Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 35
Einstæðir
foreldrar
blekktir
í MORGUNBLAÐ-
INU föstudaginn 29.
desember sl. er birt
stór og mikil grein, þar
sem kynntar eru veiga-
mestu breytingar á
tekjuskattslögum sem
Alþingi gerði fyrir jól
og er þar komið víða
við, fjallað er um
ákvæði um persónuaf-
slátt, skattfrjáls lífeyr-
isiðgjöld og ýmsar aðr-
ar bótagreiðslur. En
hæst ber þó fyrirsögn
greinarinnar sem er:
„Barnabótaauki hækk-
ar um áramótin".
Ég settist niður með
þessa grein ásamt nýjasta bækl-
ingnum um álögð gjöld 1995 og fór
yfir tölur. Gat ég þá ekki séð annað
en að allar tölur væru þær sömu.
Til að styðja mál mitt birtist hér
smákafli úr greininni:
„Barnabótaaukinn er tekjutengd-
ur og byrjar að skerðast hlutfalls-
lega þegar tekjur viðkomandi ná
ákveðnu marki. Þetta mark verður
Okkur var talin trú
um að niðurfelling
mæðra- og feðralauna
yrði bætt með hækkun
barnabóta, segir Þóra
B. Guðmundsdóttir,
en það var svikið.
á næsta ári 1.141.042 króna árs-
laun hjá hjónum (um 95 þúsund
króna mánaðarlaun) og 570.521
króna hjá einstæðum foreldrum
(47;500 króna mánaðarlaun.)
Óskertur bamabótaauki með
hveiju barni nemur 93.164 krónum
á ári (7.764 kr. á mánuði) hjá hjón-
um og 100.990 krónum á ári (8.416
kr. á mánuði) hjá einstæðum for-
eldrum."
Samkvæmt bæklingi um álögð
gjöld 1995 sem gefínn var út í ág-
úst af ríksskattstjóra segir: „Á ár-
inu 1995 greiðist barnabótaauki að
hámarki 93.164 kr. hjá hjónum og
100.990 kr. hjá einstæðu foreldri
með hveiju barni fæddu 1979 eða
síðar. Barnabótaauki með hveiju
barni skerðist þegar samanlagður
tekjustofn hjóna fer yfir 1.141.042
eða hjá einstæðu foreldri yfir
570.521 kr.“
Eins og allir sjá eru þessar tölur
alveg þær sömu. Hver er þá hækk-
unin á barnabótaaukanum? Jú,
þama leyndist smá breyting í lið
sem heitir útreikningur barnabóta-
auka og hljóðar hann svona:
„Samkvæmt nýju reglunum
skerðist barnabótaukinn um 6%
með einu barni, 11% með tveimur
börnum og 15% með þremur böm-
um og fleiri þegar tekjur foreldra
fara upp fyrir áðurneft
tekjumark.“ Þarna era
breytingarnar þær að
prósentan lækkar, en
þetta skerðingarhlut-
fall var svona: Með 1.
bami 7%,með tveimur
bömum 13% ogþremur
18%.
Þegar dæmið er
reiknað til enda og út-
koman skoðuð með
hliðsjón af skerðingu
mæðra- og ferðralauna
fáum við eftirfarandi
útkomu miðað við ein-
stætt foreldri með tvö
börn á aldrinum 7-16
ára: Tekjur 1996
1.000.000 - 570.521 = 429.479 X
11% = 47.243. Tekjur 1995
1.000.000 - 570.521= 429.479 X
13%=55.833.
Mismunurinn er 8.590 kr. en
breytingin kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en 1. ágúst 1996
Afnám mæðra-
og feðralauna
Ekki verður séð að einstæðir
foreldrar séu að fá einhvern happ-
drættisvinning, þegar litið er á nið-
urfellingu mæðra- og feðralauna
sem framkvæmd var strax 1. jan-
úar 1996, nemur þetta um 2.096.
kr. á mánuði fyrir foreldri með tvö
börn eða 25.152 kr. á ári. Sjá þá
allir að þessi fjölskylda lækkar í
árslaunum um 16.562 kr.
