Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 9 FRETTIR Umræður um prestkosningar á Alþingi Söfnuðir fái meira vald við val á prestum MARGIR þingmenn lýstu þeirri skoðun á Alþingi í gær að kirkjusöfnuð- ir ættu að hafa meira vald við ráðningar presta en nú er. Verið var að ræða stjórnarfrumvarp um veitingu prestakalla sem gerir ráð fyrir því að laus prestsembætti séu skilyrðislaust auglýst til umsóknar, en að öðru leyti verði ekki breytingar á formi prestráðninga. Háskóla- hátíð í Há- skólabíói BRAUTSKRÁNING kandídata fer fram í Háskólabíói laugar- daginn 3. febrúar nk. Tríóið Skárren ekkert leikur við inn- ganginn frá kl. 13.15, en hátíð- in verður sett kl. 14. Að lok- inni setningu spilar strengja- sveit Tónlistarskólans í Reykja- vík undir stjórn Marks Reed- mans. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhendir í fyrsta skipti Nýsköpunarverð- launin, en þau eru veitt fyrir framúrskarandi verkefni sem unnið var með styrk úr Nýsköp- unarsjóði námsmanna. Áð því loknu verða skírteini afhent. Að síðustu syngur Háskólakór- inn undir stjórn Egiis Gunnars- sonar nokkur lög. Fjöldi íbúða til sölu á Reykhólum Miðhúsum. Morgunblaðið. HREPPSFUNDUR var á Reyk- hólum miðvikudaginn 31. jan- úar og voru þar mættir allir aðalfulltrúar. Samþykkt var að selja Orkubúinu hitaveituna fyrir 52 milljónir og þar mun ríkið leggja Orkubúinu til 16 milljónir kr. Salan var sam- þykkt með fjórum a tkvæðum gegn einu en tveir sátu hjá. Samkvæmt heimildum blaðsins er talsverð óánægja á Reykhólum með sölu hitaveit- unnar og munu nú vera til sölu hátt í 20 íbúðir á Reykhólum. Fundu snældur á Vogastapa Vogum. Morgunblaðið. ÞRIR piltar sem voru á ferð við Háabjalla á Vogastapa á miðvikudag fundu þar sjötíu hljóðsnældur sem eru taldar þýfi. Á fimmtíu hljóðsnældanna er sama efni. Hinar tuttugu eru allar eins, en annað efni á þeim. Að sögn lögreglu er verið að rannsaka hvaðan spólurnar eru komnar. Tunglvaka í Herdísarvík FERÐAFÉLAGIÐ fagnar út- komu nýrrar ferðaáætlunar með kvöldferð nærri fullu tungli í Herdísarvík í kvöld, föstudags- kvöld, 2. febrúar kl. 20. Þarna eru sögulegar minjar og sér- stætt náttúrufar. Rifjaðar verða upp sagnir er tengjast umhverfínu og kveikt verður fjörubál. Brottför er frá BSÍ austanmegin og Mörkinni 6. Heimkoma er áætluð um miðnættið. Sighvatur Björgvinsson þing- maður Alþýðuflokks sagðist telja að auka eigi vald safnaða. Hann kom fram með þá hugmynd að í stað þess að ríkið greiði prestum laun, verði þau laun greidd til safn- aðanna sem síðan ráði sér sjálfir prest og ákveði sjálfir með hvaða hætti þeir hafa þá ráðningu. Kristján Pálsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði að Alþingi yrði að laga lög um kirkjuna þann- ig að sæmileg sátt væri um túlkun þeirra. Greinilegt væri til dæmis í Langholtsmálinu, að óvissa væri um hver réði hveiju, og þegar bisk- up þyrfti að leita álits lögfræðinga um það hver réði hveiju, eins og gerst hefði í Langholtsmálinu, þá hlyti löggjöfinni að vera eitthvað áfátt. Kristján sagðist vera þeirrar skoðunar, að færa ætti meira vald til sóknanna og þær ættu að hafa meira um það að segja hver er ráðinn prestur