Morgunblaðið - 25.01.1996, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLEIMT
Santer hefur
vaxið í áliti
NÚVERANDI framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur setið ár
í embætti nú í vikunni. Margir
höfðu í upphafí efasemdir um
hæfileika Jacques Santer, forseta
framkvæmdastjómarinnar, en
hann var áður forsætisráðherra
Lúxemborgar.
Skipan Santers í embætti var á
sínum tíma málamiðl-
un þar sem ekki náðist
samkomulag milli
stærstu aðildarríkj-
anna um skipan Jean-
Luc Dehaene, forsæt-
isráðherra Belgíu, eða
Ruud Lubbers, fyrrum
forsætisráðherra Hol-
lands, þegar Frakkinn
Jacques Delors lét af
embætti.
Sú breyting varð
einnig á framkvæmda-
stjórninni í janúar í
fyrra að þá tóku í
fyrsta skipti sæti í
henni fulltrúar nýjustu
aðildarríkjanna: Svíþjóðar, Aust-
urríkis og Finnlands.
Mat flestra að loknu þessu
fyrsta ári er að Santer láti ekki
mikið fyrir sér fara en sé starfmu
vaxinn. Aðrir fulltrúar í fram-
kvæmdastjóminni fá misjafna
dóma.
Ekki allir áberandi
Austurríkismaðurinn Franz
Fischler og Finninn Erkki Liikanen
fá almennt mjög góða dóma og
eru taldir hafa skilað starfí sínu
vel en Daninn Ritt Bjerregaard
hefur aðallega verið til vandræða.
Lítið hefur farið fyrir mörgum í
framkvæmdastjóminni og telja
þeir sem rætt var við að það
mætti skýra með því að málaflokk-
ar þeirra gæfu þeim ekki mörg
tækifæri á að láta Ijós sitt skína.
Er Edith Cresson, fýrrum forsæt-
isráðherra Frakklands, gjarnan
nefnd sem dæmi en hún fer með
vísindarannsóknir og þróun innan
framkvæmdastjórnarinnar.
Santers beið erfitt verkefni þeg-
ar hann tók að sér að vera í for-
sæti framkvæmda-
stjórnarinnar þar sem
forveri hans Delors
hafði um tíu ára skeið
verið með virtustu og
áhrifamestu stjórn-
málamönnum Evr-
ópu.
Maður
málamiðlana
Þrátt fyrir efa-
semdir í upphafi hefur
honum hins vegar
tekist að vinna sér
traust aðildarríkjanna
og í flestum tilvikum,
þegar erfið mál hafa
komið upp, hefur hann á lipran
hátt náð að miðla málum milli
hinna nítján fulltrúa fram-
kvæmdastjórnarinnar og aðildar-
ríkjanna fimmtán.
Að mati margra er hann réttur
maður á réttum tíma því að nú
sé talið æskilegt að framkvæmda-
stjórnin gegni minna hlutverki
varðandi löggjöf og stefnumótun
en raunin var í tíð Delors.
Aðrir sakna hins vegar þeirrar
forystu og þeirrar sterku framtíð-
arsýnar er einkenndi Delorsárin.
„Það á sér ekki lengur nein póli-
tísk umræða stað,“ sagði stjórnar-
erindreki og einnig var bent á
hversu litla forystu framkvæmda-
stjórnin sýndi í tengslum við ríkj-
aráðstefnuna á þessu ári.
Jacques Santer
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
Náið samband um
ríkjaráðstefnu
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Norð-
urlandanna, sem héldu reglubund-
inn fund í Helsinki á þriðjudag,
lýsa því yfír að Norðurlöndin muni
hafa náið samband um þróun
mála á ríkjaráðstefnu Evrópusam-
bandsins, sem hefst í Tórínó í
marz. Utanríkisráðherrarnir lýsa
jafnframt yfír stuðningi við stækk-
un ESB til austurs. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sat
fundinn af Islands hálfu.
í yfírlýsingu ráðherranna fagna
þeir því að leiðtogafundur Evrópu-
sambandsins í Madríd skuli hafa
kveðið á um að upplýsa skyldi
EFTA-ríkin (þ.á.m. Noreg og Is-
land) um þróun mála á ríkjaráð-
stefnunni.