Það er ótrúlegt hvað íslensk
stjórnvöld geta látið margt fólk lifa
í blekkingarheimi. Okkur var talin
trú um að niðurfelling mæðra- og
feðralauna yrði bætt með hækkun
barnabóta, en það var svikið. Nú
langar okkur til að biðja alla ein-
stæða foreldra að skoða þessi dæmi
mjög vel og lesa bæklinginn Álögð
gjöld 1995 ásamt breytingum sem
gerðar voru á mæðra- og feðra-
launum 1. janúar 1996 til að sjá
það hróplega óréttlæti sem ríkir í
íslensku þjóðfélagi. Hvérnig stend-
ur á að löggjafinn viðurkennir ekki
einstæða foreldra og börn sem fjöl-
skyldu? Af hveiju era einstæðir
foreldrar alltaf settir í sama dilk
og einstaklingar?
Hvort heldur að börnin eru 1-2
eða 5-6 þá eru tekjumörkin alltaf
570.521, sem þýðir að barnabóta-
auki skerðist við 47.500 kr.
mánaðarlaun hjá einstæðu for-
eldri. Þetta tekjutap einstæðra
foreldra bitnar fyrst og fremst á
börnunum þeirra. Mörg af þeim
hafa eða eiga bara þetta eina for-
eldri og með svona lágum launum
og endalausum skerðingum á bót-
um sem ætlaðar eru til fram-
færslu barna er ekki hægt að sjá
á þessu að okkar kæru stjórnmála-
menn ætli að standa við loforðin
um stuðning við fjölskylduna í
landinu.
Höfundur er formaður Félags ein■
stæðra foreldra.
Þóra B.
Guðmundsdóttir
Alkóhólismi og
sj álfshj álparhópar
AA (Alcoholics An-
onymous) eru sjálf-
hjálparsamtök sem
starfa í þágu alkóhól-
ista. Samtökin eru
iekkt um allan heim
og tel' ég því. óþarft
að kynna þau hér sér-
staklega. Þau vora
stofnuð af Bill W. og
félögum, kringum árið
1930. Bill W. fann eig-
in leið til að lifa lífi
sínu án vímuefna og
fór að kynna hana
öðrum sem áttu við
sama vanda að etja.
Leið Bill W. fór gegn-
um 12 spor. Þessi 12
spor hafa síðan verið höfð að leið-
arljósi fyrir meðlimi AA-samtak-
anna og önnur samtök síðar. Lengi
vel vora AA-samtökin einu hjálpar-
samtök fyrir alkóhólista. Síðustu
árin hafa fleiri samtök verið stofn-
uð til hjálpar alkóhólistum. Þessi
grein kynnir lauslega þau helstu
og gefur áhugasömum einstakling-
um tækifæri til að gefa kosta á
sér til að stofna slík samtök hér-
lendis. Þessi samtök eru; WFS
(Women for Sobriety), SOS (Secul-
ar Organization for Sobriety eða
Save Our Selves), og RR (Rational
Recovery). First ber að nefna WFS
(Women for Sobriety) sem voru
kynnt aðeins í MBL nýverið.
