.
Haldib þribjudaga og fimmtudaga kl. 8-10.
Námskeibib hefst 6. febrúar.
Námskeiðsgjald kr. 9.000.
Kostnabur vegna námsgagna og efnis er innifalinn í námskeiösgjaldi
nema annab sé tiltekib.
Námskeibin eru abeins haldin ef næg þátttaka fæst.
Félög eba fyrirtæki geta pantaö þessi sem og önnur námskeib.
Kennsla fer fram í Ibnskólanum í Reykjavík.
Skráning og upplýsingar á skrifstofu skólans, sími 552-6240.
ERLENT
Reuter
Ár frá skjálftanum í Kobe
ÁttiPLO
þátt í dauða
Ayash?
BANDARÍSKA dagblaðið
Newsday sagði í gær og
kvaðst hafa eftir bandarísk-
um embættismönr.um, að
PLO, Frelsissamtök Palest-
ínumanna, hefðu haft sam-
starf við ísraelsku leyniþjón-
ustuna um að ráða sprengju-
sérfræðing Hamas-hreyfing-
arinnar, Yehiya Ayash, af
dögum. Hafi PLO gefíð upp-
lýsingar um aðsetur hans en
talsmaður samtakanna neitar
því harðlega
Sakaðir um
njósnir í Kína
KÍNVERSK stjómvöld skip-
uðu sendiráði Bandaríkjanna
og Japans í gær að kalla heim
hvort sinn hernaðarfulltrúann
og sögðu, að þeir hefðu gerst
sekir um njósnir. Hefur jap-
anska utanríkisráðuneytið
þegar viðurkennt, að þeirra
maður hafi farið út fyrir verk-
svið sitt en Bandaríkjastjóm
hefur enga ákvörðun tekið í
málinu.
Frakkar á
fullu í NATO
FASTAFULLTRÚI Frakka
hjá NATO útskýrði í gær fyr-
ir starfsbræðram sínum ítar-
lega áætlun um hvemig
Frakkar hyggjast endurreisa
aðild sína að varnarsamstarfi
bandalagsins sem þeir hafa
staðið utan fyrir í 30 ár. Vam-
armálaráðherrann mun héðan
í frá taka þátt í ráðherrafund-
um NATO og fulltrúar Frakka
munu setjast í hermálanefnd
og fleiri stofnanir bandalags-
ins. Þá munu Frakkar senda
hermálafulltrúa til starfa í
höfuðstöðvunum í Brussel.
Vantraust á
Oleksy
BOÐUÐ var vantrauststillaga
gegn Jozef Oleksy forsætis-
ráðherra Póllands á þingi í
gær og er talið að það kunni
að leiða til falls stjórnar hans.
Oleksy hefur skirrst við
áskorunum um að fara frá
vegna ásakana um að hann
hafi njósnað fyrir Rússa.
Fergie nær
gjaldþrota
ELÍSABET Bretadrottning
mun ekki koma Söru Fergu-
son til hjálpar og leysa fjár-
kröggur hennar, að sögn tals:
manns Buckingham-hallar. í
gær skýrði blaðið Sun frá því
með stórum uppslætti, að her-
togaynjan af York rambaði á
barmi gjaldþrots.
Að sögn blaðsins nema
skuldir Söru á aðra milljón
punda, meira en 100 milljón-
um króna. Segir blaðið að
einungis á síðasta ári hafi
eytt 500.000 puncjum, 50
milljónum króna, í sérhönnuð
föt, kampavínsveislur, ferða-
lög og endurbætur á heimili
sínu.
ÞESS var minnst í Kobe í Japan
í gær, að þá var eitt ár liðið frá
því öflugur jarðskjálfti lagði
stóran hluta borgarinnar í rúst
með þeim afleiðingum að um
HART er nú deilt um það í Frakk-
landi hvor hafi framið verri glæp,
Francois Mitterrand með því að haida
krabbameini leyndu nær alla sína
forsetatíð eða líflæknir hans Claude
Gubler fyrir að bijóta trúnað með
því að greina frá veikindum forsetans
í nýrri bók.
