Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 49

Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 49 BREF TIL BLAÐSIIMS Líknarsjóður Langholtskirkju Frá Skarphéðini Steinarssyni: AÐ UNDANFÖRNU hafa staðið deilur milii prests og organista í Langholtssöfnuði. Ekki hef ég í hyggju að taka afstöðu í þeirri deilu. Til þess er ég ekki bær auk þess sem ég bý ekki í sókninni og því málið mér óviðkomandi. Hins vegar þykir mér ástæða til að að blanda mér í þann hluta umræðunnar er snýr að afa mínum og ömmu, sr. Árelíusi Níelssyni og Ingibjörgu Þórðardótt- ur. Nöfn þeirra hafa verið notuð í gagnrýni á annan deiluaðilann. Sr. Flóki Kristinsson hefur bæði verið vændur um það að eigna sér stofnun líknarsjóðs sem í raun hafí verið verk sr. Árélíusar og eins hefur verið látið að því liggja að hann bæri eitthvað annað en hlýhug til frumkvöðla safnaðarins. Þegar Ingibjörg dó árið 1978 ákvað Árelíus að stofna sjóð til minn- ingar um hana. Sjóðurinn skyldi vera í vörslu Langholtskirkju og var til- gangur hans m.a. að rétta þeim hjálparhönd sem á því þyrftu að halda. Á meðan fullra starfskrafta Árelíusar naut við efldist sjóðurinn. Eftir að hann hætti prestsskap má hins vegar heita að einu tekjur sjóðs- ins, utan tekjur af árlegri kaffisölu kvenfélags kirkjunnar, hafi verið framlag hans sjálfs. Sjóðsins beið því ekkert annað en að lognast út af, gleymast eins og örlög svo margra sh'kra sjóða eru. Ekki bar á neinum teljandi áhuga þeirra sem í Lang- holtskirkju störfuðu, annarra en kvenfélagsins, á því að efla sjóðinn. Eftir að Árelíus dó í febrúar 1992 fórum við afkomendur þeirra hjóna að huga að framtíð minningarsjóðs- ins. Þá var sr. Flóki kominn til starfa í Langholtskirkju. Hann gerði sér grein fyrir mikilvægi líknarsjóðs við Um orgelleik í Hallgríms- kirkju kirkjuna. Varð úr, að hans frum- kvæði, að stofnaður var Líknarsjóður Langholtskirkju. Ákveðið var að minningarsjóður- inn skyldi vera stofnframlag sjóðs- ins. í stofnskrá líknarsjóðsins er til- gangur sjóðsins sagður vera sá að styðja þá sem minna mega sín í söfn- uðinum. Styrkir skuli veittir til að leggja þeim lið og gleðja þá sem minna mega sín vegna slysa, sjúk- dóma eða tímabundinna fjárhagserf- iðleika. Líknarsjóðurinn skal vera í minningu Ingibjargar Þórðardóttur Og Árelíusar Níelssonar. í Morgunblaðinu 4. janúar sl. er stutt bréf frá Guðmundi E. Pálssyni, formanni sóknamefndar Langholts- kirkju. Þar er látið að því liggja að með bréfí sínu í Morgunblaðinu 30. desember sl. hafí Flóki verið að eigna sér verk sem honum bar ekki, þ.e. stofnun líknarsjóðsins. Vonandi riíja þessi skrif mín upp fyrir sóknamefnd- arformanninum hvemig stofnun Líknarsjóðs Langholtskirkju bar að. Orð Flóka um safnaðarstarf í Langholti, um það leyti sem hann hóf þar störf, hafa m.a. verið túlkuð sem svívirðingar í garð látinna frum- heija safnaðarins. Hvað varðar hug Flóka til Árelíusar og Ingibjargar þá hefur hann sýnt ævistarfi þeirra mikinn og einlægan áhuga. Ekki hefur borið á neinu öðm en hlýhug í þeirra garð. Hann hefur lagt sig fram um að heiðra minningu þeirra. Hann hefur m.a. kynnt sér vel hand- rit sem Árelíus skyldi eftir sig þar sem hann segir sögu Langholtssafn- aðar frá upphafi og til þess dags er hann hætti þar störfum. SKARPHÉÐINN STEINARSSON, Tómasarhaga 42, Reykjavík. TEPPAMARKADUR íFAXAFENI5 EKTA HANDUNNIN PERSNESK TEPPIOG MOTTUR STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN, 20-70% t.d. Persneskur Meshgin 150x101 cm. Afganskur Bukhara 150x100 cm. Persneskur Varamin 215x122 Kasmir Sailor 165x95 cm. Persneskur Nain með silki 325x195 c\ Karatchi Jaldar 285x223 cm. Persneskur Bidjar 175x102 cm. Karatchi Kafkas 95x64 cm. ANTIKVERSLUNIN FLYTURINNAN TÍÐAR í AÐALSTRÆTI 6 (MORGUNBLAÐSHÚSIÐ) axoeo 11.000 TKOOO 10.000 jb^ooo 52.000 í^oeo 4.800 meeo 160.000 16^000 67.000 jiMOO 98.000 L&oeo 6.000 OPIÐ VIRKA DAGA KL .10-18 LAUGARD. KL. 12-16. BORG NÆG BILASTÆÐI HEITT KAFFI ÁKÖNNUNNI Frá Bergnýju Hannah: GOTT bréf og skemmtilegt frá Vali Óskarssyni birtist í Morgunblaðinu á föstudaginn og vil ég þakka honum fyrir það. Þar talar hann m.a. um orgelleikinn í Hallgrímskirkju á að- fangadagskvöld. Einnig ég varð vitni að því að orgel- leikarinn sat ekki aðgerðalaus! Fram- arlega í kirkjunni, þar sem ég stóð, skynjaði ég stundum að kórinn var að byija á versi, en orgelleikarinn að ljúka því. Hvílíkur dómadagshávaði. Hvar var gleðin, mýktin og fegurðin. Sennilega er ekki rétt að líta á sig sem fómarlamb, heldur að þakka fyr- ir þann lærdóm sem draga má af þess- ari reynslu. Mæta með eymatappa í Hallgrímskirkju um næstu jól eða ráða sig í kórinn til að heyra í honum eða fara bara í Langholtskirkju. Víst er að organistinn lagði sitt af mörkum í Hallgrímskirkju á að- fangadagskvöld. Það er mjög jákvætt að hann getur spilað á orgel, en í stað þess að vera hluti af tónlistinni urðu þrumutónar orgelsins að yfirgnæfandi öskri. Allt þróast og ef til vill á organist- inn eftir að komast í samband við kórinn og söfnuðinn - einhvem tíma... BERGNÝ HANNAH, Dalhúsum 80, Reykjavík. [ c i LDAmar x ] HAGÆÐA LEIKFIMIFATNAÐUR VERSIANIR LAUGAVEGI 51 - S. 551-7717 - SKEIFUNNI19 - S.568-1717 O' »© . ©• hefst kl. 9 í dog bOAQSI bonkcistræti 11 B T I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.