Women for Sobriety
WFS vora stofnuð af dr. Kirk-
patrik árið 1976 og era orðin föst
í sessi í bandarísku samfélagi og
víða annars staðar. WFS leggur
áherslu á sérstöðu kvenna og mið-
ar sína starfsemi út frá henni. WFS
telur ekki að fíkn sé siðferðilegur
veikleiki heldur einkenni alvarlegs
sjúkdóms; alkóhólisma. Fíknin er
orðin aðalheilbrigðisvandi meðal
kvenna. Stór partur hennar tengist
hverfandi fullvissu margra kvenna
um hverjar þær eru. Hlutverk
kvenna eru ekki lengur skýr og
það lýsir sér í gífurlegum vanda
sem á sér stað í flóknu samfélagi
heimsins í dag. Sektarkennd,
þunglyndi og lélegt (eða ekkert)
sjálfsmat eru vandamál kvenna í
dag. Þegar kona verður tímabund-
ið háð áfengi hylur sá vandi raun-
verulegar þarfir hennar. Þarfirnar
eru að finna fyrir sjálfi og sjálfs-
virðingu. Konur togast á milli
tvegga heima; annarsvegar er ósk-
in um vera óháður aðili, en um
leið uppfull af gömlum ótta og
sektarkennd yfir því að gera ekki
hið rétta, vera ekki góð eiginkona
og móðir, uppfylla ekki kröfurnar
sem gerðar era til hennar. Lífsstíll
margra kvenna felst í notkun
áfengis og lyfja sem tækis til.að
komast af. Sumar konur, ein af
hverri tólf, fer yfir mörkin, línuna
sjúkdómur sem aðeins er hægt að
halda niðri. Hann er sjúkdómur
sem leiðir til dauða. Það fæst eng-
in lækning, en það er til leið til
að lifa hamingjusömu lífi. Hún
fæst með algjöru og áframhald-
andi bindindi. WFS
era samtök hönnuð
sérstaklega með það
að markmiði að sam-
ræmast tilfinningaleg-
um þörfum kvenna. í
sameiningu læra kon-
ur hvernig bera megi
kennsl á vandamálin
sem orsökuðu drykkj-
una. í sameiningu
læra konur hvernig
þær geta lifað per-
sónubundið, öðlast
sjálfsvitund fullnægt
eigin sjálfí.
Secular
Organization for
Sobriety/Save Our Selves
(SOS)
SOS var stofnað 1985 af James
Christopher, syni alkóhólista sem
var sjálfur edrú alkóhólisti. Honum
fannst að setja líf sitt í hendur
æðri máttar væri ekki í samræmi
við núverandi rannsóknir sem gáfu
í skyn að fíkn væri líkamleg afleið-
ing en ekki sálfræðileg. Sem afleið-
ing af sterkum viðbrögðum frá
alkóhólistum sem vildu vera edrú
án þess að tengja edrúmennsku
sína við einhver trúarbrögð eða
eitthvað yfirnáttúralegt, stofnaði
Jim Christopher Secular Organiz-
ation for Sobriety. í dag eru fund-
ir víðsvegar í Bandaríkjunum og
allt að 20.000 meðlimir.
SOS er valkostur fyrir alkóhól-
ista sem eru ósáttir við 12 spora
kerfið sem byggir kannski á trú á
æðri mátt frekar en beinum trúar-
brögðum. Hjá SOS er einstakling-
urinn gerður ábyrgur fyrir edrú-
göngu sinni og notar veraldlega
aðferð til að viðhalda edrúmennsk-
unni. Edrúgangan er alveg óháð
trúarbrögðum eða trú á æðri mátt.
Hjá SOS þakkar einstaklingurinn
sjálfum sér fyrir árangurinn en
ekki æðri mætti og leggur edrú-
göngu sína ekki í hendur æðri
máttar heldur í sínar eigin. SOS
virðir edrúmennsku í hvaða formi
sem er, og setur ekki eina leið
framyfir aðra. SOS er ekki á móti
né í samkeppni við önnur prógröm.
SOS styður heilbrigðar efasemdir
og hvetur til notkunar vísindalegi-
ar aðferðar við að skilja alkóhól-
isma.
Hver sem leitar eftir lífi án vímu-
efna er velkominn. SOS er óháð
öllum trúarhópum. Hjá SOS er
engin dulin dagskrá. SOS er um-
hugað um edrúmennsku en ekki
trú, trúarbrögð eða æðri mátt. SOS
leitast eingöngu við að hjálpa þeim
sem þjást af alkóhólisma eða ann-
arri fíkn. Sem samtök hafa SOS
enga skoðun á utanaðkomandi
málefnum. Þó svo edrúmennska
sé á ábyrgð einstaklingsins, ér
ekki þar með sagt að fólk þurfi
að standa eitt síns liðs í lífinu. SOS
meðlimir deila reynslu, upplýsing-
um, styrk og stuðningi á vingjarn-
legan, heiðarlegn máta. Edrú-
mennska er númer eitt í lífi alkó-
hólista og annarra fíkla, þar af
leiðir að hún eða hann verður að
halda sig frá öllum vímugjöfum.
