Morgunblaðið - 02.02.1996, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 02.02.1996, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 < MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR + Sigurgeir Jóns- son fæddist á Sauðárkróki 30. ágúst 1918. Hann lést á sjúkradeild Elliheimilisins Grundar 25. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Þ. Björnsson skólastjóri frá Veðramóti í Vind- hælishreppi í A- Hún., f. 1882, d. 1964, og kona hans, Geirlaug Jó- hannesdóttir, ætt- uð úr Ejrjafirði, f. 1892, d. 1932. Sigurgeir var hinn fjórði í röð tíu systkina. Hin eru: Stefán, arkitekt, f. 1913, nú látinn, Jó- hanna Margrét, f. 1915, nú lát- in, Þorbjörg, fyrrverandi sfcóla- sljóri Hjúkrunarskóla Islands, f. 1917, Björn, læknir í Kanada, f. 1920, nú látinn, Ragnheiður Lilja, húsmóðir búsett í Amer- íku, f. 1923, Gyða, húsmóðir í Reykjavík, f. 1924, Jóhannes Geir, listmálari i Reykjavík, f. 1927, Ólína Ragnheiður, hús- móðir í Reykjavík, f. 1929, og Geirlaugur, bókbindari í Reykjavík, f. 1932. SIGURGEIR Jónsson vann mestan hluta starfsævi sinnar hjá Reykjavík- urborg sem gjaldkeri borgarverk- fræðingsembættisins eða bæjarverk- fræðings eins og það var kallað er hann hóf þar störf. Mig minnir að þetta mikilvæga embætti hafi ennþá verið hluti af borgarskrifstofunum í íteykjavíkurapóteki er Sigurgeir réðst þangað, en síðar fluttist það í Ingólfsstcæti og þaðan í Skúlatún 2. Erfitt er að gera sér grein fyrir þeirri byltingu á starfsháttum sem orðið hefur á síðustu áratugum. Ég man vel eftir þeim margbreytilegu verkum sem talið var sjálfsagt að fylgdu gjaldkerastarfinu hjá borgar- verkfræðingi. Samskipti við almenn- ing og borgarstarfsmenn voru mikil því þar fór allt í gegn sem fjármál varðaði hjá þessu umfangsmikla embætti ásamt tilheyrandi uppgjöri og bókhaldi og allt unnið í höndum. Erillinn var mikill og aðstoðarfólk ekkert. Þetta starf lék í höndum Sigurgeirs meðan hann var upp á sitt bezta en því miður varð hann að láta af því löngu fyrir venjuleg starfslok sakir heilsubrests. Þótt ég ynni lengi hjá borginni Sigurgeir stund- aði nám í Verslunar- skóla Islands og út- skrifaðist þaðan vorið 1942. Hann stofnaði aldrei heimili en eignaðist son, Kristján Skúla, nú lögfræðing, 29. mars 1951. Móðir hans er Elín Krist- bergsdóttir í Hafn- arfirði sem giftist síðar Friðriki Guð- mundssyni, tollþjóni á Keflavíkurflug- velli. Skömmu eftir að Sigurgeir útskrifaðist úr Verslunarskóla Islands vorið 1942, tók hann við gjaldkerastörfum hjá bæj- arverkfræðingi Reykjavikur en lét loks af þeim vegna heilsu- brests. Hann gekkst undir læknisaðgerð, starfaði ■ síðan um skeið hjá Skjalasafni Reykjavíkur og eftir það sem vaktmaður hjá Skeljungi en hlaut síðar að láta af því starfi þar sem hann gekk ekki heill til skógar. Sigurgeir verður jarðsung- inn frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. kynntist ég Sigurgeiri ekki fyrst á þeim bæ. Það gerðist áður, á há- skólaárum mínum er ég tengdist fjöl- skyldu hans og stofnaði heimili. Ég náði fljótt vináttusambandi við Sig- urgeir. Hann gerðist strax heima- gangur og heimilisvinur hjá okkur. Ometanleg var hjáip hans og marg- vísleg aðstoð við fátæklegt heimilis- hald. Hann var laghentur og gat gert við allt mögulegt sem bilaði og var viljugur að standa í ýmsum snún- ingum sem kom