Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 25
LISTIR
Ljósmynd/Bjöm Pálsson
VERÐLAUNAVERK Kristins E. Hrafnssonar.
Listaverk í
Hofsstaðaskóla
NÝLEGA var sett upp í Hofs-
staðaskóla, Iistaverkið „Yfir-
borð“ eftir Kristin E. Hrafns-
son. Kristinn E. Hrafnsson og
Sigurður Guðmundsson báru
sigur úr býtum í samkeppni,
sem efnt var til vorið 1994 um
listaverk í nýbyggingu Hofs-
staðaskóla, og var verk Kristins
ætlað innan húss en verk Sig-
urðar á lóð skólans.
Verk Kristins er unnið úr
svörtu graníti og bronsi. í kynn-
ingu segir: „Grunnform verks-
ins er tveir teningar, frumform
þrívíddarinnar, og á þeim hvíla
litlar lágmyndir eða brot úr
landinu. Þessi brot eru tekin
héðan og þaðan af yfirborðinu
og eiga að gefa eins fjölbreytta
mynd af því og hægt er. A lág-
myndunum er að finna firði og
fjallgarða, nes og skaga, há-
lendi og láglendi, vogskornar
strendur og sandfjörur, jökla,
eldfjöll, dali, dalverpi, umbrota-
svæði og fleira. Þetta eru staðir
og afmörkuð svæði, sem hafa
ákveðna þýðingu, og líkt og í
raunverulegu umhverfi hefur
höfundur reynt að gefa þessum
formum þá liti, sem landið sést
oftast í; slegið morgunroða, í
bláma fjarlægðar, gróskumikið,
grænt og brúnt.“
Að sögn höfundar sá hann
margbrotna möguleika fólgna í
hugmyndinni, þegar hann vann
að verkinu, sem nota mætti við
kennslu: „Hugmyndin um yfir-
borð, mörk þess, umhverfi og
landslag og ekki síður huglæg
og hlutlæg merking þessara
fyrirbæra getur verið heillandi
i margbreytileik sínum. Hvern-
ig verða staðir til? Getum við
búið til staði? Er landslag stað-
ar? Hvað er yfirborð? Hvað er
handan þess? Hver eru mörk
landslags og yfirborðs? Hvað
er umhverfi og hvað er lands-
lag? Hvaðan eru nöfn þess dreg-
in? Hvar á ég heima? Er skólinn
staður? Hefur hann merkingu?
Hver er huglæg og hlutlæg
merking þessara fyrirbæra?"
Orð eru eins og náttúrufyrir-
bæri, sem allir skilja, en hver
og einn gefur þeim sína merk-
ingu að mati höfundar.
Ferðin mikla
MYNPUST
Listasafn Kópavogs -
Geröarsafn
BLÖNDUÐ TÆKNI
Nína Gautadóttir. Opið alla daga
(nema mánud.) kl. 12-18 til 21. jan-
úar. Aðgangur kr. 200
ÞAÐ hefur verið stuttur og
óvenjulegur aðdragandi að þeirri
sýningu sem nú fyllir austursal
Listasafns Kópavogs, enda ekki
um að ræða þau verk sem þar var
ætlað rými á þessu fyrsta sýning-
artímabili ársins. Nína Gautadóttir
lenti í þeirri óvæntu raun að þau
verk sem hún ætlaði upphaflega
að sýna hér bárust ekki hingað frá
Frakklandi, og virðast einfaldlega
hafa gufað upp í flutningum -
a.m.k. hafa ekki enn borist fréttir
af fundi þeirra neins staðar á leið-
inni.
Vegna þessa varð skiljanlega
að hætta við fyrirhugaða sýningu,
en í stað þess að láta rýmið standa
autt allan tímann brá listakonan
á það ráð að sækja í fórur sínar
mikinn refil, sem hún hefur unnið
út frá þeirri þekktu ferðasögu
„Umhverfis jörðina á 80 dögurn".