Stjómmálamenn og fréttaskýrend-
ur skiptast í tvær fylkingar í þessu
máli. Sumir gagnrýna Mitterrand
harkalega fyrir að hafa ekki greint
frá því í tæp tólf ár að hann hefði
krabbamein en aðrir Gubler, sem rauf
þagnareið sinn er forsetinn lést.
Þegar Mitterrand tók við völdum
árið 1981, hét hann því að hann
myndi reglulega veita upplýsingar
um heilsufar sitt. Mitterrand var á
sínum tíma mjög hneykslaður á
George Pompidou forseta fyrir að
leyna veikindum sínum um langt
skeið. Skrifstofa Mitterrands gaf á
sex mánaða fresti út fréttatilkynn-
ingar um heilsufar forsetans en á
árunum 1981-1992 kom þar hvergi
fram að forsetinn þjáðist af krabba-
meini. Sjálfur hefur Gubler sagt að
í raun hefðu allar fréttatilkynning-
arnar átt að hefjast á orðunum
„krabbamein forsetans".
Lygar og trúnaðarbrestur
í forystugrein á forsíðu blaðsins
Le Figaro í gær segir að án Iækna-
skýrslna viti almenningur ekkert.
Nú hafi hins vegar komið í ljós að
læknaskýrslurnar hafi engu bætt við
vitneskju almennings. „Menn eru
farnir að ljúga án þess að skammast
sín,“ segir blaðið.
Gubler hefur hins vegar einnig
verið harðlega gagnrýndur og á yfir
höfði sér kæru fyrir að hafa rofið
trúnað læknis við sjúkling en í bók
sem gefin var út í gær rekur hann
ítarlega veikindi Mitterrands. Hann
hafi greinst með krabbamein þegar
6.300 manns biðu bana. Við
minningarathöfn í Itami-garði í
gær var kveikt á jafn mörgum
kertum til minningar um hina
látnu.
árið 1981 og í raun verið ófær um
að stjóma landinu í nokkra mánuði
haustið 1994.
Fjölskylda Mitterrands hefur lýst
því yfir að hún hyggist kæra Gubler
og fara þess á leit við dómstóla að
bókin er ber heitið „Leyndarmálið
mikla" (Le Grand Secrét) verði gerð
upptæk.
Mitterrand sat út allt kjörtímabil
sitt og lét af embætti í maí á síðasta
ári. Hafði hann þá setið í tvö sjö ára
kjörtímabil. Ólíklegt er talið að hann
hefði náð endurkjöri árið 1988 hvað
þá verið vært í embætti haustið 1994
ef full vitneskja hefði legið fyrir um
heilsufar hans.
Gubler segir í viðtali við Le Figaro
að hann hafí ritað bókina af siðfræði-
legum ástæðum og vegna siðferðis
læknavísindanna. „Mér finnst ég ekki
eiga gagnrýni skilda. Ég gerði það
sem ég varð að gera,“ segir Gubler.
Margir fyrrum samstarfsmanna
Mitterrands hafa aftur á móti vísað
því á bug að forsetinn hafi á tíma-
bili verið ófær um að stjórna land-
inu. „Það er svívirðilegt að halda því
fram að hann hafí ekki getað sinnt
skylduverkum sínum,“ sagði Bernard
Debre í viðtali við útvarpsstöðina
RTL, en hann var á tímabili ráðherra
og var einnig í hópi þeirra lækna er
önnuðust Mitterrand.
Edouard Balladur segir einnig að
„hagsmunum Frakklands" hafi verið
vel borgið á þessum tima, en hann
var forsætisráðherra haustið 1994.
Menn velta því ekki síst fyrir sér
hvemig koma megi í veg fyrir að
mál af þessu tagi komi upp á ný.
Nokkrir læknir hafa lagt til að sjálf-
stæður hópur lækna gefi reglulega
út skýrslu um heilsufar sitjandi for-
seta en með því væri komið í veg
fyrir að læknir lenti í klemmu milli
hagsmuna almennings og hagsmuna
sjúklingsins.
Mitterrand
klýfur Frakka
París. Reuter.