Morgunblaðið - 02.02.1996, Síða 12

Morgunblaðið - 02.02.1996, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Byrjað á nýrri sundlaug og húsi næsta haust BÆJARRÁÐ Akureyrar staðfesti á fundi í gær- morgun röð framkvæmda við Sundlaug Akureyrar á árunum 1996-1999, en á þessum tíma er áætlað að veija um 150-160 milljónum króna vegna fram- kvæmda við laugina. Pær koma til viðbótar um 66 milljónum sem fram til þessa hafa verið notað- ar vegna lagfæringa og endurbóta. Stoppað eftir næsta áfanga Gísli Bragi Hjartarson formaður framkvæmda- nefndar Akureyrarbæjar sagði að ákveðið hefði verið að fínna einhvem áfanga sem hægt væri að stoppa við í bili þar sem fyrirséð væri að bær- inn þyrfti að kosta miklu til vegna skólabygginga á komandi árum, en áætlað er að um einn milljarð- ur króna fari í slíkar framkvæmdir á vegum bæjar- félagsins á næstu árum. Næsta verk við Sundlaug Akureyrar verður bygging nýrrar laugar, 25x16,3 metrar, kennslu- og æfíngalaug og verður hún gerð sunnan við núverandi laug. Þá verður byggt nýtt hús við laug- ina þar sem verður búningsaðstaða. Kostnaðarsamt verk Framkvæmdir við nýju laugina hefjast að lokn- um aðalferðamannatímanum næsta haust og er áætlað að þeim verði lokið árið 1997. Nýbygging- in við laugina verður reist nokkuð samhliða gerð laugarinnar. Á fundi bæjarráðs minnti Sigríður Stefánsdótt- ir, Alþýðubandalagi, á tillögu flokksins við af- greiðslu fjárhagsáætlunar um meira fé til sund- laugarinnar þannig að einhver áfangi eins og ný laug kæmist í notkun á þessu ári. Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, nefndi í bókun sinni, að sú áætlun sem unnið sé eftir á sundlaugarsvæðinu sé of kostnaðarsöm, hann telji að viðbótarkostnaður verði a.m.k. 275 milljónir króna. Bakki byggðurá Nökkva HU SLIPPSTÖÐIN Oddi hf. er að vinna við endurbætur og breyting- ar á Nökkva HU frá Blönduósi. Stærsta einstaka verkið er bygg- ing bakka framan á skipið en auk þess verður það málað. Tveir Siglufjarðartogarar, Sigl- firðingur SI og Sigluvík SI eru í viðhaldi hjá stöðinni og hefur m.a. verið sett rækjuvinnslulína um borð í Siglfirðing. Blængur NK er í flotkvínni og unnið er við tvo togara þýska fyrirtækisins MHF. Skipasmíðastöð í Skagen í Dan- mörku átti hagstæðasta tilboðið í endurbætur og viðhald á þremur grænlenskum ferjum og verður samið við þá stöð um að vinna verkið. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu nýlega bauð Slippstöðin Oddi hf. einnig í verkið en hafði ekki erindi sem erfiði. Morgunblaðið/Kristján Rekstur að nýju í Glerhúsinu um páskana Blómaval og Höldur taka upp samstarf FRAMKVÆMDIR á Melgerðismel- um, þar sem Iandsmót hestamanna verður haldið sumarið 1998, hafa staðið yfír frá því í haust. Ari B. Hilmarsson verktaki hefur síðustu vikur nýtt einstaka tíð og unnið við að byggja upp velli og brautir og stækka áhorfendabrekk- ur, en tilboði hans í verkið var tek- ið á sínum tíma. Stefán Erlingsson, formaður framkvæmdanefndar, sagði að til- boðið hefði verið það hagstætt að ákveðið hefði verið að gera meira á svæðinu en áætlað var í upphafi. „Helsta gagnrýni sem beinst hefur að þessu svæði er að áhorfenda- stæði séu ekki nóg góð, við erum að vinna heilmikið í þeim núna og ég er viss um að þau verði eins góð eða betri en víðast hvar annars stað- ar á landinu. Ég hef lengi haldið því fram að Melgerðismelar séu eitt- hvert besta svæði á landinu til að halda á mót, þetta er mjög skemmtilegt svæði niður við bakka Eyjafjarðarár," sagði Stefán. Generalprufa ’97 Síðasta sumar var unnið við lag- færingar á húsnæði á Melgerðis- melum og nú í sumar verður unnið að ýmiss konar frágangi. Stefnt er að því að svæðið verði nánast til- búið sumarið 1997 og er þá áætlað að halda eins konar „generalprufu". Hestamannafélög í Eyjafirði sjá um framkvæmd mótsins og fengu þau 10 milljónir