Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Bráðið smjör draup á ennið
Á Listasafni íslands stendur yfír sýningín
„Ný aðföng“. Þóroddur Bjamason gaf
hugmyndaflugínu lausan tauminn þegar
hann skoðaði sýninguna.
Morgunblaðið/Ásdís
HÖGGMYND eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur.
SJÁLFSMYND Hallgríms Helgasonar.
FRÁ sýningunni.
LISTASAFN íslands hefur, eins og
nafnið ber með sér, það hlutverk að
safna íslenskri myndlist. Listasafnið
kaupir á hveiju ári fjölmörg verk
látinna meistara íslenskrar myndlist-
ar og hefur einnig vakandi auga
með þreifingum starfandi lista-
manna. „Ný aðföng 111“ er heitið á
sýningu sem prýðir efstu sali safns-
ins til 25. febrúar næstkomandi. Þar
er sýnt það sem keypt hefur verið
eftir starfandi listamenn á árunum
1994-95. Þetta er þriðja sýningin í
röð sýninga á nýjum verkum safns-
ins. Sýningin gefur mynd af því sem
listamenn eru að fást við og má sjá
að fjölbreytni ræður ríkjum í efnis-
vali. Þurrkuð blóm, lýsi, blý, ull og
blaðgull eru meðal efna sem verkin
eru gerð úr auk hefðbundinna efna
eins og olíulita og striga. Auðvelt
er að sjá hvar safnið leggur netin
því mikið af verkunum hafa verið
til sýnis á Kjarvalsstöðum áður og
listamennirnir flestir orðnir sjóaðir
í bransanum en minna er um verk
fólks sem hefur styttri feril að baki
og sýnir einkum í smærri galleríum.
Nokkuð er af málverkum á sýning-
unni og segir kannski einhverjum
að vinsældir þess séu að aukast aft-
ur þótt aðrir segi að þær hafi aldrei
minnkað. Yfirbragð sýningarinnar
er nokkuð yfírvegað og fágað, lítið
er af verkum þar sem hávær og
mikill galsi býr að baki.
Á sýningunni eru verk eftir 44
starfandi listamenn. Tumi Magnús-
son tekur á móti sýningargestum í
stóru gulu og grænu málverki sínu
„Bráðið smjör og bráðið plast“ . Þar
á Tumi við lit efnanna sem hann
reynir að festa á strigann sem best
hann getur. Myndin er næstum sjálf-
lýsandi, svo björt er hún. Blaðamað-
ur staldraði við nálægt verkinu þar
til hann var farinn að fínna lyktina
af smjörinu og finna það leka niður
enni sér.
Titanic I bala
Þijú ólík verk eru á ganginum
milli salanna sem geyma sýninguna.
Grétar Reynisson sýnir skrýtinn
skúlptúr á gólfinu. Það er eins og
snigill hafi skriðið úr skel sinni.
Verkið er úr krossviði og án titils.
Hallgrímur Sigurðsson synir „Pýr-
amída 11“ á marmaragólfinu, sem
fer vel með ryðguðu járninu sem
pýramídarnir eru gerðir úr. Pýra-
mídar eru ekki einu grafreitirnir sem
mynd er af þama því Titanik er að
sökkva í bala, ekki eitt, heldur þijú
í mynd Eyjólfs Einarssonar.
„Eldhúslíf" Önnu Líndal stendur
á tveimur stöplum úti á gólfi. Það
er sett saman úr postulínsleirtaui,
tvinna og sykri. Sá sem ekki veit
og myndi sjá verkið inni á eldhús-
borði myndi sjálfsagt dást að hand-
bragði húsmóðurinnar þegar hún
bíður eftir að kartöflumar sjóði en
þó er verkið ekki táknrænt fyrir al-
þýðueldhúsið því skálarnar tilheyra
frekar yfirstéttarheimili. Tokkata
eftir Kristínu Jónsdóttur frá Munka-
þverá er úr plexigerspípum og ull
og gefur tónlistarlega tiivísun í bar-
rokktímabilið. „Citat" eftir Kristin
E. Hrafnsson er umfangsmesta
veggverkið á sýningunni, svart og
gult á litinn. Þríhymingsform innan
í hringjum gefa því tengingu í stjórn-
borð segulbandstækis. Inga Þórey
Jónsdóttir á verkið „28 pensilför"
sem nýtur sín vel á veggnum. Marg-
ir listamenn hafa stækkað upp
hversdagslega hluti en Inga Þórey
hefur gert málverk úr því sem mynd-
ar málverk.
