Morgunblaðið - 02.02.1996, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 51
BRIDS
Umsjön Guömundur Páll
Arnarsun
SUÐUR fær hagstætt út-
spil gegn þremur gröndum,
en vestur er ekki á því að
gefast upp:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G76
4 D43
♦ ÁKDGIO
♦ 32
Suður
♦ K842
V K1085
♦ 87
♦ ÁG6
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull 2 spaðar Dobl*
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
* neikvætt dobl.
Útspil: Hjartasjö (ijórða
hæsta).
Suður fær fyrsta slaginn
heima á hjartaáttu (tvistur
frá austri) og spilar strax
hjarta aftur. En vestur er
vel vakandi; hann rýkur upp
með ásinn (austur kastar
spaða) og skiptir yfir í lauf-
íjarka upp á kóng austurs.
Hvernig á suður að spila?
Suður á tvo möguleika.
Hann getur í fyrsta lagi
dúkkað laufið tvisvar og
spilað svo síðar spaða að
kóngnum. Þá er hann að
stóla á að skipting austur
sé 6-1-3-3. Hinn möguleik-
inn er að drepa á laufás
strax og spila tíglunum:
Norður
♦ G76
V D43
♦ ÁKDGIO
♦ 32
Vestur
♦ -
4 ÁG976
♦ 5432
♦ D1074
Austur
♦ ÁD10953
4 2
♦ 96
4 K985
Suður
4 K842
4 K1085
♦ 87
4 ÁG6
Suður hendir þremur
spöðum niður í tígul. I loka-
stöðunni á hann þá eftir
spaðakóng, KIO í hjarta og
G6 í laufi. Vestur á Gx í
hjarta og DlOx í laufi. Nú
yfirdrepur suður hjarta-
drottningu blinds og spilar
vestur inn á gosann. Fær
svo síðasta slaginn á lauf-
gosa.
Sagnhafi þar sem sagt
að gera upp við sig hvort
líklegra sé að vestur eigi
flögur eða fimm lauf.
Tvennt mælir með fjórlitn-
um: a) Vestur valdi að spila
út hjarta, en ekki laufi. b)
Vestur spilaði lauffjarkan-
um, sem greinilega er
lægsta spilið hans í litnum.
Vissulega gæti verið um
blekkingu að ræða, en það
er þó ólíklegt. Menn blekkja
ekki nema í ákveðnum til-
gangi og vestur sér varla
svo langt þegar hann spilar
laufinu í þriðja slag.
Arnað heilla
Ljósm. Nýmynd Keflavfk
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 12. ágúst sl. í Ytri-
Njarðvíkurkirkju af sr. Baldri
Rafni Sigurðssyni Eydis
Grétarsdóttir og Karl Frið-
riksson. Heimili þeirra er á
Akurbraut 3, Innri-Njarðvík.
Ljósm. Nýmynd Keflavík
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júlí sl. í Keflavík-
urkirkju af sr. Ólafi Oddi
Jónssyni Signý Ósk Mar-
inósdóttir og Haraldur R.
Hinriksson. Heimili þeirra
er á Heiðarholti 38, Keflavík.
I.jósm. Rut
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. desember sl. í
Dómkirkjunni af sr. Maríu
Ágústsdóttur Sif Einars-
dóttir og Ragpjar Sverris-
son. Heimili þeirra er á
Ljósvallagötu 8, Reykjavík.
Ljósm. Nýmynd Keflavfk
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. júlí sl. í Ytri-
Njarðvíkurkirkju af sr. Baldri
Rafni Sigurðssyni Brynja
Ingólfsdóttir og Jóhann B.
Magnússon. Heimili þeirra
er á Hlíðavegi 64, Njarðvík.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
Hvítur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á Ho-
ogovens stórmótinu í Hol-
landi í viðureign tveggja
nafnkunnra stórmeistara.
Michael Adams (2.660),
Englandi, var með hvítt og
átti leik, en Robert Hiibner
(2.635) var með svart.
24. Hxc6! — bxc6 25. Dxa6
- Bh6+ 26. f4 - Hd8 27.
Dc8 - Dh4 28. Bc7 - Hf8
29. d8=D - Dxh5 30.
Dxf8+ - Bxf8 31. Bd6 og
svartur gafst upp, því 31.
— Kg7 er svarað með 32.
Be5+ - f6 33. Dd7+
Lokastaðan í A flokki á
mótinu varð þessi: 1. ívant-
sjúk 9 v. af 13 mögulegum,
2. Anand 8 v. 3. Top-
alov 7‘A v. 4.-7. Ad-
ams, Drejev, Ivan Sok-
olov og Tivjakov 7 v.
8.-9. Piket og Shirov
6'/z v. 10. Leko 6 v.
11. Gelfand 5‘/z v.
12. -13. Húbner og van
Wely 5 v. 14. Timman
4 v.
Enn ein flöðurin í
hatt ívantsjúks, sem er
einn allra snjallasti
skákmaður sem nú er
uppi. Veikleiki hans er
taugaóstyrkurinn og líklega
ætti hann því ekki mikla
möguleika í einvígi gegn
Kasparov eða Karpov. Anand
komst vel frá mótinu. Ung-
verska undrabamið Leko fet-
aði í fótspor margra landa
sinni og varð jafntefliskóng-
ur, með tólf jafntefli og eitt
tap. Ekki efnilegt það. Timm-
an hlaut nýtt áfall.
