Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 27
AÐSENDAR GREINAR
VINUR minn,
Benedikt Sveinsson,
stjórnarformaður SR-
mjöls hf., ritar sér-
kennilega grein í
Morgunblaðið sl.
laugardag. Augljós-
lega er undirrót henn-
ar að bera enn einu
sinni blak af Þorsteini
Pálssyni, sem stendur
höllum fæti í SR-
mjöls-málinu. M.a.
með því að draga nafn
Davíðs Oddssonar upp
að hlið Þorsteins í
undirskrift undir sölu
SR-mjöls. Það er álíka
sanngjarnt að bendla Davíð við
þá sölu og það væri að kalla for-
seta Islands til ábyrgðar á laga-
setningu Alþingis vegna þess að
hann undirritar lögin.
Efnið í grein Benedikts, sem að
undirrituðum snýr, hljóðar svo
(Benedikt er hér að ræða um
SR-mjöl):
„Landsbankinn taldi fyrirtækið
svo ótraust að bankinn gerði kröfu
til þess að ríkisábyrgð yrði á skuld-
um þess við bankann, en þær
námu um 750 milljónum króna og
voru tryggðar með veðum í eign-
um félagsins auk þess sem allar
eignir félagsins stóðu fyrir skuld-
unum. Mér til undrunar beitti
Sverrir Hermannsson, bnakastjóri
Landsbankans, sér mjog í málinu
og var fyrirtækinu ógnað með því
að bankinn mundi gjaldfella öll lán
félagsins í bankanum ef ríkis-
ábyrgð fengist ekki. Lausn máls-
ins varð sú að SR-mjöl hf. varð
að leita til annarra
lánastofnana, sem
treystu fyrirtækinu
fyrir lánsfé, og taka
ný lán og greiða
Landsbankanum um
500 milljónir af skuld-
unum við bankann.
Lán í óláni var að fyr-
irtækið hefur sparað
mikla fjármuni við
færslu lánanna frá
ríkisbankanum.“
Skemmst er frá því
að segja að ekki er
heil brú í þessum mál-
flutningi, sem virðist
eiga að sanna, að
Landsbankinn hafi talið SR-mjöl
lítils virði. Á þessum tíma var
bankanum hins vegar fullkunnugt
um að eigið fé fyrirtækisins var
að lágmarki talið yfir
1.300.000.000 þrettánhundruð-
milljónirkróna.
Það var hinsvegar SR-mjöl
sjálft, sem óskaði eftir að fá að
lækka skuld sína við Landsbank-
ann um 500 milljónir króna, með
láni frá Fiskveiðasjóði. Var að
sjálfsögðu á það fallizt, sem og
aðrar óskir hins nýja SR-mjöls,
þegar það gerðist viðskiptavinur
Landsbankans á öndverðu ári
1994. Undirritaður þykist hins
vegar sjá í hendi sér af hvaða rót-
um þessi misskilningur eða mis-
minni Benedikts er runnið.
í lögum nr. 20/1993 um stofn-
un hlutafélags um rekstur Síldar-
verksmiðja ríkisins var ekki tekið
fram að hið nýja félag skuli yfir-
taka skuldir síldarverksmiðjanna.
Þar segir hins vegar að ríkis-
stjórnin skuli stofna hlutafélag
sem taki „við rekstri“ Síldarverk-
smiðja ríkisins, þar með taldar
fasteignir, sem stofnfé. „í 10.
gr. laganna er sérstaklega tekið
fram að lög nr. 1/1938 um Síld-
arverksmiðjur ríkisins, með síð-
ari breytingum, falli úr gildi 1.
ágúst 1993.
Samkvæmt lögunum átti því
bankinn kröfur á lögaðila, Síldar-
verksmiðjur ríkisins, sem ekki var
lengur til. Slík niðurstaða var vita-
skuld óviðunandi fyrir bankann.
Hafi það hinsvegar verið ætlun
löggjafans að færa skuldbindingar
síldarverksmiðjanna yfir á hið nýja
hlutafélag skorti til þess heimild
í lögunum. Þessi vinnubrögð Þor-
steins Pálssonar eru með ólíkind-
um.
Það getur vel verið að
Benedikt Sveinsson telji
sig eiga skuld að gjalda,
segir Sverrir Her-
mannsson, en hann er
alltof gegn maður til að
gerast handkurra og
hankatrog Þorsteins
Pálssonar.
Því var það að Landsbanka-
stjórn ritaði Þorsteini Pálssyni
bréf og vakti athygli hans á
málsástæðum og honum gert Ijóst
að vegna fyrrgreindrar lagasetn-
ingar teldi Landsbankinn sig
„knúinn til að undirbúa gjaldfell-
ingu allra skuldbindinga Síldar-
verksmiðja ríkisins við bankann
og nauðsynlegar aðgerðir til að
innheimta þær“.