Mér varð á að anda djúpt og blása
frá mér þegar ég stóð fyrir framan
viðkvæmnislegt og rómantískt verk
Rúnu sem er gert úr þurrkuðum
blómum festum á pappír. Ég sá að
það hefði ég betur látið ógert því
svitinn spratt fram á mér þegar
blómablöðin titruðu. Rúri fæst við
metrakerfið og sýnir metrana ljóslif-
andi í formi tommustokka sem hún
skælir og snýr. 7 metrar heitir verk-
ið og er límt á blýplötur. Þorvaldur
Þorsteinsson hefur löngum fengist
við margræð þemu og oft á tíðum
er erfitt að átta sig á þeim til fulls.
Fjórar þriggja mynda seríur eru hér
til sýnis. „Ur safni ímyndaðrar heild-
ar“ sýnir fólk á svarthvítri ljósmynd
sem hittist á götu eða er að kveðj-
ast. Hann hefur málað velþekktar
grímur hvora sínu megin, aðra af
kokki en hina af þemu. „Kristin G.
Harðarson á óneitanlega mest áber-
andi skúlpturinn, neon-bleikur er
hann og æpir á áhorfendur en þó
er það hófstillt enda formið á mörk-
um þessa að vera stíft og órólegt.
Sólveig Aðalsteinsdóttir notar
ýmislegt tilfallandi í verk sín og hér
eru það mikado-spilapijónar og
græn gegnsæ kúla sem bera hæst
í samsettum verkum. Minnir eitt-
hvað á geimstöð eins skrýtið og það
kann að hljóma. Risavaxið pappa-
massaform kallar á mann og nýtur
sín í hæfilegri fjarlægð.
Nú gengur blaðamaður út úr saln-
um og gengur öruggum skrefum
framhjá kaffístofunni, sem of seint
er að heimsækja, og inn í sal þar
sem málverkin hanga saman með
verki á gólfí eftir Olöfu Nordal, í
rökkrinu. Flísalagt ílangt verk með
eins konar útskurðarmunstri. í mynd
Kristjáns Davíðssonar er párað með
pensli eða priki á myndflötinn. Strig-
inn er hvítur að stórum hluta en lit-
imir snúast um sjálfa sig á strigan-
um. Mynd Hafsteins Austmanns lít-
ur út fyrir að hafa orðið fyrir barð-
inu á ofsafengnum átökum lista-
mannsins við strigann enda kraftur
í myndinni, en þegar betur er að gáð
stendur 1987-9 undir myndinni sem
segir okkur að hann hafi eytt meiri
tíma, en sem nemur stundarinn-
blæstri við myndina.
Ég verð að segja að ég hef séð
betri myndir eftir Eirík Smith en þá
sem þama hékk og hét landslag og
er einhvers konar blanda af abstrakt
og landslagsmynd. Bamsleg mynd
Bjargar Þorsteinsdóttir er skemmti-
leg og tekur okkur í Hnattflug þótt
erfitt sé að sjá hvort hnöttur flýgur
um form eða form um hnött. Mynd-
in er blá.
Augun gefa ákveðin skilaboð og
geta níst mann inn að beini og rauð
augu í stúlku Jóhönnu Kristínar
Ingvadóttur og málunin á henni
mynda kvenmann á mörkum þess
góða og illa. „Hér sem ég dvel“ eft-
Ogæfuleg byrjun
í Metropolitan
ÓGÆFAN virtist elta þá sem komu
nærri uppfærslu Metropolitan-
óperunnar á Makropoulus-málinu
eftir Janacek. Á sýningu 5. janúar
sl. fékk tenórinn Richard Versalle
hjartaáfall og lést í fyrsta þætti.
Sýningunni sem vera átti 8. janúar
varð að fresta vegna illviðris og
fjölmargir neituðu að mæta á sýn-
ingu tveimur dögum síðar. Dauði
Versalle þótti einkar kaldhæðnis-
legur í ljósi þess að verk Janaceks
fjallar um það að menn eigi að
fagna því að vera dauðlegir.
Að lokum tókst að frumsýna
verkið og hefur það fengið ágæta
dóma þó að ýmislegt hafi verið
fundið að sýningunni. Hljómsveit-
in sé ekki nógu ákveðin í leik sin-
um, og textinn á köflum stirður.
Söngvaramir fá misjafna dóma,
besta þó Graham Clark og Donald
Mclntyre. Aðalhlutverkið er í
höndum Jessye Norman og segir
í dómi um sýninguna í The Inde-
pendent að þrátt fyrir að hlut-
verkið henti rödd hennar illa nái
hún vel að lýsa einmanaleik, and-
legum erfiðleikum og hroka aðal-
persónunnar.