en þær hafa haft. Sturla Böðvarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks nefndi þann möguleika að afnema æviráðningu presta og ráða þá aðeins til fimm ára í senn. Hjálmar Jónsson þing- maður Sjálfstæðisflokks sagði að til greina kæmi að taka æviráðn- ingu presta til endurskoðunar eins og annarra embættismanna en ekki ætti að taka þá sérstaklega út úr. Lög í endurskoðun Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráð- herra sagði að í fyrirliggjandi frumvarpi væri ekki verið að fjalla um starfsskyldur eða ábyrgð presta. í kirkjumálaráðuneytinu hefði verið mótuð sú stefna, að rétt væri að viðhalda þjóðkirkju- skipulaginu en stíga þurfi skref til að auka sjálfstæði kirkjunnar í sínum innri málum. Unnið hefði verið að gerð rammalöggjafar um stöðu kirkjunnar sem hugsanlega yrði lagt fram á Alþingi síðar í vor. Eðlilegt væri að taka þær spurningar, sem komið hefðu fram við umræðuna, upp þegar fjallað yrði um það frumvarp. Ný sending Kragalausir, köflóttir jakkar. Úrval af buxum í stærð 34. Verð kr. 5.000. TESS - Verið velkomin - Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. V ii t neðst við Dunhaga, sími 562 2230 GLÆSILEGUR VORFATNAÐUR n • |, I, \ - RENÉ LEZARD Sœvar Karl Bankastræti 9, sími 551-3470. SÁLFRÆDISTOFA Sigtryggur Jónsson, sálfræðingur. Hef flutt sálfræðistofu mína í SKIPHOLT 50C, 3 hæð Sími og fax: 562 0602. Tímapantanir í síma 562 0602 kl. 09.00 til 10.00 alla virka daga. MaxMara Utsala Mari fnU«SK Áhugaverður valkostur fyrir fólk á öllum aldri til að koma sér i toppform og öðlast aukinn lifskraft. /Efingar sem sameina mýkt, einbeitingu og öndun. , 1E1UAMARNES ■ YESTURBÆR I húsi sundlaugar Seltjarnarness Danshöllin Drafnarfelli 2 Upplýsingar í sima 552 6266 / •• UTSOLULOK d ' Engin verðlækkun, Q/eMf ekkert verðhrun, heldur bjóðum við þér að prútta og prútta og prútta.... Eiðistorgi 13, 2. hæð, Opið laugardaga til kl. 16:00. yfir torginu, (Ath. stretchbuxurnar eru ekki á útsölu) sími 552-3970. Hverfisgötu 52 - 101 Reykjavík - s. 562-2862. VERÐIÐ HJÁ OKKUR ER SVO HAGSTÆTT! Grindalistar • Spónaplötur 12m/m: 35x70m/múr furu verð pr. m 92 kr. stgr. Margar gerðir, mjög hagstætt verð. V313 120x255 kr. 1.150 stgr. venjul. 120x253 kr. 850 stgr. Verð miðað við að keyptar séu 25-100 plötur. Sperruefni T18 Sérstakt tilboð: 2x6 kr. 215 stgr. 2x8 kr. 275 stgr. 2x9 kr. 315 stgr. Lengdir 6,0-6,9 m I."J .. . 11 I 12-36mónu&ir Smiðsbúð Byggingavöruverslun, Smiösbúð 8 & 12, 210 Garöabæ. Sími 565 6300, fax. 565 6306. Fólk er alltaf að vinna í Gullnámunni: 84 milljonir Vikuna 25. til 31. janúar voru samtals 83.926.130 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur Upphæð kr. 25. jan. Mónakó 222.816 25. jan. Háspenna, Laugavegi 100.531 26.jan. Háspenna, Hafnarstræti 142.264 26.jan. Háspenna, Laugavegi 168.279 27. jan. Mamma Rósa, Kópavogi... 123.896 28.jan. Rauöa Ijóniö 144.045 28. jan. Mónakó 95.105 29.jan. Háspenna, Hafnarstræti 107.349 30. jan. Ölver 158.823 30. jan. Háspenna, Laugavegi 181.844 31.jan. Rauöa Ijóniö 190.679 Staöa Gullpottsins 1. febrúar, kl. 12.00 var 10.701.088 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.