Morgunblaðið - 18.01.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTU DAGUR 18. JANÚAR 1996 23
LISTIR
Sýningum á Hvað dreymdi
þig, Valentína? og Við
borgum ekki að ljúka
NÚ FER hver að verða síðastur
að sjá Við borgum ekki og
Hvað dreymdi þig, Valentína?
í Borgarleikhúsinu, en sýning-
um á þessum verkum er nú að
ljúka.
Æfingar eru hafnar á Hinu
ljósa mani, sem er ný íslensk
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur
eftir Islandsklukku Halldórs
Laxness. Áætlað er að frum-
sýna Hið ljósa man í byrjun
mars. Auk þess standa yfir
æfingar á samstarfsverkefni
Leikfélags Reykjavíkur og
Hlínar Agnarsdóttur á verki
hennar Konur skelfa, sem
frumsýna á 27. janúar næst-
komandi.
Einnig er verið að æfa Am-
lóða sögu, sem er samstarfs-
verkefni Leikfélags Reykjavík-
ur og Leikhópsins Banda-
manna. Textann setur Sveinn
GUÐRÚN Ásmundsdóttir í hlutverki sínu í verkinu.
Einarsson saman og er hann
jafnframt leikstjóri.
Síðasta sýning á Hvað
dreymdi þig, Valentía? eftir
rússneska rithöfundinn Ljúd-
mílu Razúmovskaju er laugar-
daginn 20. janúar og er það
jafnframt þrítugasta sýning
verksins.
„Við borgum ekki, við borg-
um ekki“ eftir Daríó Fó hefur
nú verið sýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur síðan síðasta vor
við góðar viðtökur leikhús-
gesta. Nú eru einungis eftir
tvær sýningar á þessu verki.
Leikfélag Reykjavíkur mun
áfram gefa áhorfendum kost á
tveimur miðum á verði eins á
sýningarnar „Við borgum ekki,
við borgum ekki“.
Morgunblaðið/Kristinn
SÝNINGAR á Madame Butt-
erfly hefjast að nýju á föstu-
dagskvöld.
Síðustu
sýningar
á Madame
Butterfly
EFTIR nokkurt hlé yfir áramót
hefjast að nýju sýningar á_Madam
Butterfly eftir Puccini í íslensku
óperunni.
í kynningu segir: „Madame
Butterfly er ein vinsælasta og
mest flutta ópera allra tíma og
nýtur þess hér að hafa okkar eigin
bestu söngvara í hverju hlutverki.
Sá böggull fylgir skammrifi að
Ólafur Arni Bjarnason sem fer með
hlutverk elshugans Pinkertons,
nýtur slíkra vinsælda um þessar
mundir í Evrópu að hann getur
einungis gefið okkur fáeinar sýn-
ingar á nýju ári. Þess vegna verða
sýningar með þéttara móti svo
þeir óperuunnendur sem ætla sér
að sjá sýninguna fái tækifæri til
þess.
Þetta er auðvitað mjög bagalegt
því ef elskhuginn Ólafur Árni er
ekki til staðar hvern á þá Ólöf
Kolbrún í hlutverki Butterfly að
elska og sakna eða Bergþór í hlut-
verki Sharpless vinar og drykkjufé-
laga Pinkertons að drekka með,
nú eða Hörður litli Freyr, barnið
sem gefur óperunni þann ljúfsára
endi sem hún fær, að hræra áhorf-
endur sem fylgjast grátbólgnum
augum með framvindu og endi
óperunnar."
Nú um helgina verða tvær sýn-
ingar, á föstudag og sunnudag.
Hugsadu vel ttm húðiná þina.
Marja Entrich sér um sína.
Gakktu við í Grænu línunni.
Græna línan
Laugaveg.i 4 6
Hiiðráðgjöf - bætiefnaráðgjöf
Einingabréf 10
- grjóthörð staðreynd
Einingabréf 10 skiiuðu um 20% ávöxtun á síðasta ári
Einingabréf 10 er eignarskattsfrjáls verðbréfasjóöur sem fjárfestir í bréfum
útgefnum af Ríkissjóði' (slands í erlendri mynt eða með viðmiðun við erlendan
gjaldmiðil.
Einingabréf 10 eru:
Eignarskattsfrjáls
Gengistryggð Ef gengi íslensku krónunnar er fellt eða það lækkað
gagnvart erlendum gjaldmiðlum þá hækka Einingabréf 10
sem því nemur.
Örugg Ríkissjóður íslands er traustur skuldari.
Innleysanleg Enginn fyrirvari, greidd út strax.
Raunávöxtun sjóðsins á síðasta ári var um 18%. Mismunur á kaup- og
sölugengi er 2%. Einingabréf 10 eru fáanleg fyrir hvaða upphæð sem er og
fást hjá Kaupþingi hf., Kaupþingi Norðurlands hf., sparisjóðunum og
Búnaðarbankanum. Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 515 1500.
KAUPÞING HF •
- elsta og stærsta
verðbréfajyrirtæki landsins