Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 60
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
jlpVectraP^
^ Töivu- og
Bksímalagnir
PJ frá AT&T
Ufif <Q> NÝHERJI
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Strætisvagnar Reykjavíkur
Farþegum
fjölgaði um tæp 3%
FARÞEGUM Strætisvagna
Reykjavíkur fjölgaði um tæp 3%
á síðasta ári, að sögn Lilju Olafs-
dóttur, forstjóra SVR.
Að sögn Lilju fjölgaði farþeg-
um um rúm 200 þús. á síðasta
ári og voru um 7.324.000 en árið
1994 voru þeir um 7.118.000.
„Þetta er skemmtilegt með tilliti
til þess að meira seldist af bflum
á síðasta ári,“ sagði hún.
Botninn 1991-1992
„Það hefur verið og er tenging
á milli bílaeignar landsmanna og
notkunar á almenningssamgöng-
um. Vera má að heilsubylgja
hafi gripið um sig eða fólk er
með næmari kostnaðarvitund."
Lilja sagði að á undanförnum
árum hafi farþegum fjölgað lítil-
lega eða frá árunum 1991 og
1992 en þá hafi botninum verið
náð með 6,6-6,8 milljónir far-
þega. Árið 1993 voru farþegar 7
millj. en 7,1 millj. árið 1994 og
7,3 millj. eins og fyrr segir árið
1995.
Af farþegum árið 1995 voru
börn 7,3%, unglingar 12-15 ára
voru 13,5%, aldraðir og öryrkjar
voru 15% og aðrir 64,2%.
Borgarkringlan riftir leigusamningi
10-11 lokaðað
kröfu Kring’lunnar
SAMNINGAR hafa tekist um að
10-11 versluninni í Borgarkringl-
unni verði lokað og fær fyrirtækið
bætur frá húseigendum fyrir riftun
á leigusamningi sínum til tíu ára.
Þetta er liður í samstarfssamningi
eigenda Borgarkringlunnar og hús-
félagsins í Kringlunni sem nú er í
burðarliðnum. Þar er sem kunnugt
er gert ráð fyrir sameiginlegri yfir-
stjórn húsanna og verulegri upp-
stokkun á verslunarrekstri í Borg-
arkringlunni.
„Samningaviðræður hafa staðið
yfir undanfarið ár og að lokum
fékk ég tilboð sem erfitt var að
hafna,“ sagði Eiríkur Sigurðsson,
kaupmaður í 10-11 í samtali við
Morgunblaðið. „Ég tel skynsam-
legra fyrir mig að fá bætur fyrir
þessa hluti og eyða orkunni í upp-
byggingu fleiri búða, frekar en að
berjast við þau öfl sem þarna eru.
Aðilar í Kringlunni hafa ekki verið
reiðubúnir að leyfa mér að taka
þátt í þessari uppbyggingu. Mér
hefur verið tilkynnt að sameining
Kringlunnar og Borgarkringlunnar
verði ekki að veruleika nema ég
fari út.
Hann sagði búðina í Borgar-
kringlunni hafa gengið vel og um
32% veltuaukning hefði orðið á sl.
ári frá árinu á undan. „Mér hefur
líkað vel að vera þarna og við lögð-
um mikla vinnu í að byggja búðina
upp. Hins vegar ætla ég að finna
nýjan stað fyrir búðina í nágrenni
við Borgarkringluna,“ sagði Eirík-
ur Sigurðsson.
■ 10-ll/6b
Aftakaveður í Hnífsdal
TÖLUVERT tjón varð á húsum
og bílum í Hnífsdal í aftakaveðri
í gærmorgun. Bilskúr fauk á
næsta hús, að minnsta kosti
fimm bílar skemmdust, járn fauk
af húsum og rúður brotnuðu og
stúlka slasaðist er hún fauk á bíl.
I fyrrinótt brast hann á með
sunnan hvassviðri og voru átta
til níu vindstig við landið vestan-
vert. Vindurinn nær sér upp í
Hnifsdal í þeirri átt og varð
mjög hvasst í verstu vindhviðun-
um. Veðurstofan hefur ekki
vindmæli í Hnífsdal og er því
ekki vitað nákvæmlega hvað
vindurinn var mikill. Á stærri
myndinni eru björgunarsveitar-
menn að negla fyrir glugga þar
sem rúður höfðu brotnað og
festa járnplötur, en á minni
myndinni sést hvernig þíðan í
gærmorgun kom af stað grjót-
hruni á veginum um Óshlíð.
Þessi björg höfnuðu á veginum
skammt frá einum vegskálanum.
■ Tjónáeignum
Morgunblaðið/Þorkell
Bakkavör
til Reykja-
nesbæjar
BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar
samþykkti á fundi í fyrrakvöld að
leigja fiskvinnslufyrirtækinu Bakka:
vör hf. frystihús í eigu bæjarins. í
kjölfarið mun fyrirtækið flytja hluta
starfsemi sinnar til Reykjanesbæjar
og skapa um 15 ný ársverk í bæn-
um. Þá á Bakkavör í viðræðum við
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu
Reykjanesbæjar um að flytja alla
starfsemi sína til bæjarinns.
Frystihúsið er um 1.600 m2 að
stærð og hefur það staðið autt um
__nokkurt skeið. Ágúst Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Bakkavarar, segir
að þessi leið hafi verið valin til að
leysa húsnæðisvanda fyrirtækisins,
en núvettodi húsnæði þess hafi verið
orðið of lítið. Nú sé unnið að því að
koma frystihúsinu í gagnið og gerir
Ágúst ráð fyrir því að starfsemi þar
muni hefjast upp úr mánaðamótum.
Flytja út hrogn
Jafnframt sé verið að kanna hvort
fysilegt sé fyrir fyrirtækið að flytja
alla starfsemi sína til Reykjanesbæj-
ar. Það sé þó ljóst að núverandi
’^'líúsnæði þar muni ekki nægja undir
alla starfsemi þess og því þurfi að
ráðast í einhvetjar byggingafram-
kvæmdir ef af flutningum verður.
Bakkavör er í eigu nokkurra ein-
staklinga auk Granda hf. sem á 40%
hlut. Fyrirtækið sérhæfir sig í vinnslu
og útflutningi á hrognum og eru
starfsmenn þess að jafnaði um 35
" taisins. Velta fyrirtækisins nam um
330 milljónum króna á síðasta ári.
Samgönguráðherra
Samkeppni
umGSM
frá 1998
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segist ekki vilja opna fyrir
samkeppni í farsímakerfinu strax
og segir breytingu Pósts og síma í
hlutafélag forsendu aukinnar sam-
keppni.
Reglur ESB um frelsi í rekstri
farsímakerfa, sem eiga að taka gildi
á næstu vikum, gætu orðið hluti
samningsins um Evrópskt efnahags-
svæði. Það fer þó líkast til eftir af-
stöðu EFTA-ríkjanna.
Evrópusambandið mun leyfa
fijálsa samkeppni í símakerfinu frá
1. janúar 1998, með þeirri undan-
tekningu að nokkur aðildarríki fá
aðlögunartíma. EFTA-ríkin, ísland
þeirra á meðal, hafa jafnframt lýst
því yfir að þau muni gefa fjarskipta-
þjónustu frjálsa á sama tíma.
Ekki í stakk búnir nú
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagði við Morgunblaðið að ís-
land væri ekki í stakk búið til að
gefa farsímaþjónustu fijálsa eftir
nokkrar vikur. „Ég hef gert ráðstaf-
anir til að setja fullan kraft á undir-
búning þess að við séum undir það
búnir að standa við 1. janúar 1998
og hef ekki útilokað að samkeppni
geti orðið fyrr,“ sagði ráðherra.
■ Höldum okkur við/6
Fyrirtækin eiga 1,3 milljarða
hjá Tryggingastofnun
KRISTJÁN Ragnarsson formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna segir að fyrirtækin í landinu
hafí átt 1.373 milljónir króna í sjóði
hjá Tryggingastofnun ríkisins í árs-
lok 1994. Sjóðurinn hafí alfarið
orðið til vegna tryggingagjalds sem
innheimt er af fyrirtækjunum í
landinu. Kristján segir að það skjóti
þess vegna skökku við að nú sé
áformað að leggja ný gjöld á sjávar-
útveginn til þess að ná til baka
þeirri upphæð sem Tryggingastofn-
un endurgreiðir útgerðarmönnum
vegna aflahlutar fyrstu tvo mánuð-
ina sem sjómenn eru frá vinnu
vegna slysa til sjós. Á síðasta ári
var þessi upphæð um 128 milljónir
króna.
I frumvarpi um ráðstafanir í rík-
isfjármálum er ráðgert að inn-
heimta sérstakt iðgjald af útgerðar-
mönnum vegna aukatryggingar
sjómanna til að mæta útgjöldum
Tryggingastofnunar vegna
greiðslu á kaupi og aflahlut sjó-
manna sem njóta slysatrygginga-
bóta.
„Samkvæmt okkar upplýsingum
frá Tryggingastofnun hefur vara-
sjóðurinn ekki rýrnað á árinu 1995.
Átvinnureksturinn á því þarna í
sjóði 1.373 milljónir króna. Samt
er rætt um að leggja á ný gjöld.
Það getur ekki verið til þess að
standa undir greiðslum vegna
slysatryggingabóta. Við teljum því
að áður en til þess kemur að leggja
þurfi sérstakt gjald á vegna þessar-
ar tilteknu endurgreiðslu þurfi fyrst
að eyða sjóðnum,“ sagði Kristján.
Á síðasta ári endurgreiddi
Tryggingastofnun útgerðarmönn-
um 128 milljónir króna vegna afla-
hlutar sjómanna sem slasast höfðu
til sjós og um níu milljónir króna
vegna dagpeninga en samsvarandi
upphæðir fyrir 1994 voru 110 millj-
ónir vegna aflahlutar og um 10
milljónir króna vegna dagpeninga.
■ Rættum/30