sér vel hjá bíl- og símalausu fólki. En mest virði var þó alúð sú og umhyggja sem hann sýndi börnum okkar. Hann var óþreytandi að sinna þeim, gæta þeirra, fara með þau í ökuferðir og færa þeim margvíslegan glaðning. Ef á lá var fyrr leitað til Sigurgeirs en eitthvað annað. Það var t.d. hann en ekki sjúkrabifreið sem flutti konu mína er fæðingu dóttur okkar bar brátt að. Við allt þetta bættist ánægjan af því að fá Sigurgeir í heimsókn vegna þess hvað hann gat verið skemmti- legur. í honum var áreiðanlega lista- mannseðli eins og hann átti kyn til. Á yngri árum lék hann fyrir dansi á harmonikku og tók aftur í það hljóð- færi á síðari árum. En ég hafði mest gaman af frásagnarlist hans og hermi- og kímnigáfu. Ég minnist kvöldsins er ég kom úr langri utan- landsferð og hitti á Sigurgeir heima hjá okkur. Ekki var ég néstislaus og deildum við því sem til var með okk- ur. Ég lét hann segja mér aftur og aftur, allt kvöldið, söguna af því þegar föðurbróðir hans, Haraldur Björnsson, leikari, lenti í orðaskaki við annan þekktan leikara sem vegið hafði hvasst að Haraldi. Svaraði hann með frásögn af því þegar þessi starfsbróðir hans féll í höfnina og róni dró hann upp og leikarinn faðm- aði hann grátandi og gaf honum hattinn sinn. Ég gleymi ekki hve vel Sigurgeir náði fyrirlitningunni í rödd Haralds þegar hann sagði: „Þvílíkt mannslíf, metið á einn hatt.“ Eins og verða vill þegar heilsan bilar og aldur færist yfir, voru síðari árin Sigurgeiri á ýmsan hátt erfið. Aldrei hvarf honum þó alveg gaman- semin og þegar vel stóð á náðum við stundum góðum rispum í síma þar sem hvorugur sagði orð af viti. Ef rætt var í alvöru kom skýrt fram hve mikils hann mat umönnun sonar síns, Kristjáns Skúla, sem alinn var upp hjá móður sinni og stjúpföður, en á aðdáunarverðan hátt sinnti föð- ur sínum til síðasta dags. Á nýársdag sl. þegar ég heimsótti Sigurgeir var af honum dregið en gamli neistinn kviknaði er ég færði honum smá nýársgjöf, sem hann þó sennilega hefur ekki náð að njóta, en gaman var að kveðja hann glaðan í bragði. Magnús Óskarsson. Það situr lítill drengur á útitröpp- unum og bíður eftir frænda sínum. Hann er seinn eins og oftast en það hefur drengurinn löngu lært að láta ekki á sig fá. Þeir eru nefnilega „spesíal" vinir, tveir einir á leið upp í sumarbústað. Og þótt drengur geri sér ekki fulla grein fyrir þýðingu þessa útlenda orðs sem frændi hans notar um vinskap þeirra finnur hann að svona vinátta ristir djúpt. Hann bíður sinn venjulega hálftíma eða klukkutíma og svo er haldið af stað. Samferð mín og Sigurgeirs Jóns- sonar móðurbróður míns, sem í dag verður jarðsunginn, nær svo langt aftur sem minni mitt. Sigurgeir var heimagangur á heimili okkar og tók drjúgan og góðan þátt í uppeldi okk- ar systkinanna allra þótt einn hafi ég notið þess að vera „spesíal “ vin- ur hans. Þótti mér það mikil upphefð og sagði gjarnan stoltur frá því. Þegar litið er til baka held ég að flest- ar stundirnar höfum við frændi minn átt í sumarbústaðnum eða kofanum hans við Úlfarsfell. Það var gjarnan þannig á laugardögum allt frá því ég var svona sex ára gamall að mér stóð til boða að fara upp í bústað. Það tók oft vel fram yfir hádegi að koma sér af stað og ekki flýttum við för því ævinlega fékk ég að keyra eftir að þjóðveginum sleppti. Aldrei lá okkur á og í ökukennsluna