Síðasta umferðin á Skák-
þingi Reykjavíkur fer fram í
kvöld í félagsheimili TR,
Faxafeni 12. Taflið hefst kl.
19.30 og eru áhorfendur vel-
komnir.
LEIÐRÉTT
Baksíðumynd á haus'
Mynd af tönnum á
baksíðu Morgunblaðsins í
gær birtist á haus. Beðizt
er velvirðingar á þessum
mistökum.
Eitt barnið
vantaði á mynd
Á blaðsíðu 12 í Morg-
unblaðinu í gær er mynd
úr 100 ára afmæli Úlfars
Karlssonar, þar sem hann
er umkringdur börnum
sínum. Á myndina vantaði
eitt barna hans Steindór
Úlfarsson.
Auglýsingastofur
í frétt um sameiningu
tveggja auglýsingastofa á
blaðsíðu 2b, var farið
rangt með nafn auglýs-
ingastofunnar Grafít.
Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt fæðingarár
í æviágripi um Hildigunni
Gunnarsdóttur í blaðinu
1. febrúar sl. misritaðist
fæðingarár. Hildigunnur
var sögð fædd árið 1924
en rétt er að hún var fædd
árið 1928. Hlutaðeigend-
ur eru beðnir velvirðingar
á þessum mistökum.
Pennavinir
SEXTÁN ára dönsk stúlka
vill ólm eignast penavini á
íslandi en getur ekki um
áhugamál:
Maibrít Somtner,
Mellevænget 6 I,
4600 Kege,
Denmark.
BRESKAN karlmann á
þrítugsaldri sem heimsótti
Island í fyrra langar að
eignast pennavini:
Jason Smith,
103 Monkton Road,
Muncaster,
York Y03 9AL,
Englnnd.
STJÖRNUSPÁ
cftir Frances Drakc
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur nákvæmni og
vandvirkni að leiðarljósi í
öllum þínum gerðum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Þú ættir ekki að reyna að
endurvekja gamalt ástar-
samband. Mundu hvernig-þvf
lauk. Hlustaðu á ráð vinar
sem vill þér vel.
Naut
(20. apríl - 20. maf)
Þótt viljinn sé fyrir hendi,
valda sífelldar truflanir því
að þú kemur litlu í verk í
dag. En fjármálin þróast þér
i hag.__________________
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Framkvæmdir, sem þú hefur
haft áhuga á undanfarið, fá
byr undir báða vængi þegar
áhrifamenn bjóðast til að
leggja þér lið.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) HÍtB
Ástvinir eiga góð samskipti
í dag, og sumir eru að und-
irbúa stutta helgarferð. Smá
heimilisvandi leysist sjálf-
krafa í kvöld.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú hefur tilhneigingu til að
vera með afskipti af málum,
sem koma þér ekkert við.
Hugsaðu frekar um heimili
og fjölskyldu.
yógastöðin OídmsCjós
ÁrmúCa 15,2. fuzð, sími 588 4200
‘Xynning á Xripafujóga verður (augarcfaginn 3.feB. kf. 13.
Byrjendanámskeið 6. feb.-22. feb. þri./fim. kl. 20-22.
Kennari: Ingibjörg G. Guðmundsdóttir.
Byrjendanámskeið 19. feb.-6. mars, mán./mið. kl. 20-22.
Kennari: Guðfinna Svavarsdóttir.
^öGA 4
Sólarœfingin %
IÓGASTÖDIN
HEIMSLJOS
Tegund: 2881
Stærðir: 36-41
Litir: Svartur, brúnn
Sw
Póstsendum samdægurs
Ioppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg • Sími 552 1212
Austurstræti • Sími 552 2727
Meyja
(23. ágúst - 22. septembcr)
Þeir sem leita sér að nýrri
íbúð ættu að íhuga vel tilboð
sem berst í dag. Þér hentar
vel að eiga rólegt kvöld
heima.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú þarft að takast á við gam-
alt verkenfi í dag, og færð
góða aðstoð frá starfsfélög-
um. Árangurinn verður mjög
góður.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér berst óvænt heimboð í
dag, og ættingi kemur þér
ánægjulega á óvart. Mundu
að standa við loforð sem þú
gafst ástvini.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Gefðu hæfileikum þínum og
framtakssemi tækifæri til að
njóta sín í vinnunni í dag,
og tryggðu þér þannig gott
gengi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eitthvað er á seyði í vinn-
unni, sem getur fært þér
stöðuhækkun. Þú ert vel fær
um að axla þá auknu ábyrgð,
sem því fylgir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Hugmynd vinar vekur áhuga
þinn, og þið vinnið saman að
því að koma henni í fram-
kvæmd. Þér berst óvænt
heimboð í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þú hefur ástæðu til að fagna
góðum fréttum varðandi fjár-
málin. Það er óþarfi að spilla
kvöldinu með áhyggjum út
af smámáli.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.