„Ráðherrarnir töldu mikilvægt
fyrir öll norrænu löndin að ESB-
samstarfíð verði eins skilvirkt,
öflugt og áþreifanlegt og mögu-
legt er,“ segir í yfírlýsingunni. Þar
er einnig hvatt til þess að evrópu-
samstarfíð fái sterkari lýðræðis-
legan grundvöll og að ákvarðana-
taka verði opnari.
Utanríkis- og öryggissamstarf
opið fyrir iöndum utan ESB
Hið nána samband, sem ráð-
herrarnir vilja hafa milli Norður-
landanna meðan á ráðstefnunni
stendur, mun ekki sízt þjóna þeim
tilgangi að upplýsa ísland og Nor-
eg um þróun hinnar sameiginlegu
utanríkis- og öryggismálastefnu
ESB, en ríkin eiga bæði aðild að
NATO og aukaaðild að Vestur-
Evrópusambandinu. Ráðherrarnir
leggja í yfirlýsingu sinni áherzlu
á að samstarfíð á þessu sviði verði
„opið fyrir nánu samráði og sam-
bandi við ríki, sem standa utan
ESB.“
Ánægja með stækkun ESB
Utanríkisráðherrarnir lýsa yfír
ánægju sinni með að öll Austur-
Evrópuríkin, sem gert hafa svo-
kallaða Evrópusamninga við ESB,
þar á meðal Eystrasaltsríkin, hafi
nú sótt um aðild að sambandinu.
Þeir segjast sömuleiðis ánægðir
með að leiðtogafundurinn í Madríd
skuli hafa rutt brautina til þess
að hægt sé að byrja að ræða við
öll Austur-Evrópuríkin á sama
tíma. „Stækkun ESB til austui's,
sem innifelur Eystrasaltsríkin,
mun verða mikilvægt framlag til
öryggis og friðar í Evrópu,“ segja
ráðherramir.
Loks ítrekuðu ráðherrarnir
nauðsyn þess að norræna vega-
bréfasambandinu yrði viðhaldið,
innan ramma þátttöku Norður-
landanna í Schengen-samkomu-
laginu.
13 ára bresk stúlka gengur í hjónaband í Tyrklandi
„Eigin-
maðurinn“
handtekinn
Kahramanmaras í Tyrklandi. Reuter.
ÁTJÁN ára tyrkneskur atvinnu-
laus þjónn hefur verið handtek-
inn í heimabæ sínum við sýr-
lensku landamærin og kærður
fyrir að nauðga 13 ára breskri
stúlku sem hann kvæntist að
hætti múslima. Fór vígslan, sem
hefur ekkert lagagildi í Tyrk-
landi, fram með fullu samþykki
foreldra stúlkunnar.
Að sögn tyrkneskra embættis
manna verður þjónninn, Musa
Komeagac, sóttur til saka fyrir
að eiga mök við stúlku undir lög-
aldri. Er það lagt að jöfnu við
nauðgun, samkvæmt laganna
bókstaf. „Vegna ungs aldurs
stúlkunnar var hún send í læknis-
skoðun þar sem í ljós kom að hún
hafði misst meydóm sinn,“ sagði
embættismaður.
Stúlkan, Sarah Cook, var á
ferðalagi í Tyrklandi í fyrra er
hún kynntist Komeagac. „Við
erum mjög hamingjusöm," sagði
hún við fréttamenn er hún var
leidd út af sjúkrahúsi úr læknis-
skoðuninni. Þau voru gefin sam-
an að hætti múslima fyrir hálfum
mánuði og voru foreldrar stúlk-
unnar viðstaddir athöfnina, sem
hefur ekkert gildi gagnvart tyrk-
neskum lögum.
Samkvæmt tyrkneskum lögum
er lágmarksaldur stúlkna til að
ganga í hjónaband 15 ár og verð-
ur þá að liggja fyrir samþykki
beggja foreldra. Hægt mun þó
að fá þann aldur lækkaðan mæli
læknar með því vegna sérstaks
líkamlegs þroska viðkomandi. í
því tilviki verður einnig sam-
þykki beggja foreldra að liggja
fyrir svo vígsla geti farið fram.
