Morgunblaðið - 02.02.1996, Side 48

Morgunblaðið - 02.02.1996, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ti'/tflhlN P&r/\- ÆTLA A€>LÍ£>A OSHHefA PAGueeeö£>&JM líkur\ ... EN /HA0UIZÁ AÐMINNA ASTþess SiM MfiOUe'A / ', JPt Gy/z/K AÐ þAkM. ) -----~—o---------- O Grettir &7Á<E>U,GfreTr\R,\ ró/wuR kassi ! ) O 1995 PAWS. INCyDi»Uibut«1 by Umversal Pross Syrxkcalo Tommi og Jenni TOM & JERRY SONDBLAOMH \ AHN FeSTHTAFTUK\ fFBSTINN/. By Hanno-Barbera 17} •g.wa wyts:y5^V Smáfólk Hundar kunna ekki að blístra. HAVIN6 HEARD THAT o 5TARTLIN6 NEW5,THE ^— 2 006 CL05ED HI5 EVE5, ANP / # • \ | UiENT BACK TO SLEEP.. o Eftir að hafa heyrt þessar óvæntu fréttir lokaði hundurinn augunum og fór aftur að sofa. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Athugasemd vegna greinar um Rússland Frá sendiherra Rússlands á íslandi: Kæri ritstjóri. í grein Ásgeirs Sverrissonar um Rússland (Morgunblaðið 28. janúar) er hinum nýja utanríkismálaráð- herra landsins, E. Primakov, lýst sem „þrautreyndum njósnara sem reis til metorða innan leyniþjón- ustunnar KGB“. Hér eru upplýsingar um raunveru- legan starfsferil hans: Fæddur í Kiev 1929. Útskrifaðist úr Moskvuháskóla með gráðu í Austuriandafræðum, stundaði framhaldsnám við Moskvu- háskóla. Ph.D. í hagfræði, meðlimur Vís- indaakademíu Sovétríkjanna og síð- an Rússlands: 1956-1970 - stundaði blaða- mennsku. 1970-1989 - starfaði í Vísinda- akademíunni í eftirfarandi stofn- unum: Stofnun fyrir heimshagfræði og alþjóðleg sambönd (1970-1977) - varaforstöðumaður, síðan forstöðu- maður (1985-1989); Stofnun fyrir Austurlandafræði, forstöðumaður (1977-1985). 1988-1991 - forseti sambands- ráðs Æðsta ráðs Sovétríkjanna, for- maður þingmannahóps Sovétríkj- anna, meðlimur í forsetaráðinu; frá 1991 - forstöðumaður Utanrík- isupplýsingaþjónustu Rússlands. Primakov er höfundur margra bóka, sérstaklega um Miðaustur- lönd, (Egyptaland, Nasser). Sæmdur mörgum viðurkenning- um og heiðursmerkjum innlendum sem erlendum meðal annars þeim sem eru kenndar við Nasser, Ávic- enna, D.Kennan. Með virðingu, J. RECHETOV, sendiherra Rússlands. Hvar á barnið að vera? Frá Rannveigu Tryggvadóttur: í ÞÆTTINUM Almannarómi á Stöð tvö 25. þ.m. var fjallað um ólög- leg fíkniefni. Þar kom fram að ætlað er að um þriðjungur unglinga hafí neytt slíkra efna eða áfengis. Eg var innilega sammála móður sem sagðist þeirrar skoðunar að fjar- vera beggja foreldra í daglangri vinnu utan heimilis auki mjög á hættuna á að unglingarnir geti farið sér að voða í neyslu hverskyns vímu- efna. Önnur sagði að forvarnirnar ættu að byija þegar barnið væri í vöggu. Þetta er hvort tveggja alveg hárrétt, því ekkert veitir barni meiri öryggiskennd en stöðug ást og um- hyggja. Það hefur verið sagt að sá einn sé sterkur sem er elskaður. í hróplegu ósamræmi við þessa niðurstöðu er auvirðilegt framferði núverandi stjórnenda Reykjavíkur- borgar sem skammast sín hreint ekkert fyrir að reka fleyg milli for- eldra og barna með því að styrkja vistun barnanna hjá dagmæðrum strax og fæðingarorlofi lýkur, eða frá sex mánaða aldri, með sex þús- und krónum á mánuði fyrir heils- dagsvistun. Hví í ósköpunum má foreldri, helst móðir, ekki njóta slíks styrks, fyrst borgin telur sig aflögufæra fyrir þennan hóp ómálgra barna sem helst kysi sér athvarf í fangi móður sinnar? Sá ágæti maður, Kristján Gunn- arsson fv. fræðslustjóri, sagði við mig á fundi fyrir allt að þremur ára- tugum að það borgaði sig betur fyrir yfirvöld að greiða mæðrum fyrir að vera heima hjá börnum sínum en að byggja stöðugt fleiri dagvistarstofn- anir. Lengi lifi óvitlaust fólk! RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR, Bjarmalandi 7,108 Rvík. Til Ríkissjónvarpsins Frá Áróru Helgadóttur: í TILEFNI af grein Jóhönnu S. Ein- arsdóttur í blaðinu 17. janúar langar mig að vekja athygli á því að stór hópur heyrnarskertra getur ekki nýtt sér talað mál, hvorki í útvarpi né sjónvarpi, hversu skýrt eða greini- lega sem talað er. Sá hópur getur einungýs nýtt sér textað efni í sjón- varpi. Ég vil því enn einu sinni fara fram á betri þjónustu við þetta fólk og krefjast þess að íslenskt efni verði textað í miklu meiri mæli en gert er. Ég er hissa á að vel menntað fólk sem starfar fyrir Heymarhjálp skuli ekki koma auga á einu leiðina sem allir heyrnarskertir og heymarlausir geta nýtt sér en það er textað efni. Aðaláherslan ætti því að vera á því að beijast fyrir réttindum allra í fé- lagi heyrnarskertra. Þeir greiða allir jöfn afnotagjöld af sjónvarpi og ættu því allir að hafa jafnan rétt og aðrir í þjóðfélaginu. Það em mannréttindi að fá að „heyra“. Ég er 72 ára og er mjög sár yfir að geta ekki notið þess að horfa á umræðuþætti, íslenskt skemmtiefni og dýralífsmyndir svo að eitthvað sé nefnt. Mér finnst eins og mér sé hent út í horn. Herra útvarpsstjóri, ég skrifaði þér fyrir nokkm síðan og bað um að áramótaskaupið yrði textað. Ég er þér svo innilega þakklát fyrir að verða við þessari bón minni en það gleymdist að texta ræðuna þína. Með kveðju og ósk um skjóta úr- lausn. ÁRÓRA HELGADÓTTIR, Efstahjalla 25, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt ( upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.