Nafnleysi er í fyrirrúmi. SOS styð-
ur við vísindalegar rannsóknir á
alkóhólisma og fíkn á allan hátt.
SOS takmarkar ekki sýn sína við
eitt svið þekkingar eða kenningar c "
á alkóhólisma eða fíkn.
Rational Recovery (RR)
RR er alþjóðleg batahreyfing fyr-
ir alkóhólista og aðra fíkla, sem
byggir starf sitt á reglunni um
mannlega virðingu, persónulegt
frelsi og ábyrgð einstaklingsins. RR
hóf göngu sína 1986, sem viðbrögð
við valskorti hjá bandarísku umönn-
unarstarfi tengdu áfengis- og vímu-
efnamálum. Samtökin hafa farið
stöðugt vaxandi. RR skorar á hvern
einstakling sem er haldinn vímu-
Flest samtök hvetja til
vísindalegra rannsókna ’“r
á orsökum alkóhólisma,
segir Steinunn B.
Birgisdóttir, og setja
viljann og lífið í hendur
einstaklingsins sjálfs.
efnasjúkdómi og vímuefnavanda
að hætta allri neyslu án þess að *r
hika. RR segir: „Yfirstígðu ótta
þinn við að hætta og uppgötvaðu
framtíð þína.“ RR telur að' fíkn sé
langt því frá að vera erfður sjúk-
dómur, heldur er hún eðlileg starf-
semi líkamans. Heilbrigð löngun
þín í gleði veldur fíkn þinni, segir
RR. Löngun þín í gleði er tjáð í
hugsun þinni og tilfinningu, það
sem við köllum rödd fíkninnar. Þú
getur lært að stjórna þessari rödd
nú þegar. Þú getur lært að þekkja
þína fíknirödd sem orsakar vímu-
efnafíkn þína. Hér er leyndarmál,
segir RR: „Hver sem er getur
hætt núna fyrir fullt og allt.“
Ofangreind samtök eiga það
sameiginlegt að öll vinna að því
marki að hjálpa alkóhólistum að
lifa án vímuefna. Öll samtökin
nema RR líta á alkóhólisma sem
sjúkdóm. WFS hefur sína sérstöðu
að vera stofnuð af konu og er snið-
in að þörfum kvenna. AA notar 12
spora kerfi sitt, RR notar vitsmuna-
lega aðferð í anda Alberts Ellis,
SOS tekur ekki eina aðferð framyf-
ir aðra, heldur hvetur hvem ein-
stakling til að fínna sér sína eigin
aðferð og er opin fyrir öllum aðferð-
um, eina krafan er að hún virki.
Öll samtökin fyrir utan AA hvetja
til vísindalegra rannsókna á sviði
alkóhólisma svo og innan eigin sam-
taka og setja viljann og lífið í hend-'
ur einstaklingsins sjálfs frekar en
æðri máttar. Áhugasamir um stofn-
un einhverra þessara samtaka hafi
samband við greinarhöfund.
Höfundur er félagsfræðingur og
rekur ráðgjafarstofu í áfengis- og
fíkniefnam&lum.
Steinunn Björk
Birgisdóttir
fllog með 18. janúar er hægt að gera
frábær kaup á efnum til að fegra heimilið með.
Grípið gæsina á meðan hún gefst.
VERSLUN MEÐ VEGG- OG GÓLFEFNI
VEGGFÖÐRARINN
EINAR ÞORVARÐARSON & CO HF
FAXAFEN 10 SÍMI: 568 7171
SÖLUSTAÐIR U M ALLT LAND