Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 45

Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 45 MINNIIMGAR + Per Krogh fæddist í Berg- en 21. janúar 1914. Hann lést í Landa- kotsspitala 3. jan- úar síðastliðinn og fór útförin fram í kyrrþey 10. janúar. PER KROGH var fæddur í Bergen 21. janúar 1914 og hefur því lifað lungann úr þessari öld, sem er grimmasta öld í allri m annky nssögunni, hrannvíg og miskunn- arleysi einkennir hana, en jafnframt ástríðumikil barátta um sálir manna. Þó að við íslendingar höfum ekki farið varhluta af þessum ósköpum er það öldugjálfur miðað við brimrótið í Evrópu. Foreldrar Pers voru Sverre Krogh og Solveig Bergliot Bakke. Faðir hans nam þjóðhagfræði og tryggingarstærðfræði í Göttingen og Karlsruhe. Eftir námið var hon- um boðin kennarastaða við háskól- ann í Kristianíu (Ósló), en hafnaði henni og hellti sér út í stjórnmálin á vegum æskulýðsfélags Verka- mannaflokksins og var tvívegis dæmdur í fangelsi, 1908 í þriggja mánaða fangelsi í Svíþjóð fyrir bylt- ingarsinnaðan áróður og í fjögurra mánaða fangelsi 1912 í Noregi fyr- ir áróður gegn hermennsku. Var faðir hans ritstjóri og þingmaður frá 1921, en fylgdi kommúnistum þegar Verkamannaflokkurinn klofnaði 1923 og var kjörinn á þing fyrir Kommúnistaflokkinn 1924, en sagði skilið við hann 1928 og gekk aftur til liðs við Verkamannaflokk- inn. Þessu pólitíska starfi fylgdu eilífir flutningar og kvaðst Per hafa átt heima á 16 stöðum, þegar hann var 16 ára. Var öll fjölskyldan á kafi í stjórnmálum. I Höyanger við Sognefjorden var Per formaður æskulýðsfélags Verkamanna- flokksins, faðir hans formaður flokksdeildarinnar á staðnum og móðir hans formaður kvenfélagsins. Per varð stúdent 1933 í Bryn. Á námsárunum í menntaskóla og há- skóla var hann meðlimur í Clarté og ritari um tíma, en formaður var faðir Gro Harlem Brundtland. Clarté hreyfingin var stofnuð af franska skáldinu Henri Barbusse. Hreyfing þessi var óháð stjómmála- flokkum, en marxismi ríkjandi stefna. Per mætti einnig á fundum hjá Mot Dag, og hafði mikið álit á forustumanni þess Erling Falk. Eft- ir stúdentspróf hóf hann nám í hagfræði við háskólann í Ósló, en missti áhugann og fór 1936 til Gautaborgar og stundaði nám í véltæknifræði til 1938. Fékk vinnu sem tæknifræðingur í Rælingen og kvæntist æskuvinkonu sinni Liv. Á stríðsárunum tók Per þátt í útgáfu blaða, sem voru fjandsamleg Þjóð- verjum, en slík starfsemi var dauða- sök. Aldrei talaði Per um þátttöku sína í andófinu gegn Þjóðveijum. Hans Jakob Luihn, æskuvinur hans, skrifaði tvær bækur um blaðaút- gáfu í Noregi á stríðsárunum: Det fjerde vápen: den hemmelige presse i Norge 1940-1945 og De illegale avisene. í bréfi til Sólveigar og Gísla, barna Pers, segir hann frá atviki í febrúar 1944 þegar Per tók þátt í leynilegum fundi í kofa í Krokskogen. Strax eftir fundinn fór Per asamt öðrum manni á skíðum til Óslóar, en aðrir fundarmenn voru handteknir 20 mínútum síðar af Þjóðverjum og settir í Grini-fang- elsið. 766 Norðmenn sem stunduðu ólöglega blaðamennsku lentu í Grini-fangelsi og af þeim voru 212 drepnir. 1943 skildu þau Liv, en sama ár fæddist dóttir þeirra Jorun. I stríðslok var sagt frá því í frétt- um að fjöldi Norðmanna hafi sótt um landvistarleyfi í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Spennufallið eftir ógnir styijaldaráranna hefur skap- að tómleika hjá mörgum þeirra. Sigríður Gísladóttir, dóttir Kristínar ísleifs- dóttur og séra Gísla Skúlasonar á Stóra- Hrauni, fór til Óslóar 1946 eftir að móðir hennar dó. Á pensjón- ati kynntist hún Evu von Krogh, föðursystur Pers, og fór vel á með þeim, en Eva leit stórt á sig og talaði ekki við hvern sem var. Hún kynnti Sigríði fyrir bróðursyni sínum, Per, og tókust góðar ástir með þeim. Lífsskoðanir beggja féllu vel saman, en rík rétt- Iætiskennd var einkennandi fyrir Sigríði. Tveim árum seinna fluttu þau til íslands og giftu sig á heim- ili foreldra minna með prestlegum seremoníum og lét Per sig hafa það þó að aþeisti væri. Fluttu þau strax til Akureyrar, þar sem Per fékk vinnu í Vélsmiðj- unni Odda. Á Akureyri eignuðust þau ævilanga vináttu Steinunnar Hafstað og hjónanna Margrétar Sigurðardóttur og Ásgeirs Markús- sonar. Frá 1952-1982 starfaði Per hjá Landssmiðjunni og Jarðborunum ríkisins að frátöldum tveimur áruin sem hann starfaði á vegum Samein- uðu