Morgunblaðið - 02.02.1996, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Þorrablót á leik-
skólanum í Grindavík
Grindavík - Þorrinn gekk í
garð sl. föstudag með bónda-
degi. Krakkarnir á leikskólan-
um í Grindavík halda í þjóðlega
siði og heilsa honum með
þorrablóti að þjóðlegum sið.
Þegar fréttaritari leit við á
föstudag var ekki annað að sjá
en þeim líkaði það sem var á
boðstólum, hvort sem um var
að ræða súrsaðan lundabagga
eða hákarl, sviðasultu eða slát-
ur, allt smakkaðist það vel
miðað við viðbrögðin.
Morgunblaðið/Silli
ÞEIR sem hlutu viðurkenningar, f.v. Guðrún Helgadóttir, Sigur-
veig Gunnarsdóttir, Erna Dögg Þorvaldsdóttir, íþróttamaður
Húsavíkur 1995, og Særún Jónsdóttir.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra á fundi í Eyjum
Stóriðjan aldrei nema
ábót á atvinnulífið
Vestmannaeyjum - Finnur Ing-
ólfsson íðnaðar- og viðskiptaráð-
herra efndi til almenns fundar í
Vestmannaeyjum í gær undir yfir-
skriftinni Ný tækifæri til atvinnu-
sköpunar. Finnur flutti framsögu
á fundinum þar sem hann rakti
að hveiju verið væri að vinna á
vegum ráðuneyta hans til að skapa
tækifæri til atvinnusköpunar.
Hann sagði að nú væri unnið að
þremur meginverkefnum.
í fyrsta lagi væri um að ræða
Evrópuverkefni á sviði lítilla og
meðalstórra fyrirtækja. í öðru
lagi væri það sem hann nefndi
átak til atvinnusköpunar. Hann
sagði að með því væri stefnt að
því að hjálpa mönnum, sem hefðu
góðar hugmyndir, að koma þeim
í framkvæmd. Hingað til hefðu
Húsavík - í virðulegum fagn-
aði sem Völsungur boðaði til í
Iþróttahöllinni um síðustu
helgi tilkynnti formaðurinn,
Ingólfur Freysson, kjör
íþróttamanns Húsavíkur 1995
og var það Erna Dögg Þor-
valdsdóttir, frjálsíþróttakona.
Handknattleikskona ársins
var kjörin Særún Jónsdóttir
en Völsungsstúlkurnar urðu
Islandsmeistarar í 5. flokki á
síðasta ári. Titillinn Völsungur
hugvitsmenn oft fengið fjárhags-
aðstoð til að þróa uppfinningar
sínar en síðan hefði vantað fjár-
magn til að komast yfir loka-
þröskuldinn og koma vörunni í
framleiðslu og á markað. Markm-
iðið nú væri að vinna að því að
koma góðum hugmyndum í fram-
kvæmd og fylgja þeim betur eftir
en gert hefði verið. í þriðja lagi
væri verkefni sem hann nefndi
erlenda fjárfestingu. Hann sagði
að íslendingar gætu aldrei byggt
atvinnulífið á stóriðju, því hér
yrðu lítil og meðalstór fyrirtæki
alltaf það sem byggt yrði á. Stór-
iðjan væri einungis ábót í þessum
efnum. Því yrði að vinna að því
að fá erlenda aðila til að leggja
fjármagn í lítil eða meðalstór fyr-
irtæki hér.
ársins er veittur fyrir frábært
starf að félagsmálum og þann
titil fengu stúlkurnar Guðrún
Helgadóttir og Sigurveig
Gunnarsdóttir.
Fleiri fengu viðurkenningar
fyrir ýmislegt annað vel gert
á árinu og Ingólfur þakkaði
Kaupfélagi Þingeyinga fyrir
sérstakan stuðning á liðnum
árum og veitti hinum ýmsu
deildum félagsins viðurkenn-
ingar fyrir góðan stuðning.
Finnur sagði að sitt mat væri
það að ef efla ætti atvirinulífið á
Islandi gerðist það ekki öðruvísi
en að til kæmi samstarf fyrir-
tækja, n'kisvalds og sveitarfélaga,
því með góðu samstarfi þessara
aðila væri auðveldast að ná ár-
angri í þessum efnum.
Arni Magnússon, aðstoðarmað-
ur ráðherra, sem leiðir verkefnið
Átak til atvinnusköpunar, rakti,
að loknu erindi Finns, hvernig
unnið yrði að verkefninu.
Davíð Scheving Thorsteinsson,
sem er formaður Evrópuverkefnis-
ins, gerði síðan grein fyrir verkefn-
inu sem hann sagði að fælist með-
al annars í að styðja íslensk fyrir-
tæki við að afla sér upplýsinga
um málefni Evrópusambandsins,
koma á sambandi og samstarfi
milli íslenskra og erlendra fyrir-
tækja og þátttöku þeirra í rann-
sóknar- og þróunarverkefnum
ásamt mörgu fleiru. Nefndi hann
sem dæmi að íslenskt fyrirtæki,
sem hefði einn og hálfan starfs-
mann, hefði með stuðningi Evr-
ópuverkefnisins náð í 20 milljóna
króna styrk til verkefnis sem það
ynni að.
Að loknum framsöguerindum
voru almennar umræður og fyrir-
spurnir og tóku þingmennirnir
ísólfur Gylfi Pálmason og Guðni
Ágústsson þátt í þeim, en þeir
voru í fylgdarliði ráðherra. Ráð-
herra flutti síðan ávarp í lok fund-
arins og svaraði fyrirspurnum.
Um 60 manns mættu á fund
iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem
haldinn var í hádeginu og voru
fundarmenn mjög ánægðir með
fundinn.
*
Iþróttamaður
Húsavíkur 1995
10-30% afsláttur
af svefnsófum.
10-25% afsláttur
af hvíldarstólum.
50% afsláttur
af amerískum eldhúsboröum
og stólum.
25% afsláttur
af barnarúmum.
Litir: Hvítur og rauöur.
30% afsláttur
af amerískum handklæöum.
*
30-50% afsláttur
af ýmsum útlitsgölluðum
svefnherbergishúsgögnum.
Sófarúm meö dýnu
og rúmteppasetti
kr. 39.920.
10-50% afsláttur
af rúmteppasettum
og gardínum.
Marco
húsgagnaverslun
Langholtsvegi 111,
sími 533-3500
UNGLINGARNIR, sem fengu viðurkenningar
fyrir góðar framfarir, ástundun og árangur.
• •
Einar Oder Magnússon
valinn íþróttamaður Selfoss
Selfossi - Einar Öder Magnús-
son hestaíþróttamaður var
kjörinn íþróttamaður Selfoss
fyrir árið 1995 og fékk afhent-
ar viðurkenningar sem fylgja
þeirri útnefningu í hófi bæjar-
stjórnar Selfoss sem haldið er
árlega í tilefni þessa. Einar var
valinn úr hópi afreksíþrótta-
fólks á Selfossi sem tilnefnt er
af íþróttafélögunum. Við þetta
sama tækifæri afhenti Björn
I. Gíslason, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, styrki til
íþróttafélaga og deilda ung-
mennafélagsins ásamt því að
afhenda efnilegum unglingum
viðurkenningar fyrir góðar
framfarir, árangur og ástund-
un í íþrótt sinni.
EINAR Öder Magnússon,
íþróttamaður Selfoss 1995,
með viðurkenningar sem
fylgja titlinum.