Sjálf mun hún hafa fyrir ekki
löngu fylgt svipuðum leiðum og
þar er lýst eigin ferð um hnöttinn,
þannig að hér má ætla að blandist
saman skemmtun sögunnar frægu
og eigin minningar um ferðaslóðir
í hinum ýmsu heimsálfum.
Refillin er úr striga, og er ýmist
unnið á hann með olíulitum, álím-
ingum klippimynda og texta á
strigann, jafnt sem fyrir ofan hann'
og neðan. Hlykkjast hann um
veggi salarins, þar sem ýmis út-
skot og beygjur verða til að auka
fjölbreytni vegferðar skoðandans
á sama tíma og hann fylgir eftir
framvindu sögu ferðalanganna allt
frá því veðmálið hefst og þar til
þeir koma aftur til Lundúna, og
uppgötva óvæntan sigur sinn.
Nína hefur unnið fjörlega úr
þessu viðfangsefni, sem þó er um
flest ólíkt því sem hún hefur verið
að sýna opinberlega áður. Helst
má finna samsömun við önnur
verk hennar í birtu olíulitanna, þar
sem haf og land njóta dags og
nætur. Klippimyndimar era oft á
tíðum förlegasti þáttur heildarinn-
ar, en með þeim koma fram ýmis
tákn hinna ólíku menningarheima,
sem ferðalangarnir berast um.
Heildarsvipur refilsins er frem-
ur grófur og allt að því barnsleg-
ur, og gestum gæti auðveldlega
dottið í hug umfangsmikið hóp-
verkefni í myndmenntakennslu
barna; þannig ber hann merki
þess að hafa verið hugsaður til
einkanota fremur en opinberra
sýninga. Hinn sögulegi aðdrag-
andi uppsetningar refilsins nú er
hins vegar þess eðlis, að sýningar-
gestir ættu að geta haft gaman
af framtakinu, sem er góð áminn-
ing ekki aðeins um spennu og
hættur ferðalaga á síðustu öld,
heldur einnig nú á tímum - eins
og örlög og ókunn ferðalög þeirra
verka, sem listakonan ætlaði upp-
haflega að sýna hér, bera svo
glögglega með sér.
Eiríkur Þorláksson
Nyherjabuðin er opin iaugaröaga 10-14
Tolva og prentari
á frábæru verði!
Canon BJ-30
bleksprautuprentari
720 dpi prentari
30 bls. arkamatari M
3 bls/mín Æm
Tulíp 486 DX4/100 MHz
8 MB minni - 850 MB diskur
Tullp computers
Gæðamerkið frá Hollandi
Lexmark
Lexmark 4076 II
Litableksprautuprentari
600 x 300 dpi upplausn
3 bls/mín -150 blaða arkamatari
Canon FC230
Ljósritunarvél - 4 bls/mín
RÉn VERÐ: 69.900
RÉTT VERÐ: 34.900
Canon T20
Faxtæki
Símtól -30 m rúlla
Sjálfvirkur skiptir
RÉTT VERÐ: 39.900
Canon B360
Faxtæki - Sími - Prentari - Myndskanni
Tölvufax - Ljósritunarvél
TiTrust jg
0§> I
NVHERII
RÉTTVERÐ: 139.900
*a»uS»iií*Si>»Wd
Canon BP26-D^ f|§y
Bleksprautureiknivél bubblt v
10 stafir í glugga '
TTUSt 486
margmiðlunartölvur
Frá krónur:
RÉTTVERÐ: 12.950
VORULISTINN A INTERNETINU: http: www.nyherji.is/vorur
Canon
Canoti
Canon
Trust
TÖLVUBÚNÁDUR
Canwn
SKAFTAHLIÐ 24
SÍMI 569 7800
ÖLL VERÐ ERU STCR. VERÐ IVI/VSK
59.900 m 26.900