þjóðanna í San Salvador og Tyrklandi sem ráðgjafi í jarðborun- um eftir heitu vatni. Per hafði ánægju af vinnunni og ræddi oft um „bormenn íslands“ af mikili aðdáun, en á þessum árum voru miklar jarðboranir vegna Búrfells og Kröflu. í einkalífi var Per mikill gæfumaður. Hjónaband þeirra Sig- ríðar var mjög farsælt og minnast börn þeirra þess ekki að þeim hafí orðið sundurorða. Mikla ánægju höfðu þau af ferðalögum um landið og mikill var fögnuður þeirra, þegar búið var að tjalda og prímusinn suðaði. Enginn var fundvísari en Per á góð tjaldstæði og nutu þess margir. Per var fágaður maður í fram- komu, hógvær og talaði lítt um eig- in verðleika, en þeim mun meira um verðleika annarra. Hann var furðu fljótur að ná tökum á íslensku þó að framburðurinn væri norsku- skotinn, en málfræðilega talaði hann rétt og gat notið þess_ besta, sem skrifað hefur verið á íslandi. Hann var sílesandi alla ævi og síð- ustu árin riljaði hann upp frönsku. Dálæti hafði hann á ljóðum Werge- lands og 0verlands, og bókum sálu- félaga sinna, Johans Borgen og Hans Vogt. Af íslenskum bókum lásu þau Sigríður upphátt skáldsög- ur Halldórs Laxness, sem þau höfðu alltaf með sér í útilegu. Eftir að Sigríður andaðist, 1986, fór Per að hraka og lífsfögnuðurinn að dofna, en vinkonur átti hann, sem lásu með honum íslensk og norsk ljóð. Aldrei sá ég föður hans en móðir hans kom til Islands. Hún var óvenju falleg kona, augun ljóm- uðu ekki ósvipað og augun í Theo- dóru Thoroddsen. Á heimili Pers er ljósmynd af þeim Sigríði, líklega tekin í Laxárdal í Gnúpveijahreppi. Ljósmynd þessi minnir á hjarðljóð. Djúpur friður er yfir Per þar sem hann liggur endilangur í grasi með pípu í hendi og göngustaf sér við hlið. Hjá honum er Sigríður og skín skær birta af hamingju af andliti hennar. Þannig mun ég minnast þeirra beggja._ Olafur Helgason. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, ömmu og langömmu, GUÐRÚIMAR Þ. JÚLÍUSDÓTTUR, Sandprýði, Stokkseyri. Jóna Þórarinsdóttir, Guðrún Björg Ásgeirsdóttir, Einar S. Einarsson, Þórarinn Asgeirsson, Ágústa K. Steinarsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Guðmundur Kr. Ólafsson, Guðmunda Birna Ásgeirsdóttir, Sigurður Ö. Sigurgeirsson og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARGRÉTAR PÁLÍNU GÚSTAFSDÓTTUR, áðurtil heimilis á Suðurgarði 24, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð. Mona Erla Símonardóttir, Sigurbjörn Reynir Eiríksson, Margrét Símonardóttir, Gústaf Símonarson, Lilja Sigurjónsdóttir, Jónfna V. Eiríksdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Einlægar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýjan hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLDÓRS Þ. JÓNSSONAR sýslumanns, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir viljum við færa Héraðsnefnd Skagafjarðar, Bæjar- stjórn Sauðárkróks, Sýslumannafélagi íslands, lögreglumönnum á Sauðárkróki, Rótarýfélögum á Sauðárkróki, starfsfólki sýsluskrif- stofu Sauðárkróks, starfsfólki sýsluskrifstofu Siglufjarðar og skát- um á Sauðárkróki. Aðalheiður B. Ormsdóttir, Hanna B. Halldórsdóttir, Jón Ormur Halldórsson, Auður Edda Jökulsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Hermann Jónasson, Halldór Þ. Halldórsson, Rúnar Þór Arnarson, Auður Sif Arnardóttir, Gunnar Hrafn Jónsson, Helga Hermannsdóttir, Halldór Þormar Hermannsson, Jón Salmansson, Hermann Ingi Jónsson. PER KROGH Súpukjöt, heilt kíló 259 Nautahakk, eitt kíló 475 SS svínahakk, eitt kíló 399 Svínakótelettur, eitt kíló 685 SS svínanaggar, afsl. -30% K.F. skinka, heilt kíló 569 Kíndabjúgu, eitt kíló 199 BÓNUS-síld, 890ml 187 SS súrmatur, 1.350g í fötu 799 MS-maltbrauð, pr. pk. 59 MS-beyglur, 4 teg. pr. pk. 109 Ömmuflatkökur, pr. pk, 23 lcebergsalat, pr. haus 79 Greipaldin, eitt kíló 67 BÓNUS-appelsínusafi, ó I 397 Melroses-te, 100 stk. 295 BÓNUS-appelsínu- marmelaði, 900g 149 BÓNUS-cola sykurlaust, 2 lítrar 85 Taco skeljar, pr. pk. 145 Taco hveitikökur, pr, pk. 199 Taco sósa, 200 ml 99 Opið á morgun, föstudag frá 12.00 til 19.30 Forsniðnir disklingar, 10 saman, 287 Albúm + þrjár 24. mynda Kodak filmur, 797 Þriggja skúffa BT bréfabakkar, 597 Afgreiðslutími á laugardag er 10.00 til 16.00 til 17.00 í Holtagörðum. Á sunnudag er opið í Holtagörðum frá 13.00 til 17.00 LANDLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.