Á myndinni kemur Sarah Cook
úr læknisskoðun ásamt „eigin-
manni" sínum.
Framtíð Norður-Irlands
Major vill kosningar
London, Belfast. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, lagði í gær til að efnt
yrði til kosninga á Norður-írlandi,
þar sem að hann teldi að tillögur
alþjóðlegrar nefndar um afvopnun
írska lýðveldishersins, IRA, ekki
framkvæmanlegar. Nefndin, sem
heitir eftir formanninum, Banda-
ríkjamanninum George Mitchell,
hefur gert það að tillögu sinni að
afvopnum fari fram samhliða frið-
arviðræðum, nefndarmenn telja
ekki nauðsynlegt að hún hefjist
áður.
Aðalmarkmið kosninganna yrði,
að sögn Majors, að kjósa hóp
manna sem samningamenn í frið-
arviðræðum yrðu síðan valdir úr.
Hann nefndi ekki ákveðinn tíma
fyrir kosningarnar, en lagði til að
þær yrðu haldnar eins fljótt og
unnt væri.
Bresk stjórnvöld telja að mót-
mælendur á Norður-írlandi myndu
ekki sætta sig við þann kost að
IRA helji ekki afvopnun áður en
gengið verður til friðarviðræðna.
Sagði Major að Bretar teldu fram-
lag Mitchell-nefndarinnar vissu-
Iega mikils virði en að tillaga henn-
ar fæli ekki í sér hvernig fá megi
fulltrúa andstæðra fylkinga að
samningaborðinu.
Bresk stjórnvöld vonast til þess
að kosningarnar verði til þess að
fá mótmælendur aó samninga-
borðinu og fagnaði David Trimble,
leiðtogi Sambandssinna Ulster,
stærsta flokks mótmælenda, til-
lögu Majors og sagði eina raun-
hæfa skrefið fram á við að kjósa
menn til að taka þátt í viðræðum.
Talsmenn Sinn Fein, stjórnmála-
arms IRA, voru hins vegar hallari
undir tillögu Mitchell-nefndarinn-
ar, sem þeir sögðu góðan grunn
til að byggja friðarviðræður á.
Kína
Bæta
umönnun
munaðar-
lausra
New York. Reuter.
BARNAHJÁLP Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) hefur náð samkomulagi
við kínversk stjórnvöld um að hrinda
í framkvæmd áætlun sem miðar að
því að bæta hag og aðbúnað munað-
arlausra og fatlaðra barna sem vistuð
eru á sérstökum stofnunum í Kína.
Áætlunin gerir ráð fyrir því að
UNICEF taki að sér að betrumbæta
a.m.k. eitt munaðarleysingjahæli í
hveiju hinna 30 héraða Kína. Ætl-
unin er að þau verði fyrirmynd ann-
arra stofnana og þar hljóti starfsfólk
annarra hæla þjálfun í endurhæfingu
og umönnun svo og stjórnun.
Önnur áætlun, sem UNICEF
hyggst hrinda í framkvæmd á næstu
vikum, miðar að því að endurþjálfa
starfsfólk á núverandi þjálfunar- og
endurmenntunarstofnunum fyrir
starfsfólk munaðarleysingjahæla.
Alls gerir UNICEF ráð fyrir að
kostnaður stofnunarinnar vegna
þessara verkefna í Kína á þessu ári
nemi um 850.000 dollurum, jafnvirði
56 milljóna króna.
Reuter
Samper segi af sér
MÖRG hundruð háskólanemar í
Bogota, höfuðborg Kólumbíu,
efndu til mótmælafundar við
þinghúsið á þriðjudag og kröfð-
ust afsagnar Ernestos Sampers
forseta. Daginn áður hafði Fern-
ando Botero, fyrrverandi varnar-
máiaráðherra, lýst því yfir í sjói
varpsviðtali að Samper hefði vil
að af því að fíkniefnabarónar
lögðu fram fé í kosningasjóði
forsetans. Málið hefur valdið eii
hverri erfiðustu stjórnmála-
kreppu í landinu í áratugi.