Hér virðist komin fram hótunin
sem Benedikt ræðir um.
Skemmst er frá því að segja
að Þorsteinn Pálsson virti Lands-
bankann ekki svars og mun þetta
vera eina dæmið í 110 ára starfs-
sögu bankans að opinber stjórn-
sýsla kemur þannig fram. En svo
smeykur hefir Þorsteinn þó orðið
við afglöp sín, að hann hefir gert
hinum nýju kaupendum SR-mjöls
grein fyrir nauðsyn þess að kippa
málum í liðinn gagnvart Lands-
bankanum. Þess vegna mun
greiðsla 500 milljóna króna hafa
verið boðin fram.
Engin orð fóru milli undirritaðs
og kaupenda SR-mjöls um þetta
efni fyrr en kaupin voru að fullu
frágengin enda ekki þeirra mál
fyrr.
Öll var meðferð Þorsteins Páls-
sonar á SR-málinu honum til
vansa, enda finnur Ríkisendur-
skoðun að nær öllum atriðum í
meðferð málsins í skýrslu til fjár-
hagsnefndar Alþingis frá því í
apríl 1994. Meginsök Þorsteins er
þó sú að selja SR-mjöl langt undir
sannvirði og sólunda með því opin-
beru fé.
Um sannvirði SR-mjöls má þó
auðvitað deila, en nokkrar stað-
reyndir blasa við. Eins og fyrr er
vikið að var eigið fé SR-mjöls sam-
kvæmt uppgjöri 31.12. 1993 kr.
1.311.755.000 þrettánhundruðog-
ellefumilljónirsjöhundr-
uðfimmtíuogfimmþúsund krónur.
Söluverð hlutaljár félagsins var
hinsvegar 725 milljónir króna. Frá
því má draga kr. 65 milljónir
vegna arðs sem hluthafar greiddu
sjálfum sér úr fyrirtækinu, þannig
að nettó greiddu nýju kaupendurn-
ir 660 milljónir króna fyrir hluta-
bréfin eða nokkurn veginn hálf-
virði miðað við eigið fé fyrirtækis-
ins;
I október-nóvember sl., rúmu
ári síðar, fór fram hlutafjárútboð
hjá SR-mjöli. í útboðslýsingu er
eigið fé fyrirtækisins talið nema
1.475.000.000 íjórtánhundruðsjö-
tíuogfimmmilljónum króna. For-
kaupsrétthafar keyptu allt nýja
hlutaféð og má af því marka, að
þeir, sem gerst þekktu til, hafi
talið kaupin álitlegan fjárfesting-
arkost og í engu verið ýkt um fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins í útboð-
slýsingu, enda gengi hlutabréfa
nær tvöfalt.
Enn einn samanburð má gera,
sem gefur til kynna að mikið dul-
ið fé kunni að vera í félaginu.
Afsprengi háttalags Þorsteins
Pálssonar í SR-málinu er ný
bræðsla, sem nú rís á Fáskrúðs-
firði. Einn af eigendum hennar
tjáði undirrituðum á dögunum að
byggingarkostnaður hennar nálg-
aðist nú níuhundruðmilljónir
króna. Sú verksmiðja er ekki eins
verðmæt og verksmiðja SR-mjöls
á Seyðisfirði að mati dómbærra
manna, framleiðir t.d. ekki há-
gæðamjöl eins og Seyðisfjarðar-
verksmiðjan. Það skyldi þó ekki
vera að endurmeta megi verk-
smiðju SR-mjöls á Seyðisfirði til
eittþúsundmilljóna króna?
En grein Benedikts vinar míns
Sveinssonar er vindhögg sem von-
legt er, þar sem reitt er til höggs
vegna misskilnings, misminnis eða
brenglaðra upplýsinga. Það getur
vel verið að Benedikt Sveinsson
telji sig eiga skuld að gjalda, en
hann er alltof gegn maður til að
gerast handkurra og hankatrog
Þorsteins Pálssonar.
Höfundur er bankustjóri.
Vindhöffff
Sverrir
Hermannsson
Sumardagurinn fyrsti er
5. apríl hjá SAS!
Sumaráætlun SAS milli íslands og Kaupmannahafnar hefst
5. apríl næstkomandi. í Kaupmannahöfn gefst farþegum kostur
á tengiflugi samdægurs um allan heim en einnig er tilvalið
að dvelja í Kaupmannahöfn áður en lengra er haldið.
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína
eða söluskrifstofu SAS.
m/sas
SAS á íslandi ■ valfrelsi í flugi!
Laugavegi 172 Sími 562 2211