JESSYE Norman þykir glæsileg í hlutverki hinnar
ódauðlegu Emiliu Martin.
ir Gunnar Örn blandar saman lík-
amspörtum og bandflækjum í dimm-
um heimi á meðan mynd Valgarðs
Gunnarssonar er öllu bjartari, enda
unnin af geysilegri nákvæmni og
vandvirkni. Valgarður hefur löngum
notað saumnál við málverk sín en í
þessari mynd af hundi og stól er líkt
og hann saumi eða pijóni með máln-
ingunni. „Við gaflinn" er mynd Ein-
ars Hákonarsonar. Litirnir eru
glossí, glærir og gegnsæir og mynd-
in er að mestu abstrakt. Hún hang-
ir við hlið Akademíu Daða Guð-
björnssonar sem er glaðvær, litrík
og skrautleg og ljósapera á toppi
akademíunnar lýsir líkt og 100 spek-
ingar hafi allir fundið lausn lífsgát-
unnar á sama tíma inni í akadem-
íunni. Súlumar eru franskbrauð.
Ef einhveijum líkar ekki ljósið er
ráð að skoða myndir Húberts Nóa
en þar er bláleitt birtustig næturinn-
ar alltumlykjandi. Engu er líkara en
að hann hafi verið með þingvalla-
mynd Þórarins B. Þorlákssonar í
huga þegar hann málaði „Málverk
af málverki 1V“ en þar eru beljur í
haga og þær horfa á mann á sama
hátt og Hestur Þórarins. Blaðamað-
ur hefur heyrt að Ráðhildur Inga-
dóttir noti ákveðna stærðfræðiform-
úlu við gerð sinna mynda sem ávallt
ganga út frá hring. Gul mynd án
titiis er hér og er ekki ósvipuð bý-
flugnabúi að innan þótt víst sé það
sé einungis í mínum huga. Eggert
Pétursson á þijú málverk á sýning-
unni og fær hann hrós fyrir þolin-
mæði og vönduð og öguð vinnu-
brögð. Myndir hans heita málverk
og eru abstrakt eða nær ósýnilegar
nema mynd hans af krækilyngi í
blóma (ef blómaþekking blaðamanns
bregst ekki) sem er ótrúlega vel
gerð. Hallgrímur Helgason uppi-
standsmaður, rithöfundur og mynd-
listarmaður á sjálfsmynd á sýning-
unni og þar er hann með ljósa Maryl-
in Monroe, englahárkollu,
prestkraga í himnesku ljósi, bólu-
grafinn með blóðhlaupin augu.
Sannarlega ófrýnilegur og skemmti-
leg andstaða við heilagleikablæinn í
mynd Kristinar Gunnlaugsdóttur
sem er ekki langt undan. Aldarvinir
í gylltu umhverfi og svanir flögra
úr miðju vinanna. „Drengur á bát
og Ritur“ eftir Birgi Snæbjöm er
sakleysisleg mynd en þó tregafull
enda drengurinn að ausa bátinn úti
á miðju vatni.
Engin vídeóverk, hljóðverk eða
tölvuverk em á sýningunni en þó
má sjá áhrif sýndarvemleika í mynd
Sigurðar Árna Sigurðssonar sem er
án titils og sýnir Garð með kringlótt-
um tijám varpa skugga til hægri.
Síðasta verkið í sýningarskoðun
blaðamanns er verk Erlu Þórarins-
dóttur þar sem hún virðist vera að
glíma við stjömuhimininn og víddir
vetrarbrautarinnar. Verkið heitir
Vetrarskál.
Á útleið lá vel við að líta inn í
neðri sali safnsins og eitt vakti at-
hygli. Það er að svo virðist að sú
hefð að ramma myndir inn í íburð-
armikla gullramma sé á undanhaldi.
Elstu myndimar í safninu em ein-
mitt umluktar þessum miklu römm-
um en þeir fara smáminnkandi með
ámnum niður í ekki neitt hjá yngstu
kynslóðinni enda em rammar í dag,
séu þeir notaðir, taldir sem stór hluti
verksins og meiningar þess.
Listasafn íslands er opið kl. 12-18
alla daga nema mánudaga.
New York óperan
Nýr aðal-
stjórnandi
PAUL Kellogg, sem í sautján
ár hefur verið framkvæmda-
stjóri sumaróperu í banda-
rískum smábæ, var nýlega
ráðinn aðal- og listrænn
stjómandi New York City
Opera, í stað Christopher
Keene. Kellogg, sem er 58
ára, hefur verið stjórnandi
Glimmerglass ópemnnar í
Cooperstown í New York-n'ki
og mun hann sinna því starfi
áfram.