króna i styrk frá Akureyrarbæ og Eyjafjarðarsveit. BLÓMAVAL og Höldur hafa ákveðið að stofna með sér félag um rekstur í svonefndu Glerhúsi við Hafnarstræti á Akureyri. Bjarni Finnsson, eigandi Blóma- vals, sagði að samningar hefðu enn ekki verið undirritaðir, en all- ar líkur bentu til að af samstarfinu yrði. Höldur hf. keypti húsið á seint á síðasta ári af Landsbank- anum. í húsinu eru tveir salir og veitingasalur í því miðju. Bjarni sagði að ráðgert væri að opna húsið í kringum páskana. Hann sagði að leitað yrði eftir starfsfólki á Akuréyri, en gera mætti ráð fyrir að um 10 störf sköpuðust í kjölfar þessarar starf- semi. Blómaval verður með sína starf- semi í suðurhluta hússins. Enn hefur ekki að fullu verið ákveðið með starfsemi í norðurhlutanum, en væntanlegt verða þar sýningar og uppákomur af ýmsu tagi, m.a. bílasýningar. „Við hugsum okkur að á sumrin verði lögð áhersla á veitingarekst- urinn og verslun fyrir ferðamenn, enda er mikið um ferðamenn á Akureyri að sumarlagi. Þá munum við leita eftir garðyrkjufólki til starfa, því við leggjum mikla áherslu á að þjónusta það fólk sem vinnur að ræktun," sagði Bjarni. Morgunblaðið/Kristján JÓNAS Vigfússon í Litla-Dal, sveitarsljóri í Hrísey og Þorvald- ur Hallsson í Ysta-Gerði voru að mæla út nýjan 250 metra keppnisvöll. Jónas tók sér sumarfrí í góða veðrinu í gær, en hann sá um skipulagningu á svæðinu. Landsmótíð undirbú- ið á Melgerðismelum / Morgunblaðið/Kristján LIF mun að nýju færast í Glerhúsið við Hafnarstræti í kjölfar samstarfs Hölds og Blómavals. Deildarstjóri íþrótta- og tóm- stundadeildar Sextán umsóknir SEXTÁN umsóknir bárust um starf deildarstjóra íþrótta- og tómstundadeildar Ákureyrar- bæjar, en umsóknarfrestur rann út í vikunni. Deildarstjórinn ber ábyrgð á starfsemi bæjarins í íþrótta- og tómstundamálum, eins og rekstri félags- og tómstundam- iðstöðva og íþróttamannvirkja. Gert er ráð fyrir að nýr deildar- stjóri taki við starfinu 1. mars næstkomandi, en Hermann Sigtryggsson, sem gengt hefur starfinu síðustu 33 ár, lætur senn af störfum. Umsóknir verða sendar sviðsstjóra félags- og fræðslu- sviðs Ákureyrarbæjar og síðan mun íþrótta- og tómstundaráð fjalla um þær og væntanlega mæla með einhvetjum umsækj- endanna við bæjarstjórn Akur- eyrar. Stjórn Iðju Mótmælir hækkun komugjalds STJÓRN Iðju, félags verk- smiðjufólks á Akureyri og ná- grenni, hefur í ályktun mót- mælt harðlega þeim hækkunum sem heilbrigðisráðherra hefur boðað á komugjaldi til sérfræð- inga og heimilislækna ásamt skerðingu á bifreiðastyrk til öryrkja og hækkun lyfjakostn- aðar meir en gert hefur verið á síðustu misserum, eins og segir í ályktun stjórnarinnar. „Hér er ríkisstjórnin enn einu sinni að ráðast á þá sem lægstu tekj- umar hafa í þjóðfélaginu,“ seg- ir þar ennfremur. Landsvirkjun Jakob og Sigurður J. í viðræðu- nefnd JAKOB Bjömsson bæjarstjóri og Sigurður J. Sigurðsson, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hafa verið tilnefndir í viðræðu- nefnd eignaraðila að Lands- virkjun, en nefndin á að íjalla um endurskoðun á eignarhaldi, rekstrarformi og hlutverki fyr- irtækisins. Iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið óskaði eftir að Akur- eyrarbær tilnefndi tvo fulltrúa í nefndina. Hádegis- tónleikar BJÖRN Steinar Sólbergsson organisti í Akureyrarkirkju heldur hádegistónleika kirkj- unni á morgun, laugardaginn 3. febrúar, kl. 12.00. Þetta eru fyrstu hádegistónleikamir eftir endurbyggingu orgels kirkjunn- ar, en það var endurvígt í lok nóvember á liðnu ári. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Johann Sebastian Bach og Louis Vierne. Lesari á tónleikunum er sr. Svavar A. Jónsson. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Að tónleikum loknum er boðið upp á léttan hádegisverð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.