var tekinn allur sá tími sem þurfti. Þann- ig gekk þetta í mörg ár. Smátt og smátt jókst leiknin uns Sigurgeir var farinn að treysta mér að fullu fyrir akstri Skódans. Þá hef ég líklega verið orðinn 12 ára. Oft fór líka svo að iítið varð úr verki í hálfbyggðum bústaðnum. Þegar loks var komið uppeftir vorum við orðnir svangir og þurftum að fá okkur af nestinu. Við drukkum alltaf te; Sigurgeir til þess að hlífa maganum en ég vegna þess að hann drakk te. Þannig vandist ég á að drekka te þegar ég var sex ára. Svo var farið að skyggja þegar við vorum búnir með nestið og fátt annað hægt að gera í rökkrinu en að egna músagildrumar á ný og tygja sig í bæinn. Við náðum þó stundum að afreka dálítið. Á 17. júní vorum við komnir upp eftir, gagngert þeirra erinda að reisa flaggstöng og flagga í tilefni dagsins. Að loknum tesopa réðumst við í verkið og lukum því á meðan enn var bjart. Við vorum töluvert ánægðir með okkur. Heldur fór í verra þegar í ljós kom að við höfðum gleymt íslenska fánanum heima. Eft- ir nokkra leit í bústaðnum, sem reyndar var svo fullur af drasli að aldrei var hægt að ljúka smíði hans, fundum við um síðir danskan fána, lítinn og ræfilslegan. Frekar en ekki ákváðum við að flagga með honum þó þetta væri kannski ekki heppileg- asti fáninn á þessum degi. Við gátum þó flaggað. Við settum líka niður kartöflur í nokkur ár og ýmsir fleiri tóku þátt í því. Það þótti nokkuð óvenjulegt eitt árið þegar undan hnaus komu átta mýs en tvær kart- öflur. Nærri má geta hvers lags stundir þetta voru sem _við frændur áttum upp í kofa við Úlfarsfell og hversu mikils virði þær og allur okkar fé- lagsskapur hefur verið mér á þessum uppvaxtarárum. Öll sú natni, at- hygli, trúnaður og traust sem mér var sýnt er mér ógleymanlegt og verður aldrei til fulls metið. En því fór fjarri að ég væri sá eini sem átti þessu láni að fagna því Sigurgeir lagði mikla rækt við okkur öll systk- inabörnin. Sigurgeir Jónsson var myndar- maður eins og við eigum kyn til. Hann var á yngri árum eftirsóttur harmonikkuleikari á böllum í Skaga- firði og viðar og kvennagull. Hann lauk verslunarprófi og hafði með höndum umfangsmikið og erilsamt gjaldkerastarf hjá borgarverkfræð- ingnum í Reykjavík þar til heilsu- brests tók að gæta, allt of snemma. Eftir það vann hann léttari vinnu, á skjalasafni og víðar. Sigurgeir frændi var skemmtiiegur maður. Hann sagði vel frá og hló mikið. Hann hafði gaman af spjalli, hlust- aði vel og hafði betri tíma en al- gengt er. Við fórum norður á Sauðár- krók þegar ég var enn unglingur. Við vorum viku á leiðinni norður og aðra á leiðinni til baka. Það er eins og við höfum stoppað á öllum bæj- um, vinstra megin á leiðinni norður og hægra megin á suðurleið. Við skemmtum okkur vel og gáfum við öllum hestum sem við sáum rúg- brauð. Sigurgeir átti einn son, Kristján Skúia, sem hefur gætt föður síns og hlúð að honum á einstakan hátt í veikindum undanfarmna ára og gert honum þau léttari. Ég votta honum og ijölskyldu hans mína dýpstu sam- úð. Skuld mín við Sigurgeir frænda bíður annars tíma. Blessuð sé minn- ing hans. Oskar Magnússon. Foreldrar Sigurgeirs Jónssonar, Jón Björnsson skólastjóri á Sauðár- króki og kona hans Geirlaug Jóhann- esdóttir, áttu mörg börn, og andaðist móðirin að sínu yngsta barni, synin- um Geirlaugi, þegar Sigurgeir var á ungum aldri. Élztu systurnar hjálp- uðust að við heimilishald í æsku hans unz faðir hans giftist seinna. Þau systkinin eru öll mannkostafólk, og voru systur Sigurgeirs honum góðar og umhyggjusamar. Hann kunni vissuiega að meta þeirra kærleika og umönnun og talaði ætíð um þær af mikilli hlýju. Hann Sigurgeir Jónsson var skóla- bróðir mannsins míns og heimilisvin- ur hjá okkur öll okkar fyrstu búskap- arár, og sérstaklega þá er við bjugg- um miðsvæðis í Reykjavík og hann hafði fleiri tækifæri til að koma við hjá okkur. Eftir að hann hætti að vinna kom hann sjaldnar, en við heyrðum oft í honum er hann hringdi í okkur og vildi gantast við okkur og gera grín að sjálfum sér og öðr- um. Hann bar sig þá ætíð vel, þó mann grunaði að hann væri ekki alltaf í neinni blómabrekku, því hann þjáðist af miklu svefnleysi lengi í gegnum árin. Sigurgeir var á yngri árum gjörvi- legur ungur maður, vel á sig kom- inn, iðkaði íþróttir og lék m.a. bad- minton við þá kappana vini sína Guðlaug Þorvaldsson, Kristján og Pétur. Eftir að námi lauk við Versl- unarskóla Islands 1942 vann hann lengstum hjá Reykjavíkurborg, sem gjaldkeri hjá Borgarverkfræðingi unz hann varð að láta af því starfi sökum veikinda en hann þjáði þá magasár. Varð hann að taka sér frí frá störfum og vinna seinna hálft starf. SIGURGEIR JÓNSSON + Einar Sigurðsson múrarameistari fæddist í Ertu í Sel- vogi 19. desember 1913, hann andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, að morgni 24. janúar síðastliðins. Foreldr- ar Einars voru Sig- urður Jónsson bóndi í Ertu og síðar verka- maður í Hafnarfirði, d. 17.2. 1952, ogGuð- rún Þórðardóttir, d. 18.7. 1968. Einar var yngstur fjögurra systkina. Systur Einars voru Sigrún, Ingibjörg, Eggertína og fósturbróðirinn Albert, þau eru öll látin. Einar kvæntist Sigríði Jónsdóttur frá Nýjabæ í Garði 22.11. 1936 og eignuðust þau fimm börn: 1) Jón Rafn, í sam- búð með Kristrúnu Viggósdótt- ur, þau eiga eina dóttur. Af fyrra hjónabandi á Jón þijá syni og eina dóttur þar áður. Kristr- ún á tvo syni af fyrra hjóna- bandi. Jón á fjórtán barnabörn. 2) Húnbjörg, gift Garðari Gísla- syni, þau eiga þrjú börn og sjö bamabörn. 3) Hrefna, gift Þor- leifi Guðmundssyni, þau eiga þijú böm og sjö barnabörn. 4) Kristín Ása, gift Sverri Eðvalds- syni, þau eiga eina dóttur. Kristin á dóttur úr fyrri sambúð og Sverrir tvö börn af fyrra hjónabandi. 5) Guðrún, gift Pétri Árnasyni, þau eiga tvær dætur. 011 böm Einars og Sigríðar, einnig 25 af 28 barnabörn- um, búa í Hafnar- firði. Einar tók gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla 1931, sveinspróf í múraraiðn 1935 og meistarapróf í múrsmíði 1941. Hann vann við múrverk í 52 ár samfellt eða frá 1931 til 1983. Eru því margar byggingar í Hafnarfirði sem hann starfaði við. Einar var félagi í Iðnaðar- mannafélagi Hafnarfjarðar, var gjaldkeri þess í 22 ár og gerður að heiðursfélaga 1978. Einar var einn af stofnendum Meist- arafélags iðnaðarmanna í Hafn- arfirði og varð fyrsti heiðursfé- lagi þess árið 1989. Utför Einars verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. NÚ ER hann elsku afi fallinn frá, mikið á ég eftir að sakna hans, manni hefur þótt svo sjálfsagt að hafa hann hjá sér og hefur ekkert leitt hugann að því að hann fengi kallið stóra. Því varð það mikið reiðarslag þegar hann veiktist á gamlársdagsmorgun en upp frá því sá maður að hverju stefndi. Þegar ég hugsa tl baka þá átta ég mig á því hvað ég hef verið heppin að alast upp og fullorðnast með afa og ömmu alltaf í umhverf- inu, sem alltaf tóku þátt í öllu því sem ljölskyldan tók sér fyrir hend- ur og skemmtilegt er að segja frá því að ekki létu amma og afi sig vanta í tjald-útileguna um versl- unarmannahelgina í ágúst sl., þeg- ar við héldum upp á afmæli í fjöi- skyldunni. Hef ég oft sagt að þau séu örugglega með þeim elstu á landinu sem gista í tjaldi á sumrin, en þau hafa ferðast mjög mikið, bæði innanlands og utan. Nú kveð ég þig, elsku afi, í síð- asta sinn, bið Guð að styrkja hana ömmu sem var að missa sinn allra besta vin. Guð geymi þig. Ásdís Garðarsdóttir. Mig langar að minnast Einars Sigurðssonar vinar míns með nokkrum orðum. Einar var einn af þeim mönnum sem stóðu upp úr fjöldanum og setti svip á um- hverfið. Alltaf jákvæður, lífsglað- ur, og áhugasamur um alla heima og geima. Hann var sjálfskapaður heimspekingur. Ég hef þekkt Einar og Siggu síðan eg man fyrst .eftir mér á Hringbrautinni í Hafnar- firði. Ég var mikiil heimagangur hjá Einari og Siggu hans, því Krist- ín Ása dóttir þeirra var og er vin- 'kona mín. Einar var vel þekktur múrarameistari og vann við ófá hús í Hafnarfirði á sínum starfs- ferli. Mér er minnisstætt að hann var alltaf í tréklossum upp á stil- lönsum og bara yfirleitt. Sérstak- lega man ég hvað ég var hrædd um að hann dytti niður af sínu húsi þegar hann spásseraði upp á þaki á tréklossunum. Einar hafði gaman að segja sög- ur og glettast og hann átti mörg gullkorn í fórum sínum. Það h'ður varla sá dagur að ég minnist ekki og noti sjálf sumt af því sem hann sagði. Sérstaklega hefur hið aug- ljósa „Það er alltaf erfiðast að byrja“ hjálpað mér í gegnum lífið. Og oft dettur mér annað í hug: „Þeir vitlausustu fá alltaf að ráða“. Það var alltaf glettni og gleði kringum Einar, hann leit oftast á broslegu hliðar lifsins. Ég hef búið í Flórída_ í næstum 19 ár en kem alltaf til íslands ár- lega og í gegnum árin hef alltaf verið viss um að hitta Einar og Siggu. Þau voru sérstaklega sam- rýnd hjón og sýndu alltaf mikinn kærleik hvort til annars. Þeim þótti gaman að ferðast bæði innanlands og utan og fóru enn til sólarlanda á hveiju ári. Það var gaman að hitta Einar eftir sólarferðirnar, hann var ófeiminn við að sýna manni hvað hann væri brúnn á maganum. Foreldrar mínir og Ein- ar og Sigga voru nágrannar og vinir, við ferðuðumst oft saman um landið í gamla daga. Mér er sérstaklega minnisstæð hringferð- in um landið, það var mikið hlegið. Ég hitti Einar og Siggu síðast í maí síðastliðnum, þegar þau voru í útskriftarveislu sonar míns. Einar var hress að vanda og sagði þá í gríni að það væri bezt að vera jarð- aður í roki og rigningu, því þá væri maður alla vega að komast í skjól. Já, svona var hann Einar minn, alltaf að grínast um lífið og tilveruna. Það eru fáir sem hafa gefið mér eins mikið í veganesti og hann Einar minn. Ég lifi enn hvern dag með hans gullkorn að leiðarljósi. Elsku Sigga mín, Jón og allar systurnar, börn, barnabörn og barnabarnabörn, ég samhryggist ykkur á þessum tíma og megi fal- legar minningar um góðan mann vera ykkur styrkur. Kær kveðja. Jóna Ingvadóttir, Ferrante